Tíminn - 17.03.1961, Side 6

Tíminn - 17.03.1961, Side 6
6 jRÍJHXNN, föstudaginn 17. marz 1961. Kristján Thorlacius: Sjálfstæði þjóðarinnar hætta búin af langvarandi erlendri hersetu Hér fer á eftir ræða sú, sem Kristján Thorlacius formaSur Bandalags starfsmanna ríkis og bæja flutti á fundi her- námsandstæðinga í Austur- bæjarbíói um síðustu helgi. Góðir áheyrendur. Aðeins 16 ár eru liðin síðan sjö alda löcgum erlendum yfirráð- um lauk að fullu með stofnun lýð- veldis á íslandi. En örlögin hafa hagað því svo a? eigi var því langþráða marki fyrr náð en íslenzka þjóðin varð að nýju að hefja sjálfstæðisbar- áttu sína gegn erlendu valdi. Að heímsstyrjöldinni lokinni áttu Bandaríkjamenn samkvæmt samningi að hverfa úr landi með allt herlið sntt, en þeir eru ekki farnir enn, þótt svo ætti að heita um nokkarra ára bil, að hér væru ekki hermenn, heldur óeinkennis- k’ætt lið. f stað þess, að herinn væri lát- inn hveria af landinu samkvæmt samningi, fóru Bandaríkin þess á leit að fá að hafa hér herstöðvar tiJ 99 ára — eða um aldur og ævi. Svo er hamingjunni fyrir að þafcka. að íslenzk stjórnarvöld báru gæfu tii að hafna þeim tilmækim. Vegna þess er enn grundvöllur fyrir bar- áttu gegn erlendri hersetu á ís- landi og von uift að sú barátta beri árangur. En því er miður, að enn eru þeir margir, sem ekki skilja narð- syn þess, að landið sé losað við hina erlendu hersetu. Á öllum tímum hafa þeir Is- lendingar verið til, sem ekki töldu mögulegt fyrir þessa þjóð að íifa i landi sínu frjálsa og óháða öðr- um þjóðum stjórnarfarslega Fyrir glapræði slíkra manna glataðí íslenzka þjóðin sjálfstæði s:nu á Sfurlungaöld og óbornar kynslóðir vrðu að gjalda fyrir yfir- sjónir höfðicgja landsins með und- irgefni við erlenda yfirdrottnara um margar myrkar aldir. Þegar aftur tók að rofa til í íslenzku þjéðlífi og nýr dagur frelsis og framfara var í nánd komu þeir enn fram á sjónar- sviðið, sem ekki máttu til þess hugsa, að íslenzk þjóð hristi af sér hlekki erlendrar yfirstjórnar cg byggist til að lifa sínu eigin l'fi, óháð dönskum yfirboðurum. Og allt fram til þess tíma, er loka- rr.arkinu í þeirri baráttu var náð voru jafnan til áhrifamiklir menn, sem ekki treystu þjóð sinni til að stahda á eigin fótum. Nú eru slíkir menn merkisberar þeirra, sem ekki telja þorandi fyrir ísænzku þjcðina að taka á sig bá áhættu að lifa í landinu án þess að hafa amerískan her til varnar sér. Þeir, sem þannig hugsa, telja á- hættu þjóðarinnar af erlendri her - setu hverfandi miðað við þann voða, sem því fylgi að búa í her- varnalausu iandi. Aðrir taka þessa afstöðu vegna þess, að .reir hafa af því stund arhag fyrir sig og sina. Það hefur venð margsýnt fram á það á undanförnum árum, hveriar hættur séu því samfara að leyfa erlendri þjóð að hafa herstöðvar í landina. Og íslendingar hata kynnzt því af eigir. raun á undan gengnum 'veimur áratugum, hverj er þessar hættur eru. Stórframkvæmdir hins erlenua herliðs hafa sett efnahagslíf pjóð- arinnar úr skorðum og höf'aðat- vinnuvegir .andsmanna hafa beðið við það_ stórfelldan hnekki, að þús- undir fslendinga höfðu um skeið atvinnu sína við þessar fram- kvæmdir og hurfu þannig frá starfi í aðalatvinnugreinum landsins. Enn þann dag í dag munu ekki færri en eitt þúsrund manns starfa í herstöðinni á Keflavíkurfiug- velli, og er augljóst, að jafnvel þótt ekki -.tarfi þar sem stendur fæiri menn er slíkt mikil blóð- taka fyrir islenzka atvinnuveg. Það er mikið öfugstreymi, að íslenzkir menn hafi framfæri sitt af því að ganga um beina hjá setu- kði erlendrar stórþjóðar um leið cg hundruð erlendra manna eru ráðnir til starfa við arðgæfa fram leiðslu þjóðarinnar. En þrátt fyrir alla þá áhættu. sem því íylgir fyrir núlifandi ís- lendinga að leyfa hér herstöðvar, er