Tíminn - 19.11.1960, Blaðsíða 2
T í MIN N, Iaugardaginn 19. nóvember, 1960.
Samþykki Dagsbrúnar |
Verkamannafélagið Dags-
brún hélt fund í Iðnó sunnu-
daginn 13. þ.m. Eftir umræð-
ur um kjaramálin var svo-
hljóðandi tillaga samþykkt
með samhljóða atkvæðum:
„Fundur í Verkamannafél.
Dagsbrún, haldinn 13. nóv.
1960, lýsir yfir fylgi sínu við
tillögur miðstjórnar Alþýðu
sambandsins um sameiginleg
ar kröfur verkalýðsf élaganna
í kaupgjalds- og kjaramál-
um, sem hún samþykkti á
fundi sínum 19. okt. s.l.
Jafnframt felur fundurinn
félagsstjórninni að undirbúa
kröfur til breytinga á samn-
ingum félagsins í einstökum
atriðum, sem að meginefni
verði byggðar á tillögum A1
þýðusambandsins, og telur
fundurinn að hraða beri
þessu starfi svo hægt verði
að senda atvinnurekendum
kröfurnar hið fyrsta“.
Varðandi landhelgismálið
var eftirfarandi tillaga sam-
þykkt, einnig með samhljóða
atkvæðum:
„Fundur í Verkamannafél.
Dagsbrún, heldinn 13. nóv.
1960, telur að ekki komi til
mála að veita neinum erlend
um þjóðum rétt til veiða inn
an 12 mílna fiskveiðiland-
helgi íslands. Fundurinn
skorar því mjög eindregið á
ríkisstjórnina að hætta þeg-
ar í stað öllum viðræðum við
Breta um slíkar undanþágur
þeim til handa.“
Þá voru skipulagsmál Al-
þýðusambandsins einnig rædd
á fundinum, en engar sam-
þykktir um þau gerðar.
Málíundanámskeið F.U.F
í Arnessýslu
F.U.F. í Árnessýslu «?engst fyrir má'fundanámskeiði á
FlúSum í Hrunamannahreppi. Námskeiðið hefst í kvöld
kl. 9. Leiðbeinandi: Örlygur Hálfdánarson, formaður
Sambands ungra Framsóknarmanna. Þátttaka tilkynn-
ist formanni félagsins, Sigurfinni Sigurðssyni, Birtinga-
holti.
Framsóknarvist á SauSárkróki
Framsóknarfélögin í Skagafirði haida skemmtun í fé-
lagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki í kvöld og hefst
hún kl. 8,30. Þar verður spiluð Framsóknarvist. flutt
ávarp og dansað. Eiguleg spilaverðlaun.
Héraðskátíð Framsóknarfélags
Borgfirðinga
í kvöld laugardag 19. nóv. heldur Framsóknarfélag
Borgfirðinga almenna héraðshátíð að Hlöðum á Hval-
fjraðarströnd og hefst hún kl. 8,30 s.d. Ræður flytja
Halidór E. Sigurðsson, alþm. og Daníel Ágústínusson.
Ávarp frá S.U.F. flutt af varaform. Jóni Óskarssyni.
Erlingur Vigfússon, tenórsöngvari, syngur með undir-
leik Ragnars Björnssonar, og Karl Guðmundsson, gam-
anleikari fer með skemmtibætti og effirhermur
Hljómsveit úr Reykjavík leikur fyrir dansi.
Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúrr leyfir.
Bifreiðaferð verður frá Þórði Þ. Þórðarsyni — simi
17, Akranesi.
Framsóknarvist í Haínarfirði
Framsóknarmenn í Hafnarfirði ha'da skemmtun r Góð-
templarahúsinu, Hafnarfirði, f kvöld kl. 8.30. —
Spiluð verður Framsóknarvist. Enn fremur verður
kvikmyndasýning. Framsóknarfólk er hvatt til að fjöl-
menna og taka með sér gesti. — Allir velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Almennur stjórnaroáiafundur
í Vestmannaevjum
Framsóknarmenn halds almennan stjórnmálafund í
Vestmannaeyjum á morgun kl. 3,30.
