Tíminn - 01.02.1961, Blaðsíða 2
s
T.ÍMINN, miSvlkudagiiui 1. febrúar .1961.
Á níunda þúsund tunn-
ur komu á land í gær
Það hvessti á bátana í fyrrinótt, og
sumir rifu nætur
Síldveiðin hélt áfram í fyrra
kvöld eins og vænzt hafði ver
iS, og fengu þá um 30 bátar
einhvern afla, en í gær komu
samtals á land viS Faxaflóa
um hálft níunda þúsund tunn
ur. Er þetta nokkru minna
magn en daginn áSur.
f gærkvcldl voru allir bátar á
sjó, en ekki veiðiveSur. Var þó
búizt við, að lygndi, en veðurútlit
var þó ekki ,að öllu leyti gott, því
að gert var ráð fyrlr kalda síðari
liluta nætur.
Nætur rifnuSu
Síldin í fyrxakvöld veiddist á
sömu slóðum og kvöldið áður, 15—
20 mílur út af Reykjanesi, norður
af Eldey. Veiðiskapurinn sfcóð ekki
lengi, því að um miðnæturskeið
hvessti af norðri eða norðaustri,
og varð ekki af eftir það. Ýmsir
bátar voru með köst úti, er veðrið
kom að þeim. Auðunn frá Hafnar-
firði var með 1000 mála kast í nót-
inni, þegar hvessti. Voru skipverj
ar búnir að háfa 400 tunnur áður
en nótin sprakk, en eftir það náðu
þeir um 100 tunnum. Hjá Eldborg
inni slitnuðu hanafæturnir, og
missti hún allt kastið. Gjafar frá
Keflavík reif einnig nótina, og eitt
hvað var að hjá Ófeigi II frá Vest-
mannaeyjum.
Auk Auðuns kom Faxaborg í
gær til Hafnarfjarðar með síld,
600 tunnur. Mest fór í sal't og fryst
ingu, sumt í bræðslu. Til Keflavik
ur komu í gær 7 bátar með 2300
tunnur. Var þetta talin ágæt síld
og einhver hin bezta í sait, sem
komið hefur. Til Sandgerðis komu
í gær' þrír bátar með 800 tunnur.
Víðir II var þeirra hæstur með
537.
Farþegarnir
á land í dag
Santa María fær eldsneyti og vistir í Recife
Recife, Brazilíu — NTB, 31.
jan. — Samkvæmt samningi
þeirra Galvaos höfuðsmanns
og bandaríska flotaforingjöns
Allan Smiths, mun nú ákveðið
að farþegarnir á portúgalska
skemmtiferðaskipinu Santa
Maria, fari á land í hafnar-
Stúdentar ræða
bjórinn
Mikill áhugi ríkir meðal
háskólastúdenta um frumvarp
á Alþingi um bruggun og sölu
áfengs öls. Eru greinir með
mönnum, og hyggja margir
gott til glóðarinnar að hefja
ölþamb að hætti erlendra
stúdenta, en bindindishreyf-
ingunni hefur vaxið mjög fisk
ur um hrygg undanfarið, og
telja áhangendur hennar, að
stúdentum oð þjóðinni allri sé
stefnt í bráðan voða, ef frum
varpið verður samþykkt.
Til þess að gefa mönnum
kost á að leiða saman hesta
sína, hefur Stúdentafélag Há
skólans ákveðið að efna til
umræðufundar um þetta mál.
miðvikudaginn 1. febrúar kl.
8.30 í 1. kennslustofu Háskól
ans.
Framsögumenn af hálfu öl-
vina verða Jóii E. Ragnarsson,
stud. jur. og Ásmundur Einars
son, stúd júr. Af hálfu and-
stæðinga, Bolli Gústafsson,
stud. theol., og Bjöm Frið-
finnsson, stud. jur.
borginni Recife á morgun —
en flotaforinginn fór í dögun
í morgun um borð í Santa
Maria til viðræðna við hinn
portúgalska höfuðsmann.
Að loknu þriggja klukkustunda
u»mtali lét Smith flotaforingi þau
orð falía, að samningur þeirra væri
þó ekki eins skýr og æskilegt væri
— m.a. virtist þá ekki full-ljóst,
hiort brasilísk s'tjórnarvöld leyfðu
óhindraða siglingu Santa Maríu
innan landbelgi Brasilíu.
Yfirlýsing utanríkisráð-
herrans.