þetta mál þó fyrst og fremst vandamál vegna framtíðarinnar — áhætta, sem sköpuð er komandi kynslóðum. Formælerdur erlendrar hersetu lialda því fram, að sjálfstæði voru sé engin hætta búin, þótt Banda- ríkin hafi hér herlið um ótiltek inn tíma. Bandaríska þjóðin sé niikil og góð lýðræðisþjóð, sem treysta megi, að eigi seilist hér til yfirráða. Satt er það, að bandaríska þjóð- ir. býr við það stjórnarform, sem fiestir fsiendingar telja með því bezta, sem nú þekkist í þeim efn- um. Hitt vita allir fulltíða menn, aþ hver þjóð, hversu fullkomið stjórnskipulag, sem hún hefur, hugsar fyrst og fremst um sína eigin hagsmuni. Árið 1946 heyrðum við þann Loðskap frá ríkisstjórn Bandarikj- anna, að hún færi þess á leit að fá að hafa herstöðvar á íslandi í 99 ár. Engum kemur til hugar, að þessi ósk hafi verið fram borin vegna ísiendinga, jafnvel ekki þeim, sem celja sér trú um, að bað sé nauðsya að hafa herlið til varn- ar vegna tímabundins hættuá- stands í heimsmálum. Kristján Thorlacius Vissulega er hætta í því fóigin fvrir sjálfst.æði þjóðarinnar að hér dveljist íangdvölur herlið frá erlendri þjóð. Dýrkeypt reynsla íslenzku þjóð- arinnar á undangengnum öldum hlýtur að vera henni aðvörun um þeð að ijá erlendum þjóðum cigi þess fangstaðar á landi voru, sem orðið geti sjálfstæði hennar að fétakefli. Þegar erlent ríki seildist hér til valda fyrir níu öldum, voru þessi varnaðarjr1'; mælt: „En ef ég skal segja mína ætl- an, þá nygg ég, að sá munj til vera hérlaridsmönnum að ganga eigi undir skattgjafir við Ólaf kon- ■j.ng og ailar álögur hér, þvílíkar, sem hann hefur við menn í Nor- egi. Og munum vér eigi það ó- frelsi gera einum oss til handa heldur bæði oss og sonum vorum og allri ætt vorri, þeirri er þetta land byggir og mun ánauð sú aidrei ganga eða hverfa af þessu landi. En þótt konungur sá sé góður maður, sem ég trúi vel að sfc, þá mun það fara héðan frá sem hingað til, þá er konunga- skipti verður, að þeir eru ójafnir. sumir góðir en sumir illir. En ef landsmenn vilja halda frelsi sínu, því er þeir hafa haft síðan er land þetta byggðist, þá mun sá til vera aó ljá konungi einskis fangstaðar á, hvorki um landaeign hér né um það að gjalda héðan ákveðnar skuldir þær, er til lýðskyldu mega inetast." Saga veraldarinnar staðfestir, að landstjórnandur era misjafnir sumir góðir, en sumir illir, eins cg Einar Þveræingur segir í hin- um spaklegu orðum, er ég las. Því verður ekki með rökum neitað, að vopnlaus smáþjóð. sem býr í hersetnu landi, er ekki frjáls og óháð. Þvert á móti hefur hún tengzt öðru ríki hættulega sterk- um böndum, jafnvel þótt það ríki sýði engan yfirgang eða íhlutun um innanlandsmál. Við sjáum lítt fram í tímann og þeir hlutir geta gerzt, sem okk- ui órar ekkj fyrir í dag. En við eigum að læra af reynslu okkar sjálfra og annarra. Fyrir síðustu heimsstyrjöld reið a’.da einræðis og kúgunar yfir mörg lönd, sem áður töldust traust lýðræðisríki. Hvernig hefði farið fyrir okkar litlu þjóð, ef hún hefði þá haft í landi sínu herlið frá einhverju því ríki, sem á svip- stundu varð einræðinu að bráð. Ætli það hofði þá ekki verið um seinan að segja upp hervarnasamn irigi og óska brottfarar herliðsing. Gamli sáttmáli leiddi mikla ó- gæfu yfir íslenzku þjóðina. Sá samningur varð upphaf sjö alda ó- frelsis hennar. Samt hafði hann að geyma ákvæði, sem síðar urðu grundvöllur í frelsisbaráttu þjóð- arinnar. Því miður notfærðu íslendingar sér ekki þau ákvæði fyrr en seint og um síðir. Sú saga má ekki endurtaka sig. Sáttmáli sá, sem íslendingar hafa gert við Bandaríkin um her- setu hér, relur í sér rétt til ein- hliða uppsagnar Eg tel það vera skyldu við ó- fcorna íslendinga, að sú kynslóð sem kvaddi hingað erlendan her n.eð samningi, sjái um, að þeim samningi verði sagt upp og her- inn hverfi af landi brott, þvi ef hún gerir það ekki, „þá munum vér eigi það ófrelsi gera einum oss til handa, heldur bæði oss og sonum vorum.