Tíminn - 30.03.1961, Blaðsíða 6

Tíminn - 30.03.1961, Blaðsíða 6
?6 Stwfnrm Landssfma fslands mun Tim alla framtíð geymast í þjóðar- sðgunni sem fyrsta og stærsta tóku íslenzkrar þjóðviðreisnar á 20. öld. Jafnframt verður hún fyr- , ir öllum þjóðum meðal ótvíræð- ustu vitnisburða um það, að sjálfs- forræði hverrar þjóðar er megin- skilyrði og höfuðvaki þjóðfram- fara alls staðar og á öllum tímum. Hannes Hafstein verður íslands- ráðherra, fyrstur íslendinga, frá 1. febrúar 1904 og með búsetu á fs- landi. Hann hefst þegar handa um setningu símalaga, sem taka gildi næsta ár, 1905. Það sama ár eru staðfestir samningar við Mikla Norræna Ritsímafélagið um lagn- ingu. sæsíma til íslands (Seyðis- fjarðar), um einkaleyfi til sím- skeytareksturs um hann og um framlag þessa félags til lagningar símalínu frá Seyðisfirði til Reykja víkur. Hannes Hafstein leitaði til frænda okkar Norðmanna um liðskost, til þess að standa fyrir lagningu höfuð símalínunnar, frá Seyðisfirði til Reykjavíkur og á- framhaldandi símakerfis um land- / ið. Til verkforystu réðst Olav Elias Forberg 33 ára gamall, fædd- ur á Finnmörk í Norvegi 1871. Hann hafði þegar reynslu af síma- lagningum á fjöllum Norvegs, vel menntaður og hafði þegar haft með höndum stjórn símastöðva. Fðrberg ferðaðist um landið sum- arið 1905 til þess að kynna sér staðháttu og aðstæður til lagning- ar megin línunnar. Árið eftir 1906 var síminn lagður, talsímasam- band opnað milli Reykjavíkur og Seyðisfjarðar, ritsímasamband opnað milli Reykjavíkur 'og út- landa og Landssími íslands stofn- aður. Djarfmannlegt áræði Hannesar Haísteins, karlmennska hans að standa gegn ofsafengnum and- blæstri í ritsímamálinu og giftu- samlegt afrek hans að stofna Landssíma íslands og koma land- inu í ritsímasamband við önnur lönd mun halda nafni hans hátt á loft um alla framtíð. Afrek Olavs Forbergs varð á sinn hátt ekki minna í sniðum. Sumarið 1905 ákveður hann síma- stæðið á allri þessari leið og sum- arið eftir skipar hann niður vinnu- flokkum á allri línunni öllum und ir yfirstjórn norskra manna og er verkinu lokið um haustið, þrátt fyrir það að verkið hlaut að hefj- ast nokkuð seint vegna vorharð- inda og mikilla snjóþyngsla. Að þessu verki loknu og við stofnun Landssíma íslands varð Forberg sjálfkjörinn fyrsti landssímastjóri á íslandi. Undir stjórn hans voru á tveimur næstu áratugum lagðar, símalínur um alla landsbyggðina.; Forberg varð ástsæll af öllum mönnum enda einn bezti þegn ís-; lenzku þjóðar'innar. Forberg varð riddari af Dannebrog þegar árið 1907 og síðar kommandor sbmu orðu af II. gráðu. Loks varð hann sæmdur stórriddarakrossi Fálka-; orðunnar með stjörnu. Alþingi; 1927 veitti honum 10.000 kr. heið-j ursgjöf. Kona Forbergs var Jenny símritari fædd Olsen. Forberg varð skammlífur. Hann andaðist 10 marz 1927 aðeins 56 ára gam- all. Margir ágætir Norðmenn í liði Forbergs ílentust hér um lengr'i og skémmri tíma og höfðu á hendi verkstjórn við símalagningar o. fl. Meðal kunnustu þeirra er Paul Smith, sem varð fyrsti