Tíminn - 01.06.1961, Side 2
2
T í MIN N, fímmtudaginn 1. júní 1960.
Konungi fagnað
(Framhald af 1. síðu).
inn í andliti. Hann var glaðlegur
í fasi og brosti og heilsaði með
hendinni, en fagnaðarkliður fór
um ' mannfjöldann. Næst á eftir
gengu Halvard Lange utanríkisrág
herra og dr. Sigurður Nordal. Við
hlið hans gekk litla stúlkan, er
fært hafði konungi blómvöndinn,
og ræddi Nordal vig hana á leið
upp bryggjuna. Þar á eftir gengu
fylgdarmenn konungsins, Odd
Grönvold stallari, E. T. Lunde-
gaard ofursti, Arne Haugh major
og V. G. Thorsen komandór kap-
teinn, skipherra á Bergen. Bátur-
inn sneri þegar í stað aftur á leið
til skips, en á þessum andartök-
um höfðu kvikmyndarar og Ijós-
myndarar, sem staðið höfðu í
hnapp við bryggjuendann, hvað
mest að gera. Er konungur, ásamt
forsetahjónunum, var kominn af
shryggjunni á dregilinn rauða, hóf
luSrasveit Iteykjavikur, sem stóð
á hægri hönd, að leika norska
, ^jofSsönginn: „Ja,vi elsker _ dette
iJandet", og síðan lék hún „Ó, guð
yprs lands“. Konungur bar hönd
a8 höfði í kveðju á meðan, for-
setinn lagði hönd að brjósti sér.
Kynning og kveðjur
Að svo búnu héldu kveðjur
áfram. Forsetahjónin kynntu kon
unginn fyrir íslenzkum embættis-
mönnum, er stóðu í röð við Geirs-
götuna. Voru það Ólafur Thors,
forsætisráðherra, Guðmundur í.
Guðmundsson, utanríkisráðherra,
Bjarni Benediktsson, dómsmálaráð
herra, Emil Jónsson, félagsmála-
ráðherra. Gunnar Thoroddsen,
fjármálaráðherra, dr. Gylfi Þ.
Gíslason, menntamálaráðh., Ing-
ólfur Jónsson, landbúnaðarráð-
herra, Friðjón Skarphéðinsson,
forseti sameinaðs alþingis, Gizur
Bergsteinsson forseti Hæstaréttar,
frú ambassadors Noregs, Harald-
ur Guðmundsson ambassador, —
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri,
frú Auður Auðuns forseti bæjar-
stjórnar Reykjavikur, Birgir
Thorlacius, ráðuneytisstjóri for-
sætisráðuneytisins, Agnar Kl. Jóns
son, ráðuneytisstjóri utanríkis-
ráðuneytisins, Haraldur Kröyer
forsetaritari, Hörður Bjarnason,
húsameistari ríkisins, Sigurjón
Sigurðsson, lögreglustjóri, Torfi
Hjartarson, tollstjóri, Finn Sand-
berg sendiráðsritari, Othar Elling
sen ræðismaður.
Ekið í Tjarnargötu
Fyrirfólkið steig nú inn í bif-
rciðir, og var ekið þá leið, sem
áður hafði verið auglýst, til ráð-
herrabústaðarins við Tjarnargötu.
Mannfjöldinn dreifðist þegar frá
höfninni, og hvarvetna var fjöl-
menni við gþturnar, sem farið var
um. Bar rnikið á börnum, sem veif
uðu litlum fánum, og setti þetta
skemmtilegan svip á móttökumar.
Konungurinn og forsetinn voru í
fyrsta bílnum, en að ráðherrabú-
staðnum kom bíll með lögreglu-
stjóra á undan. Var þar saman-
kominn mikill mannfjöldi, sem
beið komu konungs. Lögregluþjón
ar á bifhjólum fóru fyrir og á
efti bílalestinni. Konungurinn
gekk nú inn í ráðherrabústaðinn,
þar sem honum .hefur verið feng-
inn bústaðu.r, meðan hann dvelst
hér á landi. Eftir andartak kom
hann, ásamt forseta íslands út á
svalir hússins, og var ákaft fagn-
að. Stóð fólk og fylgdist með,
bæði í Tjarnargötu og Suðurgötu.
