Tíminn - 03.05.1961, Blaðsíða 8
8
TÍMINN iniSvikudagiim 3. mai 19gl
Góðir Reykvíkingar!
Við opinberir starfsmenn töknm
af heilum hug þátt í þeim hátiða-
höldum, sem hér fara fram í dag
og leggjum ríka áherzlu á þær kröf
ur um kjarabætur, sem fram eru
bornar, en tökum ekki afstöðu til
annarra mála.
Fynsti maí var upphaflega bar-
áttudagur hinna lægst launuðu,
snauðu og umkomulausustu, en um
leið og þeir sóttu sinn hlut og það
oft með harðri baráttu, af arði
þjóðarbúsins, hefuir dagurinn
verið að leggja undir sig/æ víðara
svið og er þannig að verða bar-
áttu- og hátíðlsdagur allra laun-
þega. /
Tel ég þetta vel farið og eðli-
lega þróun, þar1 sem þeir eiga sam
eiginlegt hagsmunamál, að fá sinn
rétta hluta af þjóðartekjunum sér
og sínum til framfæris.
Það mikla tjón, sem launþegar
hafa beðið af kjaraskerðingu síð-
ustu ára, ætti einnig að þjappa
þeim saman til átaka fyrir bættum
kjörum.
Að vísu má segja að opinberir
starfsmenn séu ekki að fullu hlut-
gengir í þeirri baxáttu, þar sem
okkur er bannaður að lögum verk-
fallsrétturinn.
En vonandi verður þess ekki
langt að bíða, að ríkisstjórn og Al-
þingi sjái að opinberum starfs-
mönnum ber í þessu efni sami rétt
ur og öðrum þegnum þjóðfélags-
ins.
Um miðjan febrúar í vetur er
leið, sendi stjórn Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja ríkisstjóm-
inni kröfur um launabætur til
lianda starfsmönnum ríkisins, er
nema um þriðjungshækkun á laun-
um þeirra.
Var félögum bæjai'starfsmanna
sent afrit af þessum kröfum til af-
nota í sambandi við launakröfur
þeirra.
Rúmur helmingur af þessum
laimakröfum, eða 17,3% er til
þess að mæta þeirri kjararýrnun
sem orðið hefur frá marzbyrjun
1960 og er hér um hreina lág-
markskröfu að ræða. 12.2%, er
kalla mætti inneign síðan í stríðs
lok, ef miðað er við þær launa-
Þjöppum okkur saman um
mestu hagsmunakröfurnar
RætSa Einars Ólafssonar, varaformanns Starfs-
mannafélags ríkisstofnana, á útihátífönni í
Reykjavík 1. maí.
bætur, sem aðrar stéttir fengu á
árinu 1944. 2.3% vanreiknaðar
launabætur frá 1958 og 2% of-
mat á hlunnindum.
Fór bandalagsstjórnin fram á,
að ríkisstjórnin skipaði nefnd til
viðræðna um launakröfurnar, en
ekkert svar hefur enn sem komið
er borizt við þeirri beiðni.
Ekkert svar hefur borizt
frá ríkisstjórninni og enga nefnd
mun hún hafa skipað — þykist
kannske ekki þurfa þess, þar sem
um hálfgerða réttleysingja er að
ræða, sem ekki geta fylgt kröfum
sínum eftir með verkfalli, eins og
aðrir.
Sjómenn hafa í hörðum átökum
í vetur náð nokkurri leiðréttingu
sinna mála.
Óhjákvæmilegt er að aðrir verða
að fylgja á eftir.
Ef til vill má segja, að opinber-
ir starfsmenn séu í skutnum og
verðum við þá að huggg okkur við
hið fomkveðna, að ekki mun skut-
urinn eftir liggja, ef vel er róið
fr’am í.
