Tíminn - 24.03.1962, Qupperneq 3

Tíminn - 24.03.1962, Qupperneq 3
Það rflcti mikil gleði meðai Ser'k.ia í Alsír, þegar vopna- liléið við Frakka var undirrit- að. Spjöld voru límd upp á veggi til þess að fagna friðin um. Var á þeim mynd af frönsku og serknesku barni saman, pg yfir stóð: Fyrir börnin okkar. Það væri samt synd að segja, að frið^mlo.gra hafi orðið í borgym vopnahléið, því OAS hefur hafið styrjöld. ALGEIRSBORG EINS OG EFTIR LOFTÁRÁS NTB—Algeirsborg, 23. marz. Yfir bænum lá hnaus- þykkf rykský, göfurnar voru þaktar trjábúfum, steypubrofum og bílaflök um og múrhúðunin á hús veggjunum var skafin í burtu ' a? vélbyssuskot hríð. Franski herinn skreiddist á brynvögnum meS hvæsandi skothríð um OAS-hverfið Bab el Oued í Aigeirsborg, átta sprengjuþotur sveimuðu yfir og gerðu við og við loftárásir á sæg leyniskyttna OAS, sem skutu á hermennina af hús- þökum, svölum, gluggum og öðrum felustöðum. 3 í Algeirsborg stóð í dag yfir blóðug styrjöld OAS-manna við ijer og lögreglu. Átökin voru hörðust í Bab el Oued. Borgar- hlutinn skalf af vélbyssuhneggi, sprengingum og skriðdrekadrun um. Gegnum það heyrðist svo stöðugt skerandi væl í sjúkrabíl- unum, sem þeyttust fram og aft ur með særða og látna. Eins og eftir loftárás Allur borgarhlutinn leit út eins og eftir loftárás. Gluggarnir brotnir, dyrnar af, húsin hrunin og bilarnir í kássu. Bardagarnir jukust eftir því sem leið á daginn og veittu OAS- menn harðvítugt viðnám. Þeir hófu bardagann snemma í morg un, þegar öryggislögreglan var að setja upp gaddavírsdræsur yfir göturnar umhverls Bab el Oued. OAS-mennirnir gerðu skyndi- árásir á hermenn og neyddu þá til að afhenda vopn sín. Þeir réðust einnig á alla einstaka Serki, sem urðu á vegi þeirra, og skutu þá niöur. OAS setti upp vegatálmanir í borginni og skoðaði skilríki allra, sem fóru framhjá. 180 milljónum rænt Samtímis gerðu öryggissveit- irnar víðtæka skyndihúsleit, „Látið okkur í té 'NTB—Geneve, 23. marz. Utanríkisráðherrar kjarn- orkuveldanna þriggja héldu allir ræður á afvopnunarráð- stefnunni í Geneve í dag. Kom ekkert nýtt fram í ræðum þeirra nema hjá Home lávarði frá Bretlandi, sem skoraði á Sovétríkin að leyfa Vestur- veldunum að eignast undra- tækin, sem Sovétríkin hlytu að eiga til að mæla kjarnorku- sprengingar, úr því að þau halda því fram, að eftirlit sé óþarft. Home lávarður hélt því fram, að mjög erfitt væri að skera úr um, hvort um kjarnorkusprengingu eða jarðskjálfta sé að ræða, með þeim tækjum, sem nú eru til á Vestur- löndum. Ef Sovétríkin eiga mælingatæki, sem eru svona miklu betri en okk- ar, þá vil ég biðja Gromyko um, að við fáum að nota þau, til þess að samkomulag náist um bann við tilraunum með kjarnorkuvopn, sagði Home. Meðan tæki okkar eru eins og þau eru, verðum við að krefjasl virks eftirlits með að banninu verði fylgt. Ekki lifa í ótta Rusk frá Bandaríkjunum skoraði ákaft á Sovétrikin að breyta af- stöðu sinni til afvopnunarmálsins, svo að strax verði unnt að hindra kjarnorkuvopnatilraunir eilíflega. í langri ræðu sinni sagði Rusk, að höfuðatriði stefnu Bandaríkjanna í málinu væri, að loforðin, sem rík- in takast á hendur við samnings- gerð