Tíminn - 09.08.1961, Blaðsíða 16
■■ ■■■ :■ : ■
s * i
3
»«»
' 1
.
i II
':'Í
:,:■. ■ ,
.
_______________________________________________________
Hermann og Eysteinn
hafa framsögu í kvöid
Almennur stjórnmálafundur í Fram-
sóknarhúsinu kl. 8.30.
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn í
Framsóknarhúsinu í kvöld kl. 8,30. Hermann
Jónasson, formaður Framsóknarflokksins og
Eysteinn Jónsson, formaour þingflokks Fram-
sóknarmanna hafa framsögu um stjórnmálavið-
horfið. Allir Framsóknarmenn og stuðningsmenn
Framsóknarflokksins eru hvattir til að fjöl-
menna á fundinn. — Mætum öll í Framsóknar-
húsinu kl. 8,30!
Miðvikudaginn 9. ágúst 1961.
178. blað.
Hefurðu tryggt þér miða í
ferð Framsóknarfélaganna?
Eruð þið búin að panta ykkur miða í ferðalagið á
sunnudaginn? — Lftið á auglýsinguna á bls. 11.
Leiðin lá frá
Vancouver til
Íslands um Paris
Það er fleira í Kanada en
skógar, fimmburar og íslend-
ingar. Þar eru einnig listmál-
arar og einn þeirra er Steph-
en Woodbury, ungur maður
frá Vancouver. Hann dvelst
um þessar mundir hér á is-
landi og sýnir allmargar
myndir á Mokkakaffi á Skóla-
vörðustíjg. Mest ber þar á olíu-
málverkum og margar þeirra
eru málaðar hér á landi. i
I
Leiðin frá Vancouver til Reykja (
víkur var langt frá því að vera
krókalaus, því hin^'ð kemur1
Woodbury frá París og London.
Skógar þar — hraunin hér
Maður skyldi ætla að í Van-
couver hefði einhver landi vor
getað frætt Woodbury á því að
ísland væri ákjósaniegt land fyrir
listmálara. En það var ekki fyrr
en hann kom til Parísar, að hann
hitti íslenzka stúlku, sem vakti
áhuga hans á landinu.
— Hún sagði mér margt frá feg
urð landsins, sagði Stephen í við-
tali við blaðamann Tímans í gær,
ég bjóst þvi við miklu þegar ég
kom hingað. En íslenzk náttúra
hefur þó farið fram úr öllum mín-
um vonum, ég hef unnið af kappi
síðan ég kom hingað, hér eru ó-
tæmandi uppsprettur fyrir list-
málara.
— Er gróska í kanadískri mál-
aralist?
— Þa?l er óhætt að fuilyrða að
svo sé Margir kanadískir listmál
arar hafa getið sér góðan orðstír
Náttúran er mjög örvandi til slíkra
hluta i Kanada, skógar og vötn.
Einkanlega eru skógarnir mjög
blæbrigðaríkir, þeir skipta litum
eftir árstíðum og eru sífellt rann-1
sóknarefni þeim sem byggja list,
sína á línum og litum.
— Saknið þér þá ekki skóganna
hér á landi?
— Neþ Hér er það hraunið og
mosinn, sem búa yfir sérkennileg I
um og nýstárlegum litbrigðum,
sem eru einkennandi fyrir ísland.
Hún heifir Edda
— Þér málið landslagsmyndirl
og mannamyndir?
— Með nokkrum hætti. Þó er
ég ekki natúralisti í beinum skiln
ingi, er ekki bundinn við fyrir-j
myndina. Eg notast við það úr
náttúrunni sem fellur að hugmynd
um mínum, öðru sleppi ég úr
myndinni, svo bæti ég við frá
sjálfum mér. Svo þetta verður
hálf-abstrakt.
Þó munu Mokka-gestir þekkja
ýmsar fyrirmyndirnar í málverk-
(Framhald i 15 síðui
Útför Ásmundar Sigurðsson-
ar lögregluþjóns, sem fórst um
daginn 5 umferðarslysi á Lauga
veginum, fór fram frá Fossvogs
kapellu síðdegis í gær. Starfs-
bræður Ásmundar í lögregl-
unni höfðu komið sér saman
um að gera athöfn þessa sem
virðulegasta.
Sr. Árelíus Níelsson jarðsöng.
Lögreglukórinn söng undir
stjórn Páls Kr. Pálssonar og
Jón Sigurðsson lögregluþjónn
lék einleik á trompet. Tveir
lögregluþjónar, sem setið höfðu
á skólabekk með Ásmundi á
lögreglunámskeiðinu báru á-
samt yfirmönnum lögreglunnar
kistuna úr kirkju. Fjórir lög-
regluþjónar stóðu heiðursvörð.
með sorgarstaf í hendi.
Frá kapellunni og niður í
garð fylgdi heiðursfylking ein
kennisklæddra lögregluþjóna.
Síðasta spölinn báru kistuna
starfsbræður Ásmundar úr bif
hjóladeild lögreglunnar. Lög-
reglukórinn söng síðan yfir
moldum Ásmundar. Lögreglu-
þjónar tóku ofan húfur sínar
og héldu þeim undir hendi sér.
Efri myndin sýnir, þegar kist
an er borin úr kirkju. Heiðurs-
vörður stendur til hliðar. Á
seinni myndinni sést jarðsetn-
ingin. Til vinstri standa lög-
reglumenn úr bifhjóladeild lög-
reglunnar og til hægri er lög-
reglukórinn.
Kanadiski listmálarinn Stephen Woodbury ásamt einu verka sinna,