Tíminn - 24.03.1962, Blaðsíða 16
8 voru tekin
fyrir afforot
Rannsóknarlögreglan i
Reykjavík hefur nýiega lokið
rannsókn á umfangsmiklum
þjófnaðarmálum í Reykjavík
Verður Regína
að éta kæfuna
Morgunblaðið getur státað af
ýmsu, meðal annars að hafa á
sínum snærum einhvern mesta
furðufugí í hópi fréttaritara
landsins, Regníu á Gjögri. Moggi
er löngu hættur að taka Stranda
Regínu alvarlega, og prentar eft-
ir henni hinar fráleitustu vit-
leysu, eins og þá að Árneshrepps
búar séu að „verða rauðir af
rauðmagaáti, því að rauðmaginn
er nú óseljanlegur til SíS“. Ekki
fylgir sögunni hvort Regína hef-
ur skoðað alla hreppsbúa að
beiðni Mogga, og heldur er ekki
vitað hvar rauðinn sækir helzt
á Regínu og aðra, sem við þenn-
an kost verða að' búa. í sama
blaði og sama dag, 21. marz er
önnur Regínu-frétt, þar sem
. segir:
„Hermann hættir nú for-
mennsku í Framsóknarflokkn-
um,- og allir búast við því að
hann verði ekki í framboði við
næstu alþingiskosningar. Jafn-
framt hef ég heyrt að Hermann
hafi tilkynnt bændum hér um
slóðir, að hann muni alls ekki
selja fyrir þá kæfu og sláturaf-
urðir framvegis. Er þetta mikill
skaði fyrir bændur ....“ o.s.frv.
Þannig veður Stranda-Regína
elginn ár og síð í Morgunblað-
inu með hinar fáránlegustu frétt-
ir. Annan daginn verða sveit-
ungar hennar rauðir af rauð-
magaáti — hinn líklegast bláir
af rollukæfu.
SJÖNVARP FRÁ
GERVmjNGLUM
og þjófnaðar og brunamáli í
Svínahrauni. Koma þar alls
átta menn við sögu, karlar og
konur.
í vetur var nokkrum sinnum
brotizt inn í geymslu bókaverzlun-
ar Norðra i Hafnarstræti 4. Var lé-
legur lás fyrir- hurðinni þar, svo
hægt var að stinga hann upp og
loka aftur án þess að vart yrði
hverju sinni. Þarna var stolið 75
lindarpennum, 35 settum af teikni-
áhöldum og lítils háttar af blýönt-
um og öðru smádóti.
Brotizt víðar inn
Gamall kunningi lögreglunnar,
27 ára að aldri, hefur nú meðgeng-
ið þennan þjófnað og þó fleiri.
Hann brauzt einnig inn í heild-
verzlunina Brimnes í Mjóstræti 3
og heildverzlún Eiríks Helgasonar
á sama stað, og þá við annan mann.
Hjá Eiríki stal hann transistor út-
varpstæki og í Biimnesi 26 dúsín-
um af nælonsokkum og 18 karl-
mannaskyrtum. Og loks brauzt
hann inn i Kápu- og dömubúðina á
Laugavegi 46 og hafði þaðan með
sér kvenfatnað fyrir 8—10 þús,
krónur. Þá hafði hann stolið fyrir
samtals um 100 þúsund krónur.
Svo komst þriðji maðuiinn í spilið,
því að hann annaðist sölu á þýfinu,
sem nú hefur náðst mest allt aftur,
og sitja kaupnautarnir eftir með
sárt ennið, því sá sem kaupir þýfi
af þjófi fær engar bætur, þegar
lögreglan gerir þýfið upptækt.
Eldur í hrauninu
Aðfaranótt 29. september s.l. var
farið inn í sjoppu, sem stóð við
vegamót Þrengslavegar í Svína-
hrauni og einhverju stolið þar, en
síðan brann sjoppan, sem bar
nafnið Litia kaffistofan. Nú hafa
fimm ungmenni játað á sig inn-
brot í húsið, tveir piltar og þrjár
stúlkur, öll innan við tvítugt.
Bruninn mun þó hafa verið óvilja-
verk, sem þau höfðu ekki hugmynd
um fyrr en síðar. ^
WASHINGTON, 22. marz —
USIS. — f ráði er að Banda-
ríkjamenn skjóti á loft 8 hag-
nýtum gervitunglum á þessu
ári. Það fyrsta, sem skotið verð
ur á loft, á að geta endurvarp-
að sjónvarpsdagskrá milli
Bandaríkjanna og Evrópu.
