Tíminn - 19.11.1960, Qupperneq 3

Tíminn - 19.11.1960, Qupperneq 3
T f MIN N, laugardaginn 19. nóvember 1960. Varðmenn gæta fyrir- tækja í Reykjavík Vería vopnaíir gasbyssum og hafa hunda sér til fulltingis — Nýstárlegt fyrirtæki stotnatS Hér í bænum hefur verið stofnað nýstárlegt fyrirtæki, sem ber nafnið Varðgæzlan. Hlutverk þessa fyrirtækis í framtíðinni mun verða að vernda væntanlega viðskipta- menn, þ.e.a s. fyrirtæki fyrir innbrotum og spellvirkjum og má segja að grundvöllur ætti að vera fyrir slíku fyrir- tæki hér, þar sem stolið er og skemmt fyrir mikið fé árlega. Varðmenn fyrirtækisins munu verða vopnaðir gasbyssum og hafa Schaeferhunda sér til fulltingis þegar þar að kemur. Varðgæzlan mun hafa fullt sam- ráð við lögregluyfirvöldin. Þau fyrirtæki, sem þess óska, geta fengið varðmenn Varðgæzlunnar til þess að koma við hjá eða í byggingum sínum á næturnar. Vopnaðir gasbyssum. Eins og fyi’r segir verða varð- mennirnir, þegar þar að kemur, vopnaðir gasbyssum. Með byssum þessum er hægt að skjóta táragasi á mann í allt að 10—15 metra færi og blinda hann, en ekki valda byss urnar neinu tjóni á heilsu manna eða sjón. — Væri raunar athug- andi fyrir lögregluyfirvöldin að vopna lögregluna í Reykjavík slík- um byssum í framtiðinni. Þegar nauðsynleg leyfi hafa ver- ið fengin, mun Varðgæzlan fá sér- staklega þjálfaða Schaeferhunda frá Þýzkalandi, sem varðmenn hafa sér til fulltingis. Hundar þess- ir þefa þjófana uppi auðveldlega. Á hús þeirra fyrirtækja, sem skipta við Varðgæzluna, verður komið fyrir merki hennar. Þykir' reynsla sýna að þjófar brjótast ekki inn þar sem áhættan er mest, og ætti merkið því að vera nokkur trygging í sjálfu sér. Þá mun venja er'lendis að tryggingafélög lækka þjófnaðartryggingar sínar allverulega við þau fyrirtæki, sem láta sambærilegar stofnanir og Varðgæzluna gæta eigna sinna. — Forstjóri hins nýja fyr'irtækis er Oddgeir Oddgeirsson, en tækni- legur ráðnn. Þjóðverjinn Frank Franken, sem þessum málum er vel kunnugur frá Hambor'g. Hér er mynd af gasbyssu af þeirri gerð, sem fyrirtækið hyggst nota. Vinim lokið við hafnargerð á Dalvík Dalvík, 17. okt. — Vinnu Jauk í gær við hafnargerðina í Dalvík, en vinna við hana hófst í byrjun sep. s.l. Búið er að flytja 30 þús. rúmmetra af grjóti sem tekið var í Brim- nesárgili og hafnargarðurinn er nú orðinn um 300 metra langur. Verkinu hefur miðað mjög vel, enda engar tafir orðið af völdum veðurs. Um síðustu helgi var lokið lagn- ingu háspennuraflínu um fremsta (Framhald á 2. síðu). Brezki togarinn sigldi í krókum og hringjum Viðaukaskýrsla frá Landheigisgæzlunni Nefndarálit rædd á þingi A. S. í. í gær Fundur Alþýöusambands- þings var settur kl. 2 í gær. Voru þá tekin á dagskrá og rædd nefndarálit trygginga- og öryggismálanefndar, álit fræðslunefndar og fyrsti hluti nefndarálits allsherjarnefnd- ar. Hermann Guðmundsson, Hafnarfirði, mælti fyrir áliti öryggismálanefndar. Rakti hann álitið rækilega og skýrði það lið fyrir lið. Pétur Sigurðsson, Reykjavik taldi að óþarft væri að