Tíminn - 01.07.1961, Page 7

Tíminn - 01.07.1961, Page 7
falirm brodd, en það er einmitt inm og þessi broddur, sem heldur'*okk „Listinþarf aö kom ast til fólksins" „Listin þarf að komast til fólksins". — Þessi orð gætu verið sameiginleg einkunnar- orð almennings og listarinnar, og þau segja allt, sem segja þarf um það hugarfar, sem ekki einungis lætur sér nægja að hugsa þau og tala, heldur gerir þau að veruleika í verki. Þau hafa verið nokkurs konar gunnfáni Ragnars í Smára allt til þessa dags og borið áfram starf hans. Það hefur sannast betur nú en nokkru sinni fyrr, að þau eru ekki innantóm skrautyrði, sögð af því að þau hljóma fallega. — Þú ert kominn af bænda- og alþýðufólki, er það ekki? — Jú, pabbi var bóndi og hafði í æsku sinni mikið fjárbú og gerði auk þess út vor- og vertíðar- skip, sem hann stjórnaði sjálfur. — Þú heíur þá síiemma orðið að taka til hendinni? — Það var óskapleg vinnuharka heima. — Eitt sumar, þegar ég var 12 ára, höfðu verið stöðugir óþurrkar lanigt fram í ágúst og rímur á vökunni, meðan fólkið vann. Svo var skeggrætt fram og aftur um það, sem lesið var. Það var líka mikið til af bókium heima. Vði bræðurnir fluttum með okkur bækur í koffortum út á engjarn- ar og lásum þær, þegar við áttum að þvo okkur og skipta um föt. — Hvernig var annars mann- lífið á Eyrarbakka á þessum tím- um? — Það var mikið menningarlíf á Eyrarbakka miðað við það, sem þá var annars staðar á Suðurlandi, þar var sungið, spilað og leikin ; leikrit. Tvö sumur áður en ég fermdist var ég hjá frændfólki mínu á Loftsstöðum í Flóa. Þar| var nú líf í tuskunum, — spilað. á orgel, fiðhu harmónikku ogj ; munnhörpu. Á laugardagskvöld-! um kom fólk af öllum Loftsstaða- ! bæjunum og söng og dansaði langt fram á nótt. Það var spennandi líf á Loftsstöðum. — Hvenær hélztu svo út í heim-' i inn? j — Eg fór að heiman, þegar ég ■ var sextán ára, í vendunarskól- | ann. Þá kynntist ég Guðrúnu Er- j lings. Það var einhver stórbrotn- asta kona, sem ég hef kynnzt. j Fórnarlund hennar var svo mikil, ' að hún var bókstaflega á hlaupum ekkert hægt að hirða. Loks kom norðangarður og þurrkur. Við vor- um þá að slætti á Kaldaðamess- landi, þvi að litlar slægj; ur voru á Eyrarbakka. í þrjár vikur samfleytt var flutt hey heim frá klukkan þrjú að morgni til tólf að kvöldi — sofið í þrjá tíma. Það voru sumir orðnir framlágir um það er lauk. Eg man, að þegar við tókum hestana, voru þeir næstum í sömu sjjorum og þeir höfðu ver ið, þegar við skildum við þá, stóðú bara og reyndu að rífa eitt- hvað í sig. Á veturna var byrjað að róa klukkan þrjú og fjögur á morgnana. Það var altjrei þolað, að hásetarnir mættu ekki stund- víslega til skips. Það kom fyrir, að háseti, sem ekki kom nógu snemma til þess að ýta skipinu á f.lot, fékk í refsingarskyni bara hálfan hlut. Einu sinni sá ég há- seta koma hlaupandi í þann mund, sem skipið var að komast á flot, — hann ætlaði að stökkva um borð, en hendur hans voru losaðar af borðstokknum og hann látinn snúa í land aftur Lífið lætur ekki bíða eftir sér. — Var nokkur timi til annars en vinnu? — Jú, það var sungið