“ Burt með herinn! Sjötugur: Guðmundur M. Eiríksson, bóndi á Valdalæk Guðmundur M. Eiríksson, bóndi á Valdalæk á Vatnsnesi, er sjötug- ur í dag. Hann fæddist á Sauða- dalsá á Vatnsnesi, en þar bjuggu þá foreldrar hans, Ögn Eiríksdótt- ir og Magnús Jóhannsson. Ársgamall fór Guðmundur í fóstur til móðurbróður síns, Ara Eiríkssonar á Valdalæk, og konu hans, Valgerðar Jóhannsdóttur, og hefur hann átt heima á Valdalæk síðan. Sumarið 1912 kvæntist hann Þórdísl Jónsdóttur, og byrjuðu þau búskap árið 1916. Af tíu börn- um, er þau eignuðust, komust sjö upp, en þau misstu tvær dætur, Sigurbjörgu og Steinunni, milli fermingar og tvítugs. Þessi fimm börn þeiira eru á lífi: Valgerður, húsfreyja á Harastöðum í Vestur- hópi, Ari, búsettur á Hvamms- fanga, Hólmfríður, húsfreyja á Hrísum í Reykholtsdalshreppi, Ögn og Þórarinn, heima á Valda- læk. Heimili Guðmundar og Þórdísar og búskapur þeirra er um margt til fyrirmyndar. Þar ber allt vott um sérstaka snyrfimennsku og reglusemi, jafnt utan bæjar sem innan. Jörðin vel setin, jarðabæt ur vandlega unnar og mikil alúð lögð við meðferð búpenings. Guð- mundur er sérstaklega góður fjár- maður, og til marks um það álit og traust, er hann nýtur sem fjár- ræktarmaður, má nefna, að hann rekur sauðfjárræktarbú, sam- kvæmt búfjárræktarlögunum, að tilhlutan Búnaðarfélags fslands. Góður árangur hefur orðið af fjárræktarstarfi hans. Guðmund.ur hefur gegnt trúnað- arstörfum fyrir sveitunga sina; oft átt sæti í sveitarstjórn og unn- ið sem fulltrúi þeirra að kaupfé- lagsmálum. Hann er glöggskyggn maður og forsjáll og rækir vel þau störf, sem hann tekur að sér. Ég sendi Guðmundi á Valdalæk, konu hans og börnum, góðar óskir og kveðjur á þessum tímamótum í lífi hans. Skúli Guðmundsson. MINNiNG: Úlafur Jónsson frá Garðsstöðum „Stígum nú á sterJcan meið, strengjujn heitið brœ&ur góðir: þar til œvi þrýtur skeið þér að unna, og vinna móðir." Páll Ólafsson. Sagt er að útlendum mönn um og jafnvel innlendum líka detti í hug fugl á sundi er þeir sjá fslandskortið h'anga á stofuþili. Auðvitað eru þá Vestfirðirnir höfuð þessa risafugls. Mér virðist það ætti að vera meðmæli manni hverjum, að vera kom inn úr höfði fuglsins, eaman borið við hina, sem frá óæðri endanum eru útgengnir. Nú hefi ég undirritaður kynnst fólki úr öllum lands- ins byggðum, um hálfrar ald ar skeið, og tel það harla gott. Vestfirðingar hafa mér samt orðið ekki slzt minnisstæðir Þeir urðu snemma á vegi mín um er ég kom til Flensborgar skólans um aldamótin. Það sem vakti sérstaka eftirtek' mina, var viljaþrek þeirra oc góð greind. Þeir voru yfirleitf gegnir menn og ólatir, eins og Skaftfellingar segja um hesta sína. Þeir voru líka úr afmörk uðu byggðarlagi, sem nærri lá að gæti losnað frá megin landinu og þar virtust topp- ar fjallanna hafa verið tekn- ir af. Einhver náungi, sem vildi vera fyndinn og háfleyg ur, gat þess til, að guð sá, er landið skóp hefði ætlað að hafa það allt svona og byrj- að áð saga ofan af fjöllun- um, en að verki loknu á Vest- fjörðum, var sögin orðin svo sljó, að hann hætti við smíði þá. Til allrar lukku vil ég segja; af því við eigum bæði Baulu og Búl-andstind enn í dag. Skólabræður mínir voru tiltölulega flestir að vestan, menn sem vildu læra og síðan vinna þjóð sinni gagn. Við bjuggum í heima- vist og þöfðum tvær blóma- rósir, — þeirrar tíðar, — við matreiðslu og þjónustu. Þær áttu heima í Hafnarfirði, all langt frá Flensborg. Þær skiptust á um störfin og það var talið skylt að fylgja ráðs konunni heim að loknu dags (Framhald á 13. síðu.)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.