Tíminn - 31.12.1961, Síða 5

Tíminn - 31.12.1961, Síða 5
IWíliÉJMt Útgefandl: FRAMSÚKNARFLOKKURINN F'ramJrvæmdast.i&ri Tómas Arnason Rit stjórar Þórarmn Þórarinsson iáb i Andrés Kristjánsson lón Helgason Fulltrúi rit stjórnar Tómas Karlsson Auglýsinga- stjóri Egill Bjarnason - Skriístotur 1 Edduhúsmu - Simar 18300--18305 Aug lýsingasimi 19523 Afgreiðslusími 12323 - Prentsmiðjan Edda ti.l — Askriftargjaid kr 55 00 á mán mnanlands f lausasölu kr 3 00 eintakið Við áramótin Enn er eitt árið að líða í „aldanna skaut“. Tími hinna árlegu reikningsskila er genginn í garð. Það hefur enn sannazt á árinu 1961, að mannkynið er á mikilli framfarabraut í tæknilegum efnum. Hnattflug Gagarins og 50 megatonna vetnissprengjan sanna það meðal annars. Enn er hins vegar ekki sýnt, hvort þessar framfarir verða mannkyninu meira til góðs eða ills. Harð- ar og tvísýnar deilur milli þjóðanna hafa risið á árinu 1961, eins og svo oft áður. Hæst hefur borið Berlínardeil- una. Oft hefur útlitið þar virzt slíkt, að ekki hefði verið hikað við áður fyrr að láta vopnin skera úr. Óttinn við kjarnorkuvopnin hefur bersýnilega haldið aftur af mönn- um. Þetta styrkir þá von, að þrátt fyrir allt verði það kjarnorkuvopnin, sem knýi stórveldin til að halda friðinn og semja um afvopnun að lokum. Árið 1961 hefur af náttúrunnar völdum verið íslend- ingum gott ár. Til sjávarins hefur aflinn orðið meiri og betri en nokkuru sinni fyrr. í heild var árferði líka hag- stætt landbúnaðinum. Við þetta hagstæða árferði til lands og sjávar bættist svo, að á árunum fyrir 1960 hafði orðið mikil uppbygging til lands og sjávar og þjóðin því búin undir að hagnýta sér auðæfi hafs og lands. Þjóðartekjur íslendinga verða því meiri á þessu ári en nokkuru sinni fvrr. En þrátt fyrir stórauknar þjóðartekjur, hefur þó meg- inþorri landsmanna borið minna úr býtum en áður. Því veldur röng og heimskuleg stjórnarstefna. Með sánn- gjörnum launasamningum, sem voru gerðir á síðastl. sumri, var stefnt að því að koma tekjuskiptingunni í rétt- látara horf. Þessu kollvarpaði ríkisstjórnin með gengis- lækkuninni, sem að sjálfsögðu gerir þá ríku ríkari og þá fátæku fátækari. Nýjar og nýjar sannanir sýna, að þessi 1 gengislækkun var algerlega óþörf, eins og t. d. það. að útflutningstekjurnar verða stórum meiri á þessu ári en nokkuru sinni fyrr. Gengislækkunin var ekkert annað en hefndarráðstöfun ríkisstjórnar, sem vill koma fjár- magninu á fáar hendur en halda almenningi niðri. Þessari stjórnarstefnu fylgir ekki aðeins sá annmarki, að hún skipti þjóðartekjunum ranglega og óheiðarlega. Hún dregur einnig óhæfilega úr framtaki hinna mörgu, veldur þannig samdrætti í framkvaeindum og auknu trú- leysi á land og þjóð. Utan úr löndum berast íslendingum nú þær aðvaranir, að fjárfesting sé hér alltof lítil, ef tryggja eigi batnandi lífskjör. Til lengdar verður ekki búið að uppbýggingu fyrri ríkisstjórna. Það þarf bæði að endurnýja og auka framleiðslutækin. Framundan bíður hörð barátta fyrir því tvennu að gera tekjuskiptinguna réttlátari og hefja merki framfara og aukinnar fjárfestingar á ný. Um þetta verða harðar deilur. Sérhagsmunamennirnir, sem græða á hinni rang- látu tekjuskiptingu verða ófúsir til að sleppa þeirri að- stöðu, er þeir hafa nú.