Tíminn - 07.11.1961, Side 14

Tíminn - 07.11.1961, Side 14
14 T í M I N N, þriðjudaginn 7. nóvember 1961. Endurminningarnar svifu fyr ir hugskotsaugum hans. At- bui’ðir sem gleymdir voru fyr- ir mörgum árum, gægðust nú fram úr óminnisdjúpinu. En þetta leið einnig hjá og ein- hver óljós kvíði eða ótti greip hann, en hvað hafði hann að óttast þetta kvöld? Hliðinu við virkisgrafiranr var harð- lokað, og þar að auki menn þar á verði. í hans eigin hlöðu innan þessara múra, sátu yfir tuttugu áreiðanlegir menn að snæðingi og þeir sem hann treysti bezt, sátu inni í höll- inni og við hlið hans hinir hraustu riddarar, Wulf og Godvin. Nei, það var ekkert að óttast og þó hafði hann enga ró. Allt í einu heyrði hann rödd, að honum fannst i fjarlægð. Það var Rósa- munda er sagði: — Hvað á þessi þögn að merkja, faðir? Fyrir skömmu heyrði ég hávaðann í þjón- unum í hlöðunni, e'n nú er þar grafkyrrð. Ó, sjá! Eru hér all- ir drukknir? — Godvin! Meðan hún mælti þetta hneig höfuð Godvins niður á borðið, en Wulf reis á fætur, dró sverð sitt til hálfs, lagði síðan handlegginn um háls prestinum og þeir hnigu báð- ir niður á gólfið. Eins fór fyr- ir öllum hinum. Þeir reikuðu um eitt augnablik, og féllu svo í fasta svefn aö undanskildum Georgios er stóð upp og stakk upp á að fá sér eina skál til. — Ókunni maður, sagði Sir Andrev dimmum rómi, „vín þitt er mjög sterkt. — Það virðist svo, herra riddari, svaraði hann, „en ég skal nú vekja þá af dvalan- um. Og léttfættur sem köttur hljóp hann ofan af pallinum og fram úr salnum og hróp- aði: / — Allt er tilbúiö, allt! Þegar hann kom fram að dyrunum, opnaði hann þær upp á gátt og dró silfurpípu upp úr fötum sínum og blés í hana þátt og lengi. — Hvað er þetta, sagði hann og skelli hló. — Sofið þið enn? Svo vil ég þá stinga upp á einni skál enn þá sem máske getur vak- ið ykkur, — og hann greip drykkjarhornið, veifaði því og hrópaði: — Vaknið þið, drykkjurút- ar og drekkið skál hinnar kvenlegu rósar heimsins, prinsessunnar af Baalbec og systurdóttur míns konung- lega húsbónda, Jussuf Salah- he-dins, sem sendi mig til þess að ná hénni og færa honum hana. — Ó! Faðir! æpti Rósa- munda. — Vínið er blandað svefnlyfjum og við erum glöt uð. í því hún mælti þessi orð heyrðist fótatak hlaupandi manna, og inn um hinar opnu salsdyr þusti sveit vopnaðra manna. Nú skildi Sir Andrev hvernig í öllu lá. , Hann rak upp heiftar-orgy sem sært ljón og greip í dótt ur sína og dró hana með sér fram ganginn sem var bak i við, því þar var kynnt bál og ljós kveikt áður en gengið ur. Hún litaðist um. Fram við dyrnar stóð ofurlítið skrif borð, sem Godvin var vanur að skrifa við, og meðan hurð in var að gefa eftir skrifaði hún á miða: — Fylgið mér eftir til Sala- díns. í þeirri von vil ég lifa. — Rósamunda." Svo þegar hurðin féll með braki og brestum sneri hún seðlinum við svo orðin sneru niður, greip því næst bogann og lagði ör á streng. Óvinirn- ir ruddust nú inn göngin, en í enda þeirra, þar sem borðið H. RIDER HAGGARD BRÆÐURNIR SAGA FRÁ KROSSFERÐATÍMUNUM yrði til rekkju að lokinni drykkju. Hann skellti eftir sér huröinni og skaut loku fyrir. — Skjótt! sagði hann í því að hann kastaði klæðum. — Það er engin leið að flýja, en ég get þó að minnsta kosti dáið með sverð í hönd við