Tíminn - 12.04.1962, Síða 12
% ||i!
fjöískrúðuga matseðli Hábæjar, en henni fylgdi spakmæli þess efnis, a'ð það sæist
leggði sér til munns.
Þessi mynd var utan á hinum
hver maðurinn væri á því, sem hann
Fyrsta veizlu-
húsið opnað hér
Sæmdur gull-
merki K.S.Í.
Björgvin Schram, formaður K.
S. í., hefur verið sæmdur gull-
merki knattspyrnusambandsins.
Björgvin hefur átt sæti í stjórn
K.S.Í. frá upphafi og verið for-
maður þess í sl. 8 ár. Hefur Björg
vin unnið af mikilli alúð og elju-
semi ag málefnum knattspyrnu-
íþróttarinnar hér á landi á und-
anförnum árum og átt drýgstan
þátt í samskiptum okkar við aðr-
ar þjóðir á þessu sviði.
Björgvin var afhent gullmerkið
á 400. fundi sem hann sat í stjórn
K.S.Í. nú fyrir skömmu.
Það er farið að vekja athygli
erlendis, hversu Reykjavík er
vel búin klúbbum og skemmti
stöðum. Og enn hefur góður
staður bætzt í hópinn, sem er
Hábær, veizluhús að Skóla-
vörðustíg 45. Hábær mun vera
fyrsta veitingahúsið hér á
landi, sem einvörðungu er ætl-
að að hýsa veizlur manna,
gestaboð og lokaða fundi.
Veitingastjórinn í Hábæ er
Kristján Sigurðsson, kunnur veit
ingamaður, og lærður í hótelskóla
í Lausanne í Sviss. Hann var um
tíma með Hótel KEA á Akureyri.
Eldunarmaður er Hallbjörn Þórar-
insson, sem var áður í Nausti og
síðan Klúbbnum.
Frétamönnum var boðið til há-
degisverðar í Hábæ, þegar veizlu
húsið var opnað síðastliðinn mánu
dag. Einnig voru viðstaddir þeir
Sveinn Kjarval arkítekt og Helgi
Bergsson, framksvæmdarstjóri
Húsbúnaðar h.f. Þetta er fyrsta
innanhúsgerð, sein unnin hefur
verig að öllu leyti af fyrLrtækinu,
en Hábær er mjög vistlegur stað
ur.
Húsakynni eru smekkleg og
þægileg og minna frekar á góð
einka-híbýli en veitingahús, enda
er það tilgangur eigenda Hábæjar
ag taka eingöngu að sér lokaðar
veizlur og fundi fyrir einstakl-
inga, fyrirtæki og félög þar sem
menn geta verið algjörlega út af
fyrir sig án minnstu truflunar.
Salarkynnin eru á tveimur hæð
um: á neðri hæð er vínstúka, setu
stofa og borðsalur og er þar rúm
fyrir 56 manns, á efri hæð er sal
ur fyrir fundi og samkvæmi sem
tekur allt að 16 manns og fylgir
þeim sal einnig setustofa.Eldhús,
búr og vinnusluiherbergi eru á
jarðhæð.
Þykir innrétting og smíði alls
húsbúnaðarins hafa tekizt með
'afbrigðum vel, en Sveinn Kjarval
arkitekt teiknaði og sá um smíði
þess á vegum Húsbúnaðar h.f.
Sundmót í kvöld
Vekja siim húsgögnin athygli
svo sem hið glæsilega sporöskju-
laga mat- og fundarborð á 2. hæð
en við það rúmast 16 manns. Er
þag forkunnarfögur smiði og al-
veg einstakt 1 veizlusölum hér.
Óvenjlegt er það einnig hvernig
ljósastæði og leiðslur eru notaðar
sem skreyting. í vínstúkunni, sem
er úr brendum viði og borðið
klætt að framan meg kálfaskinn-
um er einnig stórt upplýst skraut
fiskaker til augnayndis. Teppi
eru á öllum gólfum nema í mat-
sal á 1. hæð þar sem er klætt
parket. í Hábæ er lögð mikil á-
herzla á ag framreiða góðan- mat
við hæfi og eftir óskum viðskipta
vina og er matsveinninn vel kunn
ur fyrir störf sín.
Slíkir veitingastaðir sem Há-
bær eru víða erlendis og þykja
ómissandi og mun eigandinn hafa
kynnzt þeim náið í Sviss og víðar.
Eru likindi til, að félög og fyrir-
tæki fagni því að eiga kost á að
halda fundi og veizlur algjörlega
út af fyrir sig og í umhverfi, sem
helzt minnir á einkahúsnæði,
enda hafa þegar borizt pantanir
frá slíkum aðilum um veizlur og
fundi enn fremur fermingar og
afmælisveizlur. Jafnframt áður-
nefndri starfsemi rekur fyrirtæk-
ið HÁBÆJARELDHÚSIÐ sem
tekur að sér að útbúa hvers konar
veizlur fyrir menn í heimahúsum
og sendir út heita rétti, „kalt
borð“, smurt brauð, snittur.
Á TUNNUM
í gær tók 13 ára drengur
tvær tunnur úti við Skerja-
fjörð, batt þær saman og
lagði síðan á haf út. Straum-
ur var frá landi, og rak
drenginn út á fjörðinn, en
ekki leið á löngu, þar til
sást til hans og lögreglunni
var gert viðvart. Lögreglan
fór þegar á staðinn og á-
samt mönnum, sem voru að
vinna þarna, tók liún bát
traustataki og reri lífróður
lít til drengsins, sem þá var
kominn 3—400 metra frá
landi. Og um Ieið og björg-
unarmennirnir náðu taki á
drengnum, losnuðu tunnurn
ar sundur og flutu sín í
hvora áttina, svo að ekki
mátti tæpara standa, að sá
litli færi í sjóinn. Þegar bát-
urinn kom aftur að landi,
voru ættingjar drengsins þar
komnir, og tóku við piltin-
um, sem ekki varð meint af
volkinu.
