Tíminn - 11.07.1961, Qupperneq 1
Áskriftarsíminn er
1-23-23
154. tbl. — 45. árgangur.
Þar byggðu þeir
úr hvalbeinum
bls. 9.
Þriðjudagur 11. júlí 196L'
Dráttarvél varð
ungbarni að bana
Sviplegt slys aá ÞrándarstöSum í EiÖaþinghá
Það slys varð í fyrrakvöld,
að þriggja ára barn varð undir
dráttarvéi á Þrándarstöðum í
Eiðaþinghá og beið bana.
Annað barn ók dráttarvélinni,
er slysið varð heima við hús
þar á bænum, um tíuleytið á
sunnudagskvöldið.
Þegar í stað var gripið til þess
ráðs að kalla uppi síldarleitarílug-
vélina,. sem aðsetur hefur á Rauf-
arhöfn, og biðja hana að koma og
sækja barnið í miklum flýti. Hún
kom til Egilsstaða en ekki varð not
azt við hana, þegar á átti að herða,
og gat hún ekki lent þar vegna
dimrar þoku, sem skollin var á.
Flugvél þessa skortir blindflugs-
tæki.
Bláa Bandinu gefið
stórfé
Fyrir nokkrum dögum voru Bláa
Bandinu afhentar tvær stórar pen-
' iiígágjafirtll starfsémi félagsins.
Önnur' .gjöfin, 100 þúsund krón-
ur, frá Ásbirni Ólafssyni stórkaup-
manni, en hin 25 þúsund krónur,
frá Þorvaldi Guðmundssyni kaup-
manni og veitingamanni í Reykja-
vík.
Fé þeasu verður öllu varið til
byggingaframkvæmda þeirra sem:
félagið hefur nú með höndum á
jörð sinni Víðinesi, en þar er það
að reisa hjúkrunar- og vistheimili
fyrir drykkjumenn.
Gjöf til Blindra-
vinafélagsins
Lioíisklúbburinn Nj'örður af-
henti formanni félagsins fyrir
nokkru mjög vandað segulbands-
tæki að gjöf. til félagsins, sem síð-
ar verður lánað blindum mönnum
til að hlusta á sögulestur eða ann
an fróðleik. Þetta er annað seg-
ulbandstækið ,sem félaginu er gef
ið í þessu augnamiði.
Þá hefur Lionsklúbbur Reykja-
vikur þrisvar sinnum sent félags-
inu sjálflýsandi göngustafi handa
blindum til úthlutunar, ennfrem
ur hefur sami klúbbur á undan-
íörnum árum sent félaginu 38
blindraúr einnig til gjafa handa
blindum.
Önnur flugvél —
kom fyrir ekki
Var þá í skyndi kallað á sjúkra-
flugvéliná frá Akureyri, og kom
hún austur. Hún var komin til Eg-
ilsstaða um klukkan eitt um nótt-
ina, en áður en hún hæfi sig til
flugs á nýjan leik, var barnið látið.
i Þrándarstaðir eru um 8 km. frá
I Egilsstöðum, og þap eru læknir
og sjúkrahús, en barnið var svo
hörmulega slasað, að ekki reyndist
unnt að bjarga því. Foreldrar
barnsins eru Jóhann Valdórsson
og Hulda Stefánsdóttir að Þránd-
arstöðum.
MEÐ BROTINN 0X
UL MILLI SKERJA
jí Álfsnesi á Kjalarnesi er aö rísafl
upp andabú, og hafa þar verið“
byggð andahús harla stór. Hér
sjáum vi3 svo andahjörS mikla,
Peking-endur svonefndar, úti á
grænum vellinum. Þetta eru
virðulegir fuglar. Hópurinn tvístr
ast ekki í allar áttr, þótt maður
komi á vettvang, ens og þegar
gengið er að hænsnahjörð, held-
ur Víkja endurnar sé undan með|
settlegum hefðarbrag. (LjóS'
njynd: TÍMINN — IM).
