Tíminn - 16.12.1960, Blaðsíða 16
285. bla».
Föstudaginn 16. desember 1960.
Æskulýðsfélag
Sauðárkrókskirkju
SAUÐÁRKROKI, 14. des. —
Nýlega var, fyrir forgöngu
sr. Þóris Stephens^ns, sóknar
prests á Sauðárkróki, stofn-
að Æskulýðsfélag Sauðár-
krókskirkju með unglingum
þeim, er fermdust þar s.l. vor.
Líknarsjóður
og jólakort
Margir senda vinum sínum
jólakort, og i buðunum eru til
af þeim margar tegundir. Mig
langar til að vekja athygli á
því, að líknarsjóður Hallgríms
kirkju í Reykjavík hefur gefið
út jólakort, sem eru mjög
smekkleg og auk þess ódýr,
aðeins þrjár krónur. — Fram
an á þeim er einföld og falleg
jólamynd eftir ungan, íslenzk
an listamann, Bjarna Jónsson,
en innan á kortinu er mynd
af Kristslíkneskju Einars Jóns
sonar og vers úr Passíusálmum
séra Hallgríms. — Kortin fást
á eftirtöldum stöðum: Verzl.
Ámunda Árnasonar, Hverfis-
götu 37; Sokkabúðinni, Lauga
vegi 42; Þorsteinsbúð, Snorra
braut 61; Verzlun Páls Hall-
björns, Leifsgötu 32; Verzl.
Rangá, Skipasundi 56; Lauga
búðinni, Laugateigi 37; húsi
KFUM; Kristniboðshúsinu
Betaníu, og í Hallgrímskirkju.
Jakob Jónsson.
Nýlega var nýtf verzlunarhús
teklS í notkun í Steinnesi á Sel-
tjarnarnesi, elgn Sigurðar Jóns-
sonar kaupmanns. Hann hefur
lengl rekið verzlun í Steinnesi,
en er nú fluttur í nýtt hús,
handan við götuna þar sem
gamla verzlunin stóð. Fyrirhug-
að er, að í þessu verzlunarhúsi
verði mjólkur, kjöt og fiskbúð,
en enn sem komið er er þar
aðeins nýlendu- og smávöruverzl
un ,rekin með kjörbúðarsniSi.
(Ljósm.: Tíminn, KM).
Var endanlega frá stofnun fé
lagsins gengið við hátíða-
messu í kirkjunni sunnudag-
inn 11. þ.m. Eru þá starfandi
sex slík æskulýðsfélög í Hóla
stifti.
Hinn ungi og áhugasami
sóknarprestur á Sauðárkróki
sr. Þórir Stephensen, gekkst
fyrir þessari félagsstofnun.
Hann fermdi börn á Sauöár-
króki í fyrsta sinni í vor og
ákvað þá þegar að stofna með
þeim hópi æskulýðsfélag kirkj
Unnar. Var stofnfundur fé-
lagsins haldinn 10. des s.l. og
þá kosin stjórn. Félagsfor-
ingi er Ólafur Grétar Guð-
mundsson; Jóhanna Everts-
dóttir ritari, Ólafur Víðir
Björnsson gjaldkeri og með-
stjórnendur Kristín Graham
og Gísli Ólafsson.
Daginn eftir var stofnun fé
lagsins lýst við hátíðamessu
í Sauðárkrókskirkju. Sr. Þórir
Stephensen lýsti tildrögum
að stofnun félagsins og las
upp lög þess. Því næst fóru
allir viðstaddir félagar með
fermingarheitið og að því
loknu bar félagsformaðurinn
kertaljós frá altari að kórdyr
um, þar sem hann tendraði
með því þrjú ljós til þess að
minna á og undirstrika hinn
þríþætta tilgang félagsins: að
vinna fyrir guð, náungann og
ættjörðina, — og lýsti yfir að
félagið væri stofnað. Sóknar
presturinn prédikaði og lagði
út af sögunni um ríka ung-
linginn.
Tilgangur hins nýstofnaða
félags er í stuttu máli sá, að
vinna að hugsjón og málefn-
um kirkju og kristindóms
meðal ungs fólks og hvetja
það til að starfa í kirkjunni.
Sex slík æskulýðsfélög eru nú
starfandi í Hólastifti. Hafa
þau samband sín á milli og
er sr. Pétur Sigurgeirsson á
Akureyri formaður þess.
G.Ó.
— 9 dagar til jóla —
Pottaskefill kemur í dag
Sá fimmti, Pottaskefiii,
var skrítið kuldastrá.
— Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.
Þau ruku upp, til að gá að,
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti 'ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.
(Poitaskefill var líka
nefndur Pottasíeikir).