Margir höfðu á lofti myndavélar
og hugðust taka myndir af kon-
ungi, er hann æki hjá. En það
var hægara ort en gert, því að
myndir takast ekki vel inn um
bílglugga. Við eina götu voru
meðal annarra þrír ungir svein-
ar með ka&savélar, ákveðnir í að
mynda konunginn. En það tókst
þeim ekki. Þótti þeim það gð vísu
súrt í brotið — en gáfust þó ekki
u, p að heldur. Þeir fóru rakleiðis
að bókaverzlun Braga Brynjólfs-
sonar, en þar var stór mynd af
konungi á forsíðu Fálkans í glugg
anum. Þar tóku þeir myndir og
héldu heim hinir ánægðustu.
Kennedy ákaft
fagnaö í París
NTB—París, 31. maí.
í morgun, klukkan hálf-ellefu
cftir íslenzkum tíma, lcnti flugvcl
Kcnnedys Bandaríkjaforseta og
konu hans á Orly-flugvcllinum í
París, og var þeim hjónum innilega
fagnað af hálfri annarri milljón
Parísarbúa. Á flugvellinum tók de
Gaulle, Frakklandsforseti, á móti
hinum tignu gestum með útbreidd-
an faðminn og með bros á vör.
Á flugvellinum hélt Kennedy
stutta ræðu, þar sem hann m. a.
beindi orðum sínum sérstaklega til
de Gaulle og sagði: „Það er mikill
heiður fyrir mig að mega heim-
sækja yður í dag. Þér hafið verið
forustumaður vestrænna varna í
Frá fréttaritara Tímans
á Sauðárkróki
Síðastliðinn mánudag bar
svo við á bænum Svaðastöðum
í Viðvíkurhreppi, að kýr gat
ekki fætt afkvæmi sitt, og var
framkvæmdur á henni keis-
araskurður, sem tókst prýði-
lega. Virtist kýrin ætla að fá
meir en tuttugu ár. Við þöifnumst
dugnaðar yðar, forustuhæfileika
og söguþekkingar nú, meir en
nokkru sinni fyrr. Frakkar og
Bandaríkjamenn hafa staðið sam-
an í mörgum eldraunum, og það er
mér og konu minni sönn ánægja
að njóta gestrisni yðar og þjóðar
yðar nokkra daga.“-
Rúmri klukkustund eftir kom- i
una, hófust svo viðræður forset-
anna í Elysee-höllinni, og var þar
mest rætt um Berlínarvandamálið,
vandamálin í Suðaustur-Asíu og
Genfarfundinn um málefni Laos.
Eftir hádegisverð færði de
Gaulle hjónunum gjafir, og fékk
Kennedy að gjöf mahogny-skáp frá
17. öld, en frúin gullbryddað veski.
Tveir kálfar — eitt höfuð
Afkvæmi kýrinnar var heldur
óvenjulegt. Það voru raunar tveir
kálfar, sem voiu samvaxnir fram-
an bóga og með aðeins eitt höfuð.
Tveir halar voru á ófreskju þess-
ari og átta fætur. Rétt aftan við
bógana var gat og sá þar á innyfl-
in, sem virtust vera ein, að því er
dýralæknirinn taldi. Burðurinn er
nú geyindur í frystihúsi, en frekari
rannsókn mun fara fram á honum
Athöfn á Austurvelli
Á hádegi var mikill mannfjöldi
saman kominn á Austurvelli, en
þangað kom konungurinn til þess
að leggja blómsveig að minnis-
varða Jóns Sigurðssonar og heim-
sækja alþingishúsið. Konungur sté
úr bifreig sinni framan við alþing
ishúsið og gekk að styttunni,
ásamt forseta íslands. Karlákórar
bæjarins stóðu sameinaðir á gras
hyrnunni framan við landssímahús
ið og nutu sín enn betur en venju
legt er u,m slíkan útisöng, er þeir
sungu þjóðsöngvana.
Stallari konungs bar blómsveig
inn eftir honum að styttunni, en
konungur sté upp á pall sem þar
hafði verið reistur og gekk þar
frá honum. Á eftir sungu kór-
arnir norska konungssönginn. Er
konungur og forseti gengu frá
styttu Jóns Sigurðssonar, gekk
fram skátahöfðingi á miðjum
Austurvelli, bað fólkið hylla
Noregskonung með ferföldu húrra
hrópi. Hvort tveggja var, að eng
an magnara hafði hgnn til að
flytja mál sitt í, og fólk varð ekki
samtaka um húrrahrópin, enda
tókust þau heldur báglega. Kon-
ungurinn kom andartak fram á
svalir alþingishússins, en síðan
var snæddur hádegisverður í ráð-
herrabústaðnum.
