Tíminn - 31.12.1961, Síða 8

Tíminn - 31.12.1961, Síða 8
Eg hef áður gert að um- talsefni sjúkdómseinkenni og veilur í íslenzku lýðræði. — Eg tel mig hafa fært aö því nokkur rök, að ýmsir ráðandi menn gefa yfirlýs- ingar og loforð, án þess að ætlunin sé að standa við þau og að þjóðin sé farin að veita þessu athygli. Eg hef meðal annars nefnt sem dæmi: 1. yfirlýsinguna 1942, þegar dýrtíðarskriðunni var af stað hleypt, sagt', að hún myndi dreifa stríðsgróðan um — en stöðva mætti hana með einu „penna- striki“. 2. Samningana við bændur 1944 um eftirgjöf á 9.4% af lögboðnu afurðaverði, gegn ákveðnu loforði, sem ekki var staðið við. 3. Alþýðusambandsþingið 1958, þegar verkamönnum var sagt, að kaupið væri of lágt, síðan lækkað af sömu mönnum með vald- boði rétt á eftir. 4. Loforð stflórnarflokkanna fyrir kosningarnar 1959 um stöðvun dýrtíðar og batnandi lífskjör, sem aldrei átti að efna. — 5. Margsaga yfirlýsingar í vinnudeilunum sl. sumar um möguleika til kaup- hækkunar, sem enginn tók að lokum mark á. 6. Að lokum samningar, sem voru ónýttir um leið með bráðabirgðalögunum. 7. Loforð stjórnarflokkanna fyrir kosningar 1959 um að hvika hvergi í landhelg ismálinu. — Þessi dæmi o. fl. tel ég sanna vinnubrögð, sem eru til þess fallin að eyða því gag-nkvæma trausti milli þjóðar og stjórnenda, sem er undirstaða lýðræðis — og sá máttur, sem gerir það fært að stjórna án tíðra vald boða. En einkennin eru fleiri, ef að er gáð. Um þetta efni ætla ég m.a. að ræða, til að reyna að vekja menn til um- hugsunar um það, aö til eru verðmæti, sem við megum ekki við að glata, þótt verð- gildi þeirra verði ekki talið í tölum, svo sem almennt tíðkast á efnahyggjutímum. Það eru athyglisverð um- mæli, sem höfð eru eftlr gömlum og reyndum stjórn- málamanni úr öðrum stjórn arflokknum. Hann sagðist hafa veitt því athygli, að hann hefði áður fyrr ekki þurft að tala eða skrifa með rökum um málefni nema einu sinni, til þess að fólk gerði sér það ljóst. Nú þyrfti hann að hrópa tuttugu sinn um, til þess að fólk legði eyrun við og tæki eftir. Að vísu veldur hér nokkru at- burðahraði tímanna. — En ég held, að meiru valdi þó þau vinnubrögð í stjórnmál um, sem ég hef layslega lýst hér að framan. — Rök í heil brigðu þjóðfélagi þurfa ekki á hávaöa að halda. Blekk- ingarnar hrópa. Og ef fólk sljóvgast vegna hávaðans, heyrir það síður hófsamleg rök. Að setja hávaðann á svið, hefur orðið áberandi þáttur í íslenzkum stjórnmálum síð ari árin — og í vaxandi mæli, einkum í sambandi við vanefndir loforða, sem aldrei var ætlunin að efna, eða til þess að leiða athygl- ina frá öðru, sem var að ger ast. Þessi aðferð var notuð, er stórloforðin voru gefin fyrir kosningarnar 1959: Batnandi lífskjör, stöðvun dýrtíðar og tryggðir svarnar við landhelgismálið. Þetta var gert til þess að leiða at- hygli þjóðarinnar frá því, sem staðráðið hafði verið að gera og hún hefur nú þreif að á. — Síðan hefur ríkisstjórnin enn fært sig upp á skaftið. Hún notar nú 1. desember, frelsisdag þjóðarinnar, til einhliða áróðurs — til þess að breiða yfir