Tíminn - 09.08.1961, Page 2
2
TÍMINN, migyikudaginn 9. ágúst 1961.
Eysteinn Jónsson:
Nú eru góð ráð dýr
Mbl.-menn virðast liafa orðið
meira en lítið miður sín út af
því að ég upplýsti, að 5%
kauphækkun hjá frystihúsi
svaraði til 1% breytinga á verði
seldra afurða hússins.
Ég get vel skilið þctta, því
að það er erfitt verk að tefla
því fram gegn þessari stað-
reynd, að 11—12% kauphækk-
un hafi gert gengislækkun eðli-
lega eða jafnvel óumflýjanlega.
Við þessu finnst bara eitt
ráð á Mbl.-heimilinu og það er
að segja þetta lýgi, og er þá
ekki tvínónað við það. Það er
gert með þessum orðum á
sunnudaginn var:
„Staðreyndirnar eru þær, að
vinnuaflskostnaður frystihúsa
er yfirleitt a. m. k. 50% heild-
arútgjalda“. —
Þessu fylgja svo nokkur vel
valin orð um mig til smekk-
bætis. Yfir því kvarta ég ekki.
Hitt ætla ég mér að upplýsa,
að tölur mínar um kaupgjald
í hraðfrystihúsum eru byggðar
á reikningum margra hrað-
frystihúsa. Ég hef líka haft
með höndum útreikninga Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna
og SÍS um fiskvinnslu í hrað-
frystihúsunum. Þar að auki
gætti ég þess til varúðar, að
leggja vel í kaupgjaldskostnað-
inn, til þess að halla ekki á
gengislækkunarmenn.
Sannleikurinn er sá, að það
er miklu fremur of en van að
vinnulaunakostnaður í hrað-
frystihúsunum sé 20% af út-
flutningsverðmæti afurðanna.
5% kauphækkun í hraðfrysti-
húsi svarar því yfirleitt alls
ekki til meira en 1% breyting-
ar á útflutningsverði.
Satt er það, að ekki eru þeir,
sem standa fyrir gengislækk-
unargerræðinu, öfundsverðir
af þessum staðreyndum.
En einmitt þetta um áhrif
kaupgjaldshækkunarinnar í
frystihúsunum sýnir, hve oft er
hægt að afhjúpa stóra og flókna
blekkingu með litlu og ein-
földu dæmi. —
Hver trúir því, að hækka
hafi þurft verð á erlendum
gjaldeyri um 13% til að mæta
þeim kjarasamninguin, sem
urðu, eftir að hafa kynnt sér
frystihúsadæmið. — Eða dæm-
ið um bræðslusfldina, þar sem
vinnulaunakostnaður hækkar
um 3—4 krónur á mál, eftir því
með hvaða vinnslumagni er
reiknað, og verð á bræðslusfld
gat hækkað, þrátt fyrir það, og
einnig um saltsfldiná. —
Ekki tekur betra við, ef það
er haft í huga, að þeir sögðu,
að „kerfið“ þyldi 6% kaup-
hækkun, en 10—11% kaup-
hækkun krefðist þess, að verð
á erlendum gjaldeyri væri
hækkað um 13%. — 6% kaup-
hækkun þýddi ca. 240 kr. hækk-
un á kaupi á mánuði hjá verka-
manni, en 11% hækkun, sem
varð, 440 kr. hækkun á mán-
uði. Þessi mismunur, 200 kr.
á mánuði, lijá verkamanni á
að valda því að hella þurfi yfir
þjóðina nýrri, stórfelldri gengis
lækkun, sem hækkar verðlag í
landinu um nálega 550 milljón-
ir króna í fyrstu umfcrð.
Það er' ekki að furða, þótt
þeir, sem fyrir þessu standa,
eigi bágt með að færa rök fyrir
því og taki þess í stað þann
kostinn að æpa ókvæðisorð að
andstæðingunum.
En það tekur þjóðin ekki
gilt.
Vikuaflinn nær 160
þús. mál og tunnur
AUgóð veiði var alla síðastliðna
viku á miðunum fyrir Austur- j
landi á svæðinu frá Skrúð að Dala
tanga. Veður var þar yfirleitt hag
stætt í vikunni.
