Tíminn - 31.12.1961, Page 14

Tíminn - 31.12.1961, Page 14
voru sömu riddararnir, sem hann hafði spottað fyrir vatnsburðinn. Þeir gáfu honum af því litla, sem þeir áttu eftir, en gáfu hestunum og drukku sjálfir það, sem eftir var. Þeg ar þeir iitu við, sáu þeir Must erisriddarann hlaupa niður fjallið og sveifla hinu blóð- uga sverði sínu, hressari í bragði. Svo varð þögn, og þeir heyrðu biskupinn frá Nazaret segja eins og við sjálfan sig: — Ó, það var hérna, sem frelsarinn prédikaði orð frið arins, á þessum sama stað hélt hann fjallræðu sína. Ó, það er ómögulegt, að hann yfirgefi oss, ég get ekki. né vil trúa því. RÍeðan Serkir höfðu annað fyrir stafni, reistu hermenn konungs tjald hans og önnur fleiri umhverfis klettinn, er krossinn stóð á. — Ætla þeir að reisa hér herbúðir? spurði Vulf gram ur í geði. — Þeir vona, að þeir geti slegið skjaldborg umhverfis krossinn, en það er árangurs laust, því að þetta er staður- inn, er ég sá í draum mínum, anzaði Godvin. — Við skulum að minnsta kosti deyja eins og hraustum mönnum sæmir, sagði Vulf. Síðan byrjaði síðasta at- lagan. Reykjarbólstrarnir ultu upp fjallhlíðarnar, og Serkir með þeim. Þrisvar voru þeir hraktir til baka, og þrisvar komu þeir aftur í ljós. í fjórðu atlög- unni gátu aðeins stöku Frakk ar barizt, því að þorstinn hafði yfirunnið fjölda þeirra á fjallinu, þar sem engan vatnsdropa var að fá. Þeir hnigu niður í grasið og voru slegnir í hel eða hand teknir, án þéss að veita nokk urt viðnám. Stór deild serk- neskra riddara ruddist gegn- um skjaldborgina, og réðust á skarlatstjaldið. Það riðaði til, félll síðan saman og fjötraði konunginn í fellingum sín- um. Við krossins fót barðist Ru- finus biskup frá Akre, enn þá hraustlega. Allt í einu hitti ör hann í hálsinn og hann féll til jarðar. Síðan réðust Serkir á kross inn, tóku hann ofan og báru hann með hæðnisópum og óhljóðum til sinna eigin her- búða, en hinir kristnu, er enn voru á lífi, störðu til himins, eins og þeir væntu þaðan teikns. En enginn engill birt- ist, og þar eð þeir héldu að Guð hefði yfirgefið þá, kvein uðu beir hástöfum. — Komdu, sagði Godvin við Vulf, með róíegri rödd. — Við höfum séð nóg. Það er kom- inn tími fyrir oss að deyja. Sjáðu! hérna fyrir neðan okk ur koma mamelúkar okkar gömlu félagar, og meðal þeirra er Salhedín, ég sé merki hans. Þar sem við er- um nýbúnir að drekka, erum við og hestar okkar enn þá óþrevttir og sterkir T.átum ævilok vor verða svo. að þau spyrjist til Essex. Reynum að ná merki Salhedíns. Vulf laut höfð.i og þeir riðu samsíða niður hlíðina Bog- sverðin blikuðu á móti þeim og örvarnar skullu á herklæð um þeirra og skjöldum. en bræðurna sakaði ekki. Og í augsýn hins serkneska hers, | sneru þeir hestum sínum' gegn hinu konunglega merki Salhedíns. Þeir ruddu sér braut gegnum iið óvinanna og felldu þá með sverðum sín um eða riðu þá ofan. Áfram, sífellt áfram. þótt, ‘ Eldur og Reyltur hefðu feng- ið fjöldamörg sár. Nú voru þeir meðal mamel úkanna, en fylking þeirra var orðin veik. Þeir voru komnir gegnum hana og stefndu móti — fjntt, QciiVmtlfri. Fari svo, er ’’ : > Cangi og annað ekki, eíns og bróðir