Tíminn - 05.12.1961, Blaðsíða 3
INN, þriðjuc’.0:nn 5. desember 1961.
3
f V rcti fór á það á laugardaginn og var settur inn með viðhöfn klukkan níu
BjaSll um jjvöidig^ Hér eru þeir að leiða hann inn í fordyrið. Þá nótt var
hvert rúm skipað í gististaðnum við Síðumúla. Um nónbilið í gær var 31 nafn komið í
gestabókina. Einn var búinn að gista tvisvar. Hann var settur inn klukkan 5,15 á sunnu-
dagsnóttina og klukkan 8—9 um morguninn slepptu þeir honum. Laust eftir hádegi
sama dag var hann kominn aftur. Ljósm.: Tíminn, G. E.).
VOPNAHLÉ í JÓLA
GJÖF TIL LAOS
NTB—Geneve, 4. desember.
Á alþjóSaráðstefnunni um
Laos náðist í dag samkomulag
um sex mikilvæg atriði, sem
hafa verið ágreiningsefni ísam
bandi við væntanlegt hlutleysi
Laos. Talsmenn bæði Banda-
ríkjanna og' Kína hafa lýst yfir
ánægju sinni með þetta sam-
komulag.
Varaformaður bandarísku sendi-
nefndarinnar, Wflliams Sullivan,
sagði, að fullt samkomulag um La-
os væri í augsýn. Chang Han-Fu,
formaður kínversku nefndarinnar,
sagði, að mikilli hindrun væri rutt
úr vegi með þessu samkomulagi
um flest mikilvægustu ágreinings-
efnin. Hann lagði um leið áherzlu
á, að það mundi auka á stríðshætt-
una í Laos, ef ráðstefnan í Geneve
færi út um þúfur.
0’ Brien skrifar
um Kongodeiluna
NTB—Elisabethville, París og
New York, 4. desember.
írinn O'Brien, sem um skeið
stjórnaði aðgerðum Samein-
uðu þjóðanna í Kongó, er nú
að skrifa bók um Kongó og
veru sína þar. Hann segir, að
Beaverbrook blöðin eigi mikla
sök á stuðningi Breta við Kat-
angastjórn og að MacMillan
foVsætisráðherra hafi átt hags-
muna að gæta í Kongó vegna
belgiska námufélagsins. O'Bri-
en segir einnig, að Bandaríkin
(Framhald á 2. síðu.)
Skildi hestinn eftir
og fór með snjóbílnum
Það er haft eftir þátttakendum
á ráðstefnunni, að allt útlit sé fyr-
ir, að fullt samkomulag náist um
Laos fyrir jól.
Atriðin sex, sem samkomulag
náðist um í dag, eru þessi:
1. Hvernig atkvæðagreiðslur far^
fram í aliþjóðlegu nefndinni,
sem á að hafa eftirlit með hlut-
leýsi Laos.
2. Hlutverk hinna tveggja for-
manna Geneve-ráðstefnunnar.
3. Starfsemi eftirlitshópanna.
4. Hvernig rannsóknir á meintum
hlutleysisbrotum fari fram.
5. Að alþjóðanefndin hafi eftirlit
með, að banninu á innflutningi
vopna til Laos verði framfylgt.
6. Hvað gera skuli, ef nágranna-
ríkin verða notuð sem stökkpall
ur í innanríkismál Laos.
Kyrrahafsmarkaður
gegn Sammarkaöi
NTB — Melbourne, 4. desember
Melboume Herald segir í dag í frétt, að Kanada hafi stigið
fyrsta skrefið til að koma á fót Kyrrahafsmarkaði til að vega
upp á iiióti inngöngu Breta í Sammarkaðinn.
í Kyrrahafsmarkaðinum er ætlunin að séu Kanada, Banda-
ríkin, Japan, Ástralía og Nýja-Sjáland. Tillga Kanada hefur
verið lögð fyrir Bandaríkjastjórn, sem er sögð þessu mjög
hlynnt. Kanada reiknar með, að áætlunin komist til fram-
kvæmda von bráðar.
Verzlunarmálaráðherra Kanada, George Hees, sagði í kvöld,
að hann visSi ekki af því, að Kanada hefði í hyggju að koma á
Kyxrhaf smarkaði.
