Tíminn - 17.04.1962, Blaðsíða 15

Tíminn - 17.04.1962, Blaðsíða 15
/ íþróttir Framhald af 12. síðu. og 'þrisVar skorað. Ágúst skoraði sjöunda mark Fram, en með 2 mörkum náði FH forustu í ann- að Sinn í leiknum. Pétur og Ragn ar skoruðu. Guðjón jafnar, og þegar 20 mínútur voru af leik, skorar Ragnar níunda mark FH. Aftur jafnaði Guðjón og síðan skoraði Karl 10—9 fyrir Fram. Þannig var leikurinn ailtaf mjög jafn. Örn jafnaði, Ingólfur skor aði 11. mark Fram, en nú skor- aði Pétur tvisvar og Ragnar úr víti. 13—11 fyrir FH og mínúta eftir af hálfleiknum, en Guðjóni tókst að skora eitt mark fyrir Fram á þessum tíma, 13—12. Aðeins 13 mörk Guðjón byrjaði einnig mjög vel í síðari hálfleik og Sendi knöttinn tvisvar í mark FH með góðum skotum. Ragnar jafnaði úr víti, en Ágúst skoraði 15. mark Fram. Pétur, Ragnar (víti) og Örn skor- uðu nú þrjú mörk fyrir FH, og þessar 15 mín„ sem eftir voru, hafa áður verifj ræddar í þessari grein. Leikur Fram var þá mjög takt- ískur. Þeir höfðu þrjá menn fyr- ir framan vörn FH, en léku með þremur línumönnum — og það flestum í einu í öðru hvoru horn- inu, og opnaði þetta vörn FH á miðjunni. Framarar voru nær allt af með knöttinn, en reyndu ekki markskot nema úr mjög góðu færi. Hraði var ekki mjög mikill — og FH gekk illa ag finna svar við leikaðferð Fram og sterkri vörn. Samstillt liS Lið Fram kom ákveðið og sam- stillt til þessa leiks, og þegar Framliðið nær sér virkilega á strik, leikur þag taktískan og sterkan handknattleik. Guðjón Jónsson átti mjög góðan leik að þessu sinni, og auk þess, sem hann er aðaluppbyggjarinn, varð hann einnig markhæstur með 6 mörk. Karl Benediktsson lék sinn bezta leik í vetur og skoraði fimm mörk, og áttu FH-ingar oft í miklum erfiðleikum með hann. Aðalskotmaður liðsins, Ingólfur Óskarsson, skoraði fjögur 'ímörk, en FH-ingar lögðu mikla áherzlu á ag gæta hans, og varg það til þess að nokkuð losnaði um aðra leikmenn. Hilmar Ólafsson var mjög traustur í vörninni, og manni fannst alltaf að Framliðið væri svipminna, þegar hann var ekki á vellinum. Hilmar skoraði tvö mörk, Ágúst tvö og Sigurður Einarsson, hinn skpmmtilegi línu spilari og um leið sterki varnar- maður, þótt smár sé, skoraði eitt mark, Aðrir leikmenn liðsins sýndu einnig góðan lcik og Sig- urjón og Þorgeir vörðu á köfl- um ágætlega. Vantaði neistann Þótt FH sýndi á köflum í þess- um leig hraðan og skemmtilegan handknattleik, sem ekkert annað lið getur sýnt eins vel hér á landi, virtist vanta neistann í leik liðs- ins að þessu sinni — og má vera að fjarvera Birgis sé að einhverju leyti ástæðan, þó ag varla eigi það að koma að sök hjá svona sterku liði, þótt einn ieikmann vanti. Einar Sigurðsson var beztur, og mjög sterkur í vörninni. Kristján sýndi glæsilegan leik í fyrri hálf leik, en hvarf nær alveg í þeim síðari, hver sem ástæðan var. Ragnar var ag venju hættulegast ur, og skoraði sjö mörk, en þessi glæsilegi leikmaður hefur þó oft fengið meira út úr leik sínum. Að- eins fjórir leikmenn FII skoruðu mörk í leiknum og segir það sína sögu. Auk Ragnars skoruðu Pét- ur 5, Kristján og Örn þrjú hvor. Dómari