Engin veiði var fyrir Norðurlandi
og veður rysjótt. Olli það tölu-1
verðum töfum á síldar/.utningum
til verksmiðjanna norðan Langa-1
ness.
Vikuaflinn var 159.660 mál og
tunnur (í fyrra 92.460).
I vikulokin var aflinn sem hér
segir. Tölur í svigum eru frá
sama tíma í fyrra.
í salt upps. tunnur ...............
í bræffslu mál ....................
í frystingu uppm. tunnur...........
Útflutt ísað — .........
Hérmeð fylgir skrá yfir þau skip
sem aflað hafa 10.000 mál og tunn1
ur eða meira:
Mál og tn. j
Árni Geir Keflavík 12.377
Áskell Grenivík 10.214
Auð'unn Hafnarfirði 11.128
Baldur Dalvík 10.665
Bergvík Keflavik 12.153
Dofri Patreksfirði 10.752
Einar Hálfdáns Bolungarvík 11.872
Eldborg Hafnarfirði 11.743
Gjafar estmannaeyjum 12.616
Guðbjörg ísafirði ‘ 10.461
Guðbjörg Ólafsfirði 13.211
342.860 (105.690)
834.955 (563.323)
19,710 ( 13.755)
0 ( 834)
1.197.525 (683.602)
Guðm. Þórðárson Reykjav. 15.062
Guðrún Þork.dóttir Eskif. 16.462
Halldór Jónsson Ólafsvík 11.415
Haraldur Akranesi 14.968
Héðinn Húsavík 10.016
Heiðrún Bolungarvík 14.420
Helgi Helgas. Vestm.eyjum 11.408
Hilmir Keflavík 10.259
Hólmanes Eskifirði 10.044
Höfrungur Akranesi 10.605
Höfrungur II Akranesi 11.543
Kristbjörg Vestm.eyjum 10.543
Ólafur Magnúss. Akureyri 15.777
Pétur Jónsson Húsavík 10.891
Pétur Sigurðsson Reykjavík 12.353
Sigurður Siglufirði 10.063
Sig. Bjarnason Akureyri 10.076
Snæell Akureyri 12.780
Stapafell Ólafsvík 12.448
Sunnutindur Djúpavogi 11.675
Víðir II Garði 17.747
Víðir Eskifirði 10.661
Buchman
látinn
NTB—Freudenstadt 8. ág.
Frumherji SiSvæðingarhreyf-
ingarinnar (MRA) ,dr. Frank
Buchman, lézt á mánudags-
kvöldið á heimili sínu í Freud
enstadt f Vestur-Þýzkalandi.
Hann varðv 83 ára gamall.
Buchman lézt eftir mjög
skamma legu eftir að hann hafði
fengið hjartaslag. Að eigin ósk
verður hann jarðsettur í grafreit
fjölskyldunnar í Alletown í Penn-
sylvaníu.
Síld seld beint út
Siæmar heimtur á sjómönnum
f Neskaupstað bíða nú 15 skip
löndunar með um sex þúsund
mál síldar, sem öll fer í bræðslu.
Undanfarna sólarhringa hefur
verið bræla á miðunum og engin
síldveiði, en í nótt lygndi, og
fengu skipin sæmilega veiði út af
Norðfjarðarhorni og á Tangaflaki
24—30 sjómílur frá landi. Síldin
er blandaðri nú en venjulega.
Veiðihorfur eru góðar, og hafa
bátarnir verið að kasta í dag.
Um verzlunarmannahelgina var'
allur flotinn í höfn, og fóru margir
af áhöfnum skipanna upp á Hérað
á útisamkomuna í Atlavík. Hefur
gengið erfiðlega að heimta suma
þeirra til skips aftur, og tii nokk-
urra hefur ekkert spurzt enn, en
vonandi koma þeir þó í leitirnar
innan tíðar.
Énginn bátur kom með síld til
Siglufjarðar í gær og enginn hafði
tilkynnt síld þangað í gærkvöldi.
