Tíminn - 19.11.1960, Síða 11
TÍM IN N, laugardaginn 19. nóvember 1960.
11
0 p n u m í d a g
nýja verzlun
í Austurstræti 22
(áður HaraKdarbúð)
Uls konr karlmannafatnaður og drengjafatnaður
EINUNGIS ÚRYALSVÖRUR
HERRABÚÐIN
Fyrir nokkru leit útlending-
ur einn inn á ritstjórnar-
skrifstofu Tímans og rakti
raunir sínar Hann hafði held-
ur betur orðið fyrir barðinu
á almannarómi hév í bæ og bar
sig illa. Hann kom hingað í
því skyni að leggja stund á
islenzkunám við Háskólann en
fékk orð á sig fyrir ýmis konar
glæpsamlegt athæfi svo hann
mátti varla um frjálst höfuð
strjúka á íímabili
Salvatore Tola bað okkur að
rekja sögu s:na ef það mætti verða
til þess að hreinsa hann af áburði
aimennings.
Eiturlyf og kaffihús
Tola hefur dvalizt hér á landi
undanfarin ár og er innritaður
stúdent við Háskóla íslands. Hann
hefur einnig unnið að listiðnaði til
að sjá sjálfum sér tarborða, því
h inn nýtur ekki opinbers styrks til
náms. En Salvatore Tola hafði
s'iamma stund dvalizt hér við nám
er sá kvittur kom upp að hann
væri hættulegur eiturlyfjasali og
hefði bækisföð í litlu kaffihúsi í
rniðbænum.
HvaS hefurSu selt margar
stúlkur í dag?
Smám saman magnaðist þessi
oiðrómur og fékk byr undir báða
vængi. Um þessar mundir gengu
miklar sögur um eiturlyfjabrask í
bænum, í blöðum og útvarpi var
frá því skýrt að eiturlyfjasalar
léku lausum hala. Af einhverjum
orsökum beindist athygli manna að
Srlvatore Tola í þessu sambandi,
álitu sumir að hann væri pottur-
inn og pannan í eiturlyfjahringn-
um.
— Ég skil ekki í þvi hvers vegna
var veitzt að mér þessu máli,
sagði Salvatore, það var líka í há-
niælum haft að ég útvegaði mönn-
uir. kvenmann yfir nóttina. Ef til
v;li er skýringin þessi: ég bjó til
úr leir Jit.lar stúlkumyndir. Vin-
kona mín sem gekk um beina í
kaffihúsinu spurði mig stundum
hvað ég hefði selí margar stúlkur
þennan daginn. Einhver hefur mis-
sl-ilið þessi orðaskipti okkar og
þannig hefur orðrómurinn komizt
á kreik.
g er hvorki eiturlyfja-
sali ué kvennabraskari
segir ítalinn Salvatore Tola
Sfungið í kjallarann
Ég varð jafnvel fyrir ofsóknum
og líkamlegum meiðingum vegna
þessa rógs, hélt Sahatore áfram,
það var brívegis ráðizt á mig á
götu. f eitt ckipti gaf árásarmaður-
irn lögregiunni þá skýringu að
hann hefði viljað lumbra á eitur-
lyfjasalanum. í annað sinn réðust
á mig tveir fordrukknir menn og
þtim skiptum lauk svo að mér var
stungið í kjallarann en þeim
sleppt. Ég skil ekki svona réttar-
far. Ég varð að liggja á Landspítal-
anum eftir eina árásina. Ég særð-
is’- á fæti í styrjöldínni og hef ekki
gengið heill til skógar síðan.
Salvatore sýnir okkur vottorð
um að hann hafi tekið þátt í því
með bandamönnum að frelsa Ítalíu 1
úr klóm nazista, vottorðið er
st;mplað af Alexander marskálki
Breta. Hann sýnir okkur einnig
skjal þess efnis að hann hafi verið
rekinn úr -asistaflokknum ítalska
árið 1942 og gefið aö sök að hann
hefði hluscað á mann hallmæla
Mussolini ási þess að andmæla.
— Það var ekki nema tylli-
! ástæða, sagði Salvatore, við vorum
nokkrir stúdentar sem börðumst
leynilega gegn stjórninni. Þá var
ég 21 árs að aldri.
Trúlofunin fór út um þúfur
Og nú víkur sögunni aftur að
eiturlyfjaorðrómnum.
— Ég var trúlofaður íslenzkri
stúlku, sagði Salvatore Tola, hún
frétti að ég væri grunaður um eit-
urlyfjasölu. Hún fór til útlendinga-
efdrlitsins og spurði hvort þetta
væri satt. Henni voru gefin loðin
svör: „Hann var sterklega grunað-
ur, en við getum ekkert sannað.“
Þetta varð til þess að stúlkan sleit
tvúlofuninni. — f dagblaði var
s.íýrt frá því að eilendur eitur-
lyfjasali stundaði verzlun í bæn-
um og seldi jafnvel ungum stúlk-
um lyf til fóstureyðingar. Salva-
tore segir að fólk hafi hallazt að
því að þar væri átt við sig. Salva-
tcre sagði, að orðrómurinn væri
nú að mestu liðinn undir lok en
þó væri svo komið að þeir sem
fyrrum voru vinir hans forðuðu
sér nú undan ef þeir sæju hann á
giHu.
Vill vera i friði
Salvatore Tola kveður nú svo
komið fyrir sér að hann eigi í vök
að verjast og vill hreinsa sig af
þfssum áburði. Því vill hann lýsa
því yfir opinberlaga að hann hafi
aidrei verið riðinn við eiturlyfja-
söiu né kv-mnabrask
Tslendingar eru lýðræðisþjóð
og hafa iengi barizt fyrir frelsi
sinu, sagði Salvatore, það er ekki
i anda þeirra að ofsækja saklausan
mann með rógburði og illmælum.
Éa óska bess eins að fá að vera
í friði og scunda nám mitt og starf
ems og frjáls maður.
wiiwwwwwwmiiwiiiw
Prentum fyrir yður
smekklega
og fljótlega
Loks eru komin á markaðinn kort, sem allir geta með gleði og kinnroðalaust, sent með kveðju til vina sinna,
bæði innanlands og utan.
Hér er um að ræða eftirprentanir af nokkrum listaverkum hins þekkta og vinsæla iistamanns, Sigfúsar Hall-
dórssonar, og má segja, að nafn hans eitt sé nægileg trygging fyrir gæðum verksins. Myndirnar eru af ýmsum
failegustu og sérstæðustu stöðum höfuðborgarinnar, prentaðar i rauðbrúnum lit á vandaðan pappír. Prentun ann-
aðist hlutafélagið Prentverk, en myndamót voru gerð í prentmyndastofunni Litróf.
Það er gleðiiegt að fá nú á markaðinn kort, sem ein útaf fyrir sig, hafa eitthvert gildi, bæði fyrir sendanda
og viðtakanda, og þakklætisveid af listamanninum að gefa þannig fjöldanum kost á að eignast verk sín á jafn
ódýran hátt.
Verzlunarfélagið Festi annast alla heildsöludrelfingu kortanna.
PRENTVERK
KLAPPARSTÍG 40 -- SlMI 1 94 45
(