ræða um hið svonefnda skerðingar ákvæði tryggingarlaganna í till. nefndarinnar, því það félli úr gildi um næstu ára- mót. Þakkir óþarfar Árni Ágústsson áleit óþarfi að hafa í nefndarálitinu nokkrar þakkir til ríkisstjórn arinnar fyrir hækkun á elli- og örorkulífeyri. Lífeyririnn hefði jafnan verið of lítill. Og ef enginn hækkun hefði orðið á honum mundi hann hverfa gersamlega í dýrtíðarölduna. Og hækkunin er ekki meiri en svo, að vegna viðreisnarinnar er aðstaða þeirra, er lífeyris- ins njóta, verri en áður var. Lagði Árni til að „þakklætið“ yrði fellt niður úr tillögunni. Pétur Sigurðsson sagði að málflutningur Árna Ágústsson ar væri alrangur og las upp tölur um hækkun bóta, sem hann taldi sanna það. Pétur Pétursson, ísaf., taldi að hækkunin á ellilífeyrinum væri tekin af gamla fólkinu aftur með sköttum, ef það á annað borð væri vinnufs^rt. Var sammála Árna Ágústssyni um þakklætið til ríkisstjórn arinnar, en gat hins vegar lát ið afskiptalaust að þetta stæði í nefndarálitinu ef fylgismenn ríkisstjórnarinnar væru á ann að borð svo hégómlegir, að þetta væri þeim einhver hugg un. Kristinn Ág. Eiríksson, Rvík tók í sama streng. Þrátt fyrir hækkunina væri fólk mikið verr sett en áður. Tók sjálfan sig sem dæmi því til sönnun- ar, en Kristinn hefur verið ó- vinnufær síðan í aprílbyrjun. Það fer svo sem ekki ólaglega á því, sagði Kristinn, að menn sem sitja á Alþingi og tala hér upp á kaup, skuli vilja láta alþýðuna þakka þá mola sem til hennar eru látnir falla en svo margfaldlega teknir aftur. Kristján Guðmundsson, Eyr j arbakka, sagði að allar stéttir í landinu teldu sig nú illa ; haldnar. En þegar erfiW er fyr ir fæti hjá þjóðinni verða ail ir að fórria þó að sjálfsögð krafa sé, að þeir, sem breiðust hafa bökin, beri þyngstu byrð arnar. Kristján Jensson, Ólafsvík, lagði áherzlu á að í sambandi við væntanlega samninga sjó manna og útgerðarmanna yrði farið fram á að áhafnir allra skipa, stórra sem smárra, verði áhættutryggðar. Ætti að setja það inn í þessa ályktun. Árni Ágústsson: Eg get skil- ið að menn, sem samúð hafa með ríkisstjórninni, vilji ekki amast við þakkarorðum til (Framhald á 2. síðu). í gærkvöldi barst blaðinu eftirfarandi viðaukaskýrsla frá landhelgisgæziunni. Til: Varðskip, Reykjavík. Frá: Skipherranum á v/s Þór. Efni: Skýrsla um tilraun til að stöðva b/v William Wil- berforce H-200, send í skeyti 14. nóv. 1960, kl. 18.58. Sunnudaginn 13. nóv. 1960 var varðskipið Þór á austurleið út af Irgólfshöfða. Kl. 19.29 sást skip í ratsjá grunsamlega nærri landi. Þá var gerð eftirfarandi staðará- kvörðun: Ingólfshöfði R/V 302 gr. fjarl. 4,4 sml., skipið R/V 040 gi. fjarl. 6,2 sml., þetta gefur stað skipsins 9,6 sml. innan fiskveiði- takmarkanna. Kl. 19.48 var gerð cí’tirfarandi staðarákvörðun: Ing- ó’fshöfði R/V 273 gr. fjarl. 6,7 sml. skipið R/V 016 gr, fjarl. 