Tíminn - 11.07.1961, Blaðsíða 8

Tíminn - 11.07.1961, Blaðsíða 8
8 TÍMINN, þriðjudaginn 11. júlí 1961/ Á sildarmiðunum. — Óiafur Magnússon frá Akranesi dokar við og biður eftir torfu til að kasta á. Á bátabylgjunni SÖGUSINFÓNÍA SÍLDVEIÐ- ANNA. Ef einhver ætlað'i að kynna séri síldveiði fyrir Norðurlandi, gæti hann að vísu komið á Siglufjörð, talað við síldarstúlkur, spekú-| lanta og dixilmenn, það er að isegja ef aokkur má vera að þvíj að tala við fólk, sem er í kynn- isferð, en líklega væri þó bezt að fá sér viðtæki, eða móttak- ara eins og það heitir til sjós og hlusta á talið í bátabylgjunni. i í þeirri stórbrotnu hljómkviðu við' burða og tilfinninga er að finna, allt, /sem heyrir til síldveiða fyrir Norðurlandi. Fyrir þá, sem eru ókunnugir,! þá er bátabylgjan, svona nokkurs1 konar radíó-hreppasími; allir leggja orð í belg og allir hlusta á alla — alveg eins og í-sveita- síma fþið fyrirgefið!) AFLAMENN ERU ÞÖGULIR Skipstjórarnir tala oftast sjálf- ir í talstöðvarnar og það kemur í Ijós, að skipstjórar tala misjafn- lega mikið. Sumir eru alitaf „í' loftinu", og þagna helzt aldrei. Þeir eru eins og langorðir ræðu- menn, sem koma sér vel fyrir í stólnum. Því er meira að segja haldið fram, að menn fiski síld í hlutfalli við orðafjölda í talstöð ina. Það er að segja í öfugu hlut falli: Mörg orð, — lítill afli. Af.lamenn koma aðeins endrum og eins í talstöðina og eru þá mjög alvarlegir. Þeir eru þá helzt að tilkynna síldarleitinni um afla. Þeir eru mjög stuttorðir. Segja kanske bara: 1200 tunnur Skaga- grunni: Verð á Siglufirði kl. 6. Vantar olíu. — Búið Gagnstættj hinum hefðbundna kliði. sem er venjulegast á bylgjunni, bregður nú svo við, að allir þagna. — Aflakóngur var að tala í stöðina! En bylgjan jafnar sig fljótt og kliðurinn vex óðfluga aftur. BARLÓMUR OG VEIÐIGLEÐI Til hvers er þetta allt? spyr kannske einhver. Hvaða gagn geta síldveiðimenn haft af t.alstöðvun- um og bylgjunni? Því er fljótsvar að. Það er mjög mikið. Flotinn er dreifður um allan sjó. Ailt frá Hornbanka að Kamba aesi, á Austur og Vestursvæðinu Skipstjórarnir fylgjast með veið- unum á bátabylgjunni og færa sig; til á miðunttn'.. Ef einhver vcrður^ síldar var, hópast skipin að til! þess að freista gæfunnar. Þetta er flóknasti hluti bylgjunnar. í rauni-nni er þetta mikil fræði- grein, að meta og vega allt það, sem sagt er um sildina, tileinka sér öH brotabrot af vitneskju,! sem þar koma fram og draga svo 1 af þeim ályktanir, sem duga til f að veiða síld. Þetta er ákaflegaj þunnt vinnsluefni. Einhver hefur. sagt, að 99% af því, sem sagt er,: mætti sleþpa, og ségir það nokk-; uð, Þó er hætt við, að bylgjanj yrði nokkuð sviplaus, ef barlóm- urinn t.d. hyrfi og allar bollalegg: ingarnar, skrafið og vanstillingin. Þarna koma fram misjöfn við- horf til hlutanna. Hvað men-n eru misánægðir með sinn afla. Þess vegna verða þeir, sem hlusta á síldarfregnir helzt að gjörþekkja þann, sem segir frá og vita upp á hár, hvort hann er bjartsýnis- eða svartsýnismaður, en svartsýnis- menn eru margir á