Hinn nýi utanríkisráðherra
Brazilíu, Alfonso Arianos, sem tók
vtft embætti í dag í ríkisstjórn
Quadros forseta, tilkynnti í kvöld,
að Santa Marýa myndi heimilað að
Lggja í Recife í 24 klukkustund-
ir m.a. til að taka vistir og elds-
ntyti.
Er Smith flotaforingi kom aft
ur um borð í skip sitt, eftir við-
ræðurnar við Galvao, s'kýrði hann
svo frá, að þeir hefðu rætt aðrar
le ðir til að koma farþegunum á
iand, ef Santa ijlaria yrði ekki layft
aö koma til Recife. Síðar tilkynnti
Smith yfirboðurum sínum í aðal-
stöðvum bandaríska flotanS í Nor
íolk, að máiið væri ekki eins ljóst
eg æskilegt væri.
Síðar í kvöld upplýsti talsmað
ur flota Brazilíu, að ákveðið væri
að farþegarnir á Santa María
yrðu settir á land í Recife á
morgun.
Auglýsið í Tímanum
^V*X'‘V*-\*V*X*‘V*X*V*X*V*%«'V*V
Stefnir L í 0?
(Framhald af 1. síðu.)
Á Hornafirði var samið upp á
væntanlega samninga, og munu
róðrar hafa hafizt á sunnudaginn,
og á sama hátt var deilan leyst tjí
bráðabirgða á Stöðvai'firði. Þar
munu róðrar hafa byrjað í fyrra-
dag.
Loks mun hafa samizt á Fá-
skrúðsfirði með sama hætti í gær.
Róið alls staðar á
Vestf jörðum.
Á Vestfjörðum var verkfall á
tveiimur stöðum, á Þingeyri og Pat
reksfirði. Alþýðusamband Vest-
fjarða fór þess á leit við vestfirzka
sjómenn á sínum tíma, að þeir
hæfu róðra upp á væntanlega samn
inga. En því var hafnað á þessum
'tveimur stöðum.
f fyrradag ákváðu sjómenn á
Patreksfirði að hverfa frá verk-
falli og hefja róðra upp á sarnn-
inga, sem síðar verða gerðir, og
sama ákvörðun var tekin á Þing
eyri í gær.
Yfirmannadeilan.
Deilan um kaup yfirmanna á vél
bátaflotanum á Suðurnesjum er
enn óleyst, en samningaviðræður
áttu sér stað í gær, en verkfall
höfðu yfirmenn á bátaflotanum á
Suðurnesjum boðað frá og með
deginum í dag. Yfirmenn í Vest-
mannaeyjum hafa hins vegar ákveð
ið að fresta verkfallinu um viku
eða til 8,'febrúar.
í gærkveldi var einnig viðræðu
fundur um kjör sjómanna á þeim
stöðum, þar sem enn er ósamið
til frambúðaf.
Samkomulag í Ólafsvík
Sjómenn í Ólafsvík samþykktu
landssamninginn að undanskildum
ákvæðum um kjör á dragnótaveið-
um, með því þeim fyrirvara, að
sérsamningar næðust um ýms
ákvæði, er voiu í gömlu heima-
samningunum, en ekki í landssamn
ingnum, svo sem hámark línulengd
ar á tilgreindum tímabilum í haust
og vetrarvertíð, greinilega afmörk
uð helgarleyfi, ákvæðisvinnutaxta
við beitingu, uppstókkun og upp-
sstningu á línu, netavinnu og
-TT"
Glæsilegasta bingó-
kvöld ársáns
F.U.F. efnir til þess í Lídó 9. febrúar
fleira. Var fi’estur veittur til 1.
febrúar til þess að semja um þetta.
Á fundi á sunnudaginn voru
endanlega samþykktir samningar
um þetta. Jafnframt var samþykkt
að skora á L.Í.Ú. að' vlnna að því,
að sanngjörn verðski'áning á fiski
fari eftir gæðamati, en ekki því,
á hvaða hátt fiskurinn er veiddúr.
Einnig vilja sjómenn fá aðstöðu
til þess að gera athugasemdir við
framkvæmd á gæðamatinu, ef
þurfa þykir.
