Tíminn - 17.04.1962, Page 3
MIDLUNARTILLAGAN í
GENEVE KOMIN FRAM
NTB—GENEVE, 16. aprfl. — f
dag lögðu hlutlausu ríkin átta á
afvopnunarráðstefnunni loks fram
málamiðlunartillöguna um bann
við tilraunum með kjarnorkuvopn,
sem hefur verið beðið eftir í
nokkra daga. Tillagan er að mestu
byggð á sænskri tillögu, sem kom
fram áður á ráðstefnunni. Fulltrú
ar allra kjarnorkuveldanna tóku
tillögu hlutlausu ríkjanna mjög vel
og lofuðu, að hún yrði athuguð
gaumgæfilega.
Það var Brazilíumaðurinn Ro-
berto Asumpcao, sem bar hana
fram á almenna fundinum í dag.
Tillögunni er ætlað að brúa bilið
í deilu austurs og vesturs um eftir
lit með banni við kjannorkutil-
raunum.
í tillögunni er m.a. gert ráð fyr-
ir, að stofnuð verði alþjóðleg sér-
fræðinganefnd hinna hæfustu vís-
indamanna. Þeir safni á einn stað
öllum yfeindalegum upplýsingum,
sem þeim berast frá eftirlitsstöðv-
um um allan heim. Þeir gefi síðan
SAMKOMULAG
BERLIN?
NTB—Washington, 16. apríl.
Það fer nú fjöllunum hærra
að stórveldin séu óðum að nálg
ast samkomulag í Berlínardeil-
unni. Sérstaklega er þessi orð-
rómur hávær í Bonn, höfuð-
borg Vestur-Þýzkalands, þar
sem sagt er, að Bandaríkin
séu fús til að slaka mikið á í
Berlínardeilunni til þess að ná
samningum um alþjóðlega
stöðu Vestur-Berlínar, og
muni þeir m.a. vilja flytja
9000 hermenn frá Berlín og
viðurkenna Austur-Þýzkaland
de facto sem samningsaðila
til þess að samkomulag megi
takast.
>essi orðrómur hcfur orðið til
þess, að í da.g voru bæði gefnar
út yfirlýsingar um málið af hálfu
Bandaríkjastjórnar og stjórnar
Vestur-Þýzkalands.
Frétt frá Bonn í bandaríska stór
blaðinu Washington Post í dag
varð tilefni mótmæla frá banda-
yíska utanríkisráðuneytinu. í frétt
inni sagði, að Bandaríkin mundu
bjóða Sovétríkjunum að minnka
herstyrk sinn og hinna vestrænu
hernámsveldanna í Berlín um 9000
manns alls og yrði það liður í
samningi um stöðu Berlínar.
Lincoln White, blaðafulltrúi ut-
anríkisráðuneytisins, sagði, að
frétt þessi væri algerlega röng.
Opinberir aðilar í Bandaríkjunum
tóku mjög skarpa afstöðu gegn
greininni og fullyrtu, að hún væri
aðeins til þess fallin, að spilla sið-
ferðisþreki Berlínarbúa. Einnig
var lögð á það áherzla, að Banda-
ríkin mundu ekki leggja fyrir
Sovétríkin neinar tillögur, sem
ekki hefðu áður verið samþykkt-
ar af vestur-þýzku stjórninni.
Viðbrögð utanríkisráðuneytisins
komu aðeins örfáum klukkustund-
um áður en Dean Rusk utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna ætlaði að
halda fund með sendiherra Sovét-
ríkjanna í Washington, Anatolij
Dobrynin, til að taka upp á ný
viðræður um Berlín. Þessar við-
ræður þeirra eru framhald af við
ræðum þeirra Gromykos utanríkis
ráðherra Sovétríkjanna og Thomp
sons, sendiherra Bandaríkjanna í
Moskvu í byrjun þessa árs.
Áður en Rusk hitti Dobrynin,
talaði hann í 25 mínútur við
Kennedy forseta, en ekki er kunn
ugt um, hvað þeir töluðu um. —
Eftir fund þeirra Rusks og Do-
brynins var sagt af opinberri
bandarískri hálfu, að aljþjóðlegt
eftirlit með aðflutningsleiðunum
til Berlínar væri höfuðáhugamál
Vesturveldanna í Berlínarmálinu.
út úrskurði um kjarnorkutilraunir,
sem framkvæ'mdar eru og rann-
saki nánar. Öll lönd skuldbindi sig
til þess að veita sérfræðinganefnd
inni allar upplýsingar, sem hún
kann að þarfnast og leyfi þeim að
ferðast til þeirra staða, sem mæl-
ingar sýna, að hristingur hefur orð
ið, svo að þeir geti komizt að því,
hvort um tilraunir eða jarðskjálfta
hefur verið að ræða. Gert er ráð
fyrir náinni samvinnu nefndarinn
ar við löndin, sem undirrita samn
ingin um bann við kjarnorkutil-
raunum. f tillögunni er lögð á-
lierzla á hið vísindalega og ópóli-
tfeka eðli eftirlitsins.