vanefnd iof orð. Hinn 1. desember 1959 var, eins og menn muna, notaður til þess að halda að þjóðinni með einhliða áróðri, bless- un „viðreisparinnar", sem væri einasta færa leiðin — Þetfa, með framhaldinu, átti að duga til þess að þjóð in gleymdi loforðunum um bætt lífskjör og stöðvun dýr tíðar. Hinn 1. desember 1960 var notaður til þess að breiða yfir brigðin í landhelgismál inu. Hinn 1. desember í ár, til hvers? Það á væntanlega eftir að koma í ljós. Áróðurinn 1. desember 1959 og þar á eftir var ekki skorinn við nögl. Bumbur voru barðar og lúðrar þeytt ir. Prédikað var í þaula um að „viðreisnin" væri alveg „nýtt efnahagskerfi“. Allir vitibornir hagfræðingar hér lendir og erlendir væru á einu máli um það, að ekki væri neitt til nema þessi eina leið til þess að koma í veg fyrir, að þjóðin steyptist í djúpið. Þjóðin hefði lifað um efni fram, væri því orðin ein allra skuld ugasta þjóð heimsins. Hún yrði því að hætta að taka er lend lán. — „Viðreisnin" ætti þó fyrst og fremst að afmá uppbótar- og styrkja- kerfið og framleiðslan að vera rekin á traustum grund velli, án afskipta ríkisins. Um kaupgjaldið áttu at- vinnurekendur og verka- menn að semja sjálfir án afskipta ríkisstjórnarinnar o. s. frv. Allt þetta og margt fleira var sett saman í bók, sem send var um allt land. Þeg- ar landsreikningurinn var birtur, komst upp, að bókin hefur kostað að minnsta kosti 300 þúsund krónur og þjóöin látin borga. Þegar þjóðmál eru sett á svið með svona hávaða, hrökkva margir landsmanna við. Endurtekin reynsla sann ar mönnum, að þá er eitt- hvað óhreint á seyði. Eitt- hvað, sem þarf að fá fólkið til að gléyma — eða þá að eithvað á aö framkvæma, sem dylja þarf, hvers eðlis er í raun og veru. Eg veit ekki, hvaða áhrif gerninga- ve&ur ,viðreisnarinnar“ hef ur haft í byrjun. Hitt veit ég með vissu, að veðrinu slotaði furðu fljótt, svo að menn greindu réttar áttir. Fyrst og fremst áttuðu menn sig á þvi að „viðreisn in“ var eftiröpun íhalds- hagfræðinga með takmark- aða þekkingu á íslenzkum aðstæðum, á efnahagskerfi erlendra þjóða, sem um margt er gjörólíkt hinu ís- lenzka. Við íslendingar vitum, eins og aðrar þjóðir, hvernig þessi íhalds- og samdráttar stefna lék ríkustu þjóð ver- aldar, Bandaríkin, í tíð í- haldsforsetans Hoovers. Það er ljót saga, sem ekki verð- ur rakin hér. En það, sem bjargaði, var það, að nýr forseti og frjálslyndur, Roosevelt, tók við völdum — og gjörbreytti um stefnu. Sama sagan endurtók sig að nokkru í tíð Eisenhowers, — og breytingarnar á hagfræði kenningunum, eftir að nú- •Herandi forseti Bandaríkj- anna tók við völdum og kall aði nýja og frjálslyndari menn til ráða. Bjarni Benediktsson lét á sínum tíma aðvörunarorð falla um það á Alþingi í tíð vinstri stjórnarinnar, að hún skyldi gæta þess að fara ekki um of að ráðum hag- fræðinga eins og Gylfa Þ. Gíslasonar, um samdrátt í lánamálum. Margir teldu, sagði hann þá, að Englands banki hefði, fyrir heims- kreppuna miklu, farið um of að ráðum íhaldssamra hag- fræðinga og hefði það átt stóran þátt í kreppunni um 