I Fossvogi
Klukkan 3,40 síðdegis hófst
virðuleg og guðrækileg norsk at-
höfn við minnisvarðann um fallna (
norska hermenn í Fossvogskirkju
garði, er konungurinn kom þang-
að til þess að leggja blómsveig.
Flokkur sjóliða af Bergen með,
foringjum sínum hafði gengið |
fylktu liði í Fossvog og stóð þar |
vörð meðan athöfnin fór fram. j
Séra Harald Hop talaði við minn-1
isvarðann og konungurinn lagði
blómsveiginn. Karlakórinn Fóst-
bræður söng við þetta tækifæri.
Ag athöfninni lokinni marsjeruðu
sjóliðarnir niður að höfn í Reykja
vík. Fór lögreglubifreið fyrir
þeim síðasta spölinn ,og íslenzkir
lögreglumenn gengu í bak og fyrir
tvíraða fylkingunni. Klukkan
fimm síðdegis var móttaka kon-
ungs fyrir forstöðumenn erlendra
sendiráða í Reykjavík, og í gær-
kvöldi var konungsveizlan, sem
segir frá annars staðar í blaðinu.
fullan bata eftir þessa fátíðu
skurðaðgerð.
Það var dýralæknirinn á Sauðár-
króki, Steinn Steinsson, sem fram-
kvæmdi skurðaðgerðina við frem-
ur erfiðar aðstæður, þar sem kýr-
in var skorin upp á básnum í fjós-
Skagafirði. G.Ó.
síðar.
Af kúnni er það að segja, að
henni heilsast vel. Er hún farin að
standa á fætur og komin upp í 7
merkur.
Hér er um mjög merkilegan at-
burð að ræða, og telur fréttaritar-
inn, að ekki hafi áður verið fram-
kvæmdur keisaraskurður á kú í
Skagafriði. G.Ó.
Keisaraskurður
gerður á kú
Róa Húsavíkur-
bátar í dag?
Verkafólk og atvinnurekendur á Húsavík Ieggja
áherzlu á atJ Ijúka verkfallinu
í gær náðist samkomulag
milli atvinnurekenda og samn-
inganefnda verkamanna á
Húsavík að því leyti, að sam-
þykkt var að leggja samninga-
tilboð atvinnurekenda, það,
sem gert var s.l. laugardag,
undir atkvæði verkamanna.
Fór atkvæðagreiðslan fram í
gærkvöldi, en of seint til þess
að hægt væri að birta úrslit
hennar í blaðinu í dag. Þó var
talið líklegt, að verkamenn
myndu samþykkja þessa samn
inga.
Eins o-g áður hefur verið frá
sagt, lögðu atvinnurekendur á
laugardaginn fram tilboð þess
efnis, að kaup verkamanna hækk-
aði um 12,5% í öllum launaflokk-
um nema þeim lægsta, en hann
skyldi lagður niður og þeir sem
þar voru fluttir upp í næsta fyrir
ofan, en það hefði þýtt 15% kaup-
hækkun fyrir þá. Kaup kvenna
skyldi hækka um sömu krónutölu
og kaup karlanna, en það þýddi í
rauninni enn meiri hækkun fyrir
þær. Samningurinn átti að gilda
til 1. ágúst.
Verkamenn féllust fyrir sitt
leyti á tilboðið, en konur ekki.
