Tíminn - 01.07.1961, Síða 12
12.
T í MIN N, laugardaginn 1. júlí 1961.
iz
RITSTJORI: HALLLIR SIMONARSON
Fjölmennasta íþrdttamdt, sem haldiö hefur
verið hér á landi, hefst aö Laugum í dag
Elléfta landsmót Ungmenna-
félags íslands hefst í dag kl.
níu að Laugum í Þingeyjar-
sýslu og er það fjölmennasta
íþróttamót, sem háS hefur
verið hér á landi, en þátttak-
endur í íþróttum landsmótsins
munu vera um sex hundruð
talsins, og meðal þeirra eru
margir kunnir íþróttamenn. í
gær streymdu þátttakendur og
áhorfendur að Laugum, og má
reikna með, að þar verði þús-
undir manna um helgina.
Frjálsíþróttakeppnin verður hin
umfangsmesta á þessu ellefta
landsmóti. Keppt verður í 18
greinum, og í sumum þeirra eru
keppendur um og yfir 30 talsins,
og verður keppnin því óvenju
skem'mtileg. Það er gaman að
horfa á langhlaup og millvega-
hlaup. þar sem fjölmargir, jafnir
keppendur bítast um fyrstu sæt-
in. Þá verður frjálsiþróttakeppn
in að þessu sinni enn þýðingar-
meiri, þar sem keppendur verða
valdir á mót í Vejle í Danmörku
eftir þeim árangri, sem næst á
Laugum.
Keppendur í íþróttum eru um sex hundruð
Laugar í Reykjadal. — Þar verða þúsundir um helgina.
GLÍMUKÓNGURINN
Þá verður og keppt í mörgum
greinum íþrótta, þar á meðal ís-
lenzkri glímu_ og meðal þátttak-
enda þar er Ármann J. Lárusson
frá Ungmennafélaginu Breiðablik
í Kópavogi, hinn margfaldi íslands
meistari, og af mörgum talinn
einn beztj glímumaður, sem ís-
land hefur átt. Ekki þarf að efa,
að Þingeyingar munu hafa sér-
stakan áhuga fyrir glímunni —
en Þingeyjarsýsla var um eitt
skeið vagga glímuinmar á íslandi.
Knattspyríiukeppnin verður ekki
fyrirferðarmikil á mótinu, því að
undanrásir í knattspymunni hafa
þegar farið fram víðs vegar um
land, og á landsmótinu keppa að-
eins þrjú lið til úrslita, og sama
gildir einnig um handknattleik-
inn. ' |
Sundkeppnin verður áreiðan-
lega ein Skemmtilegasta keppni
mótsins, því ungmemmafélögin eiga
mörgum góðuim sundmönnum og
konum á að skipa. Alls verður
keppt í tíu sundgreinum. Þá verð
ur keppt í starfsíþróttum, og
tveir Ieikfimisflokkar, annar frá
Seyðisfirði en himn úr Þingeyjar-
sýslu, munu sýna fimleika. Þá
munu þjóðdansasýningar mjög
setja svip sinn á mótið.
MARGT FLEIRA TIL
SKEMMTUNAR
Þótt iþróttakeppnin muni setja
mestan svip á landsmótið verður
þó margt annað til skemmtunar.
Þrír karlakórar munu syngja á
mótinu, og blandaður kór frá
kirkjukórasambandi Þingeyinga,
skipaður 130 körlium og konum.
Þá mun Lúðrasveit Akureyrar
skemmta báða dagana, en á kvöld
in verður dansað á þremur stöð-
um, úti og inni.
SERSTOK HATIÐASAMKOMA
Klukkan 13.30 á sunnudag verð
ur sérstök hátíðasamkoma, sem
Finnland vann Noreg
á öllum vígstöðvum
Tveir blaða-
menn á mótið
TÍMINN mun senda tvo
blaðamenn á landsmótið á
Laugum, og munu þeir skrifa
ítarlega um það eftir helgina.