Þrír bátar á Faxaflóa leituðu aðstoðar
með bilaða vél um helgina
Þegar bóndinn á Straum-
firði á Mýrum, Guðbjarni
Helgason, vaknaði á laugar-
dagsmorguninn var, tók hann
eftir bát, sem lá við föstu norð
ur af Þormóðsskeri og hafði
uppi veifu.
Hann tilkynnti þetta Slysavarna
félaginu, sem hafði þá þegar aug-
lýst eftir bátnum. Þetta var sex
smálesta bátur, Haförn, frá Reykja
vík, sem hafði lagt af stað frá
Reykjavík köldið áður áleiðis til
Borgarness, en ekki komið fram.
Þar sem bátar á Akranesi virt-
ust ekki liggja lausir fyrir, var
bóndinn beðinn um að fara á trillu
sinn Haferni til hjálpar. Um þetta
leyti var dimmviðri og þokuslæð-
ingur hafði verið um nóttina.
Klukkan hálfeitt, með flóðinu,
tókst bóndanum að koma trillu
sinn, gamalli, á flot, og fór hánn
ásamt syni sínum, Magnúsi, að
Haferni, sem var kominn inn á
milli skerja. Um borð voru tveir
menn.
Báturinn var með brotinn öxul,
og drógu þeir feðgar hann inn á
leguna fyiir framan bæinn á
Straumfirði, og liggur báturinn ^
þar enn og bíður viðgerðar.
Um klukkan hálfsjö á sunnudags
kvöld tók Geir Sigurðsson bóndi í
Hjarðarnesi á Hvalfjarðarströnd
eftir trillu, sem lá fyrir utan bæ-
inn á Ytri-Hólmi. Maður stóð
frammi í bátnum og veifaði. Geir
hringdi í Slysavarnafélagið, sem
fékk bóndann á Þaravöllum til að
fara á trillu sinni bátnum til að-
stoðar, eftir að hafa árangurslaust
reynt að ná sambandi við Akranes.
Trillan reyndist vera með bilaða
vél, og var hún dregin inn á leg-
una.
Sama kvöld kom báturinn Heiða
trillunni Blika til hjálpar fjórum
sjómílum út af Gróttu og dró hann
til hafnar.
ÁTIA TEKNIR
MEÐ ÁFENGI
Lögreglan gerði um helgina her
ferð igegn leynivínsölum. Voru í
Reykjavík teknir sjö Ieigubílar
með áfengi og fimm flöskur fund
ust hjá áfengissala einum í Hafn
arfirði.
Ýmsir hinna frægustu landkönn-
uða eiga niðja meðal Eiskimóa í
norðlægum byggðum, þar sem
þeir höfðu langdvalir. Til dæmis
eignaðist Vilhjálmur Stefánsson
son, sem óls't upp meðal ætt-
flokks móður sinnar nyrzt í
Kanada. Róbert Peary, sem kom
fyrstur manna á norðurheim-
skautið, eignaðist son, sem á
heima á Herbertsey í Thúle-hér
aðinu á Norður-Grænlandí. Hér
á myndinni er þessi sonur land
könnuðarins, Kale Peary, og son-
arsonur hans, Talilangúaq.
Bíll valt á
Reyðarfirði
í fyrradag valt 6 manna
fólksbíll út af veginum í
Grænafelli, er hann var á lieð
til Reyðarfjarðar. Valt bíllinn
um 4 metra niður og skemmd-
ist mjög mikið, en tveir menn,
sem í honum voru, sluppu
ómeiddir.
Ohappið vildi til á beygju, er
mennirnir voru komnir langleið-
ina niður. Annars staðar hefði
sannarlega getað farið verr fyrir
þeim. Velturnar fór bíllinn í'mold-
arflagi með grjóti í, og var það
tiltölulega mjúkt fyrir mennina,
þótt bíllinn yrði Illa úti. M. S.