Tíminn - 30.07.1961, Blaðsíða 9

Tíminn - 30.07.1961, Blaðsíða 9
T í M I N N, sunnudaginn 30. júlí 1961. 9 lárrt ct Þar sem komiS er niður af FróSár- heiði a3 norSan á Snæfellsnesi stend ur bærinn FróSá undir fjalli nokk- urn spöl suSaustan Ólafsvíkur. Þetta er sæmilega kostarík jörS og fræg í fornum sögum af fyrirburSum all- miklum og afturgöngum, sem munu stórbrotnari en flest annaS af þessu tagi í íslendlngasögum. Voru fyrir- burSir þessir kaliaSir FróSárundur og hafa æ siSan gengiS undir því nafni. Er frá þessu aligreinilega sagf í Eyrbyggja sögu. Fyrir nokkrum dögum kom hér í blaSinu lausleg frétt um þaS, aS smiSir, er á þessu sumri byggja hús á FróSá, hafi orSiS fyrir nokkurri aSsókn eSa undrum, jafnvel séS sauSfé fljúga um loff Þótt þetta sé haft aS hálfum gamanmálum nú, og menn kippi sér vart upp viS slíkt tal á dögum kjarnorkuflugtækni, minnti þetta aS sjálfsögSu á FróSár. undrin fornu. Og þar sem einmitf ber svo viS, aS þau eiga merkisaf mæli á þessu ári og einmitt á þess- um árstíma, er líSur aS hausti, þá þótti rétt aS rekja þessa sögn eftir Eyrbyggju mönnum til nýrrar glöggv unar. FróSárundrin gerSust undir haust áriS 1001. Þá bjó á FróSá Þóroddur ættaSur af MeSalfellsströnd, far- maSur mikill fyrr á árum og hafSi bjargaS í vesturvegi skilbornum vík- ingum viS fræknleik og sigldi síSan til íslands og var á vist meS Snorra Þorgrímssynl goSa á Helgafelli og fékk systur hans, ÞuríSar, hinnar vænstu konu. Fékk Þóroddur síSan FróSá til ábúSar og sat þar meS um- svif og tugi hjóna og auk þess voru þar meS honum ýmsir menn, er ekki; töldust húskarlar. Sonur ÞuríSar og i Þórodds var Kjartan, og þó vafi á um faSerniS, hinn röskvasti sveinn. Þar var Þorgríma galdrakinn, er gerSi hríSviSri mikiö aS Birni Ás-j brandssyni fyrir bón Þórodds bónda, er hann vildi leita funda viS ÞuríSi konu hans, og maSur hennar, Þórir viSleggur. Loks ber aS nefna til sögunnar j Þórgunnu hina suSureysku, er út kom meS Dyflinnarfari viS Rif. HafSi. hún gripi góSa og torgæta á íslandi, ekki sízt rekkjubúnaS, er öfund varS á, ekkl sízt ÞuríSi húsfreyju á FróSá, sem var glysgjörn, og fór hún til skips aS hitta Þórgunnu og vildi kaupa ýmsan skartbúnaS, en Þór- gunna vildi ekki selja. Þá bauS ÞuríS ur henni til vistar á FróSá ÞáSi hún þaS, en vildl elgi gefa neltt fyrir sig, því aS hún kvaSst vel verkfær. Fór hún síSan til FróSár meS örk sína. Hefst síSan saga sú, sem varS af Þórgunnu á FróSá og eftlrhreytur þær, sem urSu aS henni látinni. Fylgjum nú frásögn Eyrbyggju: „Og er þeir toguSu sem mest strauk rófan úr höndum þeim, svo aS skinniS fylgdi úr lófum þeirra" mæltu líkmenn við bónda: „Vera má. að svo lúki við, áður vér '.kiljum, að þér þyki alkeypt, að þú vildir engan greiða gera oss“. Þá mæltu bæði bóndi og hús- t eyja: „Við viljum víst gefa yrður mat og gera yður annan greiðá, þann er þér þurfið“. Og þegar er bóndi hafði boðið þeim greiða, gekk Þórgunna fram úr stofunni og út eftir það, og sýndist hún eigi síðan. Eftir það var gert ljós