Tíminn - 30.03.1961, Blaðsíða 1

Tíminn - 30.03.1961, Blaðsíða 1
Gleðilega páska, segir litla stúlkan — hún Ólöf Helga Arnaldsdóttir, sem stendur í miðju páskaliljubeðinu hans pabba síns, Arnajds Þór á Blómvangi í Mosfellssveit. Og gleðilega páska, segjum við einnig. Akranestogari seldur 3 nauðungaruppboði Söluver'ðið lægra en viÖgerÖarkostnaÖurinn í Englandi — Akranesbær ver’ður nú að borga 9,4 milljónir vegna skipsins Klukkan sex í gær fór fram á Akranesi nauðungaruppboð á togaranum Bjarna Ólafssyni, sem kyr-'settur hefur veríð vegna óre;ðu í skipaviðgerðar- stöð í Englandi síðan 4. des- ember í haust. Gerðust þau sögulegu tíðindi, að stofnlána- deild sjávarútvegsins, sem var einn krötuhafa, keypti togar- ann á þrjár milljónir og 615 þúsund krónur, og vantar þá 219 þúsund krónur upp á að cigandinn. Bæjarútgerð Akra- ness, geti greitt kostnaðinn í Englandi með söluverðinu. Verð það, sem færst fyrir tog- arann, að nýlokinni flokkun- arviðgerð er svipað og á átta- tíu lesta vélbát, og hefði verið betra að gefa togarann hrein- lega í haust en láta selja hann nú með bessum hætti Báðir Akranestogararnir voru auglýstir til ®ölu á nauðungar- uppboði 3. ágúst í sumar. En sal- an hefur dregizt, og Akurey hefur (Fi'amhaid á 2. siðu. i Reykvíkingar flykkj- ast til ísafjarðar LögregluvörÖur viÖ Esjuna sex klukkustundir Mikill fjöldi fólks streymdi burt úr bænum í hinu fagra veðri í gær til þess að njóta skemmtunar og hvíldar utan bæjar um bænadagana og páskana. Flesta fýsti þó að fara á skíðavikuna á ísafirði. og komust færri en fara vildu þangað með þeim farartækj- um, sem völ var á. — Með Herjólfi fóru 80—90 farþegar til Eyja í gærkvöldi. Á þriðjudaginn og miðvikudag- imi var flugvél frá Flugfélaginu í stöðugum ferðum vestur, og flutti hún 26 farþega í hverri ferð. Fóru yfir hálft annað hundrað manns flugleiðis til ísafjarðar þesa daga, og beið enn fullfermi í flugvél í gærkvöldi. Skíða- landsmótið á ísafirði Fyrsti fslandsmeistarinn á skíða- landsmótinu á ísafirði var Matthi- as Sveinsson, ísafirði en hann sigraði með miklum yfirburðum í 15 km. skíðagöngunni, um tveimur og hálfri mínútu á undan næsta manni. Myndin sýnir er Matthias kemur í mark. f 10 km. göngu 15—16 ára sigraði Kristján Rafn Guðmundsson, ísafirði, og vann hann einnig yfirburðasigur. Ein- dálka myndin er af honum. Fyrsti dagur skíðamótsins var því mikill sigurdagur ísfirðinga. Mótið held ur áfram í dag, og verður 'y keppt í boðgöngu og sveitakeppni í svigi. Myndirnar tók fsak Jóns son. Esjan lagði einnig af stað vest- ur klukkan sex í gærkvöldi með hálft þriðja hundrað farþega, en fjöldi fólks gat ekki fengið far. Ætluðu nær 180 farþegar til ísa- fjarðar. Lögregluvörður var sett- ur við skipið á hádegi í gær, svo að engir færu óboðnir út í það og yrðu sér þannig úti um far í blóra við allar reglur. Var síðau ekki öðrum hleypt út í skipið eji þeim, sem höfðu farseðil í hönd- unum. Talsvert magn af vörum, sem fara átti með skipinu vestur, var skilið eftir vegna rúmleysis. )

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.