Tíminn - 31.12.1961, Blaðsíða 7
Þaö er nú orðiö fullvíst, að
millisvæðamótið, sem hefjast
átti í Amsterdam síðast í
næsta mánuði, verður flutt til
Svíþjóðar, þar sem hollenzka
skáksambandið hefur ekki get
að gefið neina tryggingu fyrir
því, að austur—þýzki skák-
meistarinn Uhlman, sem er
einn þátttakenda í mótinu,
fái vegabréfsáritun til lands-
ins. Eg geri ráð fyrir að fl'est
um sé enn í fersku minni allt
það umstang, sem varð í kring
um Uhlman, er honum var
meinuð þátttaka í svæðamót-
inu í Berg en Dal í 'Hollandi
1960, og er ljóst, að alþjóða-
skáksambandið ætlar ekki að
láta það henda sig aftur.
Millisvæðamótið hefst því
að öllu forfallalausu í Stokk-
hólmi 27. janúar n.k. og stend
ur til 6. marz. Þar sem þegar
er vitað um alla þá, er rétt-
indi hafa til þátttöku í þessu
móti (utan einn), ætla ég til
gamans að telja þá upp hér.
Fyrst er þá að telja sovézku
skákmennina Petrosjan, Kor
chnoj, Geller og Stein, sem
allir eru sigurstranglegir og
má teljast nokkuð öruggt. að
þeir tveir fyrsttöldu verði
meðal þeirra sex, sem vinna
sér réttindi til þátttöku í Kan
didatamótinu. Hinir tveir
hafa góða möguleika. Banda-
ríkjamenn hafa þrjá fulltrúa
hér, þá Fischer, Lombardy og
Weinstein, en líklegt er að
Bisguier komi í stað Wein-
stein. Allt eru þetta vel þekkt
ir skákmenn, en væntanlega
mun aðeins Fischer komast
áleiðis í Kandidatamótið. —
Júgóslafarnir eru tveir, þeir
Gligoric og Bertok og má
nökkuð örugglega reikna með
Gligoric sem kandidat. Þeir
Portisch, Barcza og Bilek
koma allir frá Ungverjalandi
og er Portisch sá þeirra, sem
líklegastur er til afreka. Bol-
bochan og Schveber eru full-
trúar Argentínu og gæti sá
fyrrnefndi vel orðið einn af
hinum sex útvöldu. ef honum
tekst vel upp að þessu sinni.
Dr. Filip frá Tékkóslóvakíu,
Pomar, Spáni, og Uhhnan A-
Þýzkalandi hafa allir vissa
möguleika, en aðrir, þeir Ger
man, Brazilíu, Yanofsky, Kan
ada, Cuellar Columbíu og
Aaron, Indlandi koma vart til
greina. Einu sæti er enn óráð
stafað, en það fellur annað
hvort í skaut Duckstein, Aust
urríki, eöa Teschner, V-Þýzka
landi. Vart er við því að búast
að þeir muni hafa sig miög
í frammi á millisvæðamótinu.
Enn er þá ótajinn íslenzki
fulltrúinn, en um möguleika
hans verður ekki rætt hér.
Sex af þessum tuttugu og
þremur þátttakendum kom-
ast áleiðis í Kandidatamótiö,
en þar bætast við þeir Tal og
Keres, svo að keppendur í því
verða alls átta. Kandidata-
mótið verður haldið í Cura-
cao í Suður-Ameríku (hol-
lenzk áambandsnvlenda und-
an Venezúela) dagana 1. maí
—28. júní og verða tefldar alls
28 umferðir. Sigurvee'arinn í
bví móti öðlast réttindi til aö
skora á heimsmeistarann í
einvígi. Að mínu áliti æt.ti að
vera hægt að segja til með
nokkurri vissu um sex af þátt
takendunum í Kandidatamót
inu, en vafi Ieikur á um tvo.
Það eru að sj álfsögðu þeir
Tal og Keres, en síðan koma
þeir Korchnoj, Petrosjan Glig
oric og Fischer. Þetta styðst
við það, sem ég hef sagt aö
framan.
Hér kemur svo að síðustu
skemmtileg skák, sem tefld
var í Evrópumeistaramótinu
síðasta. Hvítu mönnunum
stýrir Geller sem teflir í
millisvæðamóti, en andstæð-
ingur hans er Vestur-Þjóð-
verji: :
Hv. Geller — Sv. Pfeiffer.
DROTTNINGARBRAGD
1. Rf3—d5 2. c4—c6 3. d4—
Rf6 4. Rc3—Rbd7. (Álitinn lé-
legur leikur í þessari stöðu.
Skárra er 4. —cxd eða 4.—e6).
5. cxd—cxd 6. Bf4—e6 7.
e3—a.6 8. Bd3—Be7 9. 7i3—b5
10. 0-0—Bb7 11. a4—b4 12.
Re2—Hc8 13. a5!-0-0 14.
Rcl—Re4 15. De2—Hc6. (Ekki
getur staðan talizt beint góö,
þegar slíkir leikir eru nauð-
synlegir).
16. Rb3—Da8 17. Re5—Rxe5
18. Bxe5—f6 19. Bf4—f5 20.
f3—Rf6 21. a4!—Rd7 22 Hfcl
—HxHf 23 HxH—fxa 24. Hc7!
—gxf 25. Dxf3—Bc8 26. Dh5
—Ri6 27. Bxh7'<—Kh8 (Eða
27. — Rxh7 28. Hxe7 og svarta
staðan hrynur brátt).
28. Dh4—Bd8 29. Hxg7!—
Kxg7 30. Dh6'<'—Kf7 31. Bd6!
—Hg8'<' 32. Bxa8'<•—Kxg8 33.
Df8i—Kh7 34. Dxd8. — Svart
ur gafst upp nolckru síðar.
i
TrésmíSafélag Reykjavíkttr Meisfaraíélag húsasmiða
iólatréskemmtun
féláganna verður laugardaginn 6. janúar, (á þreffándanum).
Skemmfinefndin.
Gleðilegt nýár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu
Samband íslenzkra samvinnufélaga
Gleðilegt nýár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Hótel Vík.
Gleðilegt nýár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Prentsmiíjan Edda h.f.
Gleðilegt nýár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
H.f. Ölgeríin Egill Skallagrimsson.
Gleðilegt nýár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
TrésmitSja Gissurar Símonarsonar vitS Miklatorg
Oskum öllum landsmönnum
farsældar á komandi ári
Miðstjórn
i
Framsóknarflokksins
.
Óskum öllum óvinum Bakkusar
Gleðilegs árs
VÍNLAUST LAND.
' \ Jk
Aðstoðarstúlka
óskast að Eðlisfræðistofnun Háskólans. Umsóknir,
er tilgreini aldur. menntun og fyrri störf, sendist
skrifstofu Háskóla íslands fyrir 10. janúar.
i '
Seaidlsveiiin
óskast fyrir hádegi.
DAGBLAÐIÐ TÍMINN
Sími 12323.
TÍMINN, snnnudaginn 31. desember 1961.
!
7