Tíminn - 30.07.1961, Qupperneq 6
6
TÍIVIINN, sunnudaginn 30. júlí 1961
ÞATTUR KIRKJUNNAR
Fáar sögur Nýjatestamentis-
eru eftirtekitarverðari og ó-
gleymanlegri en frásögnin um
ummyndun Krists.
Allt, sem honum tilheyrði, föt
hans, andlit hans ljómar og lýs-
ir eins og „leiftur á mjöll“.
Hversdagsleikinn verður allt í
einu helgidómur, hið hr'júfa og
slitna slétt og nýtt, og hið lit-
lausa og snjáða skínandi og
ferskt, sjá allt er orðið nýtt.
Sumum finnst þessi saga, eða
öllu heldur atvikið, sem hún
gréinir frá, ótrúlegt og óraun-
verulegt, og um leið þýðingar-
lítið fyrir mannlega tilveru og
menningarviðleitni, barnalegt,
broslegt.
efnum áburðar og boldar í ang-
andi dýrð fíngerðra hlaða og
blikandi krónu. Allt slíkt fyllir
undrun og lotningu.
En hvort mun þá ummyndun
mannlegrar veru ómerkari?
Við getum skynjað þá opin-
berun, sem verður, þegar Krist-
ux, andi hans og kærleikur,
máttur hans og dýrð birtist í
hversdagslegri manneskju, svo
að jafnvel ásjónan, ef til vill
hrukkótt og hrjúft andlit, ljóm-
ar bókstaflega af einhverju
innra Ijósi.
Þó er ekki minna um vert,
þá ummyndun, þegar breyzkur
og brotlegur maður eignast
kraft göfgi og stórmennsku til
Ummyndun
Síðasta málverk meistarans
Rafaels, sem stóð við bangbeð
þessa snillings, sem lézt. í ald-
ursblóma, sýnir ummyndun
Krists. Hann stendur uppi á
fjallinu í dýrðarljóma ummynd
unar sinnar. .
En við fjallsræturnar kemur
í Ijós líkt og brot eða tákn-
mynd af umkomuleysi, von-
brigðum og þjáningum mann-
anna. Faðirinn, sem árangurs-
laust leitar hjálpar barni sínu
fársjúku til lærisveinanna. Allt
virðist algjörlega vonlaust og
án huggunar. Það er sem eng-
inn geisli guðdómlegs tilgangs
og vizku lýsi gegnum þetta
rökkurdjúp, og veslings faðir-
inn starir kalinn á hjarta út í
auðnina og myrkrið.
En þá sést einn lærisvein-
anna benda upp á fjallstindinn.
Það Ijómar ljós þar uppi, bjart
og blikandi ljós.
Ummyndunarsagan flytur
boðskapinn, sem skáldið ást-
sæla orðar á þessa leið:
„Bak við heilaga harma er
himinninn alltaf blár.“ Inn í
einsemd þjáningar og örvænis,
þar sem mannleg rödd hljóðn-
ar, ómar rödd hins himneska
föður.
Þetta verður einn sterkasti
þátturinn í boðskap sögunnar
um ummyndun Krists. En
samt aðeins einn þáttur af
mörgutn.
Náttúrufræðingum eru kunn
ar hinar margvíslegu og undur-
samlegu ummyndanir í ríki
náttúrunnar. Þeir vita um þró-
un fiðrildisins frá ljótum og
gráðugum maðki til himinunn-
andi fleygrar veru í öllum regn
bogans litum, veru, sem lifir
svo aðeins á dögg og hunangi.
Og þeir vita um starf blóms-
ins, sem breytir óhrjálegustu
að byrja nýtt líf í starfandi
fegurð og góð vild, fórnfýsi og
ástúð.
„Þú skalt vera Kristur fyrir
meðbróður þinn,“ sagði Lúther
einhvers, staðar. Sumir geta
bókstaflega ummyndazt til
slíkrar dýrðar. Þar nægir að
nefna Pál postula, Franz frá
Assisi, Schweitzer og Sadhu
Sundar Sing.
