Tíminn - 07.11.1961, Blaðsíða 8

Tíminn - 07.11.1961, Blaðsíða 8
8 Sunnudaginn, hinn 22. okt. fór fram endurvígsla Torfa-1 sfaðakirkju í Biskupstungum. — Kirkjan, sem er timbur- kirkja, var upphaflega byggð 1892 og vígð á jóladag það ár. — Var hún hin síðari ár mjög farin að láta á sjá. 1960 var hafizt handa um að endur-j bæta kirkjuna, styrkja hanaj og stækka. Þá um haustið var steyptur nýr grunnur, gert við og unnið allt tréverk í aðalkirkjuhúsinu og nýjum kór komið undir þak. Á þessu ári var lokið allri innréttingu á kór og kirkjan máluð úti og inni. Var þessu öllu lokið rétt fyrir vígsludaginn. — Biskup landsins, herra Sigurbjörn Einarsson, framkvæmdi vígsl- una. Athöfnin hófst með því, að sókn amefnd ásamt sex prestum í fylgd meg1 biskupi gengur í kirkju með altarisgripi kirkjunnar, svo sem venja er. Eftir að sunginn hafði verið sálmur, flutti biskup- inn vígsQuræðú og framkvæmdi vígsluna. Ritningargreinar lásu: Prófastur Árijessýsluprófastsdæm- is, Gunnar JóhaTinsson, Skarði; sr. Guðmundur Óll Ólafsson, sókmar- prestur Torfastaðasóknar; sr. Sig urður Pálsson, Selfossi og sr. Magnús Guðjónsson, Eyrarbakka. Auk þessara presta voru viðstadd ir: Sr. Eiríkur Þ. Stefánsson, Laugarvatni, er var prestur Torfa staðakirkju um 50 ára skeið, og sr. Magnús Guðmundsson, Óiafs- vík. Sóknarpresturinn, sr. Guðmund- ur Óli Óiafssoin prédi’kað'i. Kirkju kór Torfastaðakirkju söng undir stjórn organleiikara kirkjunnar, Erlends á Vatnsleysu. Eftir predikun fór fram altaris ganga. Að' guðsþjónustunni lokinni fór fram vísitasía. Talaði biskupinn til safnaðarins og þakkaði hið mikla framtak safnaðarins um þá gagn- gerðu endurbætur, sem gerðar hefðu verig á þessu guðshúsi og óskaði söfnuðinum guðsblesisunar. Þá talaði hann sérstaklega til barnanna og ungíinganna, sem viðstödd voru vígsluhátíðina. — Ag loikum sungu ailir viðstaddir „Son Guðs ertu með sanni.“ Kirkjan var fullskipuð og fór cll hátíðin fram með miklum virðu leik og hátíðlegri alvöru. Áður en gengið var úr kirkju, bauð sóknarnefndarform., Þor- steinn Sigurðsson, bóndi á Vatns- leysu, öllum kir'kjugestum til I kaffisamsætis í hinu nýja, glæsi- j lega félagsheimili sveitarinnar, Aratungu, en þar höfðu húsfreyj-: ur í Torfastaðasókn búið kirkju-j gestum veizluborð og var veitt af j mikiUi rausn og myndarsikap. Hófi þessu stjórnaði formaðurj sóknarnefndar. Flutti hann ýtar- j lega ræðu. Skýrði hann frá gangi j endurbyggingar kirkjunnar. Alla aðalviðgerð og byggingu kórhúss- ins annaðis't trésmiðja Kaupfélags Árnesinga undir stjórn Haraldar Diðrikssonar, trésmiðs á Selfossi. — Innréttingu á kórnum gerði Bjöm Ólafsson, húsasmíiðameist- ari í Reykjavík og gekk frá hon- um að öllu leyti. Kirkjuna að innan málaði Jón Björnsson, málarameistari, en skreytingu alla gerði kona hans, frú Greta Bjöms son. Utanhússmálningu unnu sókn armenn í sjálfboðavi'ixnu. I T í MI \ N, þriðjudaginn 7. nóvember 1961. Hið nýja félagsheimili Tungnamanna í Reykholti Svipazt um í Biskupstungum Kinkjan var raflýst 1959, en öil ljósatæki í kirkjuna, aff undan- tekinni ljósakrónu, gaf Margrét Halldórsdóttir, hjúkrunarkona, einnig neonljóskross á turn kirkj- unnar. Mun þessi gjöf hafa kostað milli 20—25 þúsund krónur. Þá 'sagði haun frá því, að 5 þús. króna gjöf hefði þá um daginn borizt