Tíminn - 11.01.1962, Blaðsíða 15
Stórhríð komin
við Eyjafjörð
Fréttaritari Tímans á Akur-|
eyri tjáði blaðinu í gær, að
loftvog hefði staðið óvenju
iila þar um slóðir undanfarið,
eiginlega fyrir neðan öll merki
og á sama tíma hefði veður-
stofan reynt að koma þar á
-
stórhríð. I gær voru horfur á,
að það ætlaði að takast, þvi þá
,var komin stórhríð út með
Eyjafirði og veður að versna
inni á Akureyri.
Bragginn burt í lokin
(Framhald af 2 síðu )
notkun á næsta skólaári.
Á neðri hæð hússins verður
kvikmyndasalur og konsertsalur
tónlistarfélagsins. Gömlu kvik-
myndasýningarvélarnar verða
fluttar þangað úr gamla braggan-
um, en tjaldið verður nýtt, mjög
fulíkomið Sonora extra R-tjald.
Eftir að neðri hæðin verður ko.m-
in upp, verður unnið kappsam-
lega að því, að fullgera sérstakan
einangrunarsal uppi, en þar verð
ur skóla- og kennsluhúsnæði. Sá
salur er 500 fermetrar, en kvik-
myndasalurinn tekur 500 manns
manns í sæti. Guðmundur H. Jón-
asson, sem verið hefur forstjóri
Trípólfbíós verður það áfram, en
hann hefur unnið ötullega að
byggingu nýja hússins ásamt for-
ráðamönnum tónlistarfélagsins.
Á miðvikudag og fimmtudag
efnir félagið til konserts í Austur
bæjarbíói kl. 7.15. Þar leikur
tékkne&'ki cellóleikarinn Fransi-
cek Snjptana ,en hann mun vera
ættingi hins fræga tónskálds
Tékka, Smetana, með undirleik
Árna Kristjánssonar, píanóleik-
ara. Smetana er frægasti celló-
leikari Tékka og efnisskráin mjög
fjölbreytt.
Erlent yfirlit
Kramhaio al 7 siðu
ið námi í Eton og Oxford og
var kosinn á þing nokkru fyrir
síðari heimstyrjöldina, þá 28
ára gamall. Á þingi varð hann
fljótt mjög handgenginn
Chamberlain og fór t.d. með
honum til Múnehen, er samið
var við Hitler. Hann gekk strax
í herinn, er styrjöldin brauzt
út, en kom þar lítt við sögu,
því að hann fékk berkla í hrygg
inn og var rúmliggjandi í tvö
ár. Hann missti þingsæti sitt
1945, en var aftur kosinn á
þing 1950. Eftir að íhaldsmenn
komu til valda að nýju, varð
hann ráðherra Skotlandsmála í
4 ár og síðan samveldisráð-
herra. Hann kom þó lítið við
sögu og var álitið af flestum,
að pólitískum ferli hans væri
að mestu eða öllu lokið, er
hann tók sæti í lávarðadeild-
inni. Þess vegna kom það á ó-
vart, er Macmillan gerði hann
að utanríkisráðherra. Nú þykir
hins vegar mörgíim sýnt, að
Macmillan hafi þar sýnt vel
pólitísk klókindi sín. Hann frið
aði hæðri arm íhaldsflokksins
með því, að tryggja honum
talsniann í áberandi stöðu, en
jafnframt tryggði Macmillan,
að hann væri ekki þar að ala
upp mann, sem gæti orðið hon
um hættulegur keppinautur í
flokknum. Lávarðstign Home
tryggir og Macmillan það, að
hann sjálfur getur jafnan haft
úrslitaorð, þegar rætt er um
utanríkismál í þinginu. Þ.Þ.
Færðin er óðum að þyngjast þar
nyðra. Áætlunarbíllinn fór í fyrra
dag frá Akureyri, og var þá þungt
færi í Öxnadal og á Holtavörðu-
heiði. Trukkfært er til Dalvíkur,
og í fyrradag kom bíll frá Húsavík
til Akureyrar; hafði hann farið
um Dalsmynni og var sjö tíma á
leiðinni.
Höft hér og þar
Tíminn hafði samband við Vega
málaskrifstofuna í gær, og spurð
ist fyrir um færð um landið. Fært
er frá Reyðarfirði upp á Hérað
og um Héraðið, en Oddskarð er
lokað. í fyrradag var bylur á Snæ
fellsnesi. Tveir bílar reyndu að
fara yfir Fróðárheiði, en urðu að
snúa við, og svo var kófið mikið,
að ganga varð fyrir bílunum niður
að Vegamótum. í gærmorgun fór
annar bíllinn yfir Fróðárheiði í
fylgd með jarðýtu og gekk allvel,
en hinn bíllinn fór fyrir jökul og
fylgdi honum bíll með ýtutönn.