Flutningaskip síldarverksmiðj-
anna komu þar aftur á móti í gær
og fyrradag og losuðu farm. Verið
er að lesta síld til útflutnings á
Siglufirði og lýsisskip er væntan-
legt þangað einhverntíma á næst
u.nni, en þar hefur nú hiaðiz* —■
mikið magn af síldaraf'r'
5 héraðsmót Framsóknar-
manna um næstu helgi
V estur-Skaf taf ellssýsla
Héraðsmótið verður að Kirkjubæjarklaustri n. k. laugardag og
hefst það kl. 9 s.d.
Mótið setur Jón Helgason, Seglbúðum. Ræður flytja Ágúst
Þorvaldsson, alþm. og Helgi Bergs, verkfr.
Árni Jónsson, óperusöngvari, syngur með undirleik Skúla
Halldórssonar, tónskálds. Ómar Ragnarsson fer með gaman-
vísur. Þá verður dansað.
Norður-Þingeyjarsýsla
Mótið verður haldið að Skúlagarði í Kelduhverfi n. k. laugar-
dag og hefst kl. 8,30 s. d.
Ræður flytja alþingismennirnir Eysteinn Jónsson og Karl
Kristjánsson.
Fluttir verða söngvar úr óperettum. Söngvarar Björg Bald-
vinsdóttir og Jóhann Ögmundsson.
Að lokum verður dansað.
/
Skagafjarðarsýsla
Héraðsmótið verður að Sauðárkróki n. k. sunnudag og hefst
kl. 8 s. d.
Ræður flytja alþingismennirnir Ólafur Jóhannesson og
Skúli Guðmundsson.
Hinn vinsæli Smárakvartett frá Akureyri syngur og Ævar
R. Kvaran leikari skemmtir.
Síðan verður dansað.
Eyjafjarðarsýsla
Mótið verður að Laugaborg í Eyjafirði n. k. sunnudag og hefst
kl. 8.30 s. d.
Ræður flytja alþingismennirnir Eysteinn Jónsson og Karl
Kristjánsson.
Einsöng syngur Erlingur Vigfússon.
H.H.-kvintettinn leikur fyrir dansí.
r
Arnessýsla
Héraðsmótið í Árnessýslu
verður haldið að Aratungu,
Biskupstungum, n. k. sunnu-
dag og hefst kl. 9,30 s. d.
Mótið setur Sigurfihnur Sig
urðsson, Birtingaholti, form.
F.U.F. í sýslunni Ræðuh flytja
Ágúst Þorvaldsson, alþm. og
Örlygur Hálfdánarson form.
S.U.F.
Árni Jónsson, óperusöngvari, syngur með undiileik Skúla
Halldórssonar, tónskálds. Ómar Ragnarsson fer með gaman-
vísur. Einnig verður dansað.
Orlygur
Ágúst
Dregið hefur verið í Veltuhappdrættinu, en eftirtalinna
vinninga hefur enn ekki verið vitjað:
Ferð á Edinborgarhátíð nr. 852
Heimilistæki — 1036
Veiðistöng — 959
Þeir, sem hlotið hafa þessa glæsilegu vinninga, eru
vinsam|ega heðnir að snúa sér til happdrættisnefndar-
innar sem allra fyrst.
Happdrættisnefndin
Ólæti í Atlavík
■ | menn úr umferð vegna ölvur
og óeirða.
Sumir ófundnir
(Framhald af 1. síðu
Sumir sjómannanna á síldveiði-
Á sunnudag varð einnig að taka iflotanum, sem sóttu samkomuna
j í Atlavík erj enn ókomnir til
------------------------------[skipa sinna og hafa ekki fundizt
j né nokkrar fregnir af þeim borizt.
jEr það bagalegt fyrir síldarskipin,
j því að brælan er búin á miðun-
um og veiðar aftur að hefjast.
j Ákveðið hefur verið, að fram-
vegis verði ekki haldnar fleiri
samkomur í Atlavík eftir þá
Áeynslu, sem nú er fengin af fram
'komu samkomugesta.
Síldarverksmiðjur ríkisins hafa
fengið leyfi til þess að selja síld
beint um borð i norsk síldarfiutn-
ingaskip ti) vinnslu í Noregi, þar
seni löndunarmöguleikar eru af
skornum skanunti í höfnunum
■ uctan lands. Var í gær lestað heil
' af slíkri síld á Seyðisfirði.