Eins og skýrt
hefur verið frá
hér í blaðinu, efn
ir Félag un-gra
Fi'amsófcnar-
manna í Reykja-
vík til bingó-
kvölds í veitinga
húsinu Lídó 9.
febrúar. Spilaðar
verða 12 umferð-
ir o-g vinningar
hinir 'glæsileg-
ustu. Má þar
nefna ferð á Ed-
inborgarhátíðina
næsta sumar,
ása-mt vikudvöl
og ferðum um
sikozka hálendið,
málverka-eftir-
prentanir, kvöld-
verð fyrir hjón í
Lídó á laugardegi,
bækur og fleira,
svo aS eitthvað
sé nefnt. Farið
vei'ður að taka á
móti miðapöntun
um í skrifstofu
fulltrúaráðs Fram
sóknarfélaganna
í Framsóknarhús
inu á mongun,
fimmtudag, og verður daglega úr
því tekið á móti pöntunum í sím-
um 12942 og 15564.
Glæsilegasti vinningur í bingó-
spili þessu er að sjálfsögðu ferðin
á Edinborgar-hátíðna, en ferðaskrif
stofan Sunna mun sjá um þá ferð
að öllu leyti.
Api út í geiminn
— og aáftist aftur
Ben Gurion dreg-
ur sig í hlé
— eftir har'ða gagnrýni á þjóðhingi Israels.
Jerúsalem, NTB, 31.1. — David
Ben Gurion, forsætisráðherra
ísraels tilkynnti í dag, að hann
hefði ákveðið að segja af sér
embætti og fara úr rikissíjórn
inni. Ben Gurion boðaði ríkis
stjórnarfund seint í kvöld og
kvaðst vilja tilkynna þá á-
kvörðun sína að segja af sér
ráðherradómi.
Ben Gurion tók ákvö”íun
sína eftir örlagaríkan fund í
bjóðþingi ísraels í erær er full
trúar brigfija flokka p~ 'æti
eiga í núverandi samsteypu-1
stjórn vottuðu að vísu stjórn
inni traust, en gagnrýndu Ben
Gurion harðlega fyrir með-
ferðina á Pinhas Lavon, fyrr-
verandi landvarnarráðh., sem
nú er formaður ísraelsku vérk
lýðssamtakanna. Lengi hefur
verið grunnt á því góða á milli
Lavons og Ben Gurions.
Vélabörnin
Cape-Canaveral, NTJB 31. 1. —
Bandarískir vísindamenn á
Canaveralhöfða skutu í dag
á loft Redstoneflugskeyti, sem
hafði simpansa innan borðs.
'Hálfri klukkustund eftir að
skeýtið fór á loft var tilkynnt,
að hylki með apanum í hefði
Iosnað frá skeytinu og svifið
til jarðar í um* 650 km. f jar-
lægð frá Carnevalhöfða. Skot
ið er liður í tilraunum, sem
fara fram, áður en manni verð
ur skotið í flugskeyti út í
geiminn.___________
Sýknunar-
beiðni synjað
LOND.ON — Rússneskur hæsti
réttur hefur synjað sýknunar
beiðni frá rússneska rithöf-
-
(Framhald af 16. síöu)
undinum Olgu Ivinskayu, sem
Frá Al|)ir«gi
Framhald af 7. síðu.
að sagan myndi líkja þvi við
innréttingar Skúla Magnús-
sonar.
Einar Olgeirsson hélt langa
ræðu og hafði ekki lokið
henni er venjulegur fundar-
tími var úti kl. 4. Fundur var
seþtur að nýju kl. 5. Er ekki
unnt að skýra frá ræðu hans
að sinni.
vel tortryggni. Páfinn og prelát-
ar hans hafa fordæmt þetta. Og
svo hefur líka hlaupið glettni í
suma, og einn þeirra er Mogens
Becker, danskur blaðateiknari.
Hér sjá menn, hvernig hann hugs
ar sér framleiðsluna, eftir að
vísindtn hafa tekið að sér viðhald
mannkynsins. Teikningin birtist
i danska blaðinu Aktuelt, og þar
,‘ylgdi henni þessi spurning:
— Hafið þér látið frú Sören-
jcn vita, að hún verður móðir í
dag?
nýlega hefur verið dæmd í
átta ára fangelsi, og dóttur
hennar, sem er 23 ára gömul,
er dæmd yar til þriggja ára
fangelsisvistar. Mæðgu ; xr
eru sem kunnugt er sakaðar
um gjaldeyrissvik. Mál þe'ta
hefur vakið mikla athygli og
andúð víða um heim, og bafa
listamenn og samtök oeirra
í mörgum löndum sent í úss-
nesku stjórninni harðorð mót
mæli.
!
/