Tíminn - 13.08.1961, Blaðsíða 6

Tíminn - 13.08.1961, Blaðsíða 6
6 TÍ-M-INN, sunnudaginn 13. ágúst 1961. MINNING: SIGFÚS MAGNÚSSON .14. — 4. 1879 — 23. 5. 1961 Hinn 23. maí s.l. andaðist á heimili sínu á Akureyri, Sigfús Magnússon, fyrrum bóndi á Bóndastöðum í Hjaltastaðaþing- há. Sigfús var fæddur á Hjalta- stað í Hjaltastaðarhreppi 14. apr. 1879, og var því 82 ára, er hann lézt. Hann var sonur hjón- anna Sólveigar Sigfúsdóttur og Magnúsar Einarssonar, er lengi bjuggu að Hrollaugsstöðum í sömu sveit, og var því einn af þeim mörgu systkinum ,er oft og lengi voru kennd við Hrol- laugsstaði. Af þeim komust 7 til fullorðinsára, og urðu þau öll búendur í Hjaltastaðaþinghá, og áttu því um skeið stóran þátt í svipmóti búenda þeirrar sveitar, sem var meö ágætum á Héraðs- mælikvarða. Með foreldrum sínum ólst Sig- fús upp fyrstu árin, en fór inn- an fermingaraldurs áð Hjalta- stað til séra Magnúsar Bjarna- sonar, er þar var þá þjónandi prestur, hinn mætasti, svo að orð fór af. Hjá Magnúsi dvaldist Sigfús fram yfir fermingaraldur og naut handleiðslu þess ágæta hús- bónda. Minntist Sigfús hans ávallt með virðingu og hlýju og taldi sig hafa hlotið af hans hálfu hið bezta hlutskipti. Frá Hjaltastað fluttist Sigfús að Ánastöðum til hjónanna Sig- urlínar Einarsdóttur og Stefáns Sigurðssonar, er þar bjuggu. Þar dvaldist hann í vist til árs- ins 1906, en hóf þar þá sjálfstæð an búskap með heitmey sinni, Margréti, dóttur þeirra Ána- staðahjóna, glæsilegri og mikil- hæfri konu. Að ári liðnu flutt- ust þau Margrét og Sigfús frá Ánastöðum. Hafði Sigfús þá fest sér ábúð á stórbýlinu Bónda- stöðum, sem þá var ríkiseign og fluttist þangað vorið 1907. frá Bóndastöðum Bjuggu þau Margrét þar síðan allan sinn búskap eða til vorsins 1944. Var þá hvort tveggja, að sjúkíeiki þjáði Margréti, — sem og æ síðan — og starfsgetu Sig- fúsar þá mjög farið að hnigna og aðstaða til búskapar því ekki fyrir hendi. Þau hjón eignuðust þrjú börn, en aðeins eitt þeirra, Stefanía, komst upp. Eina fósturdóttur, Lukku Ingvarsdóttur, önnuðust ^ þau frá bernsku til fullorðins- aldurs sem eigið barn væri. 1 Nokkru áður en þau brugðu búi, hafði Stefanía dóttir þeirra flutzt til Akureyrar og var þá gift þar Eirík Kondrub, hótel- haldara. Til þeirra fluttust þau frá Bóndastöðum, og hafa dval- izt að mestu þar síðan, og þar and- aðist Sigfús 23. maí s. 1. sem áður getur. — Ævistarf Sigfúsar var langt, en ekki að sama skapi viðburða- ríkt á hinn almenna yfirborðs- mælikvarða. Sigfús var hlédræg- ur og hæggeðja, en þó einarður og trúr sannfæringu sinni. Lítt hafði hann sig í frammi á opin- berum vettvangi, en þó voru honum falin ýmis trúnaðarstörf. M.a. átti hann sæti í hrepps- nefnd um 12 ára bil og ásetn- ings- og forðagæzlumaður var hann um langt skeið. í því starfi var Sigfús réttur maður á réttum stað, því að dýravinur var hann mikill. Viðkvæmni hans fyrir aðbúð og líðan húsdýra sinna var slík, að einstætt má telja. Arðsemi búfjár hans var líka jafnan góð, og nokkra átti hann úrvalsgripi þess. Á þann hátt hlaut hann verðuga umbpn fyrir umhyggju sína og, góðvild, sem ásamt hirðusemi og nýtni átti virkan þátt í efnahagsafkomunni. Greiðvikni Sigfúsar, hjálp- semi og gestrisni var langt yfir meðallag. Enda var lífsföru- nautur hans — eiginkonan Mar- '■ ^ 's i.a i'.ií i f *c.ru,J«-ems 0QOQQ Með piparmyntubragði og virku Cum- asinasilfri, eyðir tannblseði og kemur í veg fyrir tannskemmdir. □□□ FIF Sérlega hressandi með Chlorophýl, hinni hreinu blaðgrænu, fjarlægir leiða munn- þefjan. QQQQQ Freyðir kröftuglega með pipar- myntubragði. VEB Kosmetik Werk Gera Deutsche Demokratische Kepublik grét — honum þar fyllilega samstiga sem og í hverju öðru, er til manndóms og manngæzku hallaði. Heimili þeirra var með ágætum, hlýtt og einlægt, og stóð opið öllum til góðgerða og hvers kyns fyrirgreiðslu. í engu varð þess vart. að efnahagur væri þröngur, sem hann þó oft var. Umsvif Sigfúsar sem bónda á Bóndastöðum, voru veruleg á þeirrar tíðar mælikvarða. Stuttu eftir að hann fluttist að Bónda- stöðum, festi hann kaup á jörð- inni. Á henni reisti hann íbúðar- hús úr steini, girti túnið og slétt aði. Auk þess endurreisti hann peningshús, þ.