í stofu, og dregin af gestum klæði þau, er vot voru, en fengin önnur þurr í staðinn. Síðan komu þeir undir borð og signdu mat sinn, en bóndi lét stökkva vígðu vatni um öll hús. Átu gestir mat sinn, og sak- aði engan mann, þótt Þórgunna hefði matbúið. Sváfu þeir af þáN nótt og voru þar í allbeinum stað. Um morguninn bjuggu þeir ferð sína, og tókst þeim allgreitt, en hvar sem þessi atburður spurð ist, sýndist flestum það ráð að vinna þeim þann beina, er þeir þurftu. Var þaðán af all tíðinda- laust um þeirra ferð. Og er þeir komu í Skálaholt, voru fram „Setið er nti meðan sætt er“ „Sumar var heldur óþerrisamt, en um haustið komu þerrar góðir Var þá svo komið heyverkum á Fróðá, að taða öll var slegin. en full þurr nær helmingurinn. Kom þá góður þerridagur, og var kyrrt og þurrt, svo að hvergi sá ský á himni. Þóroddur bóndi stóð upp snemma um morguninn og skipaði til verks. Tóku þá sumir til ekju, en sumir hlóðu heyinu, en bóndi skip- aði konum til að þurrka heyið, og var skipt verkum með þeim. Var Þórgunnu ætlað nautsfóður til at- verknaðar. Gekk mikið verk fram um daginn. En er mjög leið að nóni, kom skýflóki svartur á himininn norð- ur yfir Skor og dró skjótt yfir himin og þangað beint yfir bæinn. Þóttust menn sjá, að regn mundi í skýinu. Þóroddur bað menn raka upp heyið, en Þórgunna rifjaði þá sitt hey. Tók hún eigi að rafca upp, þótt það væri mælt. Ricindi blóSi Skýfiókann dró skjótt yfir, og er hann kom yfir bæinn að Fróðá, fylgdi honum myrkur svo mikið, að menn sáu eigi úr túninu á brott og varla handa sinna skil. Úr ský- inu kom svo mikið regn, að heyið varð allt vott, það er flatt lá. Flók ann dró og skjótt af, og lýsti veðr- ið. Sáu menn, að blóð'i hafði rignt í skúrinni. Um kvöldið gerði þerri góðan, og þornaði blóðið skjótt af heyinu öllu öðru en því, sem Þórgunna þurrkaði. Það þornaði eigi, og aldri þornaði hrífan, er hún hafði haldið á. Þuríður spurði, hvað Þórgunna aétlar, að undur þetta mundi benda. Hún kvaðst eigi það vita — „en það þyktkir mér líklegar", segir hún, „að þetta muni furða nokkurs þess manns, er hér er. Þórgunna gekk heim um kvöld- ið og til rúms síns og lagði af sér klæðin þau hin blóðgu. Síðan lagð- ist hún niður í rekkjuna og and-; varpaði mjög. Fundu menn, að hún hafði sótt tekið. Skúr þessi hafði hvergi víðar komið en að Fróðá. Þórgunna vildi engum mat bergja þá um kvöldið. En um morguninn kom Þóroddur bóndi til hennar og spurði að um sótt hennar, hvern enda hún hyggur að eiga mundi. Hún kvaðst það ætla, að hún mundi eigi taka fleiri sóttir. Síðan mælti hún: „Þig kalla ég vitrastan mann hér á bæ,“ segir hún. „Vil ég því þér segja mína tilskipan, hverja ég vil á hafa um fé það, er ég á eftir, og um sjálfa mig, því að það mua svo fara, sem ég segi“, i sagði hún. „Þó að yður þyki fátt j merkilegt um mig, að ég get lítt; duga munu af því að bregða, sem ég segi fyrir. Hefur þetta þann veg upp hafizt, að ég get eigi til mjórra enda þoka munu, ef eigi1 eru rammar skorður við reistar.