Tíminn - 30.07.1961, Síða 5

Tíminn - 30.07.1961, Síða 5
TÍMINN, smniudagiim 30. júlí 1961. 5 Útgetandl: FRAMSÚKNARFLOKKURINN. Framicværadastjóri: Pómas Arnason Rit- stjórar: Þórarmn Þórarmsson láb j. Andrés Kristjánsson, Jón Helgason FulltrúJ rit- stjórnar: Tómas Karlsson Auglýsinga- stjóri: EgiU Bjarnason - Skrifstofur i Edduhúsmu — Símar: 18300—18305 Auglýsmgaslmi: 19523 Afgreiðslusimi: 12323 — PrentsmiðjaD Edda h.t —/ Tvöfeldnin í vegamálunum Enn stendur verkfall vegavinnumanna yfir végna þrá- kelkni Ingólfs Jónssonar, brúarmálaráðherra. Vegavinnu- menn fara aðeins fram á það, sem öll verkalýðsfélög í landinu hafa þegar samið um við vinnuveitendur og Ing- ólfur Jónsson hefur þegar veitt símavinnumönnum, sem eru hliðstæður starfshópur, það sem vegavinnumenn fara fram á. Tvöfeldni brúarmálaráðherrans á Hellu er með eindæmum í þessu máli. Hann neitar vegavinnumönnum um 27 krónur á dag upp i fæðiskostnað vinni þeir fjarri heimilum sínum, en semur daginn eftir við símavinnu- menn um 30 krónur á dag undir sömu kringumstæðum. Ástæðan fyrir því, að ríkisstjórninni þykir gott að láta vegavinnu falla niður í sumar mun vera hörmuleg afkoma ríkissjóðs. „Viðreisnin“ hefur orðið enn meiri en svæsn- ustu íhaldsmenn þorðu að vona. Kaupgeta almennings hefur verið lömuð svo mikið og samdráttur svo mikill í framkvæmdum og atvinnu, að stórlega hefur dregið úr tekjum ríkissjóðs og mun nú þegar vera allt að því 200 milljón króna halli á ríkissjóði á þessu ári. Ríkisstjórn- inni er því ósárt um þótt vegalagnir og viðhald vega legg- ist niður og kærir sig kollótta, þótt vegir verði illfærir og bíði varanlegar skemmdir. Ríkisstjórnin lætur sér ekki nægja að skera stórkostlega niður fjárframlögin til veg- anna heldur beitir hún brögðum til að losna við að greiða þau af hendi. — Þannig eru öll störf þessarar vandræða- stjórnar. Óhæfilegur dráttur Það kemur nú víða fram, að tómahljóð er í ríkissjóði og er orðinn óvenjulegur og óhæfilegur dráttur á ýmsum greiðslum hans. Gunnar fjármálaráðherra tók því fagn- andi, er vegaverkfall skall á og gerði róttækar ráðstafanir með hjálp Ingólfs til þess að halda því sem lengst, svo að ríkissjóður þyrfti ekki að greiða af hendi hið nauma og niðurskorna vegafé um sinn. Aðrar greiðslur úr ríkissjóði hafa einnig tafizt óhæfi- lega að undanförnu. Það eru niðurgreiðslur ríkissjóðs á landbúnaðarafurðir. Föst venja hefur verið undanfarið um allmörg ár, að ríkið hefur innt greiðslur þessar af hendi svo sem mánuði eftir að sala hefur farið fram og skýrslur um hana gefnar. Nú bregður hins vegar svo við, að ríkissjóður er orðinn tveim mánuðum eða þó nær þrem á eftir með þessar greiðslur sínar. og er þetta farið að valda sölufyrirtækjum landbúnaðarvara og framleiðend- um vandræðum. Þótt svona sé ,,sparað“ hjá ríkissjóði á tveim stórum gjaldaliðum um þessar mundir, lýsir Gunnar fjármálaráð- herra yfir, að lausaskuldir ríkissjóðs i bönkum hafi orðið 200 millj. í byrjun þessa mánaðar, og mun það hærra en nokkru sinni fyrr. Viðreisnin er farin að kreppa illa að ríkissjóði, enda varla um þá hagsýni að ræða í meðferð ríkisfjár, að standist slíkar raunir En eigi að síður er það bót í máli fyrir fjármálaráðherra að geta sótt hömlu- laust lán í Seðlabankann á sama tíma og sparifé lands- manna er fryst þar fyrir öðrum, og atvinnuvegirnir og þjónustufyrirtæki