að verjá þig, fáðu mér nú her- klæðin. Hún greip brynjuna hans á veggnum, og meðan þeir létu höggin dynja á hurðina, færði hún hann í hana og lét stálhúfu á höfuð hans og fékk honum sverð hans og skjöld. — Hjálpaöu mér nú, sagði hann. Og þau ýttu þunga eikar- borðinu fram, og veltu því fyrir dyrnar, en köstuðu borð um og stólum til beggja hliða svo menn skyldu falla um þau. — Hér er bogi, sagði hann, — og þú getur notað hann eins og ég hef kennt þér. Stattu dálítið til hliðar, svo sverðshögg mín nái þér ekki, og skjóttu fram hjá mér er þeir koma, það mun stanza einhvern þeirra. Hefðu þeir Godvin og Wulf aðeins veriö hér með, skyldum við enn þá einu sinni hafa gefið þessum heiðnu hundum ráðningu! Rósamunda svaraði ekki, en hún sá í anda ákafa þeirra Godvins og Wulfs, eftir að vita hvaö fyrir hana hefði komiö, ef þeir vöknuðu þá aft lá á rönd, stönzuðu þeir, því þar beið gamli riddarinn þeirra, með skjöld sinn með hauskúpunni á, á handlegg sér, og sverðið reitt til höggs, en reiðin brann úr augum hans. Þarna stóð hann eins og Ijón í búri, en við hlið hans stóð hin fagra Rósamunda, með boga í hendi, klædd í hátíðarbúning. — Gefizt upp! sagði ein- hver. í stað svars þaut í boga- strengnum og ör smó fast að fjöðrum í háls þess er talaði. Þegar hann féll til jarðat æpti Sir Andrev með hárri rödd: — Við gefumst ekki upp fyrir heiðnum hundum og eiturbyrlurum. Fyrir d’Arcy! Fyrir d’Arcy'. Fyrir d’Arcy! Mœtið dauðanum!" Þannig fékk Sir Andrev enn þá einu sinni tækifæri til að æpa heróp ættar sinnar, sem hann hafði óttazt, að aldrei mundi koma af vörum sér framar. Bær hans var heyrð og hann fékk að deyja eins og hann hafði helzt kosið, með sverð í hönd. — Niður með hann! Grípið prinsessuna! hrópaði einhver. Það var Georgios sem tal- aði ,ekki með hinni auð- mjúku, smjaðurslegu kaup- mannstuhgu, heldur með kaldri, skipunarrödd, og það á arabiska tungu. Eitt augnablik veik hinn skuggalegi hópur aftur á bak er þeir sáu leiftra af sverð- inu. En æpandi: „Salah-he- din! Salah-he-din! ruddust þeir nú áfram með blikandi spjót og bogsverð. Borðið lá á hliðinni fyrir framan þá, og einn hljóp upp á brún þess, en gamli riddarinn sem gleymdi nú vanheilsu sinni, hljóp til og sló hann þvílíkt högg að fæturnir vissu upp, síðan veik hann til baka á sama stað til þess að fá rúm til áð sveifla sverðinu meðan tveir menn, villimannlegir út lits, reyndu að komast við enda borðsins. Rósamunda skaut annan með boga sínum og gekk örin gegnum lærið, en um leiö og hann féll snerti bogsverð hans bogstrenginn og tók hann sundur, svo bog inn varð henni ónýtur. Hinn hrasaði um eikarstól, sem hann hafði ekki veitt eftir- tekt, og féll á grúfu, en Sir Andrev hljóp áfram, án þess að gefa honum gaum, á móti þeim sem á efir fylgdu, og hjó hann þá svo ákaft niður að hinir hörfuðu undan fram göhgin. — Gættu að þér hægra megin, pabbi, hrópaði Rósa- munda. Hann sneri sér við og sá að Serki sá sem datt, var kominn aftur á fætur. Hann réöst á móti honum, en mað- urinn beið ekki boðanna, held ur sneri á flótta, en fann þó höfn dauðans þar inni, því hið langa sverð Sir Andrevs n'áði hans milli herðablað- anna. Nú hrópaði einn í hópnum: „Vér höfum ekkert unnið á, á móti þessu gamla ljóni, en misst menn vora. Höldum oss nú