Tíminn - 17.04.1962, Side 16
Þriðjudagur 17. apríl 1962
90. tbl.
46. árg.
RAFMAGNSLAUST í ÞREM SVEIT
UM — BÍLL SAT ÞRJÁ TÍMA í
STÓRU LAXÁ — SJÓÐA í HVER-
UM — OLÍUBÍLL HVARF í NÚPS-
VÖTN-110 KINDUR DRUKKNUÐU
BRADAÞEYR UM LAND ALLT
Flóðin, sem dundu á fyrir
og um helgina, voru víðast
hvar í mikilli rénun í gær.
Sums staðar stóðu þau ekki
nema tvo til þrjá klukkutíma,
þar til úr tók að draga á ný,
en víðast skullu þau á svo að
segja á svipstundu. Austur í
hreppum óð t.d. 14 ára dreng
ur yfir í Litlu-Laxá heim til
sín í kaffi, en eftir kaffi varð
ekki einu sinni komizt yfir
ána á öflugiji dráttarvél. Tím-
inn aflaði sér í gær upplýs-
inga um bráðaþeyinn og fara
þær hér á eftir:
Suðurland
Um hádegig á sunnudaginn var
Ölfusá komin upp á bakka hjá
Selfossi. Flóði'ð náði hámarki á
hádegi í gær, en þá var Tryggva-
skáli hálfumflotinn vatni og kjall-
arinn fullur. Leigubílastöðin vest
an við brúna var umflotin og ökla
vatn í kjallara símstöðvarinnar,
‘ sem er næsta hús austan við skál
ann.
Á mánudagsnóttina var flutt úr
íbúðarkjallara austarlega í þorp-
inu. Þar var 10 cm. vatn á gólfi
í gær. Þetta er mesta flóð, sem
komig hefur á Selfossi síðan 1948,
en þá var Tryggvaskáli umflott-
inn og farið þar í kring á bátum.
Flóðið var aðeins í rénun í gær.
Á laugardaginn hófst stórflóð
í Hvítá. Áin flæðir nú upp móts
vig Ólafsvallahverfi á Skeiðum og
nær flóðið suður undir Vorsabæ.
Snemma á sunnudagsmorguninn
braut áin fjóra staura í hás'pennu
Ununni hjá Auðsholti í Hruna-
mannahreppi, svo nú er rafmagns
laust í þrem sveitum, Hreppum
og Skeiðum. Bærinn er umflotinn
vatni og ís. Gert er ráð fyrir, að
viðgerg reynist óframkvæmanleg
fyrr en vatnið tekur að réna.
Á laugardagskvöldig kom gífur
legt hlaup í Stóru-Laxá. Ung-
mennafélögin þrjú, Hreppum og
Skeiðum, héldu kvöldvöku á Flúð
um. Samkomugestir voru ný-
sloppnir upp yfir brúna á Stóru
Laxá, þegar hún ruddi sig og
hljóp yfir þjóðveginn hjá brúnni
á nokkur hundruð metra kafla.
Einn bílanna, vörubíll, lenti í flóð
inu og sat þar í þrjá tíma unz
nokkuð fór að sjatna. Jakahrönn
safnaðist kringum bílinn, og er
hætt við, að minna farartæki hefði
skolazt burt. Hljómsveitin frá Sel-
fossi átti að leika á skemmtuninni,
en sneri frá við Laxá. Undir morg
uninn var farið að laga vega-
skemmdirnar með jarðýtu. Sam-
komugestir biðu á Flúðum til
klukkan að ganga átta, en þeir
urðu að vaða elginn kringum
brúna á heimleið. Mjólkurbílar
komust upp yfir samdægurs. —
Litla-Laxá brauzt gegnum varnar-
garð hjá Grafarhverfinu, en var
heft með sandpokum. í gær var
matur soðinn í hverum í Grafar-
hverfinu, en víða var hvorki til
olía á prímusa né kerti til að lýsa
sér með.
Lakari vegir í Flóanum eru að
verða ófærir. Þar hefur ekki flætt,
en mjög vatnsfullt alls staðar því
klaki er þykkur í jörðu og vatnið
hefur lítið sigið niðui'.
í Þykkvabænum var geysileg
vatnskoma, en flóð mynduðust
ekki, þar sem jörð var auð og
vatnið rann óhindrað í skurðina.