SAMSTARF LAUNASTÉTTANNA
Opinberum starfsmönnum er
ekki Ijúft að vera sífellt í eftir-
bátnum og þeir vilja sannarlega
sjálfir leggja sitt af mörkum í
sameiginlegri hagsmunabaráttu
allra launþega, en á meðan þeim
er meinaður samningsréttur, hlýt-
ur framlag þeirr'a að verða minna
en þeir kjósa.
sameiginlegri hagstofnun launþega
samtakanna, er hafi það hlutverk
að safna margvíslegum gögnum
um laun og verðlag, framleiðslu-
magn og kostnað, raunverulegt af-
urðaverð o. fl„ sem þjóðarbúskap-
inn varðar.
Sjáum við þá betur hver raun-
veruleg kjör okkar eru og hvers
við gætum með réttu krafizt í okk
ar hlut úr þjóðarbúinu.
Kostnaður við slíka stofnun yrði
óhjákvæmilega nokkur, en hún
gæti sparað launþegum langvar-
andi þjark og verkföll, sem alltaf
eru neyðarúrræði, þótt’ verkfalls-
rétturinn sé sá neyðarréttur, sem
launþegar verða að hafa og aldrei
má skerða.
SÍÐFENGNAR UPPLÝSINGAR
Sumir mundu kannske segja, að í
slík stofnun væri óþarfa kostnað-
ur fyrir Iaunþegasamtökin, þar eð
gagna og upplýsinga mætti afla hjá
| hagstofu ríkisins og öðrum opinber'
i um og hálfopinberum stofnunum.
Sjálfsagt er að afla slíkra gagna
þar sem auðveldast og öruggast er
en launasamtökin verða sjálf
að láta vinna úr þeim, þannig að
þau geti með fullum rökum stutt
réttlátar kröfur sínar.
Reynslan sýnir, að opinberar
stofnanir birta of seint mikilsverð-
ar upplýsingar um þjóðarhag, til
i dæmis var fyrst skýrt frá því opin-
fyr berlega 1960 að þjóðarframleiðsl-
launþegasamtökin í baráttu an hefði á árinu 1955 aukizt um
EINAR ÓLAFSSON
En eitt er þó nauðsynlegt, og
það er að skapa traust og gott sam
starf launastéttanna á öllum svið-
um.
Eitt er það verkefni, sem sér-
staklega kallar að og jgæti að mín-
um dómi haft verulegá þyðingu'fýr
ir
þeirra fyrix’ bættum lífskjörum al
mennings.
12%.
Undirstaða þess að lífskjör al-
mennings batni er aukin þjóðar-
HAGSTOFNUN LAUNÞEGA framleiðsla umfram nauðsyn vegna
Þetta verkefni er að koma á fót | fólksfjölgunar.
ÞJÓÐARFRAMLEIÐSLAN
TVÖFALDAST
Á það ber að leggja mikla á-
herzlu, að gerðar verði áætlanir
um framkvæmdir og framleiðslu
nokkur ár fram í tímann, svo sem
tíðkast mjög hjá öðrum þjóðum.
Nú nýlega hefur verið upplýst,
að þjóðarframleiðslan hafi tvö-
faldast á síðustu 10 árum en þó er
kaupgeta launa okkar minni miðað
við sama tíma.
Þegar við óskum eftir kjarabót-
um er okkur sagt, að fr'amleiðslan
þoli það ekki. Og þá er spurn-
ingin: Er þetta satt.
Við vitum, að tilkostnaður við
öflun nýrra og betri framleiðslu-
tækja og rekstur þeirra er mikill,
en er hann svo mikill, að við verð-
um að gefa með honum með lækk
uðu kaupi.
HVER TRÚIR SLÍKU?
Hefðum við sjálf hagstofnun til
þess að rannsaka málið, hefðum
við rökstutt svar við þessari
spurningu á reiðum höndum.
Við eigum ekki að þurfa að
treysta á aðra, við eigum sjálfir
að geta bent á arfablettina í þjóð-
félagsakrinum, sem eyðileggja upp
skeruna.