Frummælendur Björn björnsson alþm., Óskar Jónsson,
fulltrúi, og formaður kjördæmasarrtbands Suðurlands-
kjördæmis, Matthías Ingibergsson, lyfsali, Selfossi.
F* U. F. í Kópavogi
Aðalfundur verður haldinn þriðiudaginn 22 nóv. í
Edduhúsinu við Lindargötu kl. 8,30 e.h.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
(Framhrld af 3 dðu)
hennar. En ég held að menn
ættu ekki að vera að skopast
að sjálfum sér með slíku hjali.
Nær væri að samúð okkar
væri með gamla fólkinu, sem
svo grátt er leikið. Eða á ég
kannske að þakka þeim, sem
gefur mér 10 kr. i dag, en tek
ur þær svo aftur — og meira
til — I kvöld? En þannig hef-
ur ríkisstjórnin búið að allri
alþýðu, með ráðstofunum sín-
um. Og raunar er það ekki
annað en það, sem allir hefðu
mátt sjá fyrir að koma mundi
við fall vinstri stjórnarinnar.
Vænti ríkisstjórnin sér ein-
hvers þakklætis, þá hlýtur
það að vera frá öðrum þing-
um en þingi alþýðunnar.
Tillögur fræðslunefndar
Tryggvi Emilsson hafði orð
fyrir nefndinni og fylgdi till.
hennar úr hlaði.
Haraldur Þorvaldsson, Akur
eyri, taldi mikla þörf á auknu
fræðslustarfi innan verkalýðs
hreyfingarinnar og hefði til-
finnanlega skort á það undan
farin ár. Þetta mál væri eitt
hið þarfasta, sem fyrir þing-
inu lægi.
Tryggvi Helgason, Akureyri;
Sigurður Kristjánsson, ísa-
firði; Þorvaldur Steingríms-
son, Reykjavík; Kristján Jens
son, Ólafsvík og Jón Rafnsson
Reykjavík, tóku mjög í sama
streng.
Eðvarð Sigurðsson benti á,
að fræðslumálin væru mikið
fjárhagsatriði og þyrftu
fræðslunefnd og fjárhags-
nefnd að koma saman og ræða
málið betur.
Árni Ágústsson: Furðulegt,
að verkalýðsfélögin skuli ekki
fyrir löngu hafa lagt á slg
þær fjárhagsbyrðar, sem
fræðslustarfsemin hefur í för
með sér, því hún er grundvöll
ur þess að félögin geti haldið
áfram framfaragöngu sinni.
Nú er alltaf að koma inn í sam
tökin nýtt fólk, jafnvel nýjar
stéttir, sem eru ýmíst í litlum
eða engum tengslum við þann
hugsunarhátt og þau megin
sjónarmið, sem verkalýðsfé-
lögin eru grundvölluð og þær
brautir, sem hún hefur þrosk
ast eftir. Mönnum er tamt að
bera fyrir sig máltækið, að
peningarnir séu afl þeirra
hluta, sem gera skal og virð-
ast margir trúa þessu. Þetta
eru þó falsyrði einber. Vinn-
an er uppspretta alls auðs og
um leið afl allra fram-
kvæmda. Það er höfuð nauð-
syn, að ■'’erkalýðshreyfingin
skilji þetta. * k
Það er talað um að alþýðu-
samtökin eigi ekki að vera póli
tísk. En hvaða gagn er okkur
að kauphækkunum, ef þær
eru teknar til baka af lög-
gjafarvaldinu? En það er ein
mitt alltaf gert ef alþýða
manna á ekki nægileg ítök inn
an þingsalanna, ef við eigum
ekki þar nógu mörgum vin-
um að mæta. Þeir menn einir
geta talað um að alþýðusam-
tökin eigi ekki að vera póli-
tísk, sem annað tveggja skilja
ekki eðli þessara mesrin mála
og samhengi eða hafa bein-
an hag af því, að málin þró-
ist á þennan veg. Einnig
þarna þarf aukna fræðslu. —
Alþýðusamtökin verða að
skilja, að á afli þeirra grund
vallast allur auður, allar fram
HafnargertS I
(FramhaJd af 3. síðu).
hluta Svarfaðardals. Eftir er að
setja upp spennistöðvar og Leggja
heimtaugar, en mun verða gext
innan skamms. Þegar því verki
lýkur fá 16 bæir rafmagn frá Lax-
árvirkjun. — Veðráttan hefur ver'-
ið með eindæmum góð og það sem
af er vetri hefur vart komið snjó-
föl og jörð auð upp í háfjöll.