Blaðamennimir eru Guðrún
Bjartmarsdóttir og Hjörtur
Hjartarson, en hann mun ann-
ast íþróttasíðu TÍMANS næstu
vikurnar í fjarveru ritstjórans.
Þá mun og sérstakur Ijósmynd-
ari frá blaðinu taka myndir af
landsmótinu.
hefst með messu. Séra Eiríkiur J.
Eiríksson, formaður Ungmenna-
félags íslands, prédikar. Ræður
f'lytja Ingólfur Jónsson, landbún
aðarráðherra. Jóhann Skaftason,
sýslumaðúr og Karl Kristjásiisson,
alþingis.maður.
Mótsstjóri landsmótsins verðUr
Þorsteinn Einarsson, íþróttafull-
trúi ríkisins, en framkvæmdastjóri
mótsins er Óskar Ágústsson, í-
þróttakennari á Laugum, og hef-
ur hann haft mestan veg og vanda
að undirbúningi mótsins, og unn-
ið mjög gott starf að því er kunn-
ugir telja.
Námskeið fyr-
ir þjálfara í
handknattleik
Nk. máundags-, þriðjudags- og
miðvi'kudagskvöld verður haldið
námskeið fyrir þjálfara í hand-
knattleik. Fer það fram í KR-hús-
inu við Kaplaskjólsveg. Handkn,-
samband íslands sér um námskeið
ið og hefur fengið hingað kunn-
an danskasi þjálfara John Björk-
lund, til að annast kennsluna. Var
hann valinn af danska handknatt
leikssambandinu, sem gaf honum
sín beztu meðmæli.
Hér gefst gott tækifæri fyrir
handkmattleLksdeiidir félaganna
að láta þjálfara sína og leiðbein-
endur kynnast og læra af þessum
ágæta danska þjálfara. Björklund
sýnir auk þess kennslumyndir
danska handknattleikssambands-
Væntanlegir þátttakendur verða
að tilkynna þátttöku ®ína til
stjórnar HSÍ hið fyrsta og ber þá
að greiða hið væga þátttökugjald,
kr. 100.00.
Tilhoð óskast
INGVAR HALLSTEINSSON, F.H.
— sigraði með yfirburðum
í spjótkasti á ÍR-mótinu.
Á þriðjudaginn fór fram lands-
Ieikur í knattspyrnu milli Noregs
og Finnlands. Leikið var í Hel-
sinki og fóru leikar þannig, að
finnska liðið sýndi mikla yfirburði
og sigraði í Ieiknum með fjóruni
nörkum gegn einu.
Sama dag fór einnig fram B-
landsleikur og unglingalandsleik-
ur milli þjóðanna og voru þeir
háðir í Noregi. Finnland sigraði í
báðum leikjunum, 3—2 í B-lands-
leiknum og 3—1 í unglingalands-
leiknum — og má því segja, að
þeir hafi unnið Norðmenn á öll-
um vígstöðvum þann dag.
Norðmenn bjuggust við auðveld-
um sigri í aðallandsleiknum í Hel-
sinki, en það fór á aðra leið.
Finnska liðið lék ágæta knatt-
,spyrnu og var vörn liðsins eink-
um traust, svo traust, að Norð-
menn áttu varla skot á mark, sem
heitið gat- því nafni, allan fyrri
hálfleikinn. i
í Loren bílkrana er verður sýndur í Rauðarárporti
mánud. og þriðjud. n. k. kl. 1—3. Tilboðin verða
opnuð í skrifstofu vorri miðvikudaginn 5. júlí
kl. 11 f. h.
Sölunefnd varnarliðseigna
Hafnarfjörður
Óska að taka á lqigu skemmu eða bragga í Hafnar-
firði eða nágrenni. Þarf að vera minnst 13x10
metrar. — Tilboð sendist blaðinu merkt „1961“.