En jafnvel hversdagslegt
fólk getur tileinkað sér þessa
birtu og göfgi ummyndunar-
innar.
„Bjartast hreint skín hjarta
úr hálfslokknum augum,“ segir
hið djúpspaka skáld, og minn-
ist þess ljóma, sem öllu brosi
æðra umhjúpar ásjónu deyj-
andi fólks, sem hefur lifað og
gengið á Guðs vegum.
Einhver sagði um Söderblom
erkibiskup að honum látnum:
„Hann opinberaði mér sjálfan
Krist.“ Og ung kona, sem kom-
ið hafði á heimili hans sagði:
„Mér fannst líkt og þar ljóm-
aði af öllu, eins og hver hlutur
hefði sál. Og ég óskaði, að mitt
heimili gæti orðið slíkt. Þann-
ig eru hamingjusöm heimili."
Og leitum við ekki einmitt
eftir hinni miklu ummyndun
alls mannkyns. Bíðum við ekki
þess tíma og þráum þann dag,
að dýrð þess kærleika, frelsis
og fagnaðar, sem andi og kenn-
ing, líf og starf Krists ljómaði
af, megi blika af brosum þjóð-
höfðingjanna, óma af orðum
„hinna stóru“ og umskapa ver-
öld hins óttaslegna og þjáða
jarðarbarns til hærra lífs?
Er ekki hinn mikli draumur
mannshjartans um frið og
bræðralag óskin um hina miklu
ummyndun?
Árelíus Níelsson.
Um þvera og endilanga Evrópu er fólk í tjöldum út um hvippinn og hvappinn og á sérstökum tjaldbúðasvæð-
um. Þetta faerlst sífellt í vöxt, að menn ferðist sem farfuglar með þessum hætM. Á tjaldstæðunum, sem ætluð
eru ferðamönnum, er vatnsból, salerni og jafnvel sölutjöld, þar sem nauðsynjar eru seldar. En það rignir
víðar en á íslandi, og eftir steypiskúr er oft heldur óhrjálegt um að litast í tjaldbúðum. — Þessi mynd er frá
tjaldbúðasvæði í Þýzkalandi. Eigi vel að vera, er það töluvert starf að búa dögum saman í tjaldi og sjá um
sig sjálfur. Það er mikið umstang að hreinsa til og viðra, og töluverð heimilisstörf.
I tjaldbúðum í sumarleyfi
Skemmtiferð Fram-
soknarfélaganna
Framsóknarfélögin i Reykjavík efna til skemmtiferðar sunnuðag-
inn 13. ágúst. Verður ekið til Þingvalla og þaðan um Kaldadal í Húsa-
fellsskóg og síðan um Borgarfjörð tii Reykjavíkur.
Tilhögun þessarar ferðar verður auglýst nánar síðar.
Lögfræðiskrifstofa
Laugavegi 19
SKIPA- OG BÁTASALA
Tómas Árnason hdl.
Vilhjálmur Árnason hdl.
Símar 24635 og 16307.
Finnar hafa iíka hugsað um að lyfta af sjávarbotni sínu „Vasa-skipi", eins
og Svíar Á botni svokallaðs Sænska sunds hafa finnskir kafarar fundið
heilan skipakirkjugarð frá árinu 1790. Sagan hermir, að hinn 9. júlí árið
1790 hafi staðið þarna mikii sjóorusta. Á myndinni sjást nokkrir sund-
kafarar í bát sínum, sem þeir nota við rannsóknir á skipunum. Þeir eru
að velja sér skip til að lyfta frá botni.
! sumarleyfið
Tjöld, 2—5 manna með
föstum og lausum botni.
Verð frá kr. 835.00.
Mataráhöld í töskum.
Svefnpokar
Vindsængur
Gasprímusarnir vinsælu
með hitabrúsalaginu
Pottasett og hnifapör
Plastdiskar og bollar.
Ferðatöskur
Að ógleymdri veiðistöng-
inni sem er ómissandi í
sumarleyfið.
Póstsendum
Sími 13508.
Kjörgarði Laugavegi 59.
Austurstræti 1.