mikið og lesið hoíma. Mamma las o2. kvað' til þess að leita uppi fólk, sem hægt væri að gera eitthvað fyrir. Heimili hennar var nokkurs kon- ar listahöU, og þar kynmtist ég strax fyrsta veturinn Halldóri Kiljan, Davíð Stefánssyni, Sigurði Nordal, Ásgrími Jónssyni, systr- unum Herdísi og Ólínu, Ólöfu frá Hlöðum og fleira listafólki. Á heimili Guðrúnar Erlings var mik ið leikið á hljóðfæri, rætt um bók menntir af miklum hita, trúmál, heimspeki og stjórnmál. Eg efast um, að nokkur háskóli hafi haft upp á meiri og fjölbreyttari menn ingaráhrif að bjóða, en heimili Guðrúnar Erlings í Þing'holtsstræti i 33, og seinna meir annað heimili, I heimili Erlendar í Unuhúsi. Tveirj menn aðrir, sem ég kynntist á j fyrstu árum mínum. í Reykjavík, Páll ísólfsson og Tómas Guðmunds1 son, og einn, sem ég kynntist síð- ar, Magnús Ásgeirsson, verða mér ^ ávallt jafn þýðingarmiklir og ó- gleymanlegir og heimili foreldra minna í Mundakoti, þar sem þrátt fyrir óskaplega vinnuhörku, var alltaf tími til að lesa og syngja j — Þetta hefur gert þig að liðs- manni listarinnar. — í því umhverfi, sem ég hef hrærzt, er ekki hægt að forðast, bakteríu listatrúboðsins, hún hel j tekur mann og sjúkdómseinkenn in hljóta að koma í ljós. — Og þá hefurðu farið að gefa út bækur. — Já, ég gerðist útgefandi upp haflega vegna persónulegra kynna við Tómas Guðmuindsson og Guð- mund Böðvarsson. Kvæðabók Guð- mundar var fyrsta bókin, sem ég gaf út, sjálfur. — Þú varst líka einm af stofn- endum Tónlistarfélagsins, var það ekki? — Við stofnuðum Tónlistarfé- lag nokkrir búðarstrákar og sendi sveinar fyrir þrjátíu árum undir forystu Páls ísólfs'sonar og síðar Tónlistarskólann. — Nú nýlega voru miklar deil- ur um framtíð sinfómuhljómsveit arinnar, og það eru til memn, sem vilja hana feiga, af því að hún sé svo þurftarfrek. ' — Eg persónulega er fremur sparsamur máður og leiðist fólk, sem fer illa með peniuga, en ég álít, að sinfóníuhljómsveit sé svo þýðingarmikill liður í andlegu uppeldi, að hún eigi að skipa sams konar hlutverk og Háskól- inn og Þjóðleikhúsið. Eg treysti mér til að benda á mörg opinber fyrirtæki, sem ýmist mætti leggja niður eða draga saman. Myndi þanniig sparast miklu meira fé, en þarf til að reka si.nfóníuhljóm- sveit. Ríkið og bærinn ættu að Leggja henni til eina og hálfa milljón krónur hvor aðili, annarra tebna gæti hún aflað sér með leik sínum. Eg held að allir aðst.and- endur hennar séu á einu máli um það, að hún eigi að vera sjálf- stæð, opinber stofnun, sem fyrst. Útvarpsstjóri og útvarpsráð hafa sýnt henni mikla velvild, og ég vona, að útvarpið sjái sér fært að annast rekstur hen-nar, þar til það er komið í kring. — Hvenær komu málverkin til sögunnar? — Eg var tiður gestur fyrstu árin mín á vinmustofu Ásgríms Jónssonar og fylgdist með, hvern ig málverk urðu til, á sama hátt og ég hef fylgzt með mörgum myndum Jóns Stefánssonar, Kjar- vals og Schevings frá fyrstu frum- dráttum til fullkomins listaverks. Þannig urðu málverkin og sköp un þeirra mér nátengd. Eg hef sjálfur enga hæfileika í neina átt, reyndi einu sinni að leika á hljóðfæri, en