sildveiðum, þó að undarlegt sé. REIÐILEYSI Þegar enginn veiðir neitt, kast ar fyrst tólfunum hjá svartsýnis- mönnunum. Bölsýniíi nær þá tök um á bylgjunni. Venjulega er þá vont veður eða bræla, eins og sagt er til sjós. Einn báturinn missir nótabátinn í sollið hafið, annar nótina, þriðji bæði nót og bát. Nótabátar eru viðsjárverðir gripir úti í hafsauga, en síldveiði er nú nær engin á grunnmiðum. Þetta heyrist allt í talstöðvun- um, menn spá illu, — og flotinn heldur til hafnar — í landvar. —0— Himininn er þungbúinn, og það byrjar að rigna. Síldarbæirnir fyllast af skipum og sjómönnum. Sjómennirnir ganga á land, en gefas.t fljótt upp á því að rangla kringum grútarfabrikkur og skít votir inn að skinni. Þá hefst eitt tímabilið enn á bátabylgjunni. Glaðlyndir síldveiði menn byrja að senda smápró- grömm í talstöðina. Spilað er á harmónikku, farið með klámvis- ur og sitthvað fleira. Stundum er líka sungið. Svo hefjast stundum miklar yrkingar. Kveðizt er á. Allir, sem verið hafa á síld, kunna frægar síldar- vísur. Frægt grín í talstöðvarnar. Hér er ein: Guðmundur með gæðasvip gellur í talstöð þarfa: Halló, bátar Halló, skip. Hver var að kalla í Narfa? Þessi var ort um mikinn afla- mann. Svona smáprógrömm getaj verið mjög skemmtileg, enda eru þau bönnuð. Brælur eru óvinir síldveiði-. manna. Þeir glata ekki eingönguj dýrmætum veiðitíma, heldur tapa þeir oft veiðarfærum og afla. Þessi i vísa var ort á skipi, sem var á leið- j inni til lauds með afla í brælu, og skipverjar voru orðnir hrædd- ir um, að dekklestina tæki fyrirj borð: Úr síld úr Ægi safnar auð, með sæmd og lán í stafni. Gegnum brim og bárugnauð berist guðs í nafni. 5 MÍNÚTUR Á BYLGJUNNI Það er bezta veður. Heiður him, inn og rennisléttur sjór. Bátarnir bruna út á miðin, og af þeim. Sum i: liggja vel fram á breið brjóstin. Einstaka er eins og hann sé kom inn að því að sökkva. Þeir hafa sett í gott kast. Jú, hann var að háfa, segir einhver í stöðina. Ann-! ar hefur ekkert fundið. Hið und- arlega lögmál, að fiska og fiska ekki, skýtur upp kolli. Einn bátur kemst í síld. Háfar og setur á fulla j ferð til lands. Sjómennirnir eru glaðir í lund, og búa sem bezt um! síldina. Þgir gjóta hornauga til þeirra, sem ekkert hafa fengið, og verða að horfa grænir af öf- und á eftir sneisafullum bátum, sem eru á leiðinni í land. En'það kemur fleira til tals en síld. Við hlustum í 5 mínútur FREYJA kallar í Grímsey til að vita, hvort þar sé til rafsuða Nei, það er ekki til rafsuða. Bara log- suða. Skrítið að eiga heima í landi, sem ekki. hefur rafsuðu heldur bara logsuðu, hugsar mað- ur. Þeir hafa heldur ekki prest, bara djákna, segir einhver. „Ólafur Magnússon" frá Akra- nesi kallar í varðskip. Það er bil- uð vélin. Hann var lika dregin inn í gær Þá var sami öxullinn farinn Vélin verður að ganga, ef menn ætla að veiða síld. Annars verður bara tómt reiðileysi. Bátur kallar í Siglufjörð og bið- ur þá að hringja heim og spyrja kifnuna. hvort dóttir hans hafi slasazt alvarlega. Þeir gera það, og telpan hefur, sem betur fer, ekki slasazt alvarlega. Einn bát- urinn enn talar við Grímsey, og spyr, hvort þeir hafi stúlkur núna? Nei, en stúlkur .