Jónsson, lögregluþjón á ísafirði.
Þeir voru dæmdir í tveggja mán-
aða fangelsi hver af sakadómi fsa-
fjarðar á sunnudagsmorguninn og
5000 króna bótagreiðslu til lög-
regluþjónsins. Þeir áfrýjuðu ekki
til hæstaréttar.
Á Litla-Hraun í gær
Skipstjórinn barmaði sér yfir
dóminum, þegar hann kom til
Reykjavíkur. Hann er kraftalegur
maður, en hásetarnir minni að vall
arsýn, Caley minnstur og mjóslegn
astur. Þeir gistu í Steininum í
fyrrinótt. f gær voru þeir fluttir
á Litla-Hraun.
Leitarmenn fá vistir upp á fjöll — Mjólkurbill
var rúma þrjá sólarhringa 50 km. leiÖ
Enn er víða illviðri og hríð
norðanlands og austan. Sam-
göngur eru erfiðar eða liggja
niðri, og eru þess dæmi, að
bílar hafi verið á fjórða dæg-
ur að komast 50 km. leið. Yfir-
leitt er ekki hægt að tala um
mikla fjárskaða, þó að sums
staðar vanti enn allmargt fé,
þar eð veður hefur hamlað
leit.
Pétur Jónsson í Reynihlíð sagði
í símtali í gær, að þar um slóðir
hefði fé af mörgum bæjum verið
úti og austur á Fjöllum, þegar
hríðin skall á um daginn. Fyrir sjö
dögum lögðu tíu Mývetningar af
stað að leita, en hafa ekki fengið
neinn bjartan dag. í gær kom snjó
bíll frá Húsavík í Reynihlíð og tók
þar mjólk, en lagði af stað þaðan
klukkan 4 með vistir til leitar-
manna. Hann var einnig með hey
handa því fé, sem þeir hafa fund-
ið í fönn, og er búizt við, að hann
komi með eitthvað af því til
byggða.
Pósturinn úr Möðrudal hafði ver
ið hríðtepptur í Reynihlíð, er
snjóbíllinn kom þangað í gær. Tók
hann þann kostinn að skilja hest
sinn eftir og hélt rneð bílnum á-
leiðis austur.
Blaðið hafði samband við Foss-
hól í gær, og sagðist fréttaritaran-
um þar svo frá, að þar hefði verið
ákaflega slæm tíð að undanförnu.
Vegir í nágrenninu væru ekki fær-
ir nema snjóbílum. Til marks um
ófærðina þar um slóðir má geta
þess, að mjólkurbíll, sem nýlega
brauzt frá Fosshóli til Húsavíkur,
en það er um 50 km leið, var á
fjórða dægur á leiðinni. Á Einars-
stöðum í Reykjadal vantar 15 kipd
ur, á Fljótsbakka og Lundar'brekku
5, en annars staðar færri eða ekki.
Á Grímsstöðum á Fjöllum var
stórhríð í gær, en þar hefur verið
látlaust illviðri með fannkomu síð
an 23. nóvember. Fé var úti á
flestum bæjum, þegar veðrið skall
á. Sums staðar náðist það alveg, en
annars staðar vantar enn nokkrar
kindur. Örfáar kindur hafa fundizt
fenntar, en annars er naumast veð
ur til að leita.
Skipstjóri
Laust eftir hádegi á sunnu-
daginn stigu þrír Bretar út úr
áætlunarflugvél Flugfélags-
ins á Reykjavíkurflugvelli.
Vélin var að koma frá ísafirði,
en á flugvellinum biðu þrír
rannsóknarlögreglumenn, sem
tóku við Bretunum og fluttu
þá í Steininn við Skólavörðu-
stíg.
_ . Bretarnir voru Richard Taylor,
Lögreglan tekur við Bretunum á Reykjavíkurflugvelli. Fra vinstrl: Niorðúr Snœholm, rannsóknarlogreglumaður, [ skjpStjóri Raymond Manning og
Rlchard Taylor, skipstjóri, Ingólfur Þorstelnsson, yfirvarðstjórl, Robert Caley, háseti, Raymond Mannlng, há- J R0bert Caley, hásetar, sem gerðust
seti og Jón Halldórsson, rannsóknarlögreglumaður. I sekir um líkamsárás á Arnar
barmaði sér