Þeir munu og heimta, að fjárfest- ingin verði í höndum sem fæstra og munu jafnvel heldur kjósa þar fyrir bandamenn erlenda auðjöfra en íslenzka, alþýðu. Hér er fyrir höndum mikil barátta við óþjóðlega auð- valdssinna. Á aðra hlið verður svo baráttan við trúar- söfnuðinn, sem eingöngu stjórnast af páfanum í Moskvu. Það er hlutverk ,Framsóknarflokksins að hafa forust- una í þessari baráttu þjóðlegra framfara og endurreisnar. Til þeirrar .baráttu munu Framsóknarmenn ganga'bar- áttufúsir, því að fyrir góð mál er að berjast. TÍMINN, sunnudaginn 31. desember 1961. C. L. SULZBERGER: t er í heiminum hverfult í alfijóðamálum geta vinir fljótt orftið óvinir og óvinir vinir. Óvissan er hi§ eina, sem vitS getum verií viss um á bví svitii. Höfundur igreinarinnar, sem hér fer á eftir, er einn af rit- síjórum „The New York Tim- es“. Hann skrifar að staðaldri í blaðið um utanríkismál og er meðal fróðusíu og víðsýn- ustu blaðamanna Bandaríkj- anna, er um þau mál rita. Grein þessa skrifaði liann 5. þ. m. í tilefni af því, að þá voru liðin 20 ár frá árás Jap- ana á Pearl Harbor: FYRIR 20 árum var Moskva umkringd hersveitum nazista og allir útlendingar, sem töld ust þess verðir að haft væri auga með þeim, höfðu verið sendir niður með Volgu. Eg var þó staddur í Kuibyshev, sem var bráðabirgðahöfuðborg Rússlands, og í óhreinu gisti- húsi þar í borg, heyrði ég fréttirnar um Pearl Harbor. í þessu gistihúsi, sem rang- lega bar nafnið Grand, bjó 'hinn sundurleitasti hópur. Þar var t. d. Konstantin Oumansky, sendiherra Sovétríkjanna í Was hington, og Anders hershöfð- ingi, sem nýbúið var að láta lausan úr fangelsi til þess að hann gæti tekið að sér stjórn pólsks hers, sem verið1 var að safna saman. Þarna var einn- ig sendinefnd frá Ytri-Mongó- líu og nokkrir japanskir frétta i’itarar. Það var einn fréttaritarinn, sem sagði mér, að þjóðir okk- ar ættu nú í ófriði, og hann brosti breitt og bar errin mjög illa fram. Hann sagði, að búið væri að eyðileggja Kyrrahafs- flota Bandaríkjanna, en hann t.ók fram, eins og gert er í ó- dýrurn og ómerkilegum reif- urum, að sér þætti þetta mjög léiðinlegt — „so solly“. Eg trúði honum ekki. EG ÖSLAÐI klofsnjó á leið minni til byggingar þeirrar, sem sendiráð okkar hafði feng ið til urnráða, og hermálafull trúinn þar sagði mér hryggur í bragði, að þetta væri allt satt. Á leið minni til sendiráðsins hafði ég komið við í stjórnar- deld þeirri, sem fór með sam- skipti við útlönd og afhent þar símskeyti. tíu blaðsíður að lengd. Skeyti þetta var siðan ranglega afhent mér aftur í herbergi mínu í gistihúsinu, þá skrifað á rússnesku dulmáli og sent frá Tokíó. Rauði herinn tók að undir- búa sig undir fyrstu gagnár- ásirnar og ég flaug til Moskvu til þess að fylgjast með hersv. einnar af hetjum dagsins, Vlas ow heTshöfðingja. Vlasow þessi var handtekinn árið eftir og gekk þá í lið með Hitler og tók að sér stjórn rússneskrar liðhlaupasveitar. Þegar stríð- inu lauk leitaði hann á náðir Pattons hershöfðingja, en Pat- ton var skipað að afhenda Stal ín hann aftur, og hann var skotinn. Bandaríkjamenn urðu vin- sælir í Rússlandi, en framkom an gagnvart þeim var þó ávallt dálítið þvinguð og þeir vorn tortryggðir. Við tókum að lofa „Jóa frænda“ hátt og í hljóði og rukuim í að taka öfgafullar lofkvikmyndir um Rússa, eins og t. d. „Norðurstjörnuna" og