Vatnsmagnið í Markarfljóti óx
mjög á sunnudaginn og náði há-
marki klukkan 6. Var talin hætta
á, að fljótið færi yfir svokallaðan
Fauskagarð, skammt ofanvið Dal-
sel, en svo varð ekki. Undir kvöld-
ið hætti að rigna og í gærmorgun
hafði vatnsborðið lækkað um þrjú
fet. Fljótið breiddi úr sér milli
garðanna eins og jafnan í stórvöxt
um. Mikið var í öllum vötnunum
þar eystra á sunnudaginn. Vega-
skemmdir eru litlar.
Undanfarna viku hafa 4 trukkar
frá Olíufélaginu ekið austur í
Öræfi. Allt gekk vel, þar til á föstu
dag, en þá tók að rigna mjög mik-
ið. Þeim gekk þó sæmilega það
sem eftir var austur, fyrir helg-
ina, en um leið komu þangað aðr
ir fjórir bílar frá vegagerðinni
með efni í brú á Fjallsá. Meðan
bflarnir voru á leiðinni austur, óx
jafnt og þétt í öllum vátnsfölíum
á söndunum, og voru þeir því um
kyrrt eystra, unz rigningunni slot-
aði í fyrradag, en þá lögðu þeir
allir 8 af stað vestur á bóginn. í
fyrradag gekk þeim allvel, unz
að Núpsvötnum var komið, en þau
eru í nokkrum álum, og var þar
geysimikið vatn. Þegar kom að
vestasta álnum reyndist hann
ófær, og hafði vatnið grafið svo
mikið úr bakka eða öldu að vestan
verðu við álinn, að bílarnir kom-
ust ekki þar upp. Gerðu þeir marg
ar tilraunir til að komast upp öld-
una, en allt kom fyrir ekki. í einni
þeirri tilraun munaði litlu, að þeir
misstu einn olíufélagsbílinn alveg
í kaf í álinn, og sáu þeir ekki nema
í húshornið að framan og tankinn
að aftan á tímabili, en bílstjórinn
var í talsverðri hættu. Þó tókst
hinum að bakka bíl út í álinn
alveg að bílnum, sem fastur var,
og stökk bílstjórinn úr sökkvandi
bíl sínum upp á pallinn. f fyrri-
nótt minnkaði vatnið í Núpsvötn-
um og héldu bílstjórarnir kyrru
fyrir við vestasta álinn, þangað til
þéir fengu öflugan trukkbii frá
Kirkjubæjarklaustri til að draga
bílana upp ölduna í gær. Síðdegis
í gær komu þeir að Kirkjubæjar-
klaustri, en héldu svo áfram til
Víkur í gærkvöldi. — í Skaftafells
sýslum voru geysimiklir vatnavext
ir í hlákunni og mikið í öllum ám.
Víða rann úr vegum við ræsi og
eru vegir surns staðar allilla farn-
ir, en þó hefur verið hægt að halda
uppi samgöngum um allar sveitir
fram að þessu.
Norðurland
Fréttaritari Tímans á Akureyri
sagði í vjðtali í gær, að Eyjafjarð
ará hefffi víða flætt yfir bakka
sína og valdið flóðum, og væri lág
lendið fram Eyjafjörð víða undir
vatni. ísinn hefur verið þykkur á
ánni, og liefur vatnið sums staðar
lyft honum upp, svo að hann er
þar hærri en bakkarnir. Feikileg
hláka hefur verið í héraðinu und-
anfarið, og var dagurinn í gær
þriðji hlákudagurinn. f sunnanátt-
inni hefur hitinn verið 10—12 stig
á nóttunni, en heitara á daginn.
í gær var glaðasólskin á Akureyri,
en aðeins svalara en verið hefur.
Fyrstu farfuglarnir eru þegar
komnir, lóa, tjaldur, stelkur og
grágæs. Vegir eru yfirleitt vel fær
ir nyrðra, en nú er lítilsháttar tek
ið að gæta aurbleytu.
f Svarfaðardalsá hljóp geysileg-
ur vöxtur, og flæddi hún yfir veg-
inn hjá Hrísum í gær; stórir bílar
fóru þar þó um í gærmorgun. í
Hörgá kom smáklakahlaup. Þess-
ar þrjár ár, Eyjafjarðará, Svarfað-
ardalsá og Hörgá hafa ekki gert
neinn usla eða valdið skemmdum.
