Tíminn - 01.02.1961, Blaðsíða 1

Tíminn - 01.02.1961, Blaðsíða 1
Áskriffaráíminn er 1 2323 Miðvönidagnr 1. febrúar 1961. Stefnir L.Í.Ú. útvegsmönnum á Austfjörðum? Útgerðarmenn í Neskaupstað og á Eskifirði sakaðir um að hafa gert óheimila samninga Þessar þrjár fallegu stúlkur, sem sjást hér á hlaupaskautum, voru meSal þátttakenda á Skauta móti íslands, sem fór fram á Ak- ureyri um síðustu helgi. Þær heita Anna, Edda og Inga, og voru reglulega duglegar á mót- inu, þótt árangur þelrra væri náttúrlega ekki í neinum heims- klassa. Skaútahlaup hafa á slSari árum hafizt nokkuS til vegs og virSingar aS nýju, og þaS er ánægjulegt til þess aS vita, aS stúlkur skuli einnig leggja stund á þessa fögru og heilnæmu (þrótt. VIS segjum nánar frá skautamót- inu á íþróttasiSu blaSsins I dag. Tjósm.: Gunnl. G. Krlstinsson). Á skotspónum Sagt er, að sjómenn geri sér títt ferð til námsmanna hér í Reykjavík, og selji þeim sparimerki sín á hálf- virði. Þá sjaldan sjómenn eru í landi, þykjast þeir ekki hafa tíma til að eiga vð skrifstofu- báknið um endurgreiðslu. — Námsmennirnir hagnast hins vegar vel og fá sparimerkin endurgreidd að fullu í bein- hörðum peningum. Gárungarnir segja, að þegar sýningum lýkur á leikritinu „Þjónar drottins", sem fjall- ar um rógbréfamál Heland- ers biskups hins sænska, verði framhaldsleikritið „Morðbréfamálið" sett á svið Fleygðu sölufisk- inum fyrir borð Hrakleg söIuferS togarans Víkings til Þýzkalands Enn er allt í óvissu um það, hvernig deilurnar um kaup og kjör sjómanna víða um land leysast. Nú er þó alls staðar róið upp á væntanlega samn- inga, þar sem samningar hafa ekki þegar tekizt, nema í Vest mannaeyjum, þar sem bæði er róðrarbann og verkfall land- verkafólks, og auk þess yfir- vofandi verkfall yfirmanna, en Landssamband íslenzkra út- vegsmanna hefur lýst ólöglega samninga, er gerðir hafa verið á tvefmur stöðum á Austfjörð um. Að undanförnu hefur verið verk fall allvíðast á Austfjörðum. Höfðu útvegsmenn þar veitt L.f.Ú. óaftur kræft umboð til samnihga, að því er forráðamenn þeirra samtaka telja. Síðan sömdu útvegsmenn í Neskaupstað og á Eskifirði við sam tök sjómanna þar eystra upp á eigin spýtur um mun hagstæðari kjör fyrir sjcmennina en gert var i?ð fyrir í landssamningnum, sem þeir höfnuðu. Var í Neskaupstað samið um skiptaprósentuna 32,2, en í landssamningnum er hún 29,5. •i'afnframt fengu sjómenn í Nes- kaupstað allmikla hækkun á fisk- verðinu. Á Eskifirði var samið um skiptaprósentu landssamningsins, en fiskvei'ð hækkað og sjófatapen ingum heitið, svo að verulegu nam. Þessa samninga telur L.Í.Ú. ólöglega vegna umboðs þess, er það hafði fengið, og getur svo farið, að L.f.