hans er þegar orðinn. Eg skulda honum, því hann frels aði mitt líf meðan við vorum vinir. Gefið Frankanum að drekka svo bardaginn sé jafn. Svo gáfu beir Vulf að drekka, og þegar hann hafði drukkið, var Godvin réttur bikarinn, því mamelúkarnir þekktu og elskuðu bræðurna. — Hestur. yðar er dauður, H. R80EP? HAQÍaARD BRÆÐURN SAGA FRA KROSSFERÐATIMUNUM soldáni, er sat á hinum hvíta hesti sínum, með son sinn og Hassan fursta við hlið sér. — Vel þér Salhedín, en ég vel Hassan!, hrópaði Vulf. f sama bili mættust þeir, og allur her Serkja rak upp angistaróp er þeir sáu drottn ara hinna trúuðu hníga til jarðar fyrir þessari síðustu atlögu hinna æðisgengnu, kristnu riddara. Soldán reis þó brátt á fætur aftur, og fjöldi bogsverða skullu á her- klæðum Godvins í senn, og hestur hans féll dauður til jarðar, en sjálfur hljóp hann úr söðlinum og brá sverði sínu. í sama bili þekkti Salhedín merkið á skildi hans og hróp- aði: — Gefizt upp, Sir Godvin! Þér hafið barizt hraustlega. Gefizt upp! En Godvin, sem ekki vildi gefast upp, svaraði: — Þegar ég er dauður, en fyrr ekki! Soldán talaði eitthvað, og meðan nokkrir af mamelúk- um hans réðust á móti God- vin, en gættu þess þó að sverð hans næði þeim ekki, réðust aðrir að baki hans, og gripu um handleggi hans og felldu hann til jarðar og bundu hann. Vulf hafði einnig barizt. Hestur hans var rekinn í gegn, þegar hann hleypti af stað móti Hassan fursta. Vulf var lítið sár, og reis strax á fætur og hrópaði: — Þannig, Hassan, gamli fjandmaður og vinur, hitt- umst við loks. Komið og borg ið þá skuld, sem þér skuldið mér fyrir vínið forðum. Nú er maður móti manni, sverð móti sverði. — Það er sannleikur, að ég er yður skuldugur, Sir Vulf, svaraði furstinn hlæjandi. — Hermenn, snertið ekki þenn- an hrausta riddara, er hefur vogað svo langt til að mæta mér. Soldán, ég bið yður að uppfylla ósk mína. Millum mín og Sir Vulfs eru gamlar væringar, sem aðeins verða útkljáðar með sverði. Látum okkur útkljá þetta í næði hér á þessum stað, og skipið svo fyrir, að þó að ég falli. skal enginn ráðast á sigurvegar- ann, og enginn hefna mín. ' oVUHinum. +51 bllýíUT c-n Tirt*1 langa s erð sitt ’oáðum höndum og æpti herópið t gamla: — Ad’ Arcy! Ad’ Arcy! j ' og hljóp að Hassan eins ogj 1 sært ljón. Hann brá sverðinu' og það féll, og sjá! Skjöldur Serkjans skiptist, í tvennt. j Það féll aftur og hjálmur j hans klofnaði. í þriðja höggi i virtist handleggurinn rifna j frá við axlarlið, og Hassan ! hneig deyjandi til jarðar. Vulf stóð og horfði á hann, en sorgarkliður barst frá mannfjöldanum, því þeir elsk uðu Hassan. Hassan benti Vulf með vinstri hendinni, en hann fleygði sverðinu til þess að sýna honum að hann óttaðist ekki nein svik, og gekk til hans og kraup við hlið hans. — Hraustlegt högg, sagði Hassan lágt, — sem skar sund sir Vulf, svo við verðum að berjast á fæti, sagði Hassan og líljóp af baki. — Göfuglyndur sem ætíð, sagði Vulf brosandi, — jafn- vel eitraða vínið var gjöf. — En í síðasta sinn, er ég hræddur um, svaraði Hassan glaðlega. Þeir staðnæmdust gagnvart hvor öðrum. í fjallshlíðunum hélzt enn þá æðisgengin orr- usta. Á sléttunni