í leiknum var Karl Jó- hannsson og dæmdi prýðilega. Bráðaþeyr (Framhald af 16. síðu). drukknuðu 110 kindur á föstudag er lækur flæddi inn í fjánhús. — Einnig flæddi vatn inn í hlöðuna á sama bæ, og eyðilagðist nokkuð af heyi. Skaði bóndans á Egils- stöðum, Bjöms Sæmundssonar, er þeim mun meiri, þar eð hann hef ur aðeins nýhafið búskap, og missti hann þarna mestan hluta bústofns síns. Annars er víðast hvar orðið snjólaust í Vopnafirði, og hitinn komst þar upp í 12 stig í gær. Færð er enn sæmileg á veg um úti, enda er umferð lítil, og aðallega jeppar, sem aka um veg- ina. Hlákan í Borgarfirði eystra hef- ur engum skemmdum valdið. Hún vatn hefur sigið jafnóðum í jörðu. Veturinn hefur verið erfiður og hagleysur miklar, en nú er kom- inn hagi út með sjónum. Hitinn í gær var 9—10 stig. Snjór hefur verið mjög mikill á Egilsstöðum, en er nú alveg að hverfa. Þar hefur verið asahláka og þó ekki úrfelli. Finnst mönnum þar austur frá alveg ótrúlegt, hvað snjórinn hefur farið fljótt. Ekki hafa orðið vatnavextir á Héraði, en Eyvindará er einna hættuleg- ust hvað það snertir. Hefur hún stundum flætt yfir flugvöllinn á Egilsstöðum. Bændur á Héraði voru orðnir hræddir um að ef til vill yrðu þeir uppiskroppa með hey, en sú hræðsla er nú orðin ástæðulaus og liggur því mjög vel á mannskapnum. í gær var verið að ryðja Fagradal, sem hefur ver- ið ófær mjög lengi. Enn er Fjarð arheiði lokuð, en verið er að opna vegina út í sveitirnar. Snjór bráðnar hægt á Reyðar- firði, en krap er nokkuð mikið. Engar skemmdir hafa orðið þar að þessu sinni, enda ekki verið um neina úrkomu að ræða. Ekki hefur heldur orðið. skaði á Djupavogi, og þar hefur ekki rignt neitt', sem orð er á gerandi. Mikil hlýindi hafa verið á Djúpa- vogi að undanförnu, en þar á undan voru frost og þurrkar, og voru allir brunnar á staðnum orðn ir þurrir, af þeim sökum var hlák- an mjög kærkomin. Að sögn fréttaritara blaðsins í Höfn í Hornafirði hefur ekki ver ið þar mikill snjór í vetur, og bráðnar hann nú með eðlilegum hætti og valda vatnavextir engum skemmdum. Vesturiand Vestfirðir fóru fremur vel út úr hlýju- og leysingakastinu. Víða rann úr vegum, en það var allt fremur lítilsháttar og ekki tókst blaðinu að afla sér vitneskju um, að neinar skemmdir hefðu orðið á öðrum mannvirkjum. Vegurinn til Patreksfjarðar og frá Patreksfirði til Tálknafjarðar var illa farinn og ekki fær öðrum farartækjum en jeppum, og víða annars staðar voru vegir seinfærir, ekki síður vegna þess að frost er að fara úr jörð en vegna leysinganna. Á Snæfellsnesi voru vegir víða mjög slæmir og ógreiðfærir. Á Hömluholtadal undir Hafursfelli í Eyjahreppi fór á gegn um veginn við brúna. Þar lenti jeppi í og valt, svo að dráttarvél þurfti til að ná honum upp, og var hann all mikið skemmdur, og nokkru síðar bar að fólksbil úr Reykjavík sem var á leið til Ólafsvíkur. Bíll inn stakkst niður í raufina og brotnaði nokkuð, en ekki mun hafa orðið tjón á fólki. í Borgarfirði urðu mikil flóð í Ferjukotssíki og Hvítá við Hvítár- bakka. Þar ruddist vatnið yfir veg inn og varð nokkuð djúpt um tíma, en sjatnaði síðan ört