Tíminn - 10.08.1961, Blaðsíða 2
2
T f MIN N, fimmtudaginn 10. Sgflst 1561.
Tómas Árnason, lögfræðingur:
Seðlabankinn geri nánari grein
fyrir nauðsyn gengislækkunarinnar
Með bráðabirgðalögum, sem
sett voru 1. ágúst s.l., varð sú
breyting, að ríkisstofnun, Seðla
bankanum, var af ríkisstjórn-
inni fengið það vald Alþingis í
hendur að ákveða, að fengnu
samþykki ríkisstjórnar'innar,
stofngengi íslenzku krónunnar
gagnvart erlendum gjaldeyri
og gulli.
Það er mál út af fyrir sig, að
þetta skyldi hafa verið gert
með bráðabirgðalögum. Ekki
verður séð, að brýn nauðsyn
hafi borið til þess, eins og
stjórnarskráin gerir ráð fyrir.
Væri fróðlegt að fá lagaskýr-
ingar ríkisstjórnarinnar þar að
lútandi.
Þegar Alþingi ákveður gengi
krónunnar, er það gert með
lögum. Lögin eru seinasta orð-
ið og verður ekki breytt, nema
með nýjum lögum.
Þegar sú skipan mála hefur
verið tekin upp, að ríkisstofnun
eins og Seðlabankinn ákveði,
að fengnu samþykki ríkisstjórn
arinnar, gengi króuunnar, verð
ur að gera þær lágmarkskröf-
ur til hennar, að hún r'ökstyðji
nauðsyn slíkrar breytingar með
skýrum og ótvíræðum rökum.
Seðlabankinn verður að leggja
spilin á borðið og skýra frá því,
hvers vegna nauðsynlegt hafi
verið að lækka gengið nú um
12—13%, en ekki um 5% eða
7%, svo að einhver dæmi 6éu
tekin.
Greinargeið Seðlabankans er
mjög almenns eðlis. Það er tal-
að um verðfall afurða og afla-
brest á sl. ári, en ekki minnzt
einu orði á verðhækkanir út-
flutningsframleiðslunnar á
þessu ári, svo og hina óvenju
miklu síldveiði. Þá segir í grein
argerðinni, að gengi krónunnar
sé hækkað til samræmis við þá
röskun, sem kauphækkanirnar
hafa í för með sér. Seðlabank-
inn heldur því m. ö. o. fram,
að nauðsynlegt hafi verið að
lækka gengið nú um 12—13%
vegna bauphækkana og gefur
óbeint í skyn, að gengislækkun-
in sé einnig gerð vegna vænt-
anlegra kauphækkana á næsta
ári.
Ef Seðlabankinn vill sanna
með skýrslum, að gengislækk-
unin hafi numið þeirri röskun,
sem varð vegna kauphækkana,
ætti að vera auðvelt að birta
reikninga fyrirtækja eins og
t. d. frystihúsa. Hafi hins vegar
gengislækkunin verið syona
mikál af öðrum ástæðum. Hverj
ar eru þær?
Ég vil því beina þeirri spurn-
ingu til Seðlabankans, hvers
vegna nauðsynlegt hafi verið að
lækka gengið um 12—13%. Öll
þjóðin heimtar ýtarlega grein-
argerð, þar sem allt er tekið
með í reikninginn. Má þá ekki
gleyma ágætri síldveiði í ár og
hækkun afurðaverðs.
Jafnframt því, sem óskað er
eftir nákvæmari greinargerð
frá Seðlabankanum, fylgjast all
ir vel með ófimlegum aðgerð-
um rikisstjórnarinnar, sem
reynir með mjög hæpnum
hætti að skýla sér á bak við
Seðlabankann.
„Viöreisnarmenn” stranda
í ísafjarðardjúpi
Bjarni Ben. og Sigurður frá Vigur verða fyrir
táknrænum föfum
Viðskipti við
Tékkóslóvakíu
30. júlí sl. kom hingað til Rvík-
ur viðskiptanefnd frá Tékkóslóva
kíu til að semja um viðskipti land
anna fyrir tímabilið 1. september
1961 til 31. ágúst 1962, á grund-
velli þriggja ára viðskiptasamn-
ings, sem undirritaður var í Prag
í nóvember 1960.
Samkvæmt vörulistanum, sem
nú hefur verið samið um, er gert
ráð fyrir, að ísland selji, eins og
áður: fryst flök, frysta sild, fiski-
mjöl, lýsi, fiskniðursuðu auk fleiri
vara. Frá Tékkóslóvakíu er m. a.
gert ráð fyrir kaupum á vefnaðar-
vöru, skófatnaði, búsáhöldum,
rúðugleri, ■járni og stálvörum,
margs konar iðnaðarvélum og verk
færum, bílum, hjólbörðum, auk
fleiri vara.
Af íslands hálfu önnuðust þessa
samninga dr. Oddur Guðjónsson,
Björn Tryggvason, Pétur Péturs-
son og Ingvi Ólafsson.
