Tíminn - 25.04.1962, Síða 8

Tíminn - 25.04.1962, Síða 8
Halldór Kiljan Laxness átti sextugsafmæii annan dag páska, 23. apríl. Tím'mn hefur fengiS leyfi dr. phll. Steingríms J. Þor- steinssonar, prófessors, og Helga- fells til þess að birta eftirfarandi ritgerS, sem er i nýútkominni bók, AFMÆLISKVEÐJUR HEIM- AN OG HANDAN, þar sem skáld- 13 er hyllt á þessum tímamótum. I. íslendingar flytja Halldóri Kilj- an Laxness þakkir sínar og árn- aðaróskir á sextugsafmæli hans. Þar með flytjum við sjálfum okk- ur farsældarkveðjur. Þegar litið er yfir íslenzkar bók menntir frá lokum fornrar safnrit- unar og fram til síðustu aldamóta, eru ekki ýkja margir höfundar ó- bundins máls, sem haldið hafa þar velli til langframa, — Ijóðskáldin hafa verið þar miklu fleiri og sam felldari. Það er því varla fjarri lagi að spyrja hér sem svo: Hver hefur verið og er afstaða Halldórs Kiljans Laxness til ís- lenzkrar tungu og fornbókmennta, einkum fornsagnanna, og til þjóð- legra menningarerfða? f ræðu sinni á Nóbelshátíðinni sagðist hann hugsa „sér í lagi til hennar ömmu minnar gömlu, sem yar búin að kenna mér ótