Tíminn - 10.08.1961, Blaðsíða 16
*ntnmi
Fimmtudaginn 10. ágúst 1961.
179. blað.
Hringdi strax
í Krústjoff
— Hvar er síminn, ég verð
að hringja til Krústjoffs. —
Nýi rússneski geimfarinn
Gherman Títoff var varla lent-
ur, æstur eftir ferðalagið, þeg-
ar hann óskaði eftir að gefa
flokknum skýrslu um, hvernig
hann þaut umhverfis jörðina
á 25 tímum fyrstur manna.
Hann lenti á akri í Hvíta-Rúss-
landi, hér um bil 700 kílómetrum
frá Moskvu. Einu lýsinguna af því
gaf fréttamaSur frá Tass frétta-
stofunni. Honum sagðist svo frá:
— Allt í einu sást undarlega
lagað skip í loftinu. Það kom neð-
ar og neðar. Við hlupum af stað
til að hitta geimfarann. Það var
stórkostlegt, óheyrilegt.
Við föðmum elskaðan landa okk
ar. Hann er dálítið æstur og horfir
á okkur glampandi augum, heldur
Tass-fréttaritarinn áfram. Hann
lenti á akri, sem nýbúið var að
hirða af og var þegar faðmaður af
nokkrum vélamönnum, sem voiu
við vinnu sína rétt hjá. Verkstjóri
dráttarvélaflokksins, M. I. Andr-
ejo, gekk til geimfarans og sagði:
— Kæri vinur, ég óska þér og
rússnesku fósturjörðinni til ham-
ingju. Hann faðmar Títoff að sér
og hjálpar honum úr geimklæð-
unum.
Og hvað sá hann uppi? — Eg
sá garðana, skógana og risavöxnu
akrana í hinu elskaða föðurlandi
okkar, svaraði Títoff og gekk til
næsta húss til að ná tali af Krúst-
joff.
Flokksskírteini í laun
Hvernig það samtal fór fram,
var skýrt frá í greinargerð, sem
gefin var út í Moskvu nokkru
seinna. Krústjoff svaraði í sim-
ann, þegar hann sat á fundi með
^ 4 Rétt ettir léndinguna: Títoff hringir í Krustjoff.
ambassador Argentínu í Moskvu,
Cesar J. Barros, sem fékk leyfi
til að hlusta á samtalið gegnum
aukaheyrnartól.
Að fyrstu hamingjuóskunum af-
stöðnum spurði maðurinn í
Moskvu:
— Hve oft fórstu umhverfis
jörðina?
— Sautján og hálfum sinnum,
Nikita Sergevitj.
— Og hve langan tíma tók það?
— 25 tíma og nokkrar mínútur.
— Það er einstakt afreksverk.
Þú hefur iátið draum mannkyns-
ins rætast. Fyrir stuttu héldu
menn að geimferðir væru ekki
mögulegar. Við erum stoltir af
þér — sem sovétborgara og komm
únista . þú ert ekki lengur á bið-
lista, ég tel öruggt að reýnslu-
tími þinn sé hér með á enda, þar
sem vera þín í himingeimnum
jafngildir mörgum árum. Þú hefur
sýnt, að þú ert sannur kommún-
isti og getur verið merkisberi
Lenins.
— Ég mun reyna að vera verð-
ugur trausts flokksins, Nikita
Sergevitj, svaraði geimfarinn.
Eiginkonan taugaósfyrk
Samtalinu lauk með því, að Tít-
off játaði, að kona sín hefði verið
óróleg út af þessu, og hafði Krúst-
joff skilning á því. Eitt af því
fyrsta, sem geimfarinn gerði síð-
an, var að hringja til konunnar i
Moskvu til að gefa til kynna, að
hann væri kominn niður aftur
heilu og höldnu.
Næstu daga verður Títoff í lækn
isrannsókn og hvilir sig, og fyrst
þar á eftir mun mikil móttaka
vei'ða fyrir hann í Moskvu. Dag-
urinn er ekki enn ákveðinn, en
það verður sennilega á föstudag-
inn kemur. Krústjoff lofaði í hinu
opinbera heillaóskaskeyti sínu, að
þeir sæjust bráðum aftur. Meðal
viðstaddra á heiðurspallinum
verður, auk fjölskyldu Títoffs,
fyrsti geilmfarhnn, Gagarín, sem
kom heim á ?riðjudaginn úr ferða
lagi til Kanada.
Fyrsta fréttin um
'ieimferðina
Tass kom lika með fyrstu frétt-
ina af ferð Títoffs frá „Geimhöfn-
inni“, (geimflughöfninni), þaðan
sem risaeldflanginni var skotið
sunnudagsmorguninn. Fréttaritar-
inn Alexander Romanoff lýsti því
þannig:
Títoff les upp fyrir konu sína.