almennings verða að berjast við hina tilbúnu lánsfjárkreppu ríkisstjórnarinnar. r ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? t ? ? ? ? *v*v •V*V*V»V*V*V*V*V V-tV*' Hoffa segist ætla að leggja undir sig öll Bandaríkin James R. Hoffa hefur í hyggju aS leggja undir sig þann stjórnmálaflokk- inn, sem undir veríur í forsetakosninggunum 1964, og við kosningarnar 1968 muni hann ráfta Jjví hver verftur forseti Bandarikjanna. Hann hefur eins mikil völd og forseti Bandaríkj- anna og mun reyndar sjálf- ur setjast við skrifborðið í Hvíta húsinu einn góðan veðurdag, segja nú margir í Bandaríkjunum um James R. Hoffa, sem nýlega var endurkjörinn formaður á þingi verkalýðssambands flutningabifreiðastjóra í Miami fyrir skömmu. — Hoffa var ekki einungis endurkjörinn heldur fékk einnig vald frá hinum 2000 fulltrúum á þinginu til að gera næstum hvað sem er, til að gera verkslýðssam- bandið sterkara. Á síðustu árum hefur Hoffa þessi verið mjög umdeildur mað- ur og hefur legið undir á- sökunum kollega sinna í verkalýðssamstevounni AFL—CIO fyrir spillingu, glæpastarfsemi og hvers konar misnotkun valds inn- an verkalýðshreyfingarinn- ar. Hoffa hefur fram að þessu sloppið — hann er sleipur sem áll og hefur 40 lögfræðinga sér við hlið og þeim hefur tekizt að koma honum ósködduðum frá dómsrannsóknum. Núver- andi dóms'málaráð'herra, Robert Kennedy, bróðir forsetans, hafði með höndum eina slíka rannsókn á sínum tíma, en Hoffa gekk honum úr grepium. Á þinginu í Miami var Hoffa kjörinn með öllum þorra at- kvæða, aðeins um 20 fulltrúar greiddu ekki atkvæði. Hoffa er einvaldur yfir verka lýðsfélagi, sem tæplega 2 millj. manna eiga aðild að, flutninga- bifbreiðastjórar um öll Banda- ríkin. Hann þarf ekki nema depla auga til að lama gersam- lega aíla vöruflijtninga og þann iðnað, sem er háður vöruflutn- ingum með flutningabifreiðum. Hoffa sagði eftir þingið í Miami, að hann myndi ekki fara þannig að við að styrkja verka- lýðssambandið — hann myndi beita öðrum ráðum. Það, sem gerir Hoffa hættu- legan, er fyrst og fremst ákvörð un þingsins um að gefa honum vald til að taka upp í samband- ið hvern þann, sem honum lízj, JAMES HOFFA — verður hann forseti Bandaríkjanna? á og þannig verður sambandið ekki lengur bundið við vörubif reiðastjóra eina. Hoffa hyggst nota þetta nýja vald til að koma ár sinni fyrir borð í verkalýðs- félögum iðnaðarmanna og í iðn aðarfyrirtækjum — og því ekki einnig á Bandaríkjaþingi og í Hvíta húsinu. Hoffa lýsti þvi yfir á þinginu í Miami, að hann myndi setja af stað pólitíska áróðursvél, sem myndi leggja undir sig Bandaríkin, borg eft- ir borg og ríki eftir ríki. Hann myndi gera hvern sem er að félaga í verkalýðssambandinu — sölumenn, sem selja ísskápa og ryksugur ekki síður en fót- boltadómara og geimfara. Og á Bandaríkjaþingi mun ég hafa harðsnúið lið, sem mun tala máli mínu við þingmenn og stjornvöld, sagði Hoffa. Til alls þessa þarf að sjálf- sögðu mikið fé og Hoffa hefur fengið það til umráða. Gjöld til sambandsins voru hækkuð stór- kostlega og tekjur sambandsins þannig auknar um rúman helm ing og nema nú árlega 900 milljónum króna. Laun Hoffa voru einnig hækkuð úr 2 milljónum í 3 milljónir króna á ári og þar að auki hefur Hoffa næstum ótakmarkaða risnu. Hann er nú langsamlega hæst launaði verkalýðsleiðtogi í Bandaríkjunum og hafa þó ýmsir drjúgan