Tíminn - 20.12.1961, Blaðsíða 16

Tíminn - 20.12.1961, Blaðsíða 16
Miðvikudagur 20. desember 1961 321. tbl. 45. árg. Stúdentarnlr: Erlingur Vlgfússon og Krtstinn Hallsson. (Ljósm.: Þórarlnn Inglmundarson). Við fórum í þjóðleikhúsið, bakdyramegin, á mánudags- kvöldið og heyrðum gamal- kunna rödd Haralds Björns- sonar gefa fyrirmæli um um og tuggði harðfisk og hlustaði á þennan lestur. Þegar lögréttumaðurinn gefur honum leyfi til að bölva hákarli, reigir hann sig og hlær trölla- hlátri: sviðið, þar sem leikararnir halda áfram að æfa Skuggasvein. Það á að frumsýna hann á ann an jóladag, í tilefni 100 ára afmæl- is leiksins, sagði Þjóðleikhússtjóri í viðtali við fréttamenn fyrr á mánudag. Leikurinn hét í fyrstu Útilegumennirnir eins og flestum er kunnugt. Matthías samdi hann í jólaleyfinu árið 1861, þá 26 ára gamall og námsmaður í næst efsta bekk menntaskólans. Leikurinn var sýndur í Klúbbnum í Kirkju- stræti í janúarlok veturinn eftir. „Leikfélag andans“ flutti verkið, en meðlimir þess voru prestaskóla nemar og lögfróðir. Sigurður mál- ari gerði leiktjöldin, og allt þótti þetta vel takast. Matthíasi var klappað mikið lof í lófa. Síðan hefur Skuggi verið vinsæll og átt Skuggasveinn 100 ára jólaleikurinn í ár virðulegt tal um fjallagrös, meðan við gengum fram skuggalegt sviðið að tjalda- baki og leituðum niður í sal- inn. Þarna sat Haraldur í gervi lög- réttumannsins í Dal og Ias Valdi- mari Helgasyni pistilinn um ágæti' fjallagrasa og annars matarkyns, sem lögréttumaðurinn ber minni virðingu fyrir. Valdimar eða Jón sterki, stóð sþerrtur í lokubuxun- — Ekki mátti það minna kosta. Hann breiðir úr sér og lætur móð an mása, rífur harðfisk, kastar beinílísum og spýtir á gólfið. ! — Heyrðu Valdimar. Þú mátt ekki rífa svona á gólfið, segir Har aldur í hléi síðar. — Þú getur gert það seinna, en þú verður bara að' látast gera þ^ð núna. En Valdimar er Jón sterki eftir sem áður og rífur sinn harðfisk. i Niðri í salnum brugga ljósmynd arar vélráð,' og glamparnir frá ljósatækjum þeirra leiftra um lengri lífdaga en nokkur annar leikaraskapur, sem menntskæling ur hefur diktað í jólaleyfi, að ekki sé meira sagt. En Skuggasveinn er af þeirri gerð leikja, sem má auka við eða fella niður þætti, og hefur hvort tveggja verið gert. Þessi eiginleiki verksins gefur nokkra vísbendingu um gildi þess, en við skulum ekki lasta Sveinka. Hann er' yfir það hafinn, og slíkt kemur honum ekki við eftir 100 ár. (Framhald á 15. síðu). Helgileikur í Vogaskóla í gærkveldi var jólasamkoma í Vogaskólanum, og var mjög tll hennar vandað af hálfu nemenda og kennara, sem einskis höfðu látið ófreistað til þess, að hún yrði sem bezt. Meðal annars léku nemendur þætti úr jólaguðspjallinu. Myndirnar sýna atriði úr þessum helgilelk — hln neðri Jósef og Maríu með barnið, og fer englll fyrir þeim. (Ljósm.: Þórarlnn Ingimundarson). LANDHELGISVEIÐUM TOGARA MÓTMÆLT Á HÚSAVÍK Húsavik, 19. des. Bæjarstjórn Húsavíkur geiði svohljóðandi ályktun á fundi sín- um 18. des. s.l. — Fundur í bæjarstjórn Húsa- víkur, haldinn 18. des. 1961, mót- mælir eindregið þeirri hugmynd, sem fram hefur komið, að leysa vandræði togaraútgerðarinnar með því að leyfa togurunum veiði inn- an hinnar nýju landhelgislínu. Bæjarstjórnin lítur svo á, að slík ráðstöfun væri ekkert framtíðar- bjargráð fyrir togaraútgerðina, en myndi hins vegar eyðileggja báta- útveg þann, sem blómgazt hefur síðustu misseri vegna friðunar þeirrar, sem unnizt hefur vegna út- færzlu landhelginnar. Tillagan vai samþykkt með öll- um atkvæðum. ÞJ ■ B JOLAGJOFIN ER A BLAÐSÍÐU 13. 3APPDRÆTTI FRAMSÓKNARFLOKKSINS SÍMI 12942 Lögréttumaðurinn í Dal og Jór sterk' ræðast við

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.