um tilraunabann, verði bund- in virku og alþjóðlegu eftirliti, svo að menn þurfi ekki að lifa í ötta r.m, að þau verði svikin. Eftirlit aðeins yfirskin Gromyko frá Sovétríkjunum svaraði og .sagði, að viðræðurnar í undirnefndinni hefðu strandað á því, að Vesturveldin hafi krafizt að koma á fót njósnakerfi undir því yfirskini, að um eftirlit væri að ræða. Hann sagði einnig, að Sovétríkin hefðu ekki áhuga á eftirliti í Bandaríkjunum og Bretlandi, ef Frakkland verður ekki með lika, því Frakkland er meðlimur í NATO. Gromyko sagöi, að það mundi gera ástandið enn verra, ef Banda- ríkin gerðu alvöru úr hinni hættu- legu hótun sinni um að gera nýjar tilraunir með kjarnorkuvopn. Ilann neitaði því, að samningur væri til um bann, og því hefðu Sovétríkin verið í fullum rétti með tilraunir sínar í september í haust, sem hefðu aðeins verið svar við fyrri tilr'aunum Vesturveldanna. fundu miklar vopnabirgðir og handtóku nokkur hundruð manns. Meðal annarra var einn af leiðtogum OAS handtekinn. Um kvöldið varð aftur kyrrt í Bab el Oued, en brunabílarnir höfðu nóg að gera við að slökkva elda. í næturkyrrðinni hóftjst síðan bardagarnir aftur eftir tveggja stunda hlé. OAS-hópur rændi í dag í banka í Oran, peningum að upp hæð yfir 180 milljónum íslenzkra króna. Yfir hundrað Serkir hafa ver- ið drepnir í bardögum þjóðern- issinnaðra Serkja við serkneska sjálfboðaliða í franska hernum í Saint-Denis du Sig í vestur- hluta landsins síðan um helg- ina. í dag voru nokkrir Serkir í sjálfboðasveitunum drepnir, er þeir reyndu að flýja yfir til OAS. Bæld niður miskunnarlaust De Gaulle Frakklandsforseti (Fran.h a ið slðu KENNEDY UM GEIMSAMVINNU NTB—Berkeley, 23. marz.— Kennedy sagði í dag, að sam vinna milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna í geimrann sóknum mundi hafa mikið gildi og sennilega stuðla að friði í heiminum. Hann lýsti yfir ánægju sinni með, að Krustjoff skyldi hafa tekið vel í tillögu sína um sam- vinnu í geimrannsóknum. Kennedy vakti athygli á því, að kommúnistaríkin virt ust nú svartsýnni en Vestur veldin í fyrsta skipti. Þau ættu í erfiðleikum í innan- iandsmálum og einnig væri sundrung þeirra í millum. NORRÆN SAMVINNA NTB—Helsinki, 23. marz. — í dag var undirritaður á 10. þingi Norðurlandaráðs samn ingurinn um víðtæka nor- ræna samvinnu. Af hálfu íslands skrifuðu Bjarni Benediktsson dómsmálaráð- herra undir. MILLIGÖNGUMAÐUR NTB—Buenos Aires, 23. marz. — Frondizi forseti bað í dag Pedro Aramburo, fyrrverandi forseta, að ger- ast milligöngumaður í stjórn málaöngþveitinu í Argen- tínu. Verkfall Peronista mis tókst í Buenos Aires, en tókst í nágrenninu. Það átti að standa yfir í 24 stundir. í Buenos Aires gekk allt sinn vana gang í dag, en stjórnin greip til ýmissa ör- yggisaðgerða. KÚBUTILLAGA FELLD NTB—New York, 23. marz. — Öryggisráð S.þ. felldi í kvöld, að Alþjóðadómstóll- inn í Haag skyldi taka fyrir, hvort efnahagsaðgerðir Bandaríkjanna og fleiri ríkja gegn Kúbu séu iögleg ar. Sjö ríki voru á móti til- lögunni, tvö með, en tvö greiddu ekki atkvæði, Ghana og Egyptaland. 1 3 T I M I N N, laugardagur 24. marz 1962.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.