Ú. stefni útvegs- mönnum eystra fyrir samnings- rof við sig, Allt í gangi eystra. Á -Djúpavogi var ekki verkfall nema þrjá daga og hófust þar síð an róðrar upp á væntanlega samn inga. Á Breiðdalsvík var samið, áður en samningarnir vora gerðir i Reykjavík, og á Reyðarfirði kom aldrei til neinnar stöðvunar. (Framhald á 2. síðu.) Aukinn ferðamanna- straumur til Græn- lands Kaupmannahöfn í gær — einka skeyti til ’Tímans: — Berlingske Tidende skýra svo frá í dag, að fleiri ferðamenn muni heimsækja Grænland á sumri komanda en nokkru sinni fyrr. Þegar eru skipu lagðar fjórar flugferðir með 300 ferðamönnum hvaðanæva að úr heiminum. Ferðamannasti'aumur- inn hefst 27. júní og verður flogið til Narsarssuak, en ferðast þaðan um vesturströndina. Svo bar við í síðustu sölu- ferð Akranesstogarans Víkings til Þýzkalands, að 15—20 lest- ir af fiski gleymdust í lest tog arans, — og uppgötvaðist gleymskan ekki fyrr en komið var á haf út á 'heimleið. i Þegar komið er til Þýzka- lands í söluferðum, er fyrir- tæki því, sem annast uppskip unina, fengin teikning, þar sem tilgreindar eru fisktegund ir í stíum í lest. Það er síðan hlutverk hins þýzka fyrirtæk is að koma farminum á land og hafa lokið því fyrir klukk an sjö að morgni, er læknar skoða fiskinn og sala hefst. Fleygt í sjóinn Það var ekki fyrr en á leið- iúni heim, að það uppgötvað- ist, hvílík mistök höfðu orðið við uppskipunina. Verðmæti þess fisks, sem þannig fór forgörðum, er lauslega áætl- að 150—200 þúsund krónur, tmmmmmmammmm og er þetta þeim mun tilfinn anlegra, að togarinn mun hvergi nærri hafa verið full- hlaðinn í þessari söluferð. Fiskinum mun hafa verið fleygt í sjóinn. Reru frá Siglufirði en lentu á ísafirði Fiskibáturinn Hringur frá Siglufirði tór í róður úr heima höfn á miðvikudagskvöldið, og lögðu skipverjar línuna vestur á Hornbanka. Á fimmtudaginn tóku þeir til ■ao di'aga iínuna, og mun það hafa gengið sæmilega. Um kvöldið fór hins vegar að hvessa, og gerði siórviðri af austri. Var þá ekki vm annað að ræða fyrir skip- verja á Hring en hleypa undan oj, lönduðu þeir aflanum á ísa- firði á föstudagsmorguninn. Voru þeir í bezta yfirlæti á ísafirði, en voru í gær búnir að fá línuna beitta og ætluðu að leggja á heim- leiðinnj til Siglufjarðar. GS. Hvellunum dular- fullu fjölgar enn Glumdu við 5 um hálf tvö-leytið Eins og TÍMINN skýrði frá í gær, heyrðist dularfullur hvellur víða í vesturbænum s.l. laugardagskvöld. í gær hringdi kona ein til blaðsins, og hafði hún heyrt 4—5 hvelli síðar sömu nótt. Kona þessi á heima í Miðstræti 10. Hún var ein heima þessa nótt, var háttuð og vakti við lestur. Allt í einu kvað við ógn arhvellur, og síðan hver af öðrum, hún heldur 5 alls. Þegar nokkrir voru komnir, fór hún fram úr til þess að gá hvað væri á seyði, og gekk að glugga. í sama bili kvað við hinn síðasti hvellur, og sá hún þá eldglæringar yfir Næpunni, en svo nefnist hús eitt á horni Skálholtsstígs og Þing- haltsstrætis. Virtust henni hvellirnir koma i átt frá Tjöminni. Heyrði ekkert Henni varð fyrst fyrir að hringja á Borgarhílastöðina, en sonur hennar vinnur á þeirri stöð, og var klukkan þá 1.30. Sonur hennar var þó ekki við á stöðinni, og af- greiðslumaðurinn þar sagðist ekki hafa heyrt neina hvelli. Engar upplýsingar ^ Blaðið hafði samband við Ólaf Jónsson, lögreglufulltrúa, og sagði hann, að þrátt fyrir eftirgrennslanir hefði lögregl an engar skýringar fengið á Brottflutningur gæzluliðsins þegar hafinn ■OOTMMSl I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.