— Pálmi.
Svipt kauphækku'n
(Framhald af X. síðu).
hækkun og telji heimild
skorta til slíkrar ákvörðunar
án samþykkis ráðherra.
Dóms- og kirkjumála-
ráðuneytið 18. nóv. 1960
Starfsfólkið mun að því er
skilið verður af tilkynningu’
ráðuneytisins halda þeir 4%
sem það hafði fengið áður, en
af því verða tekin 10%, sem
forstjórinn hafði veitt þeim
til samræmis við launagreiðsl
ur 5 annarra prentsmiðja.
Fundi frestað
(Firamhald af 1. síðu).
ur aðallega uppi andróður gegn
tiílögunni og töldu að hér væri
um að ræða hótun i garð ríkis-
stjórnarinnar í sambandi við kom-
ai’di samningaviðræður. Bátaeig-
cndur sögðu slíkt ekki fyrir hendi
heldur vildu þeir aðeins að þeirra
vilji 'kæmí skýrt fram. Eins og
fyrr segir urðu miklar umræður
um tillöguna en flutningsmenn
drógu hana síðar til baka, þegar
sýnt þótti að efni hennar kæmi
nógu Ijóslega fram í áliti afurða-
sölunefndar.
Á fundi í fyrrakvöld fór fram
kosning í stjórn, varastjórn, verð-
lagsráð og varaverðlagsráð.
í stjórn voru kosnir: formaður
Sverris Júliusson, Reykjavík, vara-
formaður Loftur Bjarnason, Hafn
arfirði, í aðalstjórn: Finnbogi
Guðmundsson, Reykjavík, Baldur
Guðmundsson, Reykjavík, Jón
Árnason, Akranesi, Björn Guð-
mundssonn, Vestmannaeyjum, Jón-
as Jónsson, Reykjavík, Sveinn
Benediktsson, Beykjavík, Jón Ax-
el Pétursson, Reykjavík, Ólafúr
Tr. Einarsson, Hafnarfirði. í vara
sijórn: Jón Halldórsson, Hafnar-
firði, Margeir Jónsson, Keflavík,
Jón Héðinsson, Húsavík, Matthías
Kjarnason, ísafirði, Ingvar Vil-
hjálmsson, Reykjavík, Ólafur H.
Jónsson, Reykjavik Hafsteinn
Lergþórsson, Reykjavík, Andrés
Pétursson, Akureyri. í verðlagsráð
voru kosnir: formaður Sverrir
Júlíusson, aðalráð: Baldur Guð-
mundsson, Reykjavík Valtýr Þor-
steimsson, Akureyri, Hafsteinn
Bérgþórsson, Reykjavík, Ólafur
Tr. Einarsson, Hafnarfirði. í vara-
ráð: Björn Guðmundsson, Vest-
mannaeyjum, Guðfinnur Einars-
son, Bolungarvík, Jón Halldórsson,
Hafnarfirði, Sæmunaur Auðuns-
son, Reykjavík, Ragnar Thorsteins
son, Reykjavík. Félagslegur end-
uvskoðandi: Beinteinn Bjarnason,
Hafnarfirði.
Að lokum var ákveðið að fresta
aóalfundinum til 12. des.
farir, á þeim hlýtur þaS að
byggjast, hvort hér ríkir menn
ingarþjóðfélag eða ekki.
Loks var tekin fyrir fyrsti
hluti nefndarálits allsherjar-
nefndar, frsm. Jón Ingimars-
son, Akureyri.
Fundi var haldið áfram í
gærkvöldi.
'ÆÆ
WMSS/x HRINGUNUM FRA
wml
Síldaraflinn
(Framhald af 1. síðu).
heildarmagn en gert ráS fyrir
h, u. b. 4500 tunnum.