2,8 sml„ gefur það stað skipsins 9,8 sml. innan við fiskveiðitakmörk- in, virtist skipið vera að snúast þarna. Kl. 19.50 var sett stefna á skipið, sem þá sneri upp að land- ir.u. Var skipið frekar illa upp- lýst en þó með vinnuljós á þil- íari. Kl. 20.00 var um 0,5 sml. í skipið, slökkti það þá 511 ljós og setti á fulla ferð til hafs. Var þá (Framhald á 2. síðu). Jafnaðarmenn og radikalir mynda minnihlutaríkisstjórn Kampmann forstætisrá<$herra, Kragh utanríkisráfi- herra — sjómenn óánægíir með fisldmálará'ðh. Kaupmannahöfn í gær — einkaskeyti til Tímans: Fyrir hádegi í dag stefndi Friðrik kcnungur leiðtogum sex stjórnmálaflokka á skrif- stofu sína. Skv. uppástungu leiðtoga radikalaflokksins var Kampmann, fyrrv. forsætisrh. jefnaðarmanna falið að reyna stjórnarmyndun og varð Kampmann við þeirri beiðni, en stjórn hans hetur setið þá daga er liðnir eru frá kosn-í ingum og það vat ekki fyrri i en í gær sem Kampmann1 | baðst formiega lausnar. i ! Að fundi þessum loknum varj i var þegar ljóst, að stjórnarsam- i starf hafði tekizt á milli jafnaðar j manna og radikala, og þegar eftir i hádegið var upplýst hverjir yrðu ! helztu ráðherrarnir í hinni nýju ríkisstjór'n: Viggo Kampmann, for- sætisráðherra, Jens Otto Kragh utanríkisráð- herra, Kjell Phil- ip fjármálaráð- herra, Bertel Dahlgaard (radi- kal) efnahags- málaráðherra, og ráðh. norrænn ar samvinnu, Ju- lius Bomholdt, fé lagsmálaráðherra, Bodil Koch kirkjumálaráðh., Hans Hækkerup, I KRAGH utanrikis- ráðherra DAHLGAARD, efnahagsmálaráðherra dómsmálaráðherra, Kai Lindberg, ráðherra opinb. mála, Poul Hans-; en varnarmálaráðherra (radikai)/ Kaj Bundvad verkalýðsmálaráð- herra, Karl Skytte (radikal) land- búnaðarráðherra, Hans R. Knud- sen, innanríkisráðherra og Lars P. Jensen, húsnæðismálaráðherra. Óánægja meðal sjómanna. Fréttir fr'á Skagen herma, að skipun radikalans Á. C. Normann í embætti fiskimálaráðherra hafi vakið mikla gremju meðal sjó- manna og halda samtþk sjómanna þar mótmælafund á morgun, en fastlega hafði verið búizt við því að fyrrv. fiskimálaráðherra Chr. Christiansen mundi áfram skipa það sæti. Talið er, að innan radi- kalaflokksins hafi vei’ið um það skiptar skoðanir, hvort efna ætti til áframhaldandi stjórnarsam- vinnu við jafnaðar'menn, þær raddir heyrðust, að sú samvinna hefði ekki borið alltof góðan árang ur í síðustu kosnngum, en sú skoð un varð þó ofan á, að flokkurinn yrði að líta svo á, að meiri hluti þeirr'a kjósenda er flokknum greiddu atkvæði hafi gert það á þeirra forsendu, að stjórnarsam- starf flokkanna myndi halda á- fram. Nixon vann Kaliforniu WASHINGTON, 17.11. — Eftu talningu flestra utankjörstaðaat- kvæða í Kaliforníu hefur komið í Ijós, að Nixon hefur hrifsáð Kaliforníu úr höndum Kennedys og er nú með 13 þús. atkvæða meirihluta í fylkinu, en talningu er þó ekki lokið ehn. Tapar Kenn edy þar 32 kjörmönnum í hendur Nixons, og hefur því nú 300 kjör- menn, sem er meira en honum nægir. Þegar úrslit voru tilkynnt í Kaliforníu var Kanncdy í 35 þús. atkv. meirihluta. Síðustu heildartölur í Bandaríkjunum sýna aðeins 235 þús. atkvæða mun á milli Kennedys og Nixons og hefur því bilið enn minnkað.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.