“! Þóroddur svarar: „Eigi þykkir mér lítil von, að þú verðir nærgæt um þetta. Vií ég og því heita þér“, sagði hann.“ að bregða eigi af þín um ráðum“. FæriS mig í Skálholt Þórgunna mælti: „Það er ikipan mín, að ég vil láta færa mig í Skálaholt, ef ég öndumst úr þess- ari sótt, því að mér segir svo hug- ur um, að sá staður muni nokkra hríð vera mest dýrkaður á þessu landi. Veit ég og “, segir hún, „að þar munu nú vera kennimenn að veita mér yfirsöngva. Vil ég þess biðja þig, að þú látir mig þangað flytja. Skaltu fyrir hafa af minni eign svo að þig skaði eigi í, en af óskiptri minni eigu skal Þuríður hafa skarlatsskikkju þá, er ég á. Geri ég það til þess, að henni líki að ég sjái fyrir öðru mínu fé, það er mér líkar. En ég vil, að þú takir í kostnað, þann er þú hefur fyrir mér, það er þú vilt eða henni brenna rekkjubúnaðinn. Sótti hún þá svo fast, að honum gekkst hug- ur við, og kom þessu máli svo, að Þóroddur brenndi dýnur og hæg- indi, en hún tók til sín kult og blæjur og ársalinn allan, og líkaði þó hvorugu vel. Þórgunna við matseld Eftir það var búin líkferð og fengnir til skilgóðir menn að fara með líkinu og góðir hestar, er Þór- Fróðárundrin, sem gerðust 1001 líkar af því, er ég læt til. Gull-1 hring á ég, og hann skal fara til kirkju með mér, en rekkju mína og rekkjutjald vil ég láta brenna í eldi, því að það mun engum manna að nytjum verða. Og mæli ég það eigi fyrir því, að ég unni engum að njóta gripanna, ef ég vissi, að nytjum mætti verðaj en nú mæli ég því svo mikið úm“ segir hún, „að mér þyki illt, að menn hljóti svo mikil þyngsl af mér, sem ég veit að verða mun. ef af er brugðið því, sem ég segi fyrir“. í Þóroddur hét að gera eftir því, sem hún beiddi. Eftir það magn- aðist sóttin við Þórgunnu. Lá hún' eigi mörg dægur áður hún andað- ist. Líkið var fyrst borið í kirkju, og lét Þóroddur gera kistu aft lík- inu. Daginn eftir lét Þóroddur bera út rekkjuklæðin í veður og færði til viðu og lét hlaða þar bál hjá.' Þá gekk Þuríður húsfreyja og spyr, hvað hann ætlar að gera af rekkjuklæðunum. Hann kveðst ætla að brenna þau í eldi, sem Þórgunna hafði fyrir mælt. „Það vii ég eigi“ segir hún. „að þvílíkar gersemar séu brenndar. Þóroddur svarar: „Hún mælti mikið um, að eigi mundi duga að bregða af því, er hún mælti fyrir.“ Þuríður mælti: „Slíkt er ekíki nema öfundarmál eitt. Unni hún engum manni að njóta, og hefur hún því svo fyrir mælt En þar munu engin býsn eftir koma, hversu sem slíkt er breytt“. „Eigi vil ég“. segir hann, „að þetta takist annan veg, en hún hefur fyrir sagt“. Síðan lagði hún hendur um háls honum og bað, að hann skyldi eigi oddur átti. Líkið var sveipað lín- dúkum en saumað eigi um og síð- an lagt í kistu. Fóru þeir síðan suður um heiði svo sem leiðir liggja, og er eigi sagt af þeirra ferð, áður þeir fóru suður um Val- bjarnarvöllu. Þar fengu þeir keld- ur blautar mjög, og lá oft ofan fyrir þeim. Fóru síðan suður til Norðurár og yfir ána að Eyjar- vaði. Var áin djúp. Var bæði hregg og allmikið regn Þeir kom- ust