Tíminn - 05.02.1961, Blaðsíða 5
T Í MIN N, suunudaginn 5. febrúar 1961.
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLÓKKURINN.
Franlkvæmdastjóri: Tómas Arnason. Rit-
stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.), Andrés
Kristjánsson, Jón Helgason Fulltrúi rit-
stjórnar: Tómas Karlsson Auglýsinga-
stjóri: Egill Bjarnason. — Skrifstofur
í Edduhúsinu. — Símar: 18300—18305
Auglýsingasími: 19523 Afgreiðslusimi:
12323 — Prentsmiðjan Edda h.f.
Bankamálin
i *
Af hálfu ríkisstjórnarinnar hefur það lengi verið
boðað, að hún myndi á þessu þingi leggja fram frum-
varp um bankamálin. Af hálfu stjórrarflokkanna hefur
verið látið í veðri vaka, að þar yrð-i um að ræða stór-
merkar endurbætur á bankakerfi landsins.
Nú hafa þessar tillögur ríkisstjórnarinnar verið lagð-
ar fyrir þingið í formi þriggja frumvarpa, þ. e. frv. um
Seðlabankann, frv. um Landsbankann og frv. um Fram-
kvæmdabankann. Sagt er svo, að von sé á fjórða frum-
varpinu, er muni fjalla um Útvegsbankann.
Þegar nánar er að gætt, felast ekkj neinar meirihátt-
ar breytingar í þessum frumvörpum.
Frumvörpin um Landsbankann jg Framkvæmdabank
ann gera ráð fyrir alveg óbreyttu fyrirkomulagi og hlut
verki þessara banka. Eini tilgangurinn með þeim er sá,
að koma því til leiðar að bankaráðin verði kosin að nýju,
svo að stjórnarflokkarnir fái enn traustari valdastöðu
í þeim en áður. Þessi frv. eru því ekkert annað en þátt-
ur í valdabrölti stjórnarflokkanna.
Nákvæmlega hið sama gildir um frumvarpið • um
Seðlabankann að því viðbættu, að þar er lagt til að bætt
verði við einum bankastjóra og tveimur bankaráðsmönn-
um, svo að stjórnendur bankans verða þá 8 í stað 5 nú.
Stjórnarflokkarnir fá þannig til ráðsröfunar fleiri stöður
handa gæðingum sínum, jafnframt því, sem þeir treysta
völd sín yfir bankanum.
•Til þess að reyna að afsaka þessa embættafjölgun og
valdabrölt, er látið svo í veðri vaka, að með umræddu
frv. um Seðlabankann sé hann gerður að sjálfstæðri
stofnun. Þetta er alveg rangt. Seðlabankinn er nú þega'r
sjálfstæð stofnun og sjálfstæði hans eða vald er ekki
neitt aukið með þessu frumvarpi. Tengsli hans við Lands-
bankann eru nú eingöngu formlegs eðlis, og breytir það
engu í reynd, hvort þau eru felld niður eða ekki. Hins
vegar hafa þau haft í ftú- með sér ýmsan sparnað, sem
nú mun hverfa úr sögunni.
Það, sem hér er að gerast í bankamálunum, er því
raunverulega ekki annað en það, að ríkisstjórnin er að
hringla með þau í þeim eina tilgangi að tryggja sér
fleiri embætti og aukin pólitísk vöid. Með því er verið
að vinna að því að skapa þá hefð, að hver ný ríkisstjórn
telji eðlilegt að bréyta bankalöggjöfmni til pólitísks hag-
ræðis fyrir sig. Slík vinnubrögð eru vissulega hin háska
iegustu, því að vitanlega ber miklu fremur að stefna að
því, að pólitískur friður geti ríkt um bankana, þótt
breytingar verði á stjórn landsins. Núverandi ríkisstjórn
íslands er bersýnilega á öðru máii.
Ranglátt ákvæði
Eitt nýtt ákvæði er í nýjá stjó'-narfrumvarpinu um
Seðlabankann, sem gefur glöggt til kynna, að ríkisstjórn-
in hefur ekki áhuga fynr, að friður ríki um þá stofnun.