verkfræð- ingur símans og Björnæs verk- stjóri, sem dvaldist hér til ævi- loka. Við fráfall Forbergs var settur landssímastjóri Gísli J. Ólafsson, | sonur Jóns Ólafssonar ritstj. og alþm. Hann var skipaður í emb-j ættið 24. júlí samá ár. Ekki naut hans lengi við, því hann andaðist 15. ágúst 1931 aðeins 43 ára gam- all. Við fráfall Gísla J. Ólafssonar f,|-JMJty>;gmmtnda Jónas Þorbergsson: Gunnlaugur Briem póst- og símamálastjóri SEXTUGUR var Guðmundur J. Hlíðdal skipað- ur landsstímastjóri. Hann er mjög fjölmenntaður verkfræðingur og hefur staðið fyrir fjölmörgum verkfræðilegum framkvæmdum í landinu. Hann gerðist verkfræð- ingur Landssímans árið 1924 og landsímastjóri 1931. í embættistíð hans var gerð sú skipan að sam- eina póst og síma, og var Guð- mundur póst- og símamálastjóri frá 1935 til 1956 að hann lét af embætti fyrir aldurs sakir. Gunnlaugur Briem póst -og símamálastjóri er fæddur í Reykjavík 30. marz 1901. Foreldr ar hans voru Sigurður póstmála- stjóri Briem Eggertsson sýslu- manns í Skagafirði, Gunulaugs- sonar á Grund í Eyjafirði, og Guð- rún ísleifsdóttir prests á Arnar- bæli, Gíslasonar. Gunnlaugur útskrifaðist stúd- ent úr Menntaskólanum í Reykja vík árið 1919, hóf sama ár nám í undirbúningsdeild Verkfræðihá skólans í Kaupmannahöfn og lagði þar stund á stærðfræði og eðlisfræðí. Inuritaðist síðan í verkfræðiháskólann og lauk prófi þar í ársbyrjun 1926 með síma- verkfræði sem sérgrein, fyrstur íslendinga. Að loknu þessu námi réðist hanu verkfræðingur í Radióingeniörkontoret við Dan- marks Statstelegrafvæsen og starf aði þar í eitt ár. Samkvæmt tillögu og meðmæl- um P. O. Pedersens yfirmanns Verkfræðingaháskólaus í Kaup- mannahöfn, veitti alþingi Gunn- laugi Briem 2000 kr. styrk til framhaldsnáms 1927. Hvarf hann þá suður á bógiun, 'stundaði 7 mánaða nám í Þýzkalandi og styttri tíma í öðrum Evrópulönd- um. Árið 1928 kom Gunnlaugur Briem frá námi heim til fslands. Stofnaði hann fyrst í stað eigin verkfræðiskrifstofu og aðstoðaði ýmsa aðila; annaðist meðal ann ars uppsetningu fyrsta ráclíóvit- ans á íslandi í Dyrhólaey o.fl. stutta frest, sem var til stefnu. Lagði hann nú svo að segja uótt með degi til þess að vinna að tví þættu verkefni: að auka til muna kunnáttu sína á frauskri tungu og setja saman ýtarlega greinar- gerð á frönsku um málstað ís- lands og sérstöku þörf á langri bylgjulengd. Þegar Gunulaugur Briem hafði lokið ritgerð íinni í Kaupmannahöfn leitaði hann fyr- ir sér um yfirlestur einhvers sér fróðs mauns í frönsku. Var hon- um vísað til konu nokkurrar, sem Fyrstu lög um útvarpsrekstur á íslaudi voru sett á Alþingi árið 1928 og þar ákveðið að ríkið rei|ti útvarpsstöð. Var Landsíma Is- lands falin fyrsta framkvæmd. Vegna staðhátta hér á landi og samkvæmt því sem að öðru leyti háttaði til um skipti og not bylgjulengda til fjarskipta var það óhjákvæmilegt að fsland fengi sér úthlutað langbylgju til útvarpsreksturs. Eu langbylgjur eru tiltölulega fáar og um þær hefur jafnan staðið hið mesta átog milli allra Evrópulanda. Nú