og um hádegi í gær var aðeins feti hærra vatn í þessum ám en vant er. Á sunnudaginn féllu skriður á veginn úr Múlafjalli í Hvalfirði, en ekki meiri en svo, að vörubílar komust ftrax yfir þær. Nokkrir smálækir runnu á veginn, en skemmdu hann lítið. Vegurinn var hreinsaður á sunnudaginn og er greiðfær. Víðavangur (Framhald ai 2. síðu). „viðreisnarman.na“, sem ekki cr flíkað framan í almenning, hefur gersamlega mistekizt, þag er kenningin um hið hæfi- lega atvinnuleysi og ágæti þess til að slá niður verkalýðssam- tökin. Ný stórvirk framíeiðslu tæki, sem pöntuð höfðu verið fyrir „viðreis,n“ voru ag tínast liingað til lands fyrstu misseri „viðreisnarinnar“, vegna út- færslu landhelginnar hefur metafli borizt á land og at- vinna því mjög m'ikil í flest- um sjávarplássum og vegna Kvassrar ádeilu Framsóknar- manna, sem fundið hefur sterk an hljómgrunn með þjóðinni, hafa „viðreisnarmenn" orðið að hopa á hæli á mikilvægum vígstöðvum. Þjóðartekjumar hafa því faríð vaxandi, þrátt fyrir viðrcisnina, en ekki vegna hennar. Menn geta hug- leitt það, hvernig umhorfs væri hér á landi, ef „viðreisn armenn“ hefðu fengig að ráða liér síðasta ánatuginm Land- helgin væri enn í fjórum míl- um og erlendir togarar skröp- uðu burt þann þorsk, sem nú berst á land í íslenzkum ver- stöðvum. Bátar og skip væru færri og úr sér gengin, upp- bygging almennings væri lítil sem engin, húsnæðlsskort- ur þjakandi og húsaleiguokur „Ieiguíbúðafélaganna" ótæpi- Iegt, en þessi verður afleiðing in, ef „viðreisnin“ fær að þró- ast. Enn þá hefur „viðreisnin“ ekki náð fullkomnun og því eru þjóðartekjur vaxandi. En hvert hefur aukningin á þjóð- artekjunum farig og hvert munu þær fara. Launþegar og bændur í landinu fá nú miklu minni hluta af þjóðartekjunuin en fyrir „viðrcisn“. Það eru stórgróffiamenn og hinir út- völdu, sem gera út Sjálfstæð isflokkinn, sem fleyta rjóm- ann. Þetta cr því sannkölluð viðreisn auðjarlanna. v Heimilishjálp Stórisar og dúkar tekmr • strekkingu Upplýsingai i sima 17045 Innilegt þakklæti og kveð.iur sendi ég öllum þeim, er glöddu mig með skeytum, gjöfum og heimsókn- um á áttræðisafmæli mínu. Guð blessi ykkur öll. Þórunn Sigurðardóttir, Bugðulæk 14, Reykjavík. B-listinn (Framhald af 1. síðu). 22. Ásbjörn Pálsson, trésmið- ur, Kambsvegur 24 23. Jón Jónasson, járnsmið- ur, Eskihlíð 22 24. Lárus Sigfússon, bifreið- arstjóri, Mávahlíð 43 25. Kjartan Sveinsson, raf- fræðingur, Heiðargerði 3 26. Sigríður Björnsdóttir, hús freyja, Kjartansgötu 7 27. Björn R. Einarsson, hljóm sveitarstjóri, Bókhlöðu- stíg 8 28. Sr. Sveinn Víkingur, prest ur, Fjölnisvegur 13 29. Egill Sigurgeirsson, hæsta réttarlögm., Hringbr. 