Bókun um framangreind við-
skipti var í dag undirrituð af ut-
anríkisráðherra, Guðmundi í Guð
mundssyni og Josef Keller, for-
stjóra í utanríkisverzlunarráðu-
neytinu í Prag, en imn var for-
maður tékknesku nefndarinnar.
Utanríkisráðuneytið.
Reykjavík, 9. ágúst 1961.
Hæstaréttar-
dómari flýr
Mesti flóttamannastraumur til Vestur-Berlínar
síðan 1953
Iðja mótmælir
gengisfellingu
Stjórnar- og trúnaðarráð Iðju,
élags erksmiðjufólks á Akureyri,
samþykkti einróma eftirfarandi
tillögu á fundi sínum fyrir
skömmu: „Fundur í stjórnar- og
trúnaðarráði Iðju, félags verksm.-
fólks á Akureyri, haldinn 5.8. mót
mælir eindregið gengisfellin^
þeirri, sem ríkisstjómin lét koma
til framkvæmda. Telur fundurinn
að ráðstafanir ríkisstjórnarinnar í
þessu efni stuðli enn að stórauk-
inni dýrtíð, til tjóns fyrir almenn
ing í landinu, og eigi eftir að valda
erfiðleikum fyrir þjóðarbúið um
laga og ó'komna framtíð.
Þessi ráðstöfun ríkisstjórnarinn
ar er þeim mun óskiljanlegri, er
á það er litið, að þjóðarframleiðsl
an og gjaldeyrisöflun hefur stór-
aukizt á árinu, og því ekki ástæða
til þess að skerða lífskjör almenn
ings“.
Fréttatilkynning frá Iðju.
NTB—Berlín, 9. ágúst. —
Flóttamannastraumurinn til
Vestur-Berlínar frá Austur-
Þýzkalandi hefur verið stríð-
ur undanfarnar vikur og
mánuði, en nú keyrir þó fyrst
um þverbak. Eru Austur-Þjóð
verjar hræddir um, að yfir-
völdin fari að gripa til rót-
tækra ráðstafana, sem geri
mönnum ómögulegt að kom-
ast undan skipulagi kommún-
ismans.
í morgun höfðu á einum sólar-
hring komið 2000 flóttamenn til
flóttamannamiðstöðvarinnar í borg
inni og beiðzt hælis sem pólitískir
flóttamenn. í gær hafði straumur-
inn verið næstum eins mikill.
Þetta er langmesti fjöldi flótta-
manna til Vestur-Berlínar síðan
árið 1953, er uppreisnin var gerð
í Austur-Þýzkalandi.
Dómari á flótta
Dómari í hæstarétti Austur-
Þýzkalands kom í dag til Vestur-
Berlínar og bað sér hælis sem
pólitískur flóttamaður. Voru með
honum 9 meðlimir fjölskyldunnar.
Dómarinn heitir Horst Iletzar.
Hann kvað réttarfarinu í Austur-
Þýzkalandi fara æ hnignandi, og
væri það nú svo illa komið, að
skömm væri að því að vera lög-
i maður bar.
Eitt flugvél-
arránið enn
Flugvél frá Pan American-
flugfélaginu bandaríska, sem
var á leið frá Houston í Texas
í gær til Guatemalaborgar,
breytti i gær um ákvörðunar-
stað og lenti á Kúbu.
Flugstjórinn tilkynnti þessa á-
kvörðun mjög stuttlega og skýr-
ingalaust, en flugfélagið gengur
út frá, að þarna hafi rán átt sér
stað. Flugvélin er þota af gerð-
inni DC8 með 72 farþega innan-
borðs og 9 manna áhöfn. Meðai
farþega var utanríkisráðherra Ból
ivíu og frú hans. Þegar síðast
fréttist, var. flugvélin ekki komin
til Kúbu og talið líklegt, að banda
ríski flugherinn myndi reyna að
ráða lendingarstað vélarinnar.
Sjálfstæðismenn efndu til
mannsafnaðar í Reykjanesi
við ísafjarðardjúp um s. I.
helgi. Lögðu leið sína þangað
vestur að tala yfir fólki Sig-
urður frá Vigur og Bjarni
dómsmálaráðherra og hugð-
ust reyna að hressa við sí-
hrörnandi fylgi þar vestra.
Segjr ekki af ræðum þeirra, en
það er til marks um, að áheyrend-
um muni hafa þótt þær heldur
þunnar og fallnar í gengi, að einn
þeirra orti, er hann hafði hlýtt á
lestur þeirra:
Þetta lið er lítt til stórs
löngu snautt til dáða,
einkum meðan Óli Thórs
öllu fær að ráða.
