Tíminn - 17.09.1961, Blaðsíða 4

Tíminn - 17.09.1961, Blaðsíða 4
4 T í MIN N, sunnudaginn 17. september 1961. lOKSMS EEIt AUIt EIGNAST LAND-ROVER i Okkur er sönn ánægja að geta tilkynnt BÆNDUM, RÆKTUNARRÁÐU- NAUTUM, HÉRAÐSLÆKNUM, DÝRALÆKNUM OG ÖÐRUM ÞEIM, sem þurfa á öruggum, aflmiklum og góðum bíl að halda, með drifi á öllum hjólum, að nú getá þeir loksins keypt sér Land-Rover. Um kosti Land-Rover þarf ekki að fjölyrða, því hundruð Land-Rover eigenda á íslandi lofa ágæti hans við hinar erfiðustu og margbreytilegustu aðstæður. Áætlað verð á 7 manna Land-Rover, með benzín- hreyfli: Styttri gerð 88 tommur milli hjóla, með málm- húsi og hliðargluggum: Kr. 113.300.— Aftursæti Kr. 1.990.— Miðstöð og rúðublásari Kr. 1.890.— Áætlað verð á 11 manna Land-Rover með benzín- hreyfli. Lengri gerð, 109 tommur milti hjóla, með málm-húsi, og hliðargluggum: Kr. 131.100.— Aftursæti: Kr. 4.000;— Miðstöð og rúðublásari: Kr. 1.900.— Með diesel-hreyfli er verðið með sams konar útbúnaði ca. kr. 15 þúsund hærra. Land-Rover með drifi á öllum hjólum, 8 gírar áfram og 2 afturábak á sér engan líka. Allar nánari upplýsingar hjá einkaumboðsmönnum: THE ROVER COMPANY LTD. \ HEILDVERZLUJNIN HEKLA H.F. Hverfisgata 103 — Sími: 11275. BENZÍN EÐA DSESEL Hugmyndasamkeppni um skipulag Hafnarfjarðarbær og skipulagsnefnd ríkisins efna til samkeppni um skipulag að miðbæ Hafnarfjarð ar, á svæði, sem takmarkast af Reykjavíkurvegi, Hverfisgötu, Lækjargötu, Brekkugötu, Suðurgötu, Mýrargötu, og jafnframt að frumdrögum að skipu lagi hafnarinnar, að svo miklu leyti sem það hefur áhrif á skipulag svæðisins. ' Tilgangur samkeppninnar er að fá fram hug- myndir að byggingarfyrirkomulagi og nýtingu þessa takmarkaða miðbæjarsvæðis (city) og að- liggjandi hafnarsvæðis. Verðlaunaupphæðin er kr. 100.000,00, þar af 1 verðlaun eigi lægri en kr. 50 000.00. Auk þess er dómnefndinni leyfilegt að ráðstafa kr. 25.000,00 til kaupa á 2—3 úrlausnum. Dómnefnd skipa Stefán Gunnlaugsson, bæjar- stjóri; bæjarverkfræðingur Hafnarfjarðar; Aðal steinn Júlíusson, vitamálastjóri; Gunnlaugur Páls son, arkitekt og Ágúst Pálsson, arkitekt. Skilmálar og önnur'gögn afhendast til 1. des. 1961, gegn kr. 300.00 í skilatryggingu i Bygginga- þjónustu A.íó Laugavegi 18 A, sem er opin alla virka daga kl. 13,00—18,00, nema laugardaga kl. 10—12, og auk þess miðvikudagskvöld kl. 20—22. Úrlausnir skulu afhendast Ólafi Jenssyni, Bygg- ingaþjónustu A.í. að Laugavegi 18 A, eigi siðar en mánudaginn 5. febrúar 1962. fyrir kl. 18. DÓMNEFNDIN

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.