110 30. Þórður Björnsson, saka- dómari, Hringbraut 22 Vatnagörðum og ætlað til sama lands, en hrakið undan vindi og straumi og komizt við illan leik í eyna, blautir og hraktir. Þetta var árabátur og drengirnir lítt vanir að róa. Er talin furða, að þá skyldi ekki hrekja til hafs með útfallinu og suðaustanáttinui um daginn. Þeir heyrðu hringingarnar frá Grensásstöðinni, hlupu til og kölluðu í símann, en tækið í Viðey var bilað og ekkért heyrðist í drengjunum. Var komið með þá til lands í Reykjavík um kl. 4 um nóttina. Einn átti að fermast klukkan 10 morguninn eftir. Ann- ar verður fermdur á sunnudaginn kemur. Síminn bilaður (Framhald af 1. síðu). var í viðgerð með gat á botninunh Annar hafnsögubáturinn var feng- inn að láni og fóru fyrr taldir að- ilar á honum og höfðu léttbát með ferðis því hafnsögubáturinn er djúpskreiður og kemst ékki upp að í lendingunni í Viðey. Þá var klukkan hálf þrjú um nóttina. Þeir fundu drengina háttaða í Viðeyjar stofu og urðu þeir komunni fegn- ir. Báturinn, sem drengirnir fóru á, lá við stjóra hjá eynni, en þeir höfðu tekið hann traustataki í Almannavarnir Framhald £f 8. síðu. þann „lúxus“ á sama tíma og helmingur meðbræðra þcirra svelt ur hálfu og heilu hungri. E.t.v. líkjumst við enn þá frænd um okkar, öpunum, helzt til mik- ið. Smábörn apa eftir stærri börn um, smámenni apa eftir stærri mönnum og smáþjóðir apa eftir stórþjóðum. Reykjavík, 4. 4. 1962. E.S. Eftir að þetta var ritað hef ur það gerzt í sambandi við frum varp ríkisstjórnarinnar, að skv. til lögu dr. Bjarna Benidiktssonar. dómsmálaráðherra, var afgreiðslu þess frestað með rökstuddri dag- skrá í neðri deild. f hinni rök- studdu dagskrá segir m.a. svo um varnirnar:.......treystir deildin ríkisstjórninni til að hefja nú þeg- ar undirbúning þeirra í samræmi við meginreglur þessa frumvarps . . . “. — Sagði dr. Bjarni, að und- irbúningur myndi þegar í stað haf- inn! Öllupi þeim, er sýndu okkur ÆamúS og vinsemd við andlát og útför eiginmanns, föður, sonar og bróður okkar, Karls Filippussonar bifreiðarstjóra, Hjallaveg 12, sendum við alúðar þakkir. Sérstaklega þökkum vlð félögum hans og samstarfsmönnum fyrir auðsýndan hlýhug og vináttu. Filippus Ámundason og börn, Guðrún Sigurðardóttir Þórhildur H. Karlsdótiir Örn D. Karlsson Faðlr okkar, Kjartan Ólafsson múrarameistari, Njarðargötu 47, andaðist 15. apríl s.l. , Börnin. Hjartans þakkir flyt ég ykkur öllum, sem sýnduð mér vinsemd og tryggð 7. apríl. Halldóra Ólafsdóttir. Eiginmaður minn, og faðir okkar, Svavar Marteinsson skrifstofustjóri, sem andaðist miðvikudaginn 11. apríl, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju, miðvikudaglnn 18. apríl, kl. 13,30. — Blóm afþökkuð. En þeim sem vildu minnast hins látna, er bent á Landsspítalasjóð. Fjóla Sigmundsdóttlr, Hilmar Svavarsson Garðar Svavarsson. Faðlr okkar, Guðlaugur S. Eyjólfsson frá Eskifirði andaðist f Landsspítalanum 15. þ.m. Jóna Guðlaugsdóttir Þorbjörg Guðlaugsdóttir. Móðir min, Sólveig Stefánsson (Jónsdóttir frá Múla) lézt aðfaranótt þ. 13. apríl f Baltimore, Maryland, U/S.A. Fyrir hönd systkina minna. Ragnar Stcfánsson. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför mannsins mins, föður okkar og tengdaföður Bernhards Petersen Sérstaklega viljum við þakka læknum og hjúkrunarliði Lands- spítalans fyrir frábæra umönnun f veikindum hans. Anna ?etersen Elsa Petersen, Bernhard Petersen jr. Othar Petersen Ævar Petersen, Guðmunda og Gunnar Pefersen. TÍMINN, þriöjudaginn 17. aprfl 1962 15

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.