Tíminn - 01.06.1961, Blaðsíða 1

Tíminn - 01.06.1961, Blaðsíða 1
NOREGSKONUNGI FAGNAD Áskriftarsfminn er . tbl. — 45. árgangur. i •' _______________ Fimmtudagur 1. júní ’1961. IWHcill mann fjöldi hyllti konung við landtökuna íslendingar fögnuðu í gær Ólafi konungi, þjóðhöfSingja norsku frændþjóðarinnar. Hann sté á land klukkan 11 ár- degis, og var mikill viðbúnað-! ur til þess að taka vel og virðu- lega móti honum. Bærinn var prýddur fánum, og mikiíl fjöldi Reykvíkinga var við höfnina og götur þær, er ekið var um til ráðherrabústaðar- ins, til þess að fagna konung- inum. Veður var ekki sem| fegurst, lágskýjað, en þó milt og gott. Sólin skein yfir bæinn um skýjarof tvisvar sinnum, fyrst stundarkorni áður en konungur sté á land og síðan um hádegið, er konungur hafði lagt blómsveig að styttu Jóns Sigurðssonar á Austur- vellj. Þegar konungsskipið Norge og Bergen, stærsta herskip Norð- manna, voru á siglingu vestur með suðurströnd landsins í fyrri- nótt, lét varðskipið Óðinn frá bryggju og sigldi til móts við norsku skipin. Fylgdi Óðinn þeim siðan til hafnar. Snemma í gær- morgun voru skipin þrjú við Reykjanes, og klukkan um 10 í gærmorgun sigldu þau inn á ytri höfnina í Reykjavik, Norge fyrst, þá herskipið, og Óðinn síðastur. Mannfjöldinn bíður Um sama leyti var verulegur fólksfjöldi farinn að safnast sam- an niðri við höfnina til þess að fagna Noregskonungi og fylgdar- liði hans. Fánar blöktu við götur, og mikill fjöldi barna bar litlar veifur með norskum og íslenzkum fánum. Halvard Lange utanr.ráð- herra Noregs og Bjarne Börde, ambassador, dr. Sigurður Nordal og Valgeir Björnsson hafnarstjóri, fóru í hafnsögubáti um borð í Norge hálfri stund áður en kon- ungurinn skyldi stíga, á land. Lögreglan og skátar stóðu vörð við götur næst Loftsbryggjunni og stjórnuðu umferð mannfjölá- ans. Fjórðungi fyrir 11 voru for- setahjónin og flestallir æðstu em- bættismenn landsins komnir á vettvang. Lúðrasveit Reykjavíkur tók sér stöðu til hægri við bryggj- una. en vinstra megin var flokk- ur lögreglumanna undir sköru- legri stjórn Erlings Pálssonar yfirlögregluþjóns. Stóðu þeir með hendur lyftar í heiðurskveðju, þegar við átti. Konungsbáturínn nálgast Rauður dregill var dreginn yfir nokkur skref af götunni, er tekur við af bryggjunni. Forseta- hjónin, ríkisstjórnin og sá hópur æðstu embættismanna, er heilsa álafur V Noregskonungur geng- ar upp bryggjuna, ósamt forseta íslands, Ásigeiri Ásgeirssyni, og forsetafrúnni, Dóru Þór- hallsdóttur. Á eftir þeim geng ur föruneyti konungs. Gífur- legur mannfjöldi þakti hafnar- bakkann og næstu götur, þegar konungur gekk á land. — Myndirnar frá konungskomunni tók ljósmyndari Tímans, Guð- jón Einarsson. skyldi konungi við iandtökuna, tóku sér stöðu við jaðar Geirs- götunnar, en á bak við þá röð stóðu skátar heiðursvörð. Réttfyrir klukkan 11 var nokkrum sinnum hleypt af fallbyssum á herskip- inu Bergen, og mun með þvi hafa verið gefið til kynna, að konung- urinn væri að stíga frá borði. Þeg ar bátur hans nálgaðist bryggjuna, tóku forsetahjónin ásamt lítilli stúlku, er bar blómvönd, sér stöðu við bryggjuna, en gengu síðan fram hana á hæfilegri stundu lil þess að heilsa konungi um leið og báturinn var landfastur. Litla stúlkan afheníi honum hinn fagra blómvönd. Konungur stígur á land Því næst gekk