Stuttar sjónvarpssendingar
verða sendar beggja megin frá
Atlantshafsins um tvö endur-
varpstungl og þrjú gervitungl
af gerðinni Telstar, verða þau
öll sett á loft á þessu ári, hið
fyrsta einhvern tíman á næst-
unni.
Sérstakar, aflmiklar sjón-
varpsstöðvar beggja vegna hafs
ins, í Bandaríkjunum, Englandi
og Frakklandi munu senda út
dagskrárnar og taka á móti
þeim, en það er aðeins liægt
að gera í fáar mínútur, á með
an gervitunglin eru á ferðinni
liátt yfir hafinu miðja vegu
milli Bandaríkjanna og Evrópu.
Brezkar og franskar stöðvar
eiga síðan að senda hið banda-
ríska sjónvarpsefni inn á heim-
ili um alla Vestur-Evrópu. Sér-
. staklega til þess gerðar stöðvar
á Austurströnd Bandaríkjanna
taka á móti sendingunum frá
Evrópu, og endurvarpa þeim
um Bandaríkin.
Ítalía, Vestur-Þýzkaland og
Brasilía, sem eru að byggja
stöðvar á jörðu niðri, ætla að
taka þátt í þessari starfsemi síð
ar á þessu ári eða á næsta ári.
Stöðvar á jörðu niðri eru nauð
synlegar við útsendingar sem
þessar, þar eð sendingarnar
verða veikar, en liávaðasainar
á leið til jarðar frá gervitungl-
unum. Það er því verk stöðv-
anna, að lækka hávaðann og ná
út tæru hljóði, og senda merk
in með fullum krafti.
Endurvarpsgervitunglið, sem
hér um ræðir, er 74 sentimetra
átthymt tæki, sem inniheldur
lítil elektrónísk tæki, sem taka
upp, magna og scnda aftur
merkin frá sjónvarpsstöðvun-
um. Tunglinu verður skotið upp
í 4.800 km. hæð með Delta eld
flaug og kemst það þar á spor
braut umhverfis jörðu. Það veg-
ur 58 kg., og liefur verið búið
til fyrir fjármagn, sem stjórnin
hefur látið í té.
Telstar er fyrsta gervitunglið,
sem framleitt er fyrir einkafjár
magn, og er það 77 kg. Því verð
ur skotið á baug í 8000 km.
hæð. Báðar þessar tegundir
tungla geta enzt í 6 mánuði, og
eru þau aðeins til reynslu og
fyrirrcnnarar annarra fastra
endurvarpsstöðva úti í geimn-
um.
TIL AFLIFUNAR
SS BIFREIÐ
Sláturfélag Suöurlands hef-
ur nú tekið upp þann hátt að
senda bíl út um sveitir til að
sækja stórgripi og sláturfé
bænda á félagssvæðinu. Síðan
eru gripirnir fluttir til Reykja-
víkur, þar sem þeim er slátrað
í fullkomnu sláturhúsi. Þykir
þessi aðferð gefast vel. Félagið
fær betra kjöt, og bændur
losna við fyrirhöfn vegna
heimaslátrunar, en kostnaður
félagsins er tiltölulega lítill.
Blaðið spurðist fyrir um þetta í
gær hjá Vigfúsi Tómassyni, yfir-
verkstjóra SS. í sumar var byrjað
á þessu, þegar farið yar að sækja
fé í sumarslátrun á bíl, en þegar
haustslátrun lauk var tekið að
KOMIÐILAG CFTIR FLOÐIN
Tveir meiðast
í bíislysi
Selfossi, 23. marz.
í gærkvöldi var lögreglan kvödd
á slysstað, er tveir ungir menn
veltu jeppa og slösuðust skammt
austan við Gaulverjabæjarafleggj-
ara. Höfðu þeir fengið lánaðan
jeppann X 869, en er þeir komu
nokkuð austur fyrir mjólkurbúið,
stukku hestar upp á veginn fram-
an við bílínn. Ökumanninum fat-
aðist stjórn á jeppanum með þeim
afleiðingum, að hann fór út af og
etaðnæmdist á hvolfi. Annarl pilt-
lí'rainhald á 15. siðu;.
Eins og kunnugt er, urðu mik
il flóð á svæðinu kringum Ham-
borg 16. febrúar s.l. Talið var,
að miklar skemmdir hefðu orðið
á samgönguleiðum við Hamborg
og að flóðin hefðu haft mikil
áhrif á allt viðskiptalíf í borg-
inni og við hana. Eru þetta tald-
ar ýkjur, og hefur Verzlunarráð
Hamborgar gefið út yfirlýsingu
um málið. I yfirlýsingunni segir,
að aðeins þeir hlutar Hamborg-
ar, er liggja suður af miðborg
inni niður meðfram Elbe hafi
orðið fyrir skemmdum af völd-
um flóðanna.