á tal- stöðvarmáli er ekkert í ætt við kvennafar Heldur síldarstúlkur. Ef ekki .... nægjanlega margar stúlkur, tekur of langan tíma að salta. Nei, það er ekki mikið um stúíkur í Grímsey. Þó ætti sölt.un að geta gengið sæmilega, segir Grímsey og það er ákveðið að tala saman aftur klukkan eitt. HVER Á SÍNA SÖGU Hver á sína sögu, þátabylgjan líka. Það munu tvö skip hafa fengið talstöð fyrsta sumar báta- bylgjunnar. Það voru mikil afla- skip. Þegar menn sáu Ioftnetin, hristu þei.r höfuðin. Þeir ætla kannske að fiska í talstöðvarnar, sögðú sumir og spýttu fyrirlitlega. Ekki er sá, sem þetía ritar, kunn ugur, hverjir þessir feður báta- bylgjunpar voru, sennilega þeir Ólafur heitinn á Eldborg og Þór- arinn Dúason, núverandi hafnar- stjóri á Siglufirði. Þeir voru mikl ir aflamenn. En því var ekki að aeita, að sumarið það gáfu menn talstöðvarskipunum fremur auga en öðrum skipum. Ef þau hreyfðu úg, ruku allir af stað. Þeir höfðu auðvitað frétt af síld í „stöðinni“. Þar með varð bátabylgjan ofan á. Nú hafa allir stöð og geta lagt orð í belg í „loftinu". Þróunin er ör í síldveiðnm. Nú veiðir enginn maður vaðandi síld. Asdic-tæki, dýptarmælar, kraft- blakkir, talstöðvar, radartæki, nyl- onnætur og ótal flei.ri hlutir hafa skotið upp kollinum og enginn fengist til að ráða sig á skip með þær græjur, sem í „den tid“ dugðu Eldborgu til að fiska 40.000 mál. Meira að segja „toppgræjur“, sem svo er nefnt og notaðar voru á betri ski.pum fyrir fimm árum. eru orðnar að safngripum, ei-ns og skinnklæði og spjaldlogg. En dýrt er drottins orðið. Síldargræjur kosta með kraftblökk yfir hálfa milljón. og það þarf góða veiði til að standa undir því. Það eina, sem ekki brevtist. er bátabylgjan. Nýjar raddir koma og aðrar hverfa. Og þytur síldarhljómkvið- unnar stígur og hnígur, eftir því, hvernig hún gefur sig til. HAUST Þegar haustar, hefst lokakaflinn í bátabylgjunni. Hann getur verið mislangur. Yfirleitt vilja sjómenn fara sem fyrst heim, þegar haust ará Útgerðarmenn vilja hins veg ar oft I.áta skipin vera eins lengi og mögulegt er — eða réttara sagt vildu, en nú hin síðari ár hefur það færzt í vöxt, að skipin leiti annarra verkefna á haustin; til síldveiða í Faxaflóa. Margur maðurinn hefur með sjálfum sér óskað, að síldveiðin hefði sneggri endi. En allt er breyt ingum undirorpið. Nú er sára- sjaldan veidd vaðandi síld. heldur eftir asdic-tækjum. í gamla daga, þegar einvörðungu var veidd vað- andi sí'ld, þá þurfti ,ekki nema sæmilegt rok til þess að binda endahnút á vertíðina. Þá orti ein- hver: Eg elska þig, stormur, sem æðir um haf og andskotans sildina keyrir í kaf Já, það stappar næst guðlasti. En menn geta orðið þreyttir á síld veiðum líka. En asdic-öldin hefur líka sínar haustvísur: Heldur vænkast horfurnar Hátt í stormí þýtur. Asdictækja torfurnar. Tómur Múkka-skítur. Enginn veit. hvernig síldarver- tiðinni lýkur Hvar sem menn standa finna þeir. að á