SAMSÖNGUR FOSTBRÆDRA
Karlakórinn Fóstbræður
efnir nú á næstunni til hinna
árlegu samsöngva fyrir styrkt-
arfélaga sína. Verða þeir að
þessu sinni haldnir í Fríkirkj-
unni og efnisskráin að veru-
legu leyti andleg tónlist. Viða-
mesta viðfangsefni kórsins að
þessu sinni verður flutningur
lokaatriðanna úr báðum þátt-
um óperunnar Fidelio eftir
Beethoven, en það var eina
óperan, sem Beethoven
samdi. Lokaatriði fyrsta þáttar
fluttu Fóstbræður 1955 á
fyrsta starfsári Ragnars
Björnssonar með kórnum. Nú
verður lokaatriði annars þátt-
ar óperunnar einnig flutt á
vegum Fóstbræðra, og taka
þátt í þeim flutningi 7 ein-
söngvarar og 70 manna bland-
aður kór með undirleik píanós
og orgels Fríkirkjunnar.
Fyrsti samsöngurinn verður í
Fiíkirkjunni laugardaginn 14.
apríl kl. 5, en tveir hinir síðari
mánudaginn 16. apríl kl. 19.15 og
kl. 21.15. Þessir samsöngvar eru
einkum fyrir styrktarfélaga kórs-
ins, en takmarkaður fjöldi að-
göngumiða að síðasta samsöngn-
um verður til sölu í bókabúðum
Lánisar Blöndal á Skólavörðustíg
og í Vesturveri. Á sömu stöðum
getur fólk látið skrá sig styrktar-
félaga hjá kórnum og þannig öðl-
azt rétt til aðgöngumiða á lægra
verði. Söngstjóri Fóstbræðra er
Ragnar Bjöínsson, en undirleikari
verður nú sem fyrr Carl Billich,
en á orgel kirkjunnar leikur Arni
Arinbjarnarson. Einsöngvarar með
Fóstbræðrum á þessum hljómleik-
um verða Hanna Bjarnadóttir,
Snæbjörg Snæbjarnardóttir, Svala
Nielsen, Erlingur Vigfússon, Gunn-
ar Kristinsson, Jón Sigurbjörnsson,
Ivi-istinn Hallsson og Þorsteinn
Ilannesson. M.a. verða flutt kirkju-
leg viðfangsefni eftir Bach og
Gounod og enn fremur Pílagríma-
kórinn úr Tannhauser eftir Wagn-
er, auk þáttanna úr Fidelio. —
Ragnar Bjömsson kvað' algengt er-
lendis, að óperan eða þættir úr
henni væru fluttir í konsert-formi
með aðstoð hljómsveitar, enda
væri hún mjög vel til þess fallin,
og væri æskilegt, að hægt yrði ein-
hvern tíma að flytja hana þannig
hérlendis.
Muntra musikanter kemur
í ágúst
Starfsemi Karlakórsins Fóst-
bræðra hefur á umliðnum árum
staðið með mjög miklumi blóma,
sem marka má af þvi, að þeir hafa
farið söngferðir til útlanda tvö ár í
röð, seinast til Finnlands og Sovét-
ríkjanna á s.l. hausti.
í þeirri för naut kórinn frá-
bærrar gestrisni hin fræga finnska
karlakórs Muntra Musikanter í
Helsingfors, sem hiklaust má telja
í fremstu röð karlakóra. Fyrir at:
beina og milligöngu Fóstbræðra er
nú afráðið að Muntra Musikanter
korni í söngför hingað til lands,
seint í ágústmánuð'i n. k. og hlýtur
það að vera fagnaðarefni öllum
unnendum góðs kórsöngs.
í dag verður haldið sundmót í
tilefni af 25 ára afmæli Sund-
hallar Reykjavíkur.
Keppendur eru írá Reykjavík,
llafnarfirði, Keflavík, Selfossi,
Skagafirði og ísafirði. — Keppt
verður í 100 m bringusundi karla;
50 m. skriðs. karla; 100 m. bak-
sundi karla; 400 m. fjórsund, ein-
staki karla; — 200 m. bringu-
sund kvenna; 50 m. skriðsund
kvenna; 50 m. baksund kvenna;
— 200 m. bringusund ungl.; 100
m. bringusund telpna; 100 m.
skriðsundi drengja; 50 métra
bringusundi drengja; — 4x50 m.
bringusundi kvenna og 3x50 m.
þrísund karla.
í 100 m. bringusundi keppa
þeir Hörður og Árni og Erling-
ur Jóharmsson. Hrafnhildur og
Margrét Óskarsdótlir keppa baéði í
50 m. skriðsundi og baksundi
Feikilega jöfn keppni verður
í 4x50 m. boðsundi kvenna milli
Ármanns, S.H. og Í.B.K.
í fyrsta sinn í þcssari keppni
keppir Guðmundur Gíslason í
400 m. fjórsundi.
Blandaði kórinn á vegum Fóstbræðra æfir lokaatriði úr óperunni Fidelio eftir Beethoven undir stjórn
Ragnars Björnssonar. — Myndin er aðeins af hluta kórsins.
I
12
T I M I N N, fimmtudagur 12. aprfl 1962.