neðanundir var fótgönguliðið fellt sem hráviði, en foringjar þess hér teknir. Stór hópur manna nálgaðist herbúðir soldáns, með glaum og gleði, og báru þeir brot af hinum helga krossi hátt yfir höfðum sér, en aðrir ráku eða drógu með sér fjölda fanga og þar á með al konunginn og helztu-ridd- ara hans. Jörðin var rauð af blóði, en siguróp og angistar- og ör- væntingarkvein bárust um loftið, en mitt í öllu þessu, um kringdir af alvarlegum risa- vöxnum Serkjum, stóð emír- inn klæddur hvítri skikkju, með gimsteinum skreyttan vefjarhött á höfði, og and- spænis honum hinn kristni riddari, með herklæðin öll döluð og ötuð blóði. Þeir, sem á þá horfðu, höfðu alveg gleymt orustunni, því athygli þeirra hafði snúizt; að þessum tveimur mönnum. | — Það verður mikilfenglegt einvigi, sagði einn af þeim við Godvin, sem fengið hafði leyfi ti.l að standa upp. — Því þótt bróðir yðar sé yngri og sterk- j ari ,er hann særður og þreytt- ur ,en emírinn óþreyttur og j ósár. Lítið á. þeir eru þegar; byrjaöir. Hassan hafði höggvið fyrr, og hitti sverðið stálhjálm Vulfs, svo hann riðaði. Hann hjó aftur til hans á skjöldinn og það svo fast, að Vulf kikn aði í hnjáliðunum. — Bróðir þinn er glataður, sagði einn af höfðingjunum Serkja, en Godvin svaraði að- eins: — Bíðið! Meðan hann sagði þetta dró Vulf sig til baka undan briðja högginu. — Hann flýr! hrópuðu Serk ir, en aftur sagði Godvin. — Bíðið! j Þeir þurftu ekki að bíða lengi, því nú kastaði Vulf nr nf 'Oqmg, LkusstáJi. Eins cg ég sagði yð- ur fyrir löngu, vissi ég að það mundi verða minn bani, er við mættumst í orustu, en nú er skuld mín greidd. Lifið heilir. hrausti riddari. Eg vildi óska þess. að við mættumst síðar í paradís. Takið nú gim steinastjörnuna, merki ættar minnar, af vefjarbelti mínu, og berið hana til minja um mig. Langir og hamingjusam ir verði lífdagar yðar. Saladín gekk síðan til hans, þar sem hann lá í faðmi Vulfs og talaði við hann, þangað til hann ,hneig aftur á bak. og var dáinn. Þannig dó Hassan, og þannig endaði orustan við Hattinn. er lauk yfirráðum kristinna manna í Austur- löndum. TSLKY um söluskattsskírteini Hinn 31. desember n. k. falla úr gildi skírteini þau, sem skattstjórar og skattanefndir hafa gefið út á árinu 1961, skv. 11. gr. laga nr. 10 1960 um sölu- skatt. Endurþýjun fyrrgreindra skírteina hefst 2. janúar n. k. og skulu atvinnurekendur snúa sér til við- komandi skattstjóra eða skattanefndar, sem gefa út skírteini þessi. Allar breytingar, sem orðið hafa á rekstri, heimilisfangi eða þ. h. ber að tilkynna um leið og endurnýjun fer fram. Nýtt skírteini verður aðeins afhent gegn afhendingu eldra skír- teinis. Eyðublöð fyrir tilkynningar um atvinnurekstur og söluskattsskírteini fást hjá skattstjórum og skatta- nefndum. Reykjavík, 30. des. 1961. Skattstjórinn í Reykjavík. W mann vantar unglinga til að bera blaðið til kaupenda um Laufásveg Freyjugötu og Óðinsgötu AFGREIÐSLA TÍMANS Sími 12323 Pantið eftir vetrarlistanum Gerizt áskrifendur aí aukablö'ðunum. Póstverzlunin Miklatorgi, Reykjavík. 14 T f M I N N, sunnudaffinn 31. desember 1961.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.