Hér er átt við það ákvæði, sem tekið er upp úr „við-
reisnar“löggjöfinni, og fjallar um það. að taka mégi
helminginn af fé innlánsdeilda kaupfélaganna og festa
það í Seðlabankanum.
Slík ofbeldisákvæði eins og þetta á vitanlega ekki
að setja í lög Seðlabankans, því að af því leiðir, að lögin
munu stöðugt verða baráttumál á A.lþingi meðan þessi
ákvæði eru ekki afnumm. Ef stió_—■ sem er fjandsam-
leg samvinnuhreyfingunni, vill ’ ík lagaákvæði, á
hún að hafa þau í öðrurn lögum . . ,era ekki lög Seðla-
bankans að vettvangi fyrir deilurnar um þetta mál.
Fóik, sem talað er nm
SKAMMT frá Aswan í
Egyptalandi, iþar sem stíflan
mikla er að risa upp, hefur' ver-
ið reist veglegt grafhýsi yfir
jarðneskar leifar Aiga Khans,
ihins 'heimsþekkta milljóna-
mærings og trúarleiðtoga, er
lézt fyrir nokkrum árum. Síð-
asta eiginkona hans, Begum,
dvelst nú í villu, sem hann hafði
reist skammt frá þeim stað,
þar sem grafhýsi hans var fyrir
hugað, og ætlar að heimsækja
grafhýsið daglega í sex vikur.
Hún hefur fylgt þeim sið ár-
lega síðan Aga Khan dó. Beg-
um, sem var dansmær í Frakk-
landi áðui' en hún giftist Aga
Khan, var þá talin með feg-
urstu konum í heimi. Á með-
fylgjandi mynd sést hún benda
á grafhýsi Aga Kháns-
KENNEDY FORSETI hefur
ákveðið að kveðja heim sendi-
herra Bandaríkjanna í Moskvu
Llewellyn E. Thompson, til
skrafs og ráðagei'ða. Búizt er
við að Thompson verði áfram
sendiherra í Moskvu og muni
þá gegna mikilvægu hlutverki
varðandi hugsanlegar sami'æð-
ur Krustjoffs og Kennedys.
TALIÐ er, að republikanar
séu lítið ánægðir yfir því, að
Douglas Dillon, sem var að-
stoðarutanr'íkisráðherra hjá Eis
enhower, skyldi/ gerast fjár-
málaráðherra hjá Kennedy.
Dillon virðist hins vegar kunna
nýja starfinu vel. Á meðfylgj-
andi mynd sést hann ásamt hin-
um nýja ríkisgjaldker’á Banda-
ríkjanna, frú Elisabeth Smith,
vera að skoða fyrstu dollara-
seðlana, er bera undirskrift
þeirr'a.
THOMAS K. FINLETTER hef-
ur verið skipaður sérstakur
sendiherra Bandaríkjanna hjá
Atlantshafsbandalaginu. Hann
er 67 ára gamall, var' flugmála-
ráðherra í stjórn Trumans og
hefur síðan látið alþjóðamál
mjög til sín taka. Hann hefur
verið eindreginn fylgismaðui'
Adlai Stevenson- Hann hefur
a.m.k. einu sinni komið til ís-
lands' f för með Thor Thors og
dvaldi þá hér í nokkra daga.
ÞAÐ hefur vakið mikla á-
nægju víða um heim, að Kenn-
edy forseti hefur skipað Ed-
ward E. Murrow yfirmann upp
lýsingaþjónustu Bandaríkjanna,
sem. m.a. rekur útvarpskerfið
„Voice of America“. Murrow,
sem er 52 ára gamall, er’ þekkt-
asti sjónvatpsfyrirlesari Banda-
ríkjanna ög hefur undanfarið
(Framhald á 13. síðu.)
Begum og grafhýsi Aga Khan.
MURROW
THOMPSON
FINLETTER
Douglas Dillon og Elisabeth Smith.
■*V*V*VV«V*V»V*VaV*V*\.*V»V*V*V»V*'V
/