Tíminn - 10.01.1962, Side 5
)
heimilisfang
■ 'Hii.l'ii ul d.Tii-n ..I' ... .1 11;....
TTirnrmnimTnimTinnim
Undirritaður óskar að gerast nemandi í eftirtöldum námsgreinum:
□ Vinsamlega sendið gegn póstkröfu.
NDTIÐ FRISTUNDIRNAR
TIL HAGKVÆMS NÁMS
STUNDIÐ NAM I
BRÉFASKÓLA SÍS
1. Skipulag og starfshættir samvinnuféiaga: 5 bréf.
Kennslugjald kr. 100.00. Kennari er Eiríkur Pálsson, lög-
fræðingur.
ig góÁg
2. Fundarstjórn og fundarreglur: 3 bréf. Kennslugjald
kr. 200.00. Kennari er Eiríkur Pálsson.
3. Bókfærsla I, byrjendaflokkur: 7 bréf. Kennslugjald kr.
kr. 350.00. Kennari Þorleifur Þórðarson, forstjóri.
4. Bókfærsla II: 6 bréf, framhald fyrra flokks sami
kennari. Kennslugjald kr. 300,00.
5. Búreikningar: 7 bréf og bókin „Leiðbeiningar um
færslu búreikninga". Kennari er Eyvindur Jónsson, bú-
fræðingur. Kennslugjald kr. 150.00.
6. íslenzk réttritun:' 6 bréf eftir kennarann Sveinbjörn
Sigurjónsson, magister. Kennslugjald kr. 350.00.
7. íslenzk bragfræði: 3 bréf eftir kennarann Sveinbjörn
Sigurjónsson, magister. Kennslugjald kr. 150.00.
8. íslenzk málfræði: 6 bréf eftir kennarann Jónas
Kristjánsson, cand. mag. Kennslugjald kr. 350.00.
9. Enska I, byrjendaflokkur: 7 bréf og ensk lesbók.
Kennari er Jón Magnússon, fil. cand. Kennslugjald kr.
350.00.
10. Enska II: 7 bréf, auk leskafla, orðasafns og mál-
fræði. Framhald fyrra flokks, sami kennari, Kennslu-
gjald kr. 300.00.
11. Danska I, byrjendaflokkur: 5 bréf og Litla dönsku-
bókin eftir kennarann Ágúst Sigurðsson, cand mag.
Kennslugjald kr. 250.00
12. Danska II: 8 bréf og kennslubók í dönsku eftir kenn-
arann. Kennslugjald kr. 300.00.
13. Danska III: 8 bréf, svo og kennslubók, lesbók, orða-
safn og stílhefti eftir kennarann. Kennslugjald kr. 450.00.
14. Þýzka: 5 bréf þýdd og samin af kennaranum Ingv-
ari Brynjólfssyni, menntaskólakennara. Kennslugjald kr.
350.00.
15. Franska: 10 bréf, þýdd og samin af kennaranum
Magnúsi G. Jónssyni, menntaskólakennara.
16. Spænska: 10 bréf, þýdd og samin af kennaranum
Magnúsi G. Jónssyni. Menntaskólakennara. Kennslugjald
kr. 450.00.
17. Esperanto: 8 bréf. Kennslugjald kr. 200.00.
18. Reikningur: 10 bréf. Þorleifur Þórðarson kennir.
Kennslugjald kr. 400.00.
19. Algebra: 5 bréf eftir kennarann, Þórodd Oddson
menntaskólakennara. Kennslgjald kr. 300.00.
20. Eðlisfræði: 6 bréf eftir kennarann Sigurð Ingi-
mundarson, efnafræðing. Kennslugjald kr. 250.00.
21. Mótorfræði I: 6 bréf eftir kennarann Þorstein Lofts
son, vélfræðing. Kennslugjald kr. 350.00.
22. Mótorfræði II: 6 bréf um dieselvélar eftir kennar
ann, Þorstein Loftsson. Kennslugjald kr. 350.00.
23. Siglingafræði: 4 bréf. Kennari Jónas Sigurðsson.
stýrimannaskólakennari. Kennslugjald kr. 350.00.
24. Landbúnaðarvélar og verkfæri: 6 bréf. Kennari
er Haraldur Árnason. landbúnaðarvélaverkfræðingur
Kennslugjald kr 150.00.
25. Sálarfræði: 4 bréf, þýdd og tekin saman af kenn
aranum dr. Brodda Jóhannessyni og frú Valborgu Sig
urðardóttur Kennslugiald kr. 200 00.
26. Skák I, bvrjendaflokkur: 5 bréf á sænsku Kennslu-
gjald kr. 200.00.