fleiri slíkar. En þetta tilhiuga- líf var skammvinnt. Stalín var búinn að setja fram ósvífnar heimsveldiskröfur löngu áður en vopnahlé var komið á. Það er næsta furðulegt að virða þetta tímabil fyrir sér úr tuttugu ára fjarlægð. Hitler er löngu dauður. Stalín er ekki aðeins dauður, heldur orðinn að eins konar ófreskju. Og einn af hinum óæðri undir- mönnum hans er setztur á valt an valdastólinn. SÁ MAÐUR, sem nú ræður mestu um örlög Bandaríkja- manna, var þá ungur foringi í flotanum. De Gaulle er aftur kominn til valda í Frakklandi og á nú við enn meiri erfið- leika að stríða en þegar hann kom til Parísar, fyrst eftir að hún var hrifin úr hers höndum. Útkjálkaskæruliðinn Mao Tsetsung, sem áður deildi við Stalín, ræður nú ríkjum í Kína. Hann hefur nú gleymt ágrein ingnum við Stalín vegna ákafr ar deilu við Krústjoff. Og Ohiang Kai-shek, sem áður réði lögum og lofum í Kína, fer nú með hlutverk Nopóle- ons austur þar og horfir til heimalands síns frá sinni aust- urlenzku Elbu. FYRIR TUTTUGU árum mátti vel hugsa sér að við ættum fyrir höndum ýmiss konar sam skipti við Rússa. Engan gat órað fyrir, hve fljótir þeir yrðu að ná sér á strik eftir hina miklu eyðileggingu stríðsins. En fáa mun hafa grunað þá, að löngu fyrir 1961 yrðum við gengnir í bandalag við fyrri fjandmenn okkar, Þjóðverja, .ítali og Japani. Sameinuðu þjóðirnar, — draumkennd hugsjón Banda- ríkja'manna — lúta leiðsögn fulltrúa frá riki, sem' var brezk nýlenda fyrir 20 árum. Mikill hluti meðlimaríkjanna var ekki í ríkjatölu 1941. ÞÆR STÓRKOSTLEGU og fjar stæðukenndu breytingar, sem orðið hafa, hljóta að bjóða heim ýmsum bollaleggingum um framtíðina. Við reynum — eins og við gerðum fyrir 20 árum — að halda vinsamlegu sambandi við Suður-Ameríku- ríkin og jafnframt að koma í veg fyrir útbreiðslu framandi stjórnmálaskoðana. Skuldbind- ingar okkar um varnir á aust- urströnd Atlantshafsins og vesturströnd Kyrrahafsins eru ekki lengur kemningar einar, heldur staðreyndir. Heimsveldi Breta, Frakka, ítala og Japana eru að meira og minna leyti liðuð sundur, og við keppum við Rússa um áhrifavald í rústum hinnar horfnu skipunar, en Kína kepp ir bæði við þá og okkur. Þegar litið er aftur, yfir þær stór- kostlegu breytingar, sem orðið hafa, hlýtur maður að renna huganum að því, hvaða undur ' næstu tuttugu árin kunni að leiða í ljós. Verður þá um að ræða nýtt, mikið veldi, sem nefnist Evr- ópa, þrátt fyrir þann hugsjóna ágreining, sem þar er nú um að ræða? Eða hefur Rússland þá snúizt á sveif með Vestur- veldunum, vegna höfuðátaka milli austrænna og vestrænna kynstofna, eins og de Gaulle gerir ráð fyrir? Verða Moskva og Washington þá samherjar í baráttunni fyrir friði? Eða verður heimurinn þá í rústum, í helgreipum hins kalda stríðs, eða máske í brjáluðu kapp- hlaupi um nýlendur? Það eitt höfum við lært af hinni nálægu fortíð, að við get um ekkert séð fyrir, getum engu spáð og allt virðist geta komið fyrir. Óvissan er það eina, sem við getum verið viss um. Berlínardeilan selli mjög svip sinn á árið 1961. Eftir áramótin munu hefjast viðræður milli Rússa og vesturveldanna um lausn hennar. Nokkur grundvöllur var lagður að þeim viðræðum, er Gromiko heim- sótti Kennedy í Hvíta húsið á síðastl. hausti. 5

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.