konungurinn hægum og virðulegum skrefum, klæddur búningi foringja í sjó- hernum, upp hina stuttu bryggju, og gekk forsetinn á vinstri hlið honum, en forsetafrúin á hægri. Ólafur konungur er höfðinglegur maður og karlmannlegur, útitek- (Framhald á 2. síðu). Andstaða meðal launþega gegn tillögu sáttasemjara í dag og á morgun mun fara fram atkvæðagreiðsla um til- lögu sáttasemjara í þeim félög- um, sem eiga í kjaradeilu í Reykjavík og Hafnarfirði. At- kvæði munu verða talin á laugardaginn. Tíminn spurði í gær nokkra menn í umræddum félögum um viðhorf þeirra til tillögu sáttasemj- ara og fara svör þeirra hér á eftir: Jón D. Guðmundsson, verkainað- ur á Ránargötu 1A., svaraði spurn- ingu blaðsins á þessa leið: — Ég er eindregið andvígur til- lögunni og tel víst að aðrir Dags- brúnarmenn séu það. Ástæðan er sú, að ég tel verkamenn hafa þörf fyrir mun meiri hækkun eftir hina miklu aukningu dýrtíðarinnar seinustu misserin, en margir þeirra hafa ekki fengið hana neitt bætta. Ég álít einnig, að atvinnu- vegirnir geti greitt hærra kaup, ef ríkisstjórnin lækkar vextina, dreg- ur úr lánsfjárhöftum og lækkar ennfremur söluskatta. Ef hið síð- astnefnda væri gert, þyrftu verka- rnenn líka minni kauphækkun en I að mikið skortir á að þær 1160 ella. kr., sem járnsmiðir hafa í viku- kaup hrökkvi fyrir brýnustu nauð- synjum hvað þá öðru. Kjaraskerð- Sveinn Gamalíelsson, verkamað- ur, sem á sæti í stjórn Alþýðusam-! ingin yrði ekki nema að litlu bætt, _bands fslands, svaraði á þessa leið: |þótt tillaga sáttasemjara yrði sam- ■ — Ég er eindregið á móti tillög-1 þykkt. 1 unni og sama gildir um aðra Dags-! brúnarmenn, sem ég hef haft tal i Sigurður Sigurjónsson, rafvirki, af. Tillagan gengur allt of skammt sem á sæti í stjórn Rafvirkjafélags ti! móts við nauðsynlegar og sann- gjarnar óskir verkamanna, sem vel á að vera hægt að fullnægja, ef rétt er haldið á málum. Þá er gert ráð fyrir að taka aftur upp að vissu marki nýtt vísitölukerfi, sem ég tel þurfa miklu betri athugun áður en verkamenn taka afstöðu til þess. Með því er gefið undir fótinn, að verðlag eigi að hækka, en gegn því þarf einmitt að sporna. Ég tel víst, að verkamenn muni fá betri samninga, ef tillagan verður felld. Pétur Sörlason, járnsmiður, Álf- lieimum 28, svaraði á þessa leið: — Járnsmiðir hafa boðað vinnu- stöðvun frá næstu helgi og eru því ekki komnir í verkfall enn. Ég tel tillögu sáttasemjara ganga alltof skammt og fráleitt að gengið verði að henni. Kaupmáttur launa hefur rýrnað svo mjög síðustu tvö árin spurmngunm a íslands, svaraði þessa leið:' — Ég er andvígur tillögunni. Finnst hún ganga allt of skammt til móts við fram komnar kröfur verkalýðsfélaganna. 6% ná skammt til þess að bæta upp þá lífskjara- skerðingu, sem átt hefur sér stað s.l. ár. Um 4% sem lofað er næsta ái vil ég segja það, af fenginni reynslu, að stjórnarvöldin munu ekki hafa mikið fyrir því að vera búin að ná af okkur að minnsta kosti 8% áður en þeir veita okkur þessi 4% sem lofað er. Mér virtist þeir rafvirkjar sem ég hef talað við vera andvígir þess- ari tillögu sáttasemjara. Þeim finnst vikukaupið, sem er 1163.75 kr., fljótt að fara fyrir allra nauð- synlegustu þörfum. (Framhald á 15. síðu), Sæfaskipun í forsetaveizlunni bls. 7. -rTT' ~"’1

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.