Bæði þýzkir og erlendir hjálp
armenn hafa tekið þátt í því að
lireinsa burt rusl af flóðasvæð
inu og að byggja upp aftur það,
sem eyðilagðist. Og nú má segja,
að líf og starf sé aftur komið í
samt lag.
Flest iðnfyrirtæki á þessu
svæði hafa nú tilkynnt, að þau
hafi tekið upp aftur fyrri starf-
semi sína. Annars staðar í Ham
borg héldu fyrirtæki áfram
framleiðslu á meðan á flóðun-
um stóð, eftir að gert hafði ver-
ið við rafmagnsbilanir af þeirra
völdum.
Flóðin töfðu nokkuð fyrir
skipaferðum, en vegir og járn-
brautir, sem eyðilögðust, hafa
nú verið bættir að nýju. Öll inn-
flutnings- og útflutningsfyrir-
tæki gátu haldið haldið áfram
starfsemi sinni þrátt fyrir flóð
in, og má því segja. að bæði iðn-
aður og verzlun fari nú fram með
sama hraða og áður en flóðin
urðu.
sækja stórgripi á bíl. Við þetta hef-
ur verið notaður einn og sami bíll-
inn, 5 tonna austur-þýzkur IFA,
sem þó er mikið búið að breyta,
skipta um vél o. fl., en bíllinn er
yfirbyggður og mjög vel loftræstur.
Deildarstjórarnir safna
Deildarstjórar SS á félagssvæð-
inu safna upplýsingum um, hvaða
bændur vilja láta slátra hvaða
gripum á hverjum tíma, en þegar
nógu margir gripir bíða slátrunar,
hafa þeir samband við félagið í
Reykjavík, sem sendir þá bílinn af
stað eftir þeirra tilvísun. Safnast
gripirnir oft fljótt, þegar kannske
er um 1—2 að ræða á hverjum bæ.
Til þessa hafa verið fluttir slátur-
gripir á bílnum allt ofan úr Mela-
sveit í Borgarfirði og austur í
Landeyjar, en félagssvæðið nær
yfir Borgarfjarðarsýslu, Gull
bringu- og Kjósarsýslu, Arnes-,
Rangárvalla- og V.-Skaftafellssýslu.
Gripirnir eru eingöngu sóttír til
félagsmanna, en flestir bændur á
þessu svæði munu reyndar vera
það.
Allra hagur
Þetta fyrirkomulag hefui mæizt
einkar vel fyrir hjá bændum, sem
margir eru fáliðaðir og hafa slæma
aðstöðu til heimaslátrunar. Auk
þess hefur heimaslátrun löngum
verið þyrnir í augum félags- og
heilbrigðisyfirvaldanna, en á
riæstunni verður þetta fyrirkomu-
lag eflaust, fastur liður í starfsemi
SS og er reyndar orðið það nú
þegar. Bændur láta með þessum
hætti slátra búpeningi sínum í góð-
um sláturhúsum og losna við ó-
þægilega fyrirhöfn, en kjötgæðin
verða um leið meiri. — SS-bíllinn i
hefur fram að þessu sótt bæði sauð
fé, hesta, svín og nautgripi, jafn-
vel kálfa til þeirra félagsmanna ’
sinna, sem þess hafa óskað.
Nýr bátur
til Eyja
Nýlega var hleypt af stokkun
um nýjum báti í Vestmanna-
eyjum nefnist hann Haraldur
SF 70, og er eign H.f. Haralds
á Hornafirði.
Haraldur er smíðaður hjá
Skipaviðgerðum h.f. í Vest-
mannaeyjum. Hann er byggð
ur úr eik, 36 lestir með 235
hestafla Rolls Roycs vél.
Teikningar gerði Bárður G.
Tómasson, yfirsmiður var
Ólafur Jónsson, en vélaverk
stæðið Völundur í Vestmanna
eyjum sá um uppsetningu
véla.
Haraldur var smíðaður í
húsi og var í dag aðeins sett
ur út úr því, á morgun verður
látið á hann vélahúsið, en á
sunnudag verður hann síðan
settur á flot., Ráðgert er, að
báturinn fari til Hornafjarðar
um næstu mánaðamót, og
verður gerður ut þaðan. Skip
stjóri á Haraldi verður Gústaf
Sigjónsson. S.K,
sa
Spilakvöldi
frestað
Spilakvöldi fyrir ung-
linga, sem haldið er á
venju að vera á laugar-
venju að vera á laukar-
dagskvöldið, er frestað
til sunnudagskvölds 25.
marz og hefst þá klukk-