Tíminn - 28.09.1961, Side 16

Tíminn - 28.09.1961, Side 16
ííííííííí .... ' '' ' S VV-Íi'w-. \'s's S $! 'S ■ V- " ' ot „ * j &£' ^ IjglLffi"1 * *m •: •••••• : :•.• :■:• •■::::.:: '<<• V V. Tf vw ■R H ' ^ v ■ : . .; :. : Ifef lm ■ "'"■i <.:; •■. \: - ■ ■\ V % .• * "\>'V Hl . »>>«»>»<. •- V ss s 'Ntw *. VXv^sbs^ i :■■•/■ l. : ■...:•'• ■ , :- ;: .; ■;;■" Fimmtudagmn 28. september 1961. 250. blað. Vilja bætt eftirlit með raforkuvirkjum unnið af kappi helga daga sem sýkna Síldarverksmiöjur í óopinberri eign nyrðra og eystra gera með sér samtök Á laugardaginn síðasta var stofnað á Akureyri félag eig- enda síldarverksmiðja á Norð-, ur- og Austurlandi (skammst.. S.A.N.). Stofnendur félags-i skapar þessa eru 7, og eru það, eigendur síldarverksmiðjanna í Krossanesi, á Hjalteyri, Vopnafirði, Seyðisfirði, í Nes- kaupstað, Eskifirði og Fá-( skrúðsfirði. Rauðka á Siglufirði verðux áð-| ili að félagsskapnum, en fulltrúi hennar gat ekki komið á stofn-J fundinn á Akureyri. Félag þetta er myndað af eig- endum þeirra síldarveiksmiðja, sem einstaklingar, félög eða bæj ar- og sveitarfélög eiga, með öðr- um orðum eigendum annarra verk-. smiðja en ríkisverksmiðjanna. Vilja hafa áhrif á verðlagið Markmið þessa nýja félags er að vinna að sameiginlegum mál- efnum fyrir verksmiðjumar, svo sem skipulagningu á sölu afurða, tæknilegum leiðbeiningum og inn kaupum á rekstrarvörum. Einnig ætlar félagið sér að hafa áhrif á verðlagningu hráefnis. Verksmiðj urnar, sem að félagsskap þessum standa, tóku í sumar á móti næst- um helmingi alls þess magns af Norður- og Austurlandssíld, sem til bræðslu fór. Forgöngumað'ur um stofnun fé- lagsins var Guðmundur Guðlaugs- son á Akureyri. Stjórn félagsins skipa eftirtaldir menn: Vésteinn Guðmundsson, forstjóri, Hjalt- eyri, formaður. Jóhannes Stefáns- son, forstjóri í Neskaupstað, vara form. og Sigurjón Þorbergsson, Vopnafirði, meðstjórnandi. Á aðalfundi Félags eftiriits- manna með orkuvirkjum, sem var haldinn á Akureyri dagana 16. og 17. september, voru samþykkt þrenn tilmæli til rafmagnseftirlits ríkisins. Til þess var mælzt, að rafmagns eftírlitið beitti sér fyrir aukinni al- mennri fræðslu og leiðbeiningum til varnar gegn slysum og tjóni af völdum rafmagns, þar sem raforku- virki eru orðin mjög snar þáttur í daglegu lífi manna, en meðferð virkjanna oft varhugaverð. Til þess var einnig mælzt, að nýj ar reglur um raforkuvirki séu kynntar svo ýtarlega þeim mönn- um, sem hafa á hendi eftirlit með raforkuvirkjum, að ekki verði um villzt, hvernig beri að skilja regl- urnar í einstökum atriðum, en mik- ið hefur borið á misræmi í túlkun þessara reglna. Loks var þeim tilmælum beint til rafmagnseftirlitsins, að það reyndi að koma því til leiðar, að rafföng, sem hafa hlotið viðurkenn- ingu rafmagnseftirlitsins, verði auðkennd, og reynt að koma í veg fyrir, að önnur slík vara sé á boð- stólum óviðurkennd, en á þessu hefur verið misbrestur. Fundinn sóttu eftirlitsmenn víða af landinu. Formaður félagsins var endurkjörinn Friðþjófur Hraun- dal. Kristmann leitar til dómstólanna - vegna greinar í Mánudagsblaðinu Eftir stuttan tima á að taka til afnota hið mikla kvikmynda- og tónlistarhús, sem háskólinn hefur haft í smíðum. Er nú unn- ið að því af miklu kappi og Ijúka við frágang allan, og mun enn vera talsvert verk óunnið, svo að ekki veitir af, að haldið sé á spöðunum, enda unnið jafnt helga daga sem virka. , Efsta myndin sýnir sviðið, og eru smiðir þar að vinnu á pallí þeim, sem ætlaður er hljómsveit. Tjaldið verður tuttugu metra breitt og hálfur tíundi metri á hæð, og erlendur sérfræðingur vinnur að því að ganga frá öll- um útbúnaði í sambandi við það. Næsta mynd er af sjálfum salnum. Þar verða sæti fyrir 1000 manns, en ekki hefur enn verið gengið frá þeim öllum. Á neðstu myndinni sést, að cinnig er unnið að lagfæringum og snyrtingu úti við. Grasflatir hafa verið gerðar, og verkamenn eru í óðaönn að gera fallegar gangstéttir um flatirnar. (Ljós- mynd: TÍMiNN — GE). í síðasta tölublaði Mánu- dagsblaðsins birtist óþvegin grein um Kristmann Guð- mundsson rithöfund. í fyrra- kvöld leitaði Kristmann til lög- fræðings síns, Ólafs Þorgríms- sonar hæstaréttarlögmanns og fól honum að stefna Mánu- dagsblaðinu fyrir meiðyrði, atvinnuróg og mannorðsspjöll. l Lögfræðingurinn hefur nú til at-' hugunar, hvernig málið skuli tekið upp og hvað sé frambærileg bóta- krafa. j; ■ J ■ Greinin í Mánudagsblaðinu var skrifuð undir dulnefninu Jón ís- lendingur, og voru bæði í henni svæsnir áfellisdómar um rit- mennsku Kristmanns, einkum sann gildi sjálfsævisögunnar, og óvenju- . lega rætnar ályktanir um einkalíf 1 hans. síðasta sýning Fraintlð Skálholts Þjóðleikhúsið hefur nú sýnt hið þekkta leikrit John Osborne 81 sinni og verður síðasta sýning- in á leiknum annað kvöld. Sýningin hefur hlotið mjög góða dóma enda er leikritið stórbrotið og gefur leikurum mikil og góð tækifæri til túlkunar. Hinn almenni kirkjufundur verð ur haldinn í Reykjavík dagana 22. til 24. október n.k. Aðalmál fundarins að þessu sinni er fram tíð Skálholts. Um það mun Páll V. G. Kolka læknir flytja fram- söguerindi. Einnig verður rætt um veitingu prestsembætta og hafa framsögu um það Hákon Guðmundsson hæstaréttarritari og Ásmundur Guðmun'dsson fyrrver andi biskup. Þá flytur dr., Árni Árnason, læknir erindi á fundinum um sam band ríkis og kirkju. Almennir kirkjufundir eru að jafnaði haldn ir annað hvert ár og helzt stillt svo til, að það sé ekki sama ár og kirkjuþingin.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.