Eina fyrirstaðan, sem vitað var
um á þeirri leið var hjá Beruvík,
en þar er vegurinn niðurgrafinn
og fullur af snjó Búlandshöfða-
vegurinn var einnig ófær í gær,
en á honum voru mest smáhöft og
stóð helzt á því að engin verk-
færi vpru tiltæk til að ryðja leið-
Aðeins tvo daga
í gær tiikynnti vegamálastjóri,
að ákveðið væri að aðstoða bíla
á Akureyrarleiðinni aðeins tvo
daga í viku, þegar ófærð er, en
það er á þriðjudögum og föstu-
dögum. Er þetta gert í samráði
við sérleyfishafa á þessari leið og
umferðadeild Póststofunnar.
'
HAPPDRÆTTIÐ
Ennþá hefur ekki verið vitjað
vinninga sem féllu á þessi
númer:
7712 I
24298
26784
892
Þetta eru allt ferðalög.
húsþakl
Akureyri, 10 .jan.
I
Eftir hádegið í dag kom varð-
skipið Þór hingað með slasaðan
mann frá Grímsey, Jóhannes
Magnússon. Hafði hann dottið of-
an af húsþaki og slasazt illa.
Vegna óveðurs er ekki flugfært
til Grímseyjar og heldur ekki
fært iitlum skipum, en Þór var
á Austfjörðum og því fenginn til
fararinnar. Ekkriiggur enn fyrir,
hve mikið Jóhannes er meiddur.
ED
Mmnismerki um
drukknaða sjömenn
Kennedy
í þinginu
NTB—Washington, 10. jan. — Á
morgun mun Kennedy Bandaríkja
forseti flytja ræðu í sameinuðu
Bandaríkjaiþingi um ástand og hag
ríkisins. Búizt er við, að Kennedy
fari þá fram á það við þingið, að
það veiti honum vald til að lækka
tolla og semja við Efnahagsbanda
lagsríkin. Sennilega mun hann
einnig biðja um stuðning þingsins
í öðrum málum, t.d. kaupum á
skuldabréfum Sameinuðu þjóðanna
fyrir 4200 milljónir króna, styrki
til skóla, og tryggingar fyrir gam-
alt fólk.
Á 50 ára afmæli Hafnar-
fjarðarkaupstaðar 1958 ákvað
þæj^rgtjqtnin að efna til sam-
fceppnirum hugmynd að minn-
ismerki drukknaðra sjómanna
í Hafnarfirði. Nýlega voru 1.
verðlaun, 30.000.00 kr., veitt
Þorkeli G. Guðmundssyni
arkitekt, Reykjavík.
Dómnefndin auglýsti eftir til-
lögum 15. marz 1959, en þar eð
hún var ekki ánægð með þátt-
töku, gaf hún lengri frest. 6 til-
Sjávarföll
í stokknum
| lögur bárust, fyrstu verðlaun
hiaut Þorkell fyrir hugmynd sína,
Siglingu, en önnur verðlaun
: (15.000.00) Guðmundur Einars-
son, myndhöggvari og þriðju hlaut
Gerður Helgadóttir (5.000.00).
í dómnefndinni áttu sæti Björn
; Th. Björnsson listfræðingur, Ei-
ríkur Smlt.h listmálari, Friðþjófur
Sigurðsson mælingamaður, Val-
garð Thoroddsen yfirverkfræð-
ingur og Friðrik Á. Hjörleifsson
sjómaður.
Fyrstu verðlaun voru veitt ein-
róma, sagði Stefán Gunnlaugsson
bæjarstjóri, við verðlaunaafhend-
inguna. Þorkell gerir ráð fyrir, að
minnismerkið verði um 4,60 m á
hæð, en ekki er ólíklegt, að það
verði yfir 5 m., þegar það verður
reist.
Myndinni hefur ekki enn verið
ákveðinn staður, en það verður
sennilega áður en langt um líður.
Blaðið hafði í gær samband
við Helga Sigurðsson, hita-
veitustjóra, og spurði hann
um sannindi þess orðróms, að
saltið af götum bæjarins hefði
valdið skemmdum á hitaveitu-
kerfinu. Kvað hann það á mis-
skilningi byggt, en samt
hefðu orðið skemmdir af salti,
en það hefði komið neðan frá
en ekki að ofan.