Hins vegar urðu allir lækir skyndi
lega að ám í hlákunni og flæddu
víða, meðan þeir óoru að grafa sér
farveg. Frekar væri því hægt að
segja, að þverár, sem vanalega eru
litlar, hefðu skemmt vegi, en eng-
ar umferðartruflanir hafa þó orð-
ið, svo að teljandi séu.
Fráffilönduósi bárust þær frétt-
ir, a,ð Blanda hefði rutt sig aðfara-
nótt sunnudags, en þó var sá ruðn
ingur ekki mjög mikill. Miklir
vatnavextir urðu þó í Langadal af
þessum sökum á laugar- og sunnu-
dag, en í gær var vatnið farið að
sjatna og orðið sæmilega bílfært,
en aurbleyta þó farin að gera vart
við sig. Meðan flóðið stóð sem
hæst, var verst að fara veginn á
kaflanum frá Æsustöðum og niður
að Móbergi. í Svartárdal urðu ein
hverjar smáskemmdir á veginum,
en í gær var unnið að því að laga
það, og stóð til, að vegurinn yrði
öllum fær í gær. Verulegt flóð hef
ur ekki komið í Vatnsdalsá, og
flóðin hafa verið minni í Húna-
vatnssýslu en oft áður og ekki
valdið nema lítilsháttar skemmd-
um á vegum.
í Skagafirði hafa orðið nokkrir
vatnayextir, en skemmdir mjög
litlar. Héraðsvötn runnu yfir veg-
inn hjá Völlum í Vallhólmi á
sunnudag, en þar var þó alltaf
fært yfir og gert við á sunnudags-
kvöld. Hjá Hafsteinsstöðum rann
einnig yfir veginn, og í fyrrakvöld
var vont að komast þar yfir á litl-
um bílum, og mun einn þeirra
hafa skemmzt eitthvað. Þar var
gert við veginn í gær. í stöku stað
tók möl úr veginum, en við það
var gert í gær. Ákaflega mikið
flóð hefur verið á Eylendinu í
Skagafirði, en ekki valdið skemmd
um. í Fljótum var mikill elgur í
öllum lækjum, en þar höfðu ekki
orðið skemmdir. Þar er víða al-
autt. í Skagafirði hefur eins og
annars staðar verið mjög mikil, en
fremur hæg hláka að undanförnu.
Þar var í gær indaélisveður og
sterkjusólskin.
Aysturland
Hlálcan á Austfjörðum hefur
verið mikil undanfarna daga, en
engar skemmdir hafa hlotizt af
henni, nema á Vopnafirði.
Á Egilsstöðum í Vopnafirði
Framhald á 15. síðu
Ein á
steini
Kona nokkur, Sigrún Ein
arsdóttir, sem býr í sumar-
bústað við Elliðavatn,
komst í hann krappan í
flóðunum á laugardags-
kvöldið. Maðurinn hennar
var ekki heima þegar vatn
byrjaði að renna inn í sum
arbústaðinn. Sigrún flýði út
en sá þá, að hún var um-
flotin beljandi vatni nær
400 metra frá landi. Gekk
áún þá upp á stein nokkru
hærra og hafðist þar við
unz lögreglan bjargaði
henni. Lögreglumenn fóru
með linubyssu á slaðinn,
en hættu við ag nota hana
og tóku bát og reru til Sig-
rúnar. Hún var þá búin að.
sitja á steininum í tvær
klukkustundir holdvot.
Þessi mynd er af brú á afleggjara af Suðurlandsvegi heim aö sumarbústaðahverfi milli Gunnarshólma og Elliðakots. Brúin stóð ein upp úr elgnum og var stríður straumur beggja
megin við hana og hafði runnið svo mlkið úr, að þegar flóðin sjatna, kemur brúin til að standa eins eins og drangur. Nær á myndinni standa steinarnir á bakkanum úr vatnsagan-
um. — Mynd þessa má kalla dæmigerða um þau spjöll, sem flóðin hafa valdið víða um landið. (Ljósmynd: TÍMINN).