Talsverð síld barst í gær á
Suðurnesj ahaf nir og einnig
reitingur til Vestmannaeyja. í
Keflavík lönduðu 7 hringnóta-
bátar, og var afli þeirra 250—
700 tunnur. Einn reknetabát-
ur landaði 56 tunnum. Til
Grindavíkur bárust rúmlega
2000 tunnur samtals. 3 hring-
nótabátar lönduðu þar 976
tunnum, einn bátur, sem veið
ir með trolli, kom með 82 tunn
ur, og 30 reknetabátar lönd-
uðu 965 tunnum. Síldin veidd
ist á Selvogsgrunni.
Ekki var vitað um heildar-
aflann til Akraness, en hring-
nótabátarnir öfluðu ágætlega.
Höfrungur II. landaði 1050
tunnum, Sveinn Guðmunds-
son 720, Sigurvon 700, Sigrún
450, Höfrungur 1500. Tveir rek
netabátar lönduðu 116 tunn
um samanlagt.
Úr ölum verstöðvunum virð
ist þá sögu að segja, að síldin
er léleg og smá. Hringnótasíld
in fer nærfellt öll til bræðslu.
Reknetasíldina er reynt að
frysta og salta. Þannig fór öll
reknetasíldin, sem barst til
Grindavíkur, í salt, en á Akra-
nesi var reynt að frysta það
skársta.
Brezki togarinn
(Framhald af 3. síðu).
sett upp stöðvunarmerkið K og
eftirför hafin. Kl. 20.14 var gefið
stöðvunarmerki með 4 merkjaskot
um rauðum og grænum, þar sem
togarinn sinnti þessum stöðvunar-
merkjum ekki var skotið 3 laus-
nm skotum hverju á eftir öðru,
eri hann sinnti því ekki heldur.
Ki. 20.20 var gerð eftirfarandi
slaðarákvörðun:
Ingólfshöfði R/V 262 gr. fjarl.
9 9 sml. togarinn R/V 158 gr. fjar
1. 0,6 sml., gefur það stað togar-
rns 7,2 sml. innan við fiskveiði-
takmörkin.
KI. 20.26 til kl. 20.32 var skotið
3 föstum sKotum fyrir framan tog
arann, sást þá togarinn í ljósgeisla
frá Ijóskastara varðskipsins, þá
sást að þetla var togarinn H-200
V’illiam Wilbeforce. Sáust þá
elnnig veðiarfæri net, sem virtist
vera trollpoki hangandi í fram-
ir.astri. Engin veiðarfæri hvorki
net né hlerar sáust á stb.hlið tog-
arans. Kl. 20.39 var skotið 2 laus-
um skotum að togaranum, sigldi
þá varðskipið samhliða togaranum,
smnti hann þessu engu en sigldi
í ýmsar stefnur og hringi. Á með-
■?n á eftirförinni stóð kallaði tog-
arinn í HMS Duncan og herskipið
svaraði og kvaðst koma til hans.
Kl. 2111 var eftirför hætt, sam
kvæmt fyrirmælum, voru skipin
þá stödd: Ingólfshöfði R/V 29í
gr. fjarl. 17,6 sml., gefur það stað
skipsins, 3,3 sml. utan fiskveiði
takmarkanna.
Staðarákvarðanir gerðar með
Sperry ratsjá af skipstjóra, 1. og
2. stýrimanni. Veður ANA 7. Sjór
ANA 4. Regn. Slæmt skyggni.
Jón Jónsson.
Skeyti 14. nóvember til Land
helgisgæzlunnar frá skipstjóra
varðskipsins Þór.
Tíminn hafði í gær tal af
Pétri Sigurðssyni, forstjóra Land
helgisgæzlunnar og spurði hann,
hvort slætt hefði verið eftir
vörpu togarans, þar sem grunur
lék á að hann hefði verið að
ólögmætum veiðum. Pétur kvað
það ekki vera, enda hefði til
þessa ekki verið veður til að at
hafna sig á þessum slóðum fyrr
en í gær, og þá var þar ekkert
skip tiltækt.