kirkjunni frá eiinum yngsta safnaðarlim kirkjunnar, 1V2 árs stúlku. Að lyktum þakkaði Þorsteinn Sigurðsson öllum þeim, er á einn eða annan hátt hefðu unnið að og léð liðsinni við endurbætur á kiikj'unni, sérstaklega þakkaði hann kaupfólagsstjóra K.A. fyrir þá miklu aðstoð, sem félagið hefði látið í té. Án þess stuðnings væri verkinu ekki iokið í dag. — Allur kostnaður við endurbyggingu kirkjuunar var sem næst kr. 200.000,00. I s'óknarnefnd Torfastaðasóknar eru nú þessir menn: Þorsteinn Sig urðsson, bóndi, Vatnsleysu; Sveinn Eiríksson, bóndi Miklaholti og Þórður Kárasom, bóndi, Litla- Hrauni. Til máls tóku: Sigurbjörn Ein- arsson, biskup, er þakkaði Þor- steini Sigurðssyni snjalla ræðu og færði enn á ný þakkir til sóknar- nefndar og safnaðarfólks fyrir fórnfúst starf fyrir kirkju sína. Þá flutti prófasturinn, sr. Gunnar Jóhansson, nokkur ávarpsorð, einnig sóknajpresturinn sr. Guð- mundur Óli Ólafsson, er færði hús mæðrunum í sókninni sérstakar þakkir fyrir höfðinglegar veiting- ar. Mjög var áliðið dags, er sam- kvæmi þessu lauk, er fór mjög vel og virðulega fram í hinum glæotu saiarkynnum fédagsheim- iilis þeirra Biskupstungnamanna, Aratungu. ‘ T’ nsixiev mgio I hinni merku ræ^ gp steinn Sigurðsson, bóndi að Vatns leysu hélt í framangreindu sam- sæti, kom hann víða við. Ég not- aði tækifærið nokkru síðar að spyrja hann nokkru nánar um ýmis atriði, er þar komu fram. I — Heyrðu, Þorsteinn, hve marg ar kirkjur eru hér í Biskupstung' um, mig minnir að þú segðir, að þar væru eða hefðu verig fimm, er það rétt? — Já, það er alveg rétt. Hér, í Biskupstungum hafa verið, ég vil segja frá því mjög snemma í krisininni, fimm kirkjur. Allar hafa þær verið reistar á helztu fornu höfuðbólunum hér í sveit. Þar er fyrst ag telja Skálholts- kinkju, þá Torfastaðakirkju að. Torfastöðum, Bræðratu'ngukirkju, Úthláðarkirkju og Haukadals-; kirkju. Eins og nöfnin bera með sér, þá hafa höfðingjar í gamla daga viljag hafa kirkjur á höfuð-| bólum sínum og talið sér virð- ingu í. — Já, það er auðvitað. En eru þetta ekki óvanalega margarj kirkjur í einu hreppsféiagi? — Jú, vi'Ssulega, ég efast um, í að í nokkru öðru sveitarfélagi á 1 landinu séu þar eins margar. — Eru nú ekki líkur fyrir því, ag þeim fækki eitthvað? — Það má vel vera að svo fari, og nokkrar raddir eru uppi um það, en kirkjuyfirvöldin standa þar fast á móti og mega ekki ti.1 þess hU’gsa að sameina söfnuðina og fækka kirkjunum. — Þú minntist á í ræðu þinni, að mi’k'lar framkvæmdir í félags- málum hefðu farið fram hér í sveitinni hin síðari ár, viltu greina mér eitthvað frá því? :— Já, það er alveg rétt, við Tungnamenn höfum ráðizt í mjög mikiar fjárfestingarframkvæmdir nú hin síðari árin. Fyrst og fremst hafa einstaklingar gert risaátök í ræktunar- og byggingaframkvæmd um hver hjá sér nú um allmörg ár, en auk þess hefur verið ráðizt í aliveruileg mannvirki til almanna þarfa nú allra siðustu árin. 1955 var byggð vönduð fjárrétt í Foss- nesi hér í Vatnsleysulandi. Rétt þessi mun taka um 20—25 þúsund fjár og er hið nauðsynlegasta mannvirki. Þá var ráðizt í ag ég ætla 1956, að byggja viðbótar- byggingu við heimavistarbarna- skóiann hér í Tungunum. Er þetta sjálfstætt hús, notað fyrir kennslu stofur, rúmlega þriðjungur af fyrirhuguðum heimavistarskóla. Gamli heimavistarskólmn