bar svo til f annan stað að fyrir dyrum stóð Evrópuráð- stefna um úthlutun bylgjulengda til útvarps og annarra fjarskipta, og skyldi hún haldin í Prag vorið 1929. Þá gerðist það; að lands- símastjórinn Gísli J. Ólafsson leit ar til Gunnlaugs Briem, lærð- asta mauns í radíófræðum er þá var völ á, til þess að takast á hendur sendiför til Prag, mæta þar fyrý; íslands hönd og freista þess að tryggja íslandi lang- bylgju. Á ráðstefnunni í Prag var enu ekki upp tekinn sá háttur sem nú tíðkast á þess háttar ráð- stefnum, að þrjár höfuðtungur álf ’ unnar séu jafnréttháar og jöfn-1 um höndum notaðar. í Prag skyldi allt fara fram á frauska tungu. Briem hefur tjáð mér, að | hann hafi þá orðið að bregða: við og nota kostgæfilega þann' ástundaði sérkunnáttu í franskri tungu. Þegar konan hafði lesið nokkuð í ritgerðiuni rak hún upp hlátur. Briem setti dreyrrauðan og hjarta hans drap 'stájl til muna, því hann óttaðist að rit- gerðin væri óframbærileg. Svo var þó ekki. Hlátri konunnar olli það, að frauskan á ritmáli Briems hafði tekið á sig nokkrar eigind ir íslenzkunnar um hljóðfall og höfuðstafi. Eigi fer frekari sögu um athugasemdir konunnar eða leiðbeiningar, eu greinargerðin dugði vel í Prag, svo og annar málflutningur Briems, þó honum væri þar stirt nokkuð um tungu- tak. Og heim kom hanu með lang bylgju handa íslandi. Gunnlaugur Briem hefur síðan þetta var, | mætt fyrir íslands hönd á fjölda mörgum ráðstefnum þess háttar, bæði í Evrópu og Ameríku, þar sem fjallað hefur verið um ýmsa þætti fjarskiptamálanna og samn inga milli þjóða. Það hefur sagt mér útlendur maður, sem hefur setið margar þessar ráðstefnur, að Gunnlaugur hafi þar jafnau verið allra manna prúðastur og; hæglátastur, eu kunnátta hansí svo djúp og víðtæk og rök svoi vel undirbyggð og hófsam- j lega flutt, að torvelt hafi reynstj að láta það vera, að taka þau til greina. Um þessar sömu mundir eða j árið 1929 er Gunnlaugur Briem: ráðinn verkfræðingur hjá Landsj sfmauum, en starfaði að hálfu í þágu Ríkisútvarpsins. Hann ann- aðist fyrir íslands hönd samnings gerg við Marconi-félagið í Eug- landi um uppsetningu hinnar fyrstu útvarpsstöðvar á Vatns- endahæð (16 kw.) og hefur síðan annast allar samningagerðir við það sama félag varðandi aukniug ar stöðvarkerfis útvarpsins. Þegar póstur og sími var sam- einað 1935 var Gunnlaugur Briem samkvæmt óskum Guðmundur J. Hlíðdals, skipaður 1. júlí þ.á! yfir verkfræðingur pósts og síma, i jafuframt því sem hann hélt á- fram að vera yfirverkfræðingur útvarpsins til ársins 1953. Póst- og símamálastjóri hefur hann I verið síðan 1956. Gunnlaugur ; réðst verkfræðingur til Lands- ' símaus 1929 og hefur því í opin- i berri þjónustu 32 ár að baki, er j hann nú stendur á sextugsaldri. I Tækninni í heiminum hefur á j síðustu áratugum fleygt stórkost- | lega fram, einuig að því er varð , ag hefur síma og alls kyns þráð- : laus fjarskipti. Enda hefur þjón- ustan í þeim efnum farið mjög vaxandi. Embætti póst- og síma- málastjóra og yfirverkfræðings þeirra