Gerðu þeir Sigurður og Bjarni
för sína síðan úr Reykjanesi og
fóru sjóveg, sem títt er á þeim
slóðum. Var logn og blíða og þeir
sjóhressir sæmilega. Var þetta og
á heimaslóðum Sigurðar og hon-
um því kunn hver alda. Er liðið
var á nótt komu þeir í nánd_ við
Vigur, og brá þá svo við, að*far-
kosturinn renndi á grunn og sat
þar alllengi nætur. Engan sakaði1
þó og komust þeir félagar með
morgni til ísafjarðar. I
Þykir ekki ólíklegt, að Vest-
firðingar, sem eru út undir sig í
gjörningum, svo sem alkunna er,
hafi verið að gera þeim gletting-
ar nokkrar og tafir, svipaðar þeim,
sem séra Eiríkur í Vogsósum hafði
Ágætur fundur
i gærkveldi
Framsóknarfélögin í Reykjavík
héldu ágætan fund í Framsóknar
húsinu í gærkveldi. Rætt var
stjómmálaviðhorfið og voru fram
sögumenn þeir Hermann Jónas-
son, formaður Framsóknarflokks
ins og Eysteinn Jónsson, formað-j
ur þingflokks Framsóknarmanna. j
Var gerður góður rómur að máli'
þeirra og tóku margir til málsj
að framsöguræðum loknum. Nánj
ar verður skýrt frá fundinum í
blaðinu á morgun.
í frammi á fyrri tíð, er honum,
líkaði ekki atferli piltunga. Mun
Vestfirðingum sem öðrum hafa
þótt sem atferli þeirra íhalds og
krata svipa nokkuð til Vogsósa-
stráka og þeir eiga því skilið
svipaða áminningu fyrir gengis-
fellinguna og „viðreisnina" alla.
Flokkur Kaúnda
bannaður
NTB — Lusaka 9. ágúst.
Ókyrrt hefur vérið í Norður-
Rhodesíu undanfarið, og í dag
gusu þar upp óeirðir enn á ný í
dag. Var herlið þegar flutt á vett
vang bæði í flugvélum og land-
veg. Óeirðir þessar spruttu upp
eftir að sjálfstæðisflokkur lands-
ins var bannaðúr í sumum héruð-
unum af brezkum yfirvöldum. f
Norðurhéraði, sem er stærst
hinna átta fylkja landsins, hefur
undanfarið gengið á með ofbeld-
isverkum og blóðsúthellingum.
Sjálfstæðisflokkur þessi er flokk
ur Kaúnda og er talinn öflugasti
þjóðernissinnaflokkur Afríku í
dag. Flokkurinn hefur lagzt ein-
dregið gegn uppkasti því að’ stjórn
arskrá fyrir landið, Sem Bretar
kunngerðu í fyrri viku, en hún
hefur verið mikið þrætumál.
Fyrsta leik-
sýningin
Ólafsfirði, 4. ágúst.
Hér voru leikþættir Kiljans
sýndir á miðvikudagskvöldið, og
var það fyrsta leiksýningin í nýja
félagsheimilinu. Húsið var þétt-
skipað áhorfendum, sennilega á
þriðja hundrað manns, og klöpp-
uðu þeir leikendum óspart lof 1
Jófa. Ásgrímur Hartmannsson,
bæjarstjóri, þakkaði leikflokknum
komuna og skemmtilegan og góð-
an leik.
Lárus Pálsson taldi þetta leik-
svið það næstbezta, sem hann
hefði kynnzt í félagsheimili. Leik
flokkurinn rómaði aðbúnaðinn í
húsinu og var yfirleit.t mjög á-
nægður með aðsóknina og viðtök
ur áhorfenda. B.S.
Títoff hélt ræ(Ju
(Framhald af 3. síðu).
, af hetjum sínum Gagarín og Tít-
, off. Að lokinni ræðu sinni, faðm-
] aði Krustjoff Títoff að sér, meðan
i þjóðsöngurinn var leikinn.
Boð í Kreml
Eftir þessi ræðuhöld þrammaði
hálf milljón manna fram hjá graf-,
hýsinu, hyllandi geimfarann. Síð-j
ar um daginn hafði Bresnjev for-:
I seti boð inni fyrir hann í Kreml, j
, og voru þar um 2000 manns. Þar
| hélt Krustjoff aðra ræðu, þar semj
hann ræddi Berlínarmálið og kvað
Ráðstjórnarríkin fastákveðin að
gera friðarsamning við Þýzkaland
fyrir áramót. Alþjóðlegan blaða-
fund mun Títoff halda á föstudag-
inn og svara spurningum um flug
sitt.
Árétting
A forsíðu blaðsins í gær var
birt mynd af börnum, sem voru
að leika sér við bát á Laugarvatni
og látin orð falla í skýringum, að
illt væri til þess að vita, að ung
og saklaus börn hefðu verið að
leik innan um ölæðisskríl. Hér var
um leiða missögn að ræða. Börnin
voru að sjálfsögðu að leik á allt
öðrum slóðum á Laugarvatni og
í fylgd með foreldrum sínum á
friðsælli strönd vatnsins. Tilgang-
ur blaðsins með birtingu myndar-
innar var enda sá einn að benda
á andstæðu ómenningarinnar en
um leið fagurt dæmi þess, hvernig
unnt er að njóta lífsins á þessum
fagra stað, sé hann ekki saurgað-
ur af sk'P'látum ölæðinga. Hafi
þetta valdið einhverjum misskiln-
ingi biður blaðið velvirðingar á,
og áréttar betur, lrvað fyrir því
vakti. hafi orðilag myndartextans
verið óljóst eða óheppilegt- ,