Teikning eftir Tryggva Maqnússon.
Vísurnar gerði Jóhannes úr Kötlum.
Hæsti vinningur happdrættis
Háskólans verður 1 milljón kr.
Vinningum fjölgar aí mun og hækka einnig
Ráðamenn Happdrættis Há-
skólans ræddu við blaðamenn
í fyrradag og skýrðu frá
ýmsum nýjungum í starf-
semi happdrættisins og
rekstri þess síðastliðið ár. —
Próf. Ármann Snævárr', há-
skólarektor, sagði frá því að
ágóða happdrættisins væri
eingöngu varið til vísindalegra
þarfa og til að styðja vísinda
lega kennslu í landinu. Þann
ig væri næsta verkefni happ
drættisins að reisa hús fyrir
læknadeild Háskólans.
Páll H. Pálsson framkv.stj.
happdrættisins skýrði frá því
að á næsta ári yrði hæsti vinn
ingur happdrættisins hvorki
meira né minna en ein millj.
króna. Að auki veröur vinn-
ingum fjölgað að miklum mun
og hækkaðir að sama skapi.
Lotterí til eflingar
háskóla
Próf. Alexander Jóhannes-
son, fyrrum háskólarektor. var
einnig á fundinum með blaða
mönnum og rakti nokkuð upp
haf og sögu happdrættisins.
Sýndi hann blaðamönnum til
gamans happdrættismiða frá
árinu 1894, en þá hafði „Hið
íslenzka kvenfélag“ efnt til
„lotterís til eflingar Háskóla
fslánds". Vinningar í lotterí-
inu voru gipsmynd af gyðj unni
Iðunni, kvensöðull, nýr, með
ensku lagi og silfurmatskeið-
ar.
Þungur róður í fyrstu
Próf. Alexander gat þess að
miklir örðugleikar hefðu verið
í sambandi við stofnun happ-
drættisins árið 1934 og ekki
gengið þrautalaust að koma
því á fót. Voru þingmenn treg
ir til að bera fram frumvarp
um stofnun þess, unz einn af
þingmönnum Framsóknar-
flokksins, Halldór Stefánsson,
fulltrúi Norðmýlinga varð til
þess. — Fyrsta árið varð á-
góði af happdrættinu 90 þús.
krónur, annað árið 200 þús.
og síðan hefur hagur þess ver
ið góður. Háskólahappdrætt-
ið verður þó að greiða 20% af
tekjum sínum í sérleyfisgjald
til ríkisins en öðrum happ-
drættum á íslandi er ekki
gert að greiða slikt gjald.
Lyftistöng visinda
Pétur Sigurðsson háskóla-
ritari hefur verið framkv.stj.
happdrættisins allt frá upp-
hafi. Á þeim tíma hefur hag
ur þess dafnað og blómgazt
og mörgu stórvirkinu verið
hrundið í framkvæmd fyrir til
stuðlan þess. Er óhætt að full
yrða að happdrættið hefur
verið vísindum íslands meiri
lyftistöng en tölum verður
talið.
Eins og áður segir, verða
miklar og merkar breytingar
á starfsemi og tilhögun happ-
drættisins og eru þessar helzt
ar:
1: Hæsti vinningurinn verð
ur ein milljón króna. Verður
sá vinningur dreginn út í des
ember. Eflaust mun sumum
blöskra að hafa svona háa upp
hæð í einum vinningi, en ef
miðað er við verðgildi pen-
inga nú á dögum, og svo aftur
á móti við verðgildi peninga
fyrir 26 árum, þegar happ-
drættið greiddi 50.000 krónur
í hæstan vinning, þá munu
50.000 krónurnar hafa verið
meira virði en milljónin í dag.
2: í janúar verður hæsti
vinningurinn hálf milljón kr.
eins og undanfarin ár.
3: í 2. til 11. flokki verða
hæstu vinningarnir 200.000
krónur. Auk þess verða 100.000
króna vinningar í öllum flokk
um.
4: 10.000 króna vinningun-
um fjölgar úr 102 í 427. Og
5.000 króna vinningunum
fjölgar úr 240 í 1.606. Telur
stjórn happdrættisins, að við
skiptavinirnir muni fagna
þessari fjölgun fimm og tíu
þúsund króna vinninga mjög.
Happdrætti Háskólans hef
ur aldrei boðið upp á jafn
glæsilega vinningaskrá ,iem
(Framhald á 2 siðu).
Hægviðri
Spáin er: Hæg austan- og
nourðaustanátt, skýjað en
úrkomulaust að mestu.
Hiti nálægt frostmarki.
Viðrar vel til að fara í
búðlr.