vissan hátt ráðast örlög þjóðarinnar á sílda’- olönum og í verksmiðjuþróm Bíla ?alar. kaupmenn. skólastjórar, ráð- herrar og verkamenn. finna, að verði síldveiðin eóð, veldur það grósku os nrisum. vinnu og fram kvæmdum. Það er því mikið í húfi, víðar vamstilling út af síld en á bátabylgjunni, sögusinfóníu síldveiðanna. jg. Það er komið fram á tólfta tímann, þegar við rennum vfir brúna á Mið- fjarðgrá. Við siáum menn á Ferli við "iðqerðaverkstæðin á Lauoabökkum, og drátt- arvé! er á leið út á veginn. En við h>-unum upp brekk- una aust"n árinnar og sveioium út með firðinum, beoar við komum að vega- mótum á auðum melnum, þar sem við höfum átt að venjastaðNorðurbrautværi. Þar er ekki framar neitt af- drep handa beim, sem bíða !angferðabílanna, og þess er ekki lengur kostur að skola þar ferðarykið úr hálsinum með maltöli eða gosdrykkjum. Og það er líka haldið áfram án við- stöðu. Bæir þjóta hjá. Ein- hver talar um götuslóða, sem liggi niður fyrir sjávar- klettana oq nefnist Land- mannaleið. En við ætlum ekki þann veg, því að tak- mark okkar er Vatnsnes. Þótt Vatnsnesið hafi aldrei verið mjög fjölmean sveit, er það allfrægt í sögum. Þar hafa gerzt ýmsir voveiflegir atburð- ir, og þar hafa átt heima merkir menn, sem lengi mun verða minnzt. Af öllu því, sem þar hefur gerzt, mun þó alþýðu manna minnisstæðast, er Frið- rik Sigurðsson frá Katadal og Agnes Magnúsdóttir drápu þá Natan Ketilsson og Fjárdráps- Pétur í rúmunum á Illugastöð- um árið 1828 og kveiktu síðan í bænum. í kirkjugarðinum á Tjörn á Vatnsnesi var líka sett niður afturganga á öldinni sem leið með þeim hætti, að bóndi úr nágrenninu rak fleyga í leiðið á messudegi á milli pistils og guð- spjalls. Ef menn halda, að þar hafi verið að verki einhver kyn- legur kvistur, sem átt hafi göt- ur utan við almannaleið, þá fara menn villir vegar, því að sá, sem það gerði, var einn hinn gildasti bóndi sveitar sinnar. mikilsvirtur atkvæðamaður og um langan aldur mikill ráða- maður í sínu byggðarlagi. Hér á Vatnsnesi bjó fyrir um það bil 150 áium Gunn- laugur Magnússon, faðir Björns Gunnlaugssonar, hinn mesti hugvitsmaður og frömuður um margs konar umbætur. Þar ólst einnig upp og ól sinn skamma aldur skáldið Sigurður Bjarnason, bróðursonur Frið- riks morðingja frá Katadal, þar eru æskuslóðir Ólafar frá Hlöð- um og þarna bjó kvæðamaður- inn Jón Lárusson, niðji Bólu- Hjálmars Ef menn vita nokkur skil á því. sem þarna hefur gerzt, er markverð saga tengd við náiega hvern bæ. Löngu l:ðnir atburðir líða fyrir hugar- sjónir ferðamannsins, er hann leiðir bæina augum — hann sér gerast mikla haimleiki og sögu- frægir menn taka á sig fyllri og skýrari myndir en áður. En það er ekki aðeins saga Vatnsness, sem heillar. Sjálft landslagið er sérkennilegt og fagurt svo að það eitt fær veitt glöggskyggnum manni mikla ánægju En einkennilegastir eru hinir mörgu og margbreytilegu stapar og drangar. sem þar eru víða við sjó fram. Hvalbein á Ánastöðum Við stöldrum fyrsl við litla

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.