í fyrradag var síðan á fundi bæj-
arstjómar lögð fram tillaga um á-
Höfðingleg
gjöf
f Sjómannadagsblaðinu, sem
út kemur næstkomandi sunnu
dag, pr frá því skýrt, að fyrir
fimm árum liafi stjórn DAS
femgið höfðinglega gjöf frá
Þórarni Olgeirssyni, ræðis-
manni í Grímsby. Er hér um
að ræða 1000 krónur í skulda
bréfum. í gjafabréfinu lagði
Þórarinn svo fyrir, að ekki
mætti skýra frá þessari gjöf
fyrr en eftir fimm ár, og ekki
mætti veita styrki úr sjóðnum
fyrr en höfuðstóll hans næmi
einni milljón króna. Að þess-
um fimm árum liðnum skyldi
semja sjóðnum skipulagsskrá,
sem ptaðfest yrði af Stjórnar-
ráði fslands. Sjóður þessi nem
ur nú um 132 þúsundum króna,
og mun hann bera nafnið
„Styrktarsjóður Þórarins 01-
geirssonar“. Er honum ætlað
að styrkja aldraða togarasjó-
menn.
skorun á hendur verkafólki um a?
taka þessu tilboði. Var tillagan
flutt af Framsöknarmönnunum
Karli Kristjánssyni, Stefáni Sör-
enssyni, Ásgeiri Kristjánssyni og
Jóhanni' Hermannssyni, ásamt Al-
þýðuflokksmanninum Guðmundi
Hákonarsyni. Sjálfstæðismaðurinn
í bæjarstjórninni, Þórhallur Snæ-
dal, greiddi ekki atkvæði, né hcld-
ur Einar Fr. Jóhannesson, Al-
þýðuflokksmaður, en við umræður
kom í ljós, að Sjálfstæðismaðurinn
var fremur hlynntur því,’ að tillaga
þessi yrði samþykkt.
Hafi tilboðið verið samþykkt í
gærkvöldi, munu Húsvíkingar hafa
leyst báta sína, 40—50 talsins, í
morgun og tekið til við veiðar á
vorvertíð. Fyrir verkfall var aflinn
mjög góður, og er vonandi, að
slíkt haldist, því mikið er í húfi
að ná fiskinum, meðan hann er til
staðar.
Trujillo myrtur
Þær fregnir bárust frá London
og Washington seint í gærkveldi,
a'ð Molina Trujillo, einvaldur í
Dominikanska lýðveldinu, hafi
verið myrtur. Fregnir af atburði
þessum eru mjög óljósar, og ekki
j er vitað með hverjum hætti
morðið var framið, né hver dráps
maðurinn er. Trujillo var 69 ára
að aldri, og var alla tíð frá 1930
mestur áhrifamaður í ríkinu bæði
sem forseti og utan forsetastóls.
Fengu 15 ár
NTB—PARÍS, 31. maí. — Kveð-
inn var í dag upp dómur í máli
hershöfðingjanna tveggja, Maur-
ice Challe og André Zeller, sem
dregnir voru fyrir rétt, ákærðir
fyrir föðurlandssvik, en þeir
voru, sem kunnugt er, aðalfor-
sprakkar uppreisnarinnar í Alsír,
fyrir skemmstu. Hlutu þeir 15
ára fangelsi, og er það mildur
dómur miðað við það, að dauða-
refsing liggur við broti því, sem
þeir voru sakaðir um. Saksóknar-
inn hafði krafizt 20 ára fangelsis
dóms.
Leiðrétting
Það leiðréttist hér með, að á
cinum stað í frásögn blaðsins í gær
af tillögum sáttasemjara í vinnu-
deilunum var talað um „tilboð
atvinnurekenda", þar sem um til-
Iögu sáttasemjara var að ræða.
Þetta leiðréttist hér með.
Flokksstarfið úti á landi
Kjördæmabingiíi í SuíJurlandskjördæmi
Kjördæmaþing Framsóknarmanna í Suðurlandskjördæmi verður
haldið að Hvolsvelli n.k. laugardag og hefst kl. 1.
Framsöguerindi, sem flutt verða eru þessi:
Flokksmál: Framsögum.: Ágúst Þorvaldsson, alþnu
Hafnarmál: Framsögum.: Björn Fr. Björnsson, alþm.
Lánsfjármál landbúnaðarins: Framsm.: Helgi Bergs, vcrkfr.
Heilbrigðismál: Framsm.: Matthias Ingibergsson, lyfsali
Vormót kl. 9
Um kvöldið kl. 9 hcfst svo almenn skemmtun. Áparp flytur
Björn Fr. Björnsson, alþm. Árni Jónsson, óperusöngvari syngur,
og Hjálmar Gíslason, gamanleikari skemmtir. — Echo-kvintettinn
leikur fyrir dansi. Jakob syngur með hljómsveitinni