Bretinn Godber talaði síðan og
.lýsti tillögunni, sem heiðarlegri
tilraun til að skilja sjónarmið Aust
ur- og Vesturveldanna. Zorin frá
Sovétríkjunum sagði, að þetta
frumkvæði hlutlausu ríkjanna
væri mjög mikils virði til lausnar
á hinni löngu deilu um þetta efni.
Bandaríkjamaðurinn Dean sagð,
að ýmis framkvæmdaatriði tillög-
unnar vasru óleyst, en í henni
væru atriði, scm væru þoss virði,
að kjarnorkuveldin veittu þeim
nána athygli.<
Krakkar rotta si;
saman með áfengi
í gær fór lögreglan í veif
ingastofuna ísbjörg, Laugaveg
72, og handtók þar drukkinn
snáða, 11 ára gamlan. Hann
sagðist hafa fengið snafs hjá
öðrum strák. Drengurinn var
fluttur heim og lögreglan tal-
aði þar við aðstandendur
hans. Annar drukkinn hljóp
út af veitingastofunni, þegar
lögreglan kom. Hann náðist
ekki.
LEYFISLEYSi
Ekki er lát á rækjustyrjöld-. arfyrirtækja á Isafirði, né þjóni var Guðrún 8. báturinn. Afla
inni á Ströndum, og í gær
öðrum tilgangi en að upprætajfimm báta var í nótt skipað út í
sendi Guðjón Guðmundsson á
Eyri, Tímanum frétt að norð-
an, þar sem m. a. segir, að
rækjubátarnir frá ísafirði séu
nú orðnir sjö. Atvinnumála-
ráðuneytið staðfesti, að tveir
þeirra báta hefðu ekki fengið
rækjuleyfi. — Guðjón sagði
meðal annars:
„íbúar Arnarneshrepps og sýsl-
unnar allrar telja þá ráðstöfun
að leyfa ísafjarðarbátum rækju-
veiði á þessu litla rækjusvæði á
Ingólfsfirði, vægast sagt, gerræði.
Óhugsandi er að hið litla, sem
hér fæst, bæti hag 5 rækjuiðnað-
hverja rækjuögn á firðinum.
Fyrir tæpum mánuði falaði verk
smiðja Óla Ólsen á ísafirði alla
þá rækju, sem mb. Guðrún veiddi,
að kaupa hana á ráðandi rækju-
verði. Sagðist hann hafa gang-
hraðan bát til fluíninganna og
myndi sjálfur bera skaða af
skemmdum ef yrðu. Eigendur
Guðrúnar svöruðu því til, að þeir
hefðu gert sams konar samning
við kaupfélagsstjórann á Hólma-
vík, og honum yrði ekki riftað
meðan báðir væru ánægðir.
Síðan gerðist það, að hinn hrað-
skreiði bátur kom hingað norður
eftir í stórsjó með leyfi til þess
að veiða rækju að vild.
í gær voru ísfirðingar við veiði
skap á sjö bátum á firðinum og
j Skjaldbreið, tæpum fjórifm tonn-
um. Meðan á uppskipun stóð,
hafði ég tal af tveimur skipstjór-
um frá ísafirði, og spurði þá um
veðihorfurnar. Þeir sögðu, að ver-
ið væri að eyðileggja mikið verð-
mæti. Töldu þeir, að sagan frá
ísafirði, að rækjumiðin yrðu eyði
lögð, myndi fljótt endurtaka sig.
Því rniður skjöplaðist mér með
stærð nótarinnar á Kristjáni (sbr.
frétt á sunnudag, innsk. Tímans),
og bið ég cigendur hennar og
bátsins velvirðingar á því. Nótin
er miklu stærri en ég hélt!“
Tíminn hafði í gær tal af frétta
ritara sínum á ísafirði, og spurð-
ist fyrir um þessa nót. Sagði hann,
að hún væri gerð að danskri fyrir
mynd, nema heldur stærri. Væng
Lögreglan hefur haft illan bif-
ur á þessum veitingastað um
sinn, en þar hafa stálpaðir krakk-
ar rottað sig saman> stundum
með áfengi. Fólki, sem býr þarna
í nágrenninu, þykir framferði
þeirra hvimleitt. í ísbjörg er
glymskr'altti, sem spilar ef pen-
ingum er stungið í hann, en það
■ hefur sýnt sig, að hávaðlasamir
unglingar sækja mikið staði, sem
hafa slík tæki. En þessi staður er
ekki sá eini, þar sem vandræði
stafa af framkomu nnglinga.