stofnana hafa á undanförn j um áratugum verið einhver allra umfangsmesta í landinu. Ný stór- kostleg úrræði hafa komið til greina á vegum símaþjónustunn- ar, þar sem um er að ræða þráð- laus últrastuttbylgjusambönd með mörgum talrásum milli fjarlægra staða, sem leysa af hólmi símalín- ur á staurum og jarðsíma; sjálf- virkar símastöðvar o.fl. Sjálfvirk símastöð var sett upp í Reykja- vík og Hafnarfirði árið 1932 og síðan þrisvar stækkuð; á Akur- eyri 1950 og á síðasta ári voru opnaðar sams konar stöðvar 1 Keflavík, Gerðum, Grindaví^, Sandgerði og Innri-Njarðvíkum og sjálfvirku sambandi komið á milli allra Suðurnesja og Reykja- víkur og Hafnarfjarðar. Miklar rannsóknir og undirbúningur hef ur farið fram varðandi upptöku Ultra- og Mikro-fjölrásasambands og þau þegar komin á milli Reykjavíkur annars vegar og Borgarness um Akranes; Keflavík ur og Vestmannaeyja hins vegar. , Myndsímasamband komst á 1960 ; milli íslands og annarra landa og margt fleira mætti upp telja ef rúm leyfði. Ein merkasta framkvæmdin ! komst á síðastliðið ár, er upp var tekið ultrastuttbylgju fjölrásasam band milli Reykjavíkur og Horna- fjarðar og þaðan áfram til sjávar þorpanna á Austfjörðum. Eru þar 12 rásir og þar á meðal útvarps- rás fyrir tal og tóna dagskrár. Ríkisútvarpsins, sem þannig flyzt til þessara staða ótrufluð af er- lendum útvarpsstöðvum. Hefur þannig verið unnin bugur á út- varpstruflunum þeim sem þjakað hafa Austurland að undanförmu. og sfmamálastjóri hefor lagt <yr-j ir Alþingi það er nú situr rök- studdar tillögur um það að koma á sjálfvirku Símasamhandi um allt land á næstu árum. Gerir Gunnlaugur Briem ráð fyrir að þetta verði gert í áföngum en yrði þó lokið fyrir 1970. Ennfrem ur færir hann rök að því, að Landssíminn geti sjálfur etaðið straum af framkvæmdunum, ef hann nyti stuttra lána eða gjald- frests á aðflutningsgjöldum, með því að gífurlegur vinnusparnað- ur kæmi í aðra hönd við fram- kvæmdina, auk stórum hagkvæm ari og ódýrari símanota. Enda þótt framkvæmdir á vegj um símasambands íslands við; önnur lönd og innbyrðis i land-j inu sjálfu hafi verið miklar að; undanfömu eru stærstu skrefin enn í undirbúningi og fyrirhug- uð. Á 50 ára afmæli Landsímans árið 1956 var hingað boðið aðal- forstjóra Mikla Norræna ritsíma félagsins, Bent Suenson. Gunnl. Briem, sem um þær mundir var ag taka við forstjórn Landsímans vakti þá máls á því við herra Bent Suenson, hvort félag hans myndi vilja leggja fram fé, til þess að koma á fullkomnu tal- og ritsímasamband milli íslands og annarra landa með lagningu nýs sæsíma til Bretlands annars vegar og Ameríku um Grænland hins vegar. Þessi uppástunga var studd þeim rökum að hið fyrsta sæsímasamband við ísland frá ár inu 1906 er orðið alsendis ófull- nægjandi. Árangur þessarar mála leitunar hefur orðið sá, að tekist hafa samningar um að Mikla Nor ræna leggi fullkominn sæsíma með neðansjávarmögnurum milli íslands og Bretlands á þessu ári og milli íslands og Nýfundna- lands um Grænland árið 1962. Verður sími þessi með 24 