sem byggður var 1927, sem var einn með allra fyrstu heimavistarskól- um hérlendis, var orðinn ófull- nægjandi svo að ekki er um annað að ræða en endurnýja hann. — Er þessi viðbygging komin í notkun? — Já, blessaður vertu. Þetta hús var aðeins tvö ár í byggingu og hefur verið notað síðan. Þá er að geta þeirrar framkvæmdar, sem stærst er í sniðúnum, en það er bygging félagsheimilisins, sem var gef'ið heitið „Aratunga". — Þetta er mjög myndarlegt og fall egt hús. Gerum við Tuingnamen'n okkur vonir um, að heimiiið verði lyftistö*ng og hvatning til aukins félagslífs, einkum meðal yngri mannanna. ef svo verður, sem ætla má, þá er hér um afar þýð- ingarmikið framfaraspor að rásða fyrir sveitina. — Voru þessar framkvæmdir allar ekiki fjárfrekar, Þorsteinn? — Jú, auðvitað hefur allt þetta kostað stórfé og mikið af því enn í skuld, en við teijum okkur heppna að hafa nú lokið þessum framkvæmdum, eins og allt er nú í pottinn búið, svo framarlega sem ekki verður enn frekar kreppt að landbúnaðinum, sem þegar hefur verið mjög aðþrengdur. — Við getuim ekki vænzt þess að geta haldið unga fólkinu í sveitunum, ef ekki er hægt að búa því skil- yrð'i til félagslegrar starfsemi, eitthvað á borð við það, sem er í þéttbýlinu. — Hvað heldur þú, að þessar framkvæmdir hafi kostag ykkur mikið fé? — Það er ekki ofsagt, þó ég segi, að það sé að minnsta kosti 5 milljónir króna, sem við höfum fest í þessum byggwiguim nú á nokkrum árum. Eg býst því við að við verðurn nú að hægja ferð- ina í bi'li. Ég þakka Þorsteini þessar upp lýsingar og óska Tungnamönnum til hamingju með framtak sitt. Ó.J. Smásagnasafn eftir Sigurjón frá Þorgeirsstöðum nlc Fjórar bækur komnar út á vegum Fróða Bókaútgáfa Þorvaldar Sig-| urðssonar — Fróði — gefur út fimm eSa sex bækur á þessu hausti, og eru fjórar komnar út. Sandur og sær nefnist safn smá- sagna eftir Sigurjón Jónsson frá Þorgeirsstöðum. Þetta eru tuttugu og fimm smásögur, flestar stuttar, og fjalla um íslenzkt fólk, og ís- lenzka náttúru. Höskuldur Björns- son, listmálari, liefur teiknað upp- hafsstafi sagnanna og gert kápu bókarinnar. Er að þessu mikil bókarprýði, og öll er útgáfan hin smekklegasta og vandað til henn- ar af hálfu útgefanda. Sigurjón er löngu þjóðkunnur maður fyrir smásögur sínar, rit- gerðir og frásagnir, sem birzt hafa í blöðum og tímaritum síðustu tvo SiGURJÓN JÓNSSON frá Þorgeirsstöðum Réttlr þær, sem Tungnamenn byggSu upp fyrir nokkrum árum áratugina og hala vakið athygli sakir máls og stíls og hnitmiðaðs og skemmtilegs frásagnarháttar. Munu því margir fagna því, að fá frá hans hendi smásagnabók, þar sem bæði er að finna gamalt og nýtt. Þeir, sem unna fegurð ís- lenzkrar náttúru og þróttmiklu, heilsteyptu fólki I því umhverfi, munu öðrum fremur meta smásög- i ur Sigurjóns. j Þá hefur Fróði gefið út skáld- söguna Kósakkarnir eftir Leo Tol- stoj í þýöingu Jóns Helgasonar. Þetta er víðfræg saga eins og höf- undurinn og lýsir lífi Kósakkanna ó meistaralegan og skemmtilegan hátt, en sagan segir aðallega frá ungum, rússneskum liðsforingja, sem ílendist í Kósakkaþorpi í her- för suður í Kákasus og heillast af ungri Kósakkastúlku, en sagan leiðir fram andstæðurnar fánýtt borgargjálífi rússneskrar yfir- Framhald a 15 siðu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.