að lyktum á bæ þann í Staf- holtstungum, er í Nesi heitir hinu neðra, kvöddu þar gistingar, en bóndi vildi engan greiða gera þeim. En með því, að þá var kom- ið að nótt, þóttust þeir eigi mega fara lengra, því að þeim þótti eigi friðsamlegt að eiga við Hvítá um nótt. Þeir tóku þar af hestum sín- um og báru líkið í hús eitt fyrir dyrum úti, gengu síðan til stofu og fóru af klæðum sínum og ætl- uðu að vera þar um nótt matar- lausir, en heimamenn fóru í dags- ljósi í rekkju. Og er menn komu í rekkjur, heyrðu þeir hark mikið í búrinu. Var þá farið að forvitnast,- hvort eigi væru þjófar ino komnir. og er menn komu til búrsins, var þar sén kona mikil. Hún var nak- in svo, að hún hafði engan hlut á sér. Hún starfaði að matseld. En þeir menn. er hana sáu. urðu svo hræddir ,að þeir þorðu hvergi nærri að koma. En er líkmenn vissu þetta, fóru þeir til og sáu, hversu háttað var. Þar var Þórgunna komin ,og sýnd- ist það ráð öllum, að fara eigi til með henni. Og er hún hafði það unnið sifkt er hún vildi, þá bar hún mat í stofu Eftir það setti hún borð og bar þar á mat. Þá greiddir gripir, þeir er Þórgunna hafði þangað gefið. Tóku þá kenni menn glaðlega við öllu saman. Var þá Þórgunna þar jörðuð, en lík- menn fóru heim, og tókst þeim all.t greitt um ferð sína og komu með öllu heilu heim. AS máleldum undir urðarmána A3 Fróðá var eldaskáli mikill og lokrekkja innar af eldaskálan- um, sem þá var siður. Utar af elda- skálanum voru klefar tveir, sinn á hönd hvorri. Var hlaðið skreið í annan, en mjölvi í annan. Þar voru gerðir máleldar hvert kvöld í eldaskála, sem siður var til. Sátu menn löngum við eldana, áður menn gengu til matar. Það j kvöid. er líkmenn komu heim, þá er menn sátu við málelda að 1 Fróðá, þá sáu menn á veggþili hússins, að komið var tungl hálft. , Það máttu allir menn sjá, þeir er í húsinu voru. Það gekk' öfugt um húsið og andsælis. Það hvarf eigi á brott, meðan menn sátu við elda. Þóroddm spurði Þóri viðlegg, hvað þetta mundi boða. Þórir kvað það vera urðarmána. „Mun hér eftir koma manndauði". segir hann. Þessi tiðindi bar þar við viku alla, að urðarmáni kom inn hvert kvöld sem annað. Sauðamaður með hlíóðleikum Það bar hér næst til tíðinda, að sauðamaður kom inn með hljóð- leikum miklum. Hann mælti fátt, [ en af -:tyggð það er var. Sýndist ! mönnum þann veg helzt. sem hann mundi leikinn, því að hann fór hjá sér og talaði við sjálfan sig, og fór svo fram um hrið. En er eigi mjög langt var liðið af vetri, kom sauðamaður heim eitt kvöld, gekk til rekkju einnar , og lagðist þar niður, en um morg- uninn var hann dauður, er menn [ komu til hans, og var hann graf- inn þar aó kirkju. Brátt eftir þetta gerðust reimleikar miklir. Þð var nótt eina, að Þórir við- leggur gekk út nauðsynja sinna og frá dyrunum annan veg. Cg or hann vi’di inn ganga, sá bann, að sanðamaður var komir.n fyrir dyrnar. Vildi Þórir inn osnga. en sauðamaður sótti c.ftir og fíkk (Framhald A 12. íiðuj.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.