rásum. Þá er þess að geta, að póst- Ég hefi í framanrituðu máli einvörðungu dvalizt við að lýsa nokkuð störfum Gunnlaugs Briem í þágu Landsímans og síðar pósts og síma, enda hafa meginstörf hans verið unnin á vettvangi þeirra stofnana. En hann var einnig starfsmaður Ríkisútvarps- ins um 24 ára skeið. Svo kynlega vildi til ,að eitt af fyrstu verkum hans í opinberri þjónustu var unnið í þágu Ríkisútvarpsins, er hann vorið 1929 var sendur til Prag, til þess að ávinna íslandi langbylgju til útvarpsreksturs. Kynni okkar Gunnlaugs Briems hófust um þær mundir að ég í órsbyrjun 1930 var settur útvarps- stjóri. Spuinir hafði ég þó haft af honum áður, menntun hans og færni og afrekinu sem hann vann í Prag árið áður. Fyrstu lög um opinberan útvarpsrekstur á íslandi gerðu ráð fyrir því að útvarpið yrði undir yfirstjórn landsíma- stióra. Þegar til mála kom að ég tækist á hendur þetta verk, gaf ég kost á því með því ófrávíkjan- lega skilyrði að útvarpið yrði að cliu sérstók ríkisstofnun og undir engan gefin nema ráðherra. Tryggvi Þórhallsson lofaði mér þessu og sróð við öll sín loforð. Þáverandi xandsímastjóra, Gísla J. (i.afssyni pötti þetta miður, en ég held að Gunnlaugur Briem hafi strax skilið afstöðu mína og verið mér sammála um það, að ef út- varpið yrði stofnað mytndi það vaxa til þeirrar stærðar, sem rétt- lætti sjálfstaéða tilveru. Eg var af ýmsum ástæðum mjög hikandi. Sjálfan skorti mig alla þekkingu og kunnáttu, en kreppa í landi og cngar rekstrartekjur fyrir hendi r.é rekstrarsjóður nema mjög naumlega óti látið lán úr ríkis- sjóði. Fleiri ástæður komu og til greina. Eg held að fyrsta samtal nutt við Briem hafi ráðið miklu nm þau úrslit, að ég freistaði þcssa ævintýrs: stórhugur hans og bjartsýni og vissan um það, að hann myndi standa mér til ann- arrar handar og taka að sér for- stöðu allra verklegra framkvæmda og umsjá raeð þeim. Briem var fallur af áhuga og atorku og 6- þreytandi í þeim átökum að kom- ast yfir hina gífurlegu byrjunar- örðugleika varðandi útvarpsnoíin í landinu. Hann lagði ráð á um stofnun Viðtækjaverzlunar ríkis- ios og stf.cnun Viðgerðarstofu út- varpsins. Hann efndi til náms- skeiða fyrir menn víðs vegar að af landinu. til þess að kenna þeim i'Ppsetningu og meðferð viðtækja og einföldustu viðgerðir. Viðtæki þeirra tíma fyrir dreifbýlið voru harla fritmstæð; gengu fyrir tvenns konar orkugjafa samtlmis: þurram rat'hiöðum og votum sýru- geymum, sem sífellt þurfti að hlaða, en i-aíorka var óvíða í land- inu. Þurfti því að styrkja menn viðs vegar ril þess að koma upp litlum hleðslustöðvum. Gunnlaug- or Briem vann með öllum verk- fræðingum, sem Marconifélagið sendi hingað við uppbyggingu stöðvakerfisins og annaðist fyrir útvarpsins hönd frágang allra samninga. \ Rúmið leyfir ekki að þetta sé r.ánar rakið. Mér eru efst í huga hlýjar og pakklátssamarlegar minn ingar um samstarf mitt við þenn- an mann og alla þá sem með okk- ur unnu að því að komast yfir (Framhald á 12. síðu). /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.