Launþegar taka ekki hið minnsta
mark ú hinu gamalkunna kjörorði
— „Atvinnuvegirnir þola ekki það
kaupgjald, sem af þeim er kraf-
izt“. —
I dag þjöppum við okkur saman
um brýnustu hagsmunakröfur okk
ar — og sýnum, að samtök er
máttur.
Landbúnaðarmál
1
J
I
I
I
1
I
I
I
Lárus Jónsson:
Nú á síðari árum hefur kál-
maðkurinn sótt fram, unz hann
nú hefur lagt undir sig nær
gjörvallt landið.
Enda þótt hér sé mikill vá-
gestur seztur að, sem tekur
margan spón úr aski rófnarækt
enda, skyldi eigi gráta Björn
bónda, heldur safna liði og
hefna.
Sem betur fer er málum svo
komið að ýmislegt er hægt að
gera til þess að draga úr eða
hindra spjöll af völdum kál-
maðksins. Varnarlyf gegn kál-
maðki og ýmsum öðrum pest-
arkvikindum eru mikil guðs-
gjöf. '
Þau lyf, sem þekktust eru
Það er hægt að eyða kálmaðkinum
Kálrót, sem ánamaSkur
lagt undir sig.
hefur
hér á landi, eru Rotmakk-
kverk, Lindan og Gesarol.
Vandamál þetta, þ.e. kálmaðk
urinn, er alþjóðlegt. Aðrar þjóð
ir hafa eytt miklu fé til rann-
sókna á vörnum gegn kálmaðki.
Bendir reynsla þeirra eindreg
ið til þess, að ávinningur sé
að þvi að blanda varnarlyfi
t.d. Lindan saman við fræið
áður en sáð er.
Á Hvanneyri hefur verið
gerð athugun á þessu atriði,
ásamt samanburði á einni,
tveimur og þremur úðunum
'eftir uppkomu. Þessi athugun
benti eindregið til hins sama
og erlenda reynslan, að vörn
væri að þvi að blanda Lindan
saman við fræið. Hins vegar
var ekki meginmunur á hvort
úðað var einu sinni, tvisvar
eða þrisvar. Ekki fannst mun
ur á bragði rófna hinna ýmsu
athugunaratriða. Trúlega hefði
náðst betri árangur ef vökvað
hefði verið en ekki úðað.
Norðmenn hafa gert mikið
af athugunum á vörnum gegn
kálmaðki. Það, sem hér fer á
eftir er byggt á nýjustu leið-
beiningum þeirra, sem mér er
kunnugt um (frá árinu 1960).
Vaxtarskilyrði og mótstöðuafl
plantnanna hefur mikla þýð-
ingu í þessu sambandi. Því
betri vaxtarskilyrði, þeim mun
minni hætta á skemmdum.
KÁL
Hafi verið sáð í vermireiti
er ráðlegt að dýfa rótum kál-
plantnanna niður í velling mefi
varnarlyfi um leið og plantafi
er út.
Vellinginn má útbúa þannig:
100 g 2.5% Aldrin-duft í 1 lítra
af jarðvegi (mold eða leir)
hrært út í vatni, svo að úr
verði þykkur grautur. Einnig
má dufta Aldrin-dufti yfir ræt-
urnar, en vellingsaðferðin er
talin öllu skárri.
Fyrir pottaplöntur er hent-
ugast að blanda saman við jarð
veginn 5 kg 2.5% Aldrin eða
4 kg 1.5% Lindan í 1 ms af
jarðvegi.
Gulrófur, næpur og fóðurkál
Öruggast er að vökua með
lyfjunum. Þó er nokkur vörn
í að blanda Aldrin eða Lindan
saman við fræið.
I 1 kg af fræi eru sett 500—
700 gr. af 40% Aldrin, eða 350
—400 gr. af 50% Lindan.
Áður en lyfinu er blandað
saman við fræið er fræið vætt
í 100—180 ml fljótandi ara-
biskt gúmmí (lím) hvert kg
' Framhaid a t3 íiöu.
1
s
I
s
I
i
Hvítu, fótlausu kálflugulirfurnar
smjúga inn i rótarlegginn