á.m. fjárhús í samfærslustíl. Öll störf Sigfúsar gengu fram |í hljóðlátri kyrrð, enda hógværð I og yfirlætisleysi hinn snari þátt- ur í persónuleika hans. — | - Eins og fyrr er frá sagt, var Sigfús fæddur í Hjaltastaðar- þinghá. Þar ólst hann upp og dvaldist æ siðan öll sin helgustu manndómsár eða til 65 ára ald- urs. Hann var því af eðlilegum ástæðum mjög tengdur þeirri sveit, enda var ást hans til sveit- ar sinnar mikil og einlæg, svo að af bar, og dvínaði í engu við brottflutning til fjarlægs staðar. Ljóst dæmi þess meðal annars var, að nokkur fyrstu árin eftir að hann fluttist til Akureyrar, kom hann hvert sumar til sinna heimahaga og dvaldist þá á Bóndastöðum hjá Karli, bróður sínum, en hann hafði verið sam- býlismaður hans um langa hríð og bróður sínum hinn traustasti samstarfsmaður og félagi í hví- vetna. Ekki gekk Sigfús úr búnaðar- félagi hreppsins, þótt hann brygði búi, heldur galt til þess allar álagðar kvaðir sem aðrir fé- lagar þess, og var ætlun hans, að svo skyldi fram fara til loka- dægurs. En á aðalfundi búnaðarfélags- ins, sem haldinn var að Dölum; 11. marz 1949 er í gjörðabók fé-j lagsins m.a. bókað eftirfarandi: j „Samþykkt var með lófataki allra fundarmanna að senda Sig- fúsi Magnússyni frá Bóndastöð- um, eftirfarandi skeyti á 70 ára afmæli hans 14. apr. nk.: „Um leig og við þökkum þér samvist og samstarf liðinna ára, kjósum við þig hér með heiðursfélaga í félagi okkar, Búnaðarfélagi Hjaltastaðarhrepps." “ Með þessari ákvörðun vildu félagar hans — búendur í Hjalta staðarhreppi, staðfesta skilnng sinn á því, hvað Sigfús var bund inn órofaböndum sveit sinni og fyrri samherjum. Auk þess var margs að minnast frá langri veru hans í sveitinni, sem allt hneig í sömu átt: FramkallaBi virðingu og þökk til þessa yfir- lætislausa og einlæga félaga. — Og nú. — Nú er Sigfús aft- (Framhald a 10 síðu) Þökkum innilega auðsýnda samúS og hluttekningu við andlát og jarðarför Ásmundar K. R. Sigurðssonar lögregluþjóns. Sérstaklega viljum við þakka lögreglustjóra, Sigurjóni Sigurðs- synl, Sigurði Ágústssyni, varðstjóra og Lögreglufélagi Reykjavíkur. Anna Guðmundsdóttir, foreldrar, tengdaforeldrar, amma, börn og systkin hins látna. Hjartkær maðurinn minn, faðir og tengdafaðir okkar, Angantýr Guðjónsson, verkstjóri, Miðstræti 4, er lézt 6. ágúst, verður jarðsettur þriðjudaginn 15. þ. m. kl, 10,30 f. h. frá Dómkirkjunnl. Athöfninni í kírkjunni verður útvarpað. Blóm afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Dóra Halldórsdóttir, Málhildur Angantýsdóttir, Sigurður Angantýsson, Hilmar Angantýsson, Ólöf Angantýsdóttir, Svanhildur Angantýsdóttir, Sigurður Hallvarðsson, Fanney Jónsdóttir, Elsa Jóhannesdóttir, Þórarinn Haraldsson, Guðmundur Guðjónsson. Jarðarför Kristínar Guðríðar Magnúsdótfur frá Glaumbæ fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 16. ágúst n. k. kl. 10,30. Jarðarförinni verður útvarpað. Blóm afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Blindravinafélagið. Gyða Guðmundsdóttir, Aðalsteinn Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson, Kjartan Jónsson, Snæbjörn Eyjólfsson. ÞAKKARÁVÖRP Skriðdælingum, og vinum og vandalnönnum, nær og fjær, sem heiðruðu mig á sextugsáfmælinu, og gerðu mér daginn ógleymanlegan, sendi ég innilegt þakklæti. Guð blessi ykkur öll, Björg Jónsdóttir, Jaðri. Ég þakka þeim mörgu, sem heimsóttu mig á 80 ára afmælinu og réttu mér vndisleg blóm, bækur og fleira. Ég þakka einnig öll heillaskeytin, 75, víðsvegar að, bæði í bundnu og óbundnu máli, frá félögum og einstaklingum. Þessi sameinaða hugulsemi og hjartahlýja hlýtur að yngja öldung- inn um mörg ár og gera afmælisdaginn ógleym- anlegan. — Þakka ykkur fyrir. Guðsblessun fylgi ykkur öllum, vinir mínir. Emil Tómasson Tilkynning UM KOLAVERÐ Frá og með mánudeginum 14. ágúst hefur kola- verð í Reykjavík verið ákveðið kr. 1200,00 pr. smálest, heimekin. Söluskattur er innifalinn í verðinu. H.F. KOL & SALT .V.V.V.W^V.V/.V.'.V.V.VAV.V.V.V.V.V.V.V.W.V. FLUGSYN H.F. REYKJAVÍKURFLUGVELLI — SÍMI 18823 W.V.V.V.V.V.V.V.VV.'.V.V

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.