fjarri hrömmum hans, en vinnum á honum með spjót- kasti. En Rósamunda er skildi tungu þeirra, staðnæmdist fyrir framan hann og sagði á arabisku: — Já, gegnum brjóst mitt liggur leiðin — farið og segið Sala-he-din það! Georgios skipaði fyrir kalt og rólega: — Sá, sem skerð- ir eitt hár á höfði prinsess- unnar skal deyja. Takið þau bæði lifandi, ef þér getið, en leggið ekki hönd á hana. Stanzið! Við skulum ráðgazt um. Þeir stöðvuðu áhlaupið og fóru að tala saman. Rósamunda greip 1 hand- legg föður síns og benti á manninn, sem lá á gólfinu með örina gegnum lærið. Hann reis á hné og reiddi bogsverðið. Sir Andrev reiddi sverð sitt en lét það aftur falla og sagði: — Eg berst ekki við særða menn. Slíðraðu sverð þitt og farðu til félaga þinna. Maðurinn hlýddi, já meira að segja snerti gólfið með enni sínu, að austurlenzkum sið, sem í kveðjuskyni, er hann skreið burt, þvi hann fann, að honum var gefið líf, og að það var af göfuglyndi gert gagnvart honum, sem tekið hafði þátt í slíkri svika aðför. Nú gekk Georgios nokkur skref áfram. Það var ekki lengur kaupmaðurinn Georg ios, er seldi svæfandi vín og austurlenzkar silkivörur, held ur tignarlegur Serki af háum stigum, búinn herklæðum er hann hafði borið undir kaup- mannsklæðum sínum, og í stað krossmarks bar hann á brjósti stóran, stjörnumynd- aðan dýrgrip, sem merki um ættartign hans. Þriðjudagur 7. nóvember: 8.00 Morgunútvarp. 8.30 Fréttir. 12.00 Hádegisútvarp. 13.00 „Við vinnuna”: Tónleikar. 15.00 Síðdegisútvarp. 16.00 Veðurfregnir — Tónleikar. 17.00 Fréttir. — Endurtekið tónlist- / arefni. 18.00 Tónlistartími barnanna (Sig- urður Markússon). 18.30 Þingfréttir. — Tónléikar. 19.30 Fréttir. 20.00 Tónleikar: Divertimento nr. 1 eftir Pál Kadosa (Sinfóníu- hljómsveit ungverska útvarps- ins leikur; Tamás Blum stj.) 20.15 Framhaldsleikritið „Hulin augu” eftir Philip Levene, í þýðingu Þórðar Harðarsonar; 3. þáttur: Fréttir frá Ameríku. — Leikstjóri: Flosi Ólafsson. Leikendur: Róbert Arnfinns- son, Haraldur Björnsson, Heiga Valtýsdóttir, Indriði Waage, Nína Sveinsdóttir, Gestur Pálsson, Jón Aðils, Erlingur Gísíason, Rúrik Har- aldsson og Baldvin Halldórs- son. 20.50 Einsöngur: Marian Anderson syngur negrasálma. 21.10 Erindi frá Almennum kirkju- fundi: Kirkja og ríki (Árni Árnason læknir). 21.40 Tónleikar: Tokkata og fúga í d-moll eftir Bach ( Karl Richt- er leikur á o-rgel), 21.50 Formáli að fimmtudagstón- leikum Sinfóníuhljómsveitar íslands (Dr. Hallgrímur Helga son). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Lög unga fólksins (Guðrún Ásmundsdóttir). 23.00 Dagskrárlok. EIRÍKUR VÍÐFÖRLI Úlfurinn og Fálkinn 91 Ekki leið á löngu áður en Ei- ríkur heyrði deilur og síðan vopna blak. Tveir varðanna börðust, og annar þeirra féll- fljótlega, særður til ólífis. — Jæja, hann vildi ekki lausnargjaldið, en það vil ég, sagði sigurvegarinn, sem kom hlaupandi til Eiríks. Hann sagði föngunum að rísa upp, batt þá saman og festi band um úlnliði þeirra. — Nú för- um við til Bersa, sagði vörðurinn. — Ég er laus við félaga minn, og lausnargjaldið er mitt. Hann tók ekki eftir, að Eiríkur hvíslaði ein- hverju að félaga sínum, og var því alveg óviðbúinn, er Eiríkur hróp- aði rétt á eftir: Núna!

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.