— Þegar við komum, var verið
að' leggja siðustu hönd á undir-
búninginn undir geimflugið. Lyfta
rennur niður frá broddi eldflaug-
arinnar og út úr henni kemur með-
alhár maður í dökkblárri skyrtu.
og ljósgráum buxum. Hann flýtir
sér niður stigann og gengur að
hópnum kringum yfirverkfræðing-1
inn, manninn, sem sámeinar alla
þræðina við undirbúning ferðar-,
innar í einni hendi. Við hefðum j
áreiðanlega ekki tekið neitt eftir
þessum náunga. Eg hefði haldið
hann vera verkamann, ef sá, sem
stóð við hliðina á mér, hefði ekki
hvíslað: Þetta er geimfarinn Gher
man Stephanovitj Títoff.
Glæsilegur sonur
Við gengum nær, til þess að sjá
hann betur. Andvarinn gældi við
hár hans. Hann var gráeygur og
hafði þennan glampa í augunum,
sem gefur til kynna, að hér er öt-
ull hæfileikamaður á ferðinni.
Hann virðist jafnvel vera yngri
en 26 ára. Allt útlit hans ljómaði
af hreysti. Þegar maður horfði á
hann og heyrði smitandi hlátur
hans, gat maður ekki annað en
hugsað: Glæsilegur sonur okkar
miklu Sovétþjóðar.
Um kvöldið var undirbúningn-
um lokið og við sáum þá geimfar-
ann aftur. Hann var í geimferða
búningi og var í miðjum hópi fé-
laga sinna, sem undirbjuggu geim
j farið í langa ferðalagið.
Morguninn eftir, sjötta ágúst,
var sólin brennandi heit yfir stepp
unni og endurspeglaðis.t í glamp-
andi geimfarinu. Meðlimir í stjórn
ar- og geimferðanefndinni, vís-
indamenn, teiknarar, verkfræðing
ar og annað starfslið hefur safn
ast saman við stjómpallinn. Allir
eru reiðubúnir. Svæðið er hreins-
að. Blái bíllinn kemur með geim-
í farann.
Ghermann Títoff stígur út,
gengur yfir berangurinn að lyft-
' unni, sem flytur hann í klefann
j í geimfarinu. Hann er i appelsínu-
' gulum geimbúningi, merktum US-
j SR. Hann gengur klaufalega. Geim
j búningur er auðvitað ekki ætlað-
ur til gönguferða á jörðinni.
Brosir stöSugt
! Innan klæða hefur hann nokk-
ur senditæki, sem eiga að senda
upplýsingar um heilsu hans. Þeg-
1 ar hann hefur kvatt vini sína, geim
fara framtíðárinnar, fer hann til
lyftunnar. Augu hans ljóma af
gleði og brosið hverfur ekki af
vörum hans. Hjálmurinn fer hon
um vel, hann lyftir breiðu enni
hans, jöfnu nefi og dálítið fram-
settri höku. Vísindanefndarfor-
maðurinn og í firverkfræðingurinn
taka í hendi hans, faðma hann
að sér og óska honum gæfu og
gengis.
Gherman stígur upp á pallinn,
þar sem lyftan er, og flytur stutta
ræðu til hópsins fyrir neðan og
til allrar rússnesku þjóðarinnar.
Hann kveður það vera heiður sinn
að gera skyldu sína, sem' flokk-
urinn og stjórnin hafi trúað hon-
um fyrir.
Af staS
Tíu mínútur fimm mínút-
(Framhaio a ib siðui
Skemmtíferö
Framsóknar-
felaganna
verður n. k. sunnudag. Farið
verður um Þiugvelli og Kalda-
dal að Húsafelli og Barnafoss-
um, Reykholti og Hvanneyri.
S.íðan verður ekið um Skorra-
dal og Svínadal og komið við
á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd.
Mikil eftirspurn er eftir far-
miðum og allt útlit fyrir að þátt
taka verði mjög góð, enda er
fargjaldi mjög | hóf stillt, að-
eins kr. 200,00, og eru tvær
máltíðir innifaldar.
Æskilegt er, að fólk tilkynni
þátttöku sína sem allra fyrst,
það auðveldar allan undirbún-
ing ferðarinnar.
Fararstjóri verður Vigfús
Guðmundsson.
Allar upplýsingar um tilhög-
un ferðarinnar og farmiðapant-
anir eru veittar á skrifstofu
Framsóknarfélaganna í Fram-
sóknarhúsinu, símar 15564 og
12942. — Ferðanefndin.