1930. — Þetta vissu og mundu fleiri en Bjarni Bene diktsson. En þetta sýnir, að þá áleit hann, að sum þeirra ráða, sem nú er beitt sam- kvæmt „viðreisninni“ væru leiðin til kreppu. — Margt fleira olli því, að það var frá upphafi vonlaust verk, að telja íslendingum, sem þekkja söguna og enn kunna að hugsa, trú um það, að engin lækning væri til, nema sú ein, að taka hér upp samdráttar- og fhaldsstefnu sem víða hefur illa reynzt, en á þó sennilega hvergi ver við en hér á landi. — Þótt þetta væru greinileg kenni- merki, sem sýndu ljóslega, hvað verið var að fara með „viðreisninni" kom þó brátt fleira í dagsljósið. Sjálfstæðisflokkurinn sagði það skýrt í kosningunum 1959 — og hefur pft sagt það síðan— að kjördæmabreyt- ingin væri beinlínis til þess gerð'að afnema þau miklu áhrif, sem Framsóknarflokk urinn hefði haft í þjóðmál- um sl. 30 ár. — Því miður eru tímabil á þessum árum, þegar Fram- sóknarflokkurinn hefur engu ráðið, t. d. 1942, þegar þeirri dýrtíðarskriðu var steypt yfir þjóðina, sem efna hagskerfi hennar hefur bú- ið að síðan. — Hitt er rétt, að.um framvindu mála hef ur Framsóknarflokkurinn miklu ráðið síðustu 30 árin, enda mesta framfara- og umbótatímabil þjóðarinnar. Fleira mætti , telja, er gerði það auðsætt, að með „viðreisninni“ var ekki ver- ið að taka upp „nýtt efna- hagskerfi“, heldur gömlu samdráttar- og íhaldsstefn- una. Forsætisráðherrann sagði þetta raunar svo skýrt sem á verður kosið, er „viðreisn in“ hafði verið samþykkt.. Nú kvaðst hann eygja það í fyrsta sinn í langan tíma, að upp væru að renna hinir „gömlu, góðu dagar“. Það andvarp var einlægt. V Áhrif samdráttarstefnunn ar hafa nú þegar komið í ljós á mörgum sviðum efna hagslífsins. — Ríkiss'tjórnin hefur að vísu bjargað sér frá strandi með því að hrekj ast frá sumum allra verstu firrum yfirlýstrar stefnu. Hefur þetta gerzt ýmist vegna þrýstings frá eigin flokksmönnum, vegna áhrifa stjórnarandstöðunnar — og vegna þess, að ekki var hægt að halda áfram sem horfði. Versta broddinn af lána- samdrætti til sjávarútvegs- ins hefur rikisstjórnin reynt að sverfa með nýrri kreppu lánalöggjöf sjávarútvegsins — sem þó reynist ófullnægj andi.— Frumvarp til kreppulána- löggjafar fyrir bændur Ref- ur ríkisstjórnin lagt fram á Alþingi. — En kjörin eru þar enn verri en þau, sem sjávarútvegurinn þó fékk. f umræöum á Alþingi hefur Framsóknarflokkurinn sýnt og sannað, að.yrði frum- varpið samþykkt óbreytt, kæmi það miklum hluta bændastéttarinnar að engu gagni. — Ríkisstjórnin hefur hop- að í vaxtamálinu og lækkað vexti lítils háttar —. þótt einnig það sé alveg ófull- nægjandi. ■ Hún hefur, eins og eðli- legt er og vitað var, orðið að ganga á bak orða sinna og tekið lán erlendis — og það er ekki um neinar smá upphæðir að ræða. Enda meira en vafasamt, að ríkis- stjórnin hafi nokkurn tima ætlað yfirlýsingar sínar um að hætta láhtökum, til ann ars en punta upp á skrumið um „viðreisnina“ til bráða- birgða. Ríkisstjórnin hefur orðið TÍMINN, sunnudaginn 31. desember 1961. 8

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.