27. Skák H: 4 bréf. Kennslugjald kr. 200.00..
>>8. Starfsfræðsla: Bókin „Hvað viltu verða“. Ólafur
Gunnarsson, sálfræðigur svarar bréfum nemenda og
gefur upplýsingar og leiðbeiningar varðandi starfs- og
stöðuval. Kennslugjald kr. 200,00.
Bréfin eru samin og svörin leiðrétt af ágætum kenn-
urum í hverri grein.
Skólinn leggur ekki til svara- og verkefnahefti, en
mælist til, að nemendur noti litlar stílabækur eða laus
blöð. Áherzlu ber að leggja á það, að ganga sem bezt
frá svörunum. skrifa greinilega og hafa spássíu l'yrir leið
réttingar. Það er góð regla að skrifa aðeins í aðra hvora
línu.
Nemandi getur tekið eina námsgrein eða fleiri eftir því
sem ástæður hans leyfa. Um Ieið og hann sækir um
kennslu í einhverri grein, sendir hann kennslu
gjaldið íyrir þá námsgrein, éða vottorð frá
Sambandsfélagi um, að hann hafi greitt því kennslu-
gjaldið, eða biður um fyrstu námsbréfasendingu £ póst
kröfu. Nemandi verður að gæta þess, að gefa upp greini-
legt heimilisfang. Nemanda eru svo send tvö fyrstu
bréf námsgreinarinnar. Hann svarar fyrst bréfi nr. 1
og sendir það til baka. Svarar bréfi nr. 2 meðan hann
bíðu eftir svari Bréfaskólans. Þegar skólinn fær svar nr.
1, sendir hann nemanda bréf nr. 3 og 1. bréf leiðrétt
Þegar skólinn fær svar nr. 2, sendir hann nemada bréf
r. 4 og leiðrétt bréf nr. 2, og svo koll af kolli, þangað til
flokkurinn er búinn. Svar við hverju bréfi verður að
vera komið til skólans eigi síðar en 3 mánuðum eftir
að bréfið var sent út. Annars verður litið svo á, að
nemandi liafi hætt námi, og hefur hann þá fyrirgert
kennslugjaldi sínu. Undanþágu frá þessu getur skóiinn
veitt, ef ætla má, að póstsamgöngur hafi hamlað, eða
nemandi hafi verið veikur Innan þessara txmatakmarka
ræður nemandi því sjálfur, hve mikill námshraði hans
er, en heppilegast er fyrir hann að svara bréfunum eins
I
fljótt og hann getur. Nýir nemendur fá inngöngu, hve-
nær sem er á starfstíma skólans.
Þegar nemandi hefur lokið námi, fær hann vottorð
um það frá skólanum Nemendur verða að skuldbinda
sig tii að sýna ekki óviðkomandi mönnum bréf skólans,
pé svör.
Bréfaskólar eru mikið notaðir erlendis. Samvinnusam-
bönd nágrannalanda okkar reka fiest bréfaskóla. Þeir
eru hentugir fyrjr fólk á öllum aldri og hvaða at-
vixlnu, sem það stundar Nemandinn getur notað frí-
stundir sínar hvenær sem þær eru, til að lesa bréfin
og svara þeim Hann ræður sjálfur að miklu leyti náms-
hraða sínum. Á þann hátt notast frístundirnar miklu
betur en í venjulegum skólum. Bréfaskólarnir hafa og
þann kost, að fólk, sem búsett er á stöðum, þar sem lít-
ið er um kennslukrafta, getur á þennan hátt notið
kehnslu færustu manna í hverri grein. Margir ágætir
menn hafa sótt menntun sína tii bréfaskóla. í ýmsum
löndum teru skólarnir orðnir svo fullkomnir, að þeir
kenna ailt, sem þarf til stútentsprófs og í sumum grein-
um tii háskólaprófs. Þetta kennsluform hefur alls staðar
reynzt mjög vel.
TAKIÐ EFTIR. — Bréfaskóli S.Í.S. veitir ungum og
gömlum, konum óg körlum, tækifæri til að nota frí-
stundirnar til að afla sér fróðleiks, sem allir hafa gagn
af. Með bréfaskólanámi getið þér bætt yður missi fyrri
námsára, aukið þekkingu yðar og möguleika á að kom-
ast áfram í lífinu. Þér getið gerzt nemandi, hvenær
ársins sem er og eruð ekki bundinn við námshraða
annarra nemanda.
Bréfaskóli S.Í.S. býöur yður velkominn.
Utanáskrift Bréfaskólans er: Bréfaskóli S.Í.S.
Reykjavík.
□ Greiðsla hjálögð (kr.