Tíminn - 30.03.1962, Qupperneq 4

Tíminn - 30.03.1962, Qupperneq 4
ÚTGEFANDI: SAMBAND UNGRA FRAMSÓKNARMANNA TÍMINN, föstudagur 30. marz 1962. RfTSTJÓRI: HÖRÐUR GUNNARSSON Hér á síðunni birtum við nokkrar myndir frá spila- kvöldi í Spilaklúbb F.U.F. Þær voru teknar s.l. sunnudags- kvöld í Tjarnargötu 26. Þessi spilakvöld eru haldin einu sinni í viku fyrir unglinga á aldrinum 12—17 ára og eru einn liðurinn í þróttmiklu unglingastarfi F.U.F. Heildar- verðlaun eru í boði, og er keppt um þau á fimm spila- kvöldum. Þegar spilamennsku lýkur hvert kvöld, er dansað til kl. 12, og leika þá hljóm- sveitir unglinga úr gagnfræða- skólunum í bænum. Næsta spilakvöld verður á laugar- dagskvöldið, og leikur þá hljómsveit úr Hagaskólanum fyrir dansi. Þessir dansleikir í Tjarnargötu 26 standa aðeins til kl. 12, og er þar gætt ýtr- ustu reglusemi. — Á myndinni efst til vinstri sést stjórn klúbbsins, talið frá vinstri: Sveinn Grétar Jóns- son, formaður, Ingibjörg Jó- hannsdóttir, Þorkatla Þorkels- dóttir og Axel Axelsson. Á myndinni efst til hægri spilar hópurinn af miklum áhuga og leggur höfuðið í bleyti, og einn og einn foryit- inn spilamaður lítur um öxl til að gá, hverjir séu mættir. — Hún er viðsjál, spilamennsk an, eins og sjá má á svip þeirra tveggja, nei fjögurra, sem spila á miðri síðu. Veikara kynið virðist vera búið að taka sínar ákvarðanir, en skyldi það ekki vefjast fyrir piltun- um enn um stund, hvort þeir eiga að fleygja ás eða tvisti. \ Á neðstu myndinni sér yfir ! hópinn. Þeir eru í sjöunda himni, þessir ungu spilagarp- ar í Tjarnargötu 26, og hver (Framhald á 15. síðu) I

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.