það komst aldrei lengra. Eg hef aldrei reynt að mála eða yrkja. Myndasafn mitt gefur ekki al- veg rétta mynd af íslenzkri nútíma málaralist. Eg hafði lítil kynni af Gunnlaugi Blöndal, Fiinmi Jóns- syni, Sveini Þórarinssyni og fleiri ágætum málurum, og eignaðis.t því ekki myndir eftir þá, en hef hugs að mér að reyna að ná í þær, því safnið verður vitanlega að vera sem áreiðanlegiust mynd af list- sköpun okkar áð'ur en gerð er bók um safnið, sem ráðgert er. Krist- ín Jónsdóttir var ein þeirra mál- ara, sem ég hafði rætt við um þessa hugmynd mína, enda var vinátta okkar gömul og traust. Hún sagði alltaf, hugsaðu fyrst og fremst um að fá myndir eftir Jón Stefánsson, því að þeim verð- ur erfiðast að ná. Hjá mér geturðu alltaf fengið mynd. — Hvað réð þeirri ákvörðun þinni að gefa þessi 120 málverk til alþvðulistasafns? — Eg óx upp meðal alþýðu fólks og mér finnst ég tilheyr; því. — Það eru 20 ár síðan ég ákvað, hvað ég áetlafíi að gera við myndirnar. Listin þarf að komast til íólksins. Alþýðusafn á Erlendur í Unuhúsi. ekki að vera stofinun, þar sem memn spásséra inn í því sérstaka augnamiði að skoða myndir, held ur hluti af umhverfi fólksins, þar sem líf og list geta sameinast. Eg-mundi því kjósa, að' það hús- næði, sem kann að verða byggt yfir þessar myndir, væri um leið hressingarheimili, samkomustað- ur almenniings, þar sem tónlist orðsins list og myndlist gætu kom ið til mannsins, þegar hugur hans' er opinn — utan hins daglega brauðstrits. — En hvað þá um málverk á heimiLunum? — Eg álít, að þær myndir, sem fólk hefur hjá sér á heimilinu, eigi að vera sem mest eftir lif- andi málara, helzt unga, því að þá er tryggð þátttaka almennings í því, sem verið er að skapa á hverjum tíma. Um leið og lista- verk fara að hafa sérstakt víð- tækara gildi ættu þau að verða eign safna. Menn ættu hreinlega að gefa slíkar myndir á söfn, en ekki láta þær ganga í ættir og eiga það á hættu, að þær verði að kölkuðum gröfum. Ný list hefur í sér vissan óróa, ur vakandi, snertir okkur og leit- ar sífellt á okkur. Það er líka mesti misskilningur, a? lífið eigi að vera þægilegt, sannleikurinn er sá, að lífið er hræðilegt fyrir- tæki, og til þess að fá eitthvað út úr þvf, er oft óhjákvæmilegt að ráðast í lífshættur og þá reynir á manngildið. Faðir minin sagði einu si.nni við mig: „í rauninni eru aðeins til tvær gerðir manna, menn, sem gefast upp og menn, sem ekki gefast upp“. — Hvert er viðhorf þitt til list- arinnar? — Dýrið', sem fæþist, leitar uppi samkvæmt eðlislögmáli spena eða brjóst, þar sem næringu er að finna. Listin er mér sams konar veruleiki — andlegur næringar- kraftur, sem viðheldur heilsu minni og lifi. Sá, sem ekki lifir með myndlist, les bækur eða hlustar á tónlist, er ekki líklegur til að halda góð'ri heilsu. Annars er ég bara venjulegur kaupmað- ur, sem verzlar með þessar fæðu- tegundir eins og aðrir selja mjólk og ost, og þetta er mjög skemmti- leg atvinna. Það er eitt sameiginlegt með list- Á stööli — Gunnlaugur Scheving. TfMINN, laugardaginn 1. júli 1961.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.