Svo sem skýrt var frá í blaðinu
í gær, bilaði hitaveituleiðslan í
Lækjargötunni iskyggilega oft í
fyrradag. Sagði Helgi, að orsökin
til þess væri sú, að þegar vatns-
þétti stokkurinn utan um leiðsl-
una var gerður, var settur á hann
6 tommu víður stútur niður í möl-
ina undir stokknum, án þess að
íorráðamönnum hitaveitunnar væri
um það kunnugt.
Gætti sjávarfalla
Vegna þess, hve stokkur þessi
liggur lágt, gætti sjávarfalla í hon-
j um upp um stútinn, og komst
Isjávarselta i stokkinn. Stúturinn
, uppgötvaðist þó ekki, fyrr en
. leiðslan bilaði yfir honum, og var
| stútnum þá lokað. Má nú heita, að
| leiðslan í Lækjargötunni hafi
i öll verið endurnýjuð, og er nú
einangruð með froðuplasti í stað-
S inn fyrir rauðamöl áður. — Svipað
Igerðist í Pósthússtræti fyrir
I nokkru, en Helgi hélt, að tekizt
hefði að komast fyrir þá skemmd.
Aðeins í brunnana
Helgi taldi, að útilokað væri að
I salt af götunum gæti komizt í
j stokkana, nema í svokölluðum
| brunnum, sem eru til þess að kom-
ast að og loka leiðslunni. Og þar
j væri tæringarhættan lítil, því nið-
urfall væri á brunnunum og úti-
lokað að saltið kæmist inn í stokk-
inn.
| Skemmdir á aðalleiðslum hita-
veitunnar hafa eklci verið mjög
miklar að undanförnu, en talsvert
'um skemmdir á heimleiðslum.
Aldrei á sunnudögum
(Framhald af 1 siðu I
Blaðinu tókst ekki að afla tæm-
andi upplýsinga um málið í gær,
fulltrúinn mun hafa neitað að
inna þetta verk af hendi utan
vinnutíma fyrir ekki neitt. Enn
sem komið er mun ekki hafa geng
ið saman með deiluaðilum.
Fangar eru því leystir út á
sunnudögum án frekari refsingar
að sinni, nema um meiri háttar
afbrot sé að ræða, en þá eru þeir
fluttir í steininn.
Transistortæki
stolið
91.
Um helgina var stolið transistor-
útvarpstæki í Radíóbúðinni á
Klapparstíg 26. Tækið er af Norm-
ende-gerð, tvílitt. grátt og dökk-
grátt og lítið um sig. Rannsóknar-
lögreglan biður menn að láta vita
ef þeir kynnu að gefa einhverjar
I upplýsingar um þennan stuld.
t siðustu viku, sennilega á föstu-
dagsnóttina, var stolið heimasmíð-
juðum hraðbát, átta feta löngum,
! rúnnuðum framan. með uggum.
Báturinn stóð úti við Ármúla
j 14. Hann er smíðaður úr alúmíní-
um á trégrind, ómálaður, gerður
fyrir utanborðsmótor. Rannsóknar-
i lögreglan biður rhenn að hafá auga
Imeð slíkurn gripum.
Engir heildarsamningar
(Framhald af 1 síðu).
fundi þann 9. þ.m., að hún hefði
ekki urnboð frá stjórn L.Í.Ú. til
að ræða u;m fimm fyrstu liði af
tillögum sjómannasamtakianna
um breytjngar á kjarasamningum
bátasjómanna.
Á fundi samninganefndar sjó-
mannasamtakanna innan A.S.Í.,
sem haldinn var í morgun, 10. þ.
m., var af þessu tilefni bókuð
eftirfarandi samþykkt:
„Með tilliti til þessarar afstöðu
stjómar og samninganefndar L.
Í.Ú.t.elur nefndin ,að þar með sé
komið I veg fyrir, að hægt sé að
koma á heildarsamningum svo
sem undirbúið hefur verið og
sjómannaráðstefnan í október s.l.
lagði til að gert yrði. Samþykkir
nefndin því að skýra félögunum,
sem aðild eiga að bátakjarasamn-
ingunum, frá þessuim málavöxt-
um og hvetja þau ti,l að taka nú
þegar upp samninga við útgerðar-
menn hvert sínu.m stað, eða fleiri
saman, um kjör sjómanna á vél-
bátum á grundvelli þeirra til-
lagna, sem sameiginlegar nefndir
hafi undirbúið og sent félögun-
um“.
Samþykkt þessi var gerð með
samhljóða atkvæðum allra við-
staddra nefndarmanna.
TÍMINN, finimtudaginn 11. janúar 1962.