skilding upp úr krafsinu. Nokkur óvissa ríkir um það enn, hvort AFL—ClO-samsteyp- an tekur verkalýðssamband Hoffa upp í samtökin. — All- mikið fylgi er fyrir því innan AFL—CIO að taka Hoffa í sam- tökin til að gera samtökin öfl- ugri, en nokkuð þykir hafa blásið á móti undanfarin ár. V erkalý ðssamband Hoffa var rekið úr samtökunum á sínum tíma, en nú hafa verið sett lög um þau atriði, sem voru þess valdandi, að Hoffa var vikið frá. Það eru hin svokölluðu Landrum-Griffin-lög, sem eiga að tabmarka spillingu og mis- notkun valds innan verkalýðs- félaganna. Eftir þingið í Miami getur enginn efazt um þag lengur, að Hoffa befur verkalýðssamband sitt óskipt að baki sér. Það hef- ur verið þaggað niður í þeim, sem gagnrýnt hafa starfsaðferð ir Hoffa og siðleysi hans. Þeim er bent á, að „bróðir James“, eins og Hoffa er kallaður, hafi tryggt félögum hærri laun og meiri fríðindi en öðrum verka- lýðsleiðtogum hefur tekizt. En hvað langt tekst Hoffa að komast? Tekst honum að kom- ast alla leið inn í Hvíta hsúið? Þannig spyrja menn í Banda- ríkjunum nú. í viðtali við blaða- menn eftir þingið í Miami, sagði Hoffa m. a.: — Ungir, harð- skeyttir menn munu taka að sér forustuna í veikalýðsmálum Bandarikjanna og ég mun standa í þeirra hópi. Við erum staðráðnir í því að leggja undir okkur þann stjórnmálaflokkinn, sem verður undir við forseta- kjörið 1964. Við munum gera hann að flokki verkalýðssam- bandsins og við næstu forseta- kosningar þar á eftir, við kosn- ingarnar 1968, munum við ráða því hver verður forseti Banda- ríkjanna, sagði James R. Hoffa. Ferðaskrlfstofan Saga hef- ur skipulagt svonefndar „IT"- ferðir (Inclusive Tours) víða um heim í samvinnu við helztu flugfélög, skipafélög, járnbrautarfélög, ferðaskrif- stofur, gistihús og aðra slíka aðila. Hér er um einstaklings- ferðir að ræða, sem eru skipu- lagðar fyrir fram, og greiðist allur ferðakostnaður, áður en farþeginn leggur af stað. Eru ferðirnar um fjörutíu talsins til flestra landa Evrópu. Hefur Saga gefið út bækling nýlega, og er þar að finna nákvæmar áætlanir um ferðirnar ásamt upplýsingum. Ferðir af þessu tagi eru mjög Saga skipuleggur „IT“ ferðir víða um heim algengar erlendis, en þetta er í1 fyrsta skipti sem íslenzk ferða- skrifstofa tekur að sér að annast þær. Eins og nafnið bendir til, er ýmislegt innifalið í verði far- miðanna, auk ferðarinnar fram og til baka. Má þar til dæmis nefna gistingu og morgunverð, þar sem dvalizt er, og allar lerðir milli fyrirfram ákveðinna ákvörðunar- staða. Eru þessar ferðir mjög hag- l.væmar og ódýrari flestum öðr- um. Ferðamennirnir verða að fylgja ákveðinni áætlun, en þeir eru sjálfráðir að því, hvort þeir ferðast eins síns liðs eða í hópum. Þeir eru og yfirleitt sjálfráðir um brottfarardaga, og ekki bundnir við að ferðast á ákveðnum árstím- um. Ferðaáætlanir, sem bækling- urinn hefur að geyma, gilda til 1. júní 1962, og veitir hann upplýs- ingar um fjörutíu til fimmtíu ferðir. Þarf ferðafólk ekki annað en velja sér ferð, og þar með er allt klappað og klárt. Bæklingur- inn er ókeypis afhentur þeim, er þess óska, og liggur hann frammi hjá öllum umboðsmönnum og skrifstofum Flugfélags fslands, Loftleiða og Pan American. Ferða- skrifstofan Saga veitir auk þess allar frekari upplýsingar varð- andi ferðirnar. /

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.