Reynslan hefur sýnt, að liðið flyt-
ur sig og sækir einn stað þetta
árið og annan hitt. Lögreglan
'skrifaði upp nöfn krakkanna, sem
voru á ísbjörg, þegar hún kom
þar í gær.
irnir væru stórriðnir en pokinn
sjálfur þéttari og dýpri en gerð-
ist, en svo hægt væri togað, að
varla kæmi mikið rusl með rækj-
unni í pokann.
Tíminn hafði í gær tal af Jóni
Sigurðssyni, fulltrúa í Atvinnu-
málaráðuneytinu, og spurðist fyr
ir um þessa tvo ísafjarðarbáta,
sem til viðbótar hinum fimm,
sem fyrir voru, eru teknir til við
rækjuna á Ingólfsfirði. Sagði Jón,
að þeir bátar hefðu ekki fengið
rækjuleyfi, og yrði mál þeirra
tekið fyrir, þegar þeir kæmu til
ísafjarðar.
Jón sagði cinnig, að sér fyndist
afstaða Ingólfsfirðinga i þessu
máli nokkuð tvíeggjuð, því vitað
mál væri, að ísfirðingar hefðu
hætt fjármunum sínum og eytt
tíma í að finna þessi mið, og
hefðu þeir ekki gert það, vissu
Ingólfsfirðingar líklega ekki enn-
þá, að rækja væri í firðinum
þeirra.
Þrír bannfærðir
vegna kynþáttamála
NTB—New Orleans, 16.
apríl — Þrír menn, sem
hafa komizt í andstöðu við
skoðun kaþólsku kirkjunn-
ar í New Orleans á kyn-
þáttamálum, voru í dag
bannfærðir af erkibiskupn-
um af New Orleans.
Kaþólska kirkjan í Banda
ríkjunum er mjög andvíg
kynþáttamisrétti, og eru
það allt stjórnmálamenn,
sem vilja forrSttindi hvítra,
sem Joseph Francis Rumm
el erkibiskup hefur bann-
fært. Það er Leander Perez,
áhrifamikill stjórnmálamað-
ur í Lousiana, frú B. J.
Galliot, formaður félagsins
„Bjargið þjóðinni" sem
berst fyrir aðskilnaði
sVartra og hvítra, og loks
Jackson Riceau, borgarfull-
trúi í New Orleans.
Bólan herjar stöSugt
í Bretlandi
NTB—Bridgend, 16. apríl.
— f dag létust enn tvær
konur úr bólusótt í bænum
Bridgend í Suður-Wales í
Bretlandi. Alls hafá þá 11
manns látizt úr þessari hættu
legu veiki á 10 dögum. Öll
fórnardýr bólusóttarinnar
voru sjúklingar á kvenna-
deild geðveikrahælis í
Bridgend.
Þetta er þriðja bólusótt-
araldan í Bretlandi á þessu
ári og önnur aldan í Suður-
Wales. AHs hafa 24 manns
látizt úr sóttinni í Bret-
landi á þessu ári.
Orðrómur um land-
göngu í Jórdaníu
NTB—CAIRÓ, 16. apríl. —
Stjómarblaðið A1 Ahram í
Egyptalandi fullyrti í dag
undir uppsláttarfyrirsögn-
um, að brezkt tfallhlífalið
hefði verið flutt til Jórdan-
íu síðustu tvo sóferhringa.
Brezka varnarmálaráðuneit
ið hefur tilkynnt, að þessi
fréti sé tómt þvaður. Hún
er talin sprottin upp í
Beirut í Líbanon.
Ósamkomulag meBal 1
Serkja í Alsír
NTB—Túnis, 16. apríl — f |
dag var frestað í annað sinn ]
á tveimur sólarhringum j
stjórnarfundi þjóðernis-
sinnastjórnar Serkja í Alsír
FLN, þar sem ræða átti
framtíðarstefnuna eftir
vopnahléið. Dresturinn er
talinn stafa af því að ráð-
herrarnir eru alls ekki sam
mála um stefnuna, og verið
er að reyna að sætta hin
ýmsu sjónarmið, áður en
hinn opinberi stjórnarfund
ur er haldinn.
Hálfrar þriðju sfund-
ar slagur í Oran
NTB—Oran, 16. apríl —
Lögreglan og öryggissveitir
börðust í morgun í tvær og
hálfa klukkustund við OAS-
menn á götum Oran. í á-
tökunum var beitt vélbyss
um og handvopnum. Jafn-
framt framkvæmdi lögregl-
an nákvæmar rannsóknir í
miðbænum. Annars var öll
borgin lömuð af allsherjar-
verkfalli OAS. Víðar í Alsír
urðu í dag át.ök og hryðju-
verk. ^
J
TÍMINN, þriðjudaginn 17. ajmi 1962
3