Tíminn - 11.01.1962, Blaðsíða 1
Deyja á flótta
í skolpræsum
Austur-Berlínar
Sjá 3. síðu
Þeir, sem vflja
gerast áskrif-
endur að blaðinu,
hringi í 12323
8. tbl. — Fimmtudagur 11. janúar 1962 — 46. árg.
Aldrei
á sunnu-
u
dögum
segja dómarar
Þeir sem fara á kendirí og
hafna í fangageymslunni, þeiij
fá sinn dóm (eða dómsátt), fyr-j
ir ölvun á almannafæri eins ogj
lög standa til, nema á sunnu-'
dögum.
Þannig hefur það gengið tiil
síðan fyrir áramót.
Ástæðan er deila, sem risin er',
upp milli fulltrúans, sem annast-
dómstörf varðandi þá, — sem
leystir eru úr haldi og vinnuveit-
anda, eða dcínsmálaráðuneytis-'
ins.
(Framhald á 15. síðu)
Lifandi í
fönn eftir
sex vikur
í Víðidal í Húnavatnssýslu
varð sá einstæði atburður um
miðja síðustu viku, að 2 kind-
ur voru grafnar úr fönn eftir
að hafa verið grafnar þar í
fullar sex vikur.
( f ramhald á 3. siðu.'
... sem þar á buxum ganga
Þetta er ekki orðið einleikið. í gær birtum við myndir af Skotum.sem eru aldrei glaðari en þegar þeir ganga í pilsum. — í gær barst
okkur svo þessi mynd frá Danmörku. Á henni dansar kvenfólkið í buxum. Þetta eru sem sagt Grænlendingar, sem komu 9. jar.úar
til Kaupmannahafnar og eru á leið til San Remo á ítölsku Rivier-unni, en þar stendur fyrir dyrum hátíðin Fiesta de Fiori. Hópur
inn á að sýna gamla grænlenzka dansa þar syð'ra, eins og hann gerir á þessari mynd við undirleik eins fiðlara (Ljósm.: Politiken)
GEFIZT UPP VID
HEILDARSAMNINGA
Ný saga / dag
Framhaldssagan, sem nú er að hefjast i blaðinu er eftlr skáldkonuna
Melba Malett. Sagan fjallar um ungan blaðamnn Georg Healey, sem fær
það fáránlega verkefnl að grafa upp fáeinar staðreyndir um fortíð
JOYCE DOUGLASS, ungrar og yndlslegrar eiginkonu milljónamæringslns
Harry Douglass. Georg Healey er fokvondur yfir þvi, að vera settur í svo
ómerkilegt starf. En því dýpra sem hann kafar því forvltnari og skelfd-
ari verður hann ....
Saga þessl er skemmtileg qg mjög spennandi og er ekkl að efa að
hún verður vinsæl meðal lesenda blaðsins. — Þýðinguna gerði Jóhanna
Kristjónsdóttir, og er myndin hér til hllðar af hennl.
Blaðinu barst í gær frétta-
tilkynning frá Alþýðusam-
bandi íslands um að samn-
ingar milli Sjómannasamtak-
anna innan ASÍ og LÍÚ hafi
strandað algerlega vegna þess,
að LÍÚ teldi sig skorta umboð
til að gera heildarsamninga
um skiptaprósentu á aflahlut.
Gerði samninganefnd sjó-
manna samþykkt, þar sem
kjarasamningunum er vísað
heim í hérað. — Eins og kunn-
ugt er ákveður Verðlagsráð
sjávarútvegsins fiskverðið og
eru þeir samningar óháðir
sjálfum kjarasamningunum
um skiptaprósentuna. Tilkynn-
ing ASÍ fer hér á eftir:
„Samninganefndir sjómannasam-
takanna innan A.S.Í. og L.Í.Ú.
hafa verið á fundum að undan-
förnu og rætt kjör bátasjómanna.
Hefur ekkert samkomulag náðst,
og er nú slitnað upp úr samning-
um.
Samninganefnd Landssambands
ísl. útvegsmanna tilkynnti samn-
inganefnd sjómannasamtakanna á
SJA 15. SIÐU