Tíminn - 13.07.1961, Qupperneq 5

Tíminn - 13.07.1961, Qupperneq 5
T í MIN N, fimmtudaginn 13. júlí 1961. 5 —■' --------------------------------i------ Utgefendi: FRAMSÓKNARFLOKKURlNN FramKvæmdastióri Tómas Arnason Rit stjórar- Þórarmn Þðrarmsson flb / Andrés Krtstjansson. Jón Helgason PuUtriD rit stjórnar Tómas Kartsson Auglýsinga stjðri: EgiU Bjarnason - Stcnfstofui i Eddunúsmu — Simar 18300- 18305 Auglýslngasimi 19523 Afgreiðsiusimi. 12323 — Prentsmiðjan Edda h.f Hótanir stjórnarinnar um hef ndarráðstaf anir í viðtali, sem Tíminn átti við Eystein Jónsson, for- mann þingflokks Framsóknarmanna, í blaðinu í gær um ástandið í þjóðmálunum nú, og hótanir stjórnarflokk- anna um nýja verðbólguöldu og jafnvel gengislækkanir, sagði Eysteinn m. a. þetta: „Mér virðist sem margir skoði þetta skraf eins og hvprt annað reiðihjal — kastað fram í bræði þess, sem verður undir. Menn trúa því ekki, fyrr en þeir þreifa á, að ríkisstjórn landsins noti aðstöðu sína til þess að koma fram eins konar hefndarráðstöfunum gegn almenningi, þótt verkfallsmálin leystust öðruvísi en stjórnin vildi. Mönnum er ljóst, að munurinn á þeirri lausn, sem varð og hinni, sem stjórnin vildi sætta sig við, þ. e. 5— 6% af kaupi — er ekki svo stórfelldur, að nokkru þurfi að raska. Menn vita, að sjávarafurðir hafa hækkað nokkuð og (ef ríkisstjórnin svo lækkaði vextina og drægi úr lánsfjár- höftunum, mundi þetta alveg vega á móti kauphækkun- inni, ásamt aukinni umsetningu fyrirtækja. Tekjur ríkis- sjóðs hækka við aukin viðskipti og möguleikar opnast þá að gera ráðstafanir til að vega upp nauðsynlega hækkun landbúnaðarafurða. Margir munu því vilja mega vænta þess, að þegar ríkisstjórninni rennur reiðin, muni hún átta sig og not- færa sér þá möguleika,, sem þessir nýju kjarasamningar gefa, til að tryggja betri lífskjör og varanlegan vinnufrið. Einstaka maður hefur sagt við mig, að þeim finnist það galli á þessum annars góðu samningum, að þeir hafi leyst vanda fyrir ríkisstjórnina, sem hún hefði sennilega ekki getað leyst sjálf, og samningarnir gert ríkisstjórn- inni þannig auðveldara að hanga áfram og gera tjón með kreppustefnunni. Út af þessu hef ég bent á, að samvinnufélögin og verkalýðsfélögin hlutu að gera samninga sem skynsaip- legast úr garði fyrir báða aðila og þjóðarbúið, og við því vrði ekki gert. þótt óvinsæl ríkisstjórn, sem þyrfti að losna við, hefði gagn af þeim í leiðinni. Ömurlegast er, ef vfirvöldin hafa ekki stillingu til að nota sér þetta, en vinna í þess stað skemmdarverk á efna- hagskerfi landsins vegna ofstækis." Krafan um kosningar Um afstöðu almennings til kröfu Framsóknarflokks- ms um þingrof og nýjar kosningar i sumar, sagði Ey- steinn þetta: „Mér virðist fjöldinn telja sjálfsagt að nú verði kosið um stefnu ríkisstjórnarinnar — einmitt nú verði að koma í ljós, áður en lengra er haldið. nvort hún hefur fylgi nógu margra eða ekki Það er vist. að mörgum hitnar í hamsi. ef nú verður haldið áfram kreppustefnunni og ný verðhækkunaralda látin skella vfir — ég tal.a nú ekki um. ef nýrri gengislækkun verður skellt á að tilefnislausu. Menn líta á það sem hreint skemmdarverk og blöskrar alveg ábyrgðarlaust skraf fjármálaráðherrans um þau efni.“ 'V*‘V>-V'VW*-W‘V«'V V *-S. .V •'V *v *v *x«v .-v •'V. .x taiað cr ura KRUSTJOFF, forsætisráð- heria Sovétríkjanna, er yfir- leitt glaður, reifur og kumpán- legur í veizlum og kokteilboð- um, þótt æði sé kalt og hryss- ingslegt á vígstöðvum kalda stríðsins. Sérstaklega gerir Krustjoff sér dælt við börn, ef / ) t ) ) ) ) ) ? ) ) ) / / ) ) ) ) ) ) ) ) ) .! i í t 't ) t ) ) ) ) ) ) / ) / ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) / ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) >1 ) ) ) / / ) ) ) Adnan M. Pachachi þess er kostur. Myndin var tek- in í boði í bandaríska sendiráð- inu í Moskvu fyrir skömmu. Það er Sherry, 7 ára gömul dótt ir Thompsons sendiherra Bandaríkjanna, sem Krustjoff fáíhflar’iáð sftP'Flest blöð birtu þéssa .íliynd undir yfirskrift- inni: „Friðsamleg sambúð“. MYNDIN hér að neðan er tekin fyrir utan Hvíta húsið í Washington af þeim Mikhail Menshikov, sendiherra Sovét- ríkjanna í Bandaríkjunum og Valerian Zorin, formanni sov- ézku samninganefndarinnar í afvopnunarmálum. Þeir eru að koma af fundi, sem Kennedy forseti átti með þeim um mögu leika á samkomulagi austurs og vesturs um allsherjar af- vopnun. , HÖRÐ ORÐASKIPTI urðu í Öryggisráðinu, er Kuwait-málið var tekið til meðferðar milli Adnan M. Pachachi, fulltrúa íraks og sir Patrick Dean, full- trúa Breta. Pachachi sakaði Breta um undirbúning að inn- rás í írak frá Kuwait. Sir Pat- rick sagði, að dvöl brezks her- liðs í Kuwait væri til að koma í veg fyrir innrás íraks í Ku- Krustjoff og Sherry Thompson wait. — Brezka blaðið Daily Mail skýrði frá því í fyrradag, að samkvæmt heimildum, sem blaðinu hefði tekizt að afla sér, hefði aðeins skipt nokkrum klukkustundum, hvort her Breta hefði verið á undan her íraks inn í Kuwait. Myndirnar ei'u teknar af þeim Pachachi og sir Patrick, er klögumálin gengu á víxl í Öryggisráðinu. DOUGLAS MacArthur hers- höfðingi er í 10 daga heimskón á Filippseyjum um þessar mund ir. Milljónir Filippseyinga fögn uðu MacArthur við lj:omu hans. Það er óhætt að segja það, að MacArthur sé lang vinsælasti Bandaríkjamaðurinn á Filipps- eyjum, en hann stjómaði banda ríska hernum, er hrakti Japani á brott frá eyjunum. MacArth- Framh a bls 15.) / )■ ) ) ) / ) '/ '/ )■ i '/ ) ) ) ) ) r ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) / ) ) / ) t ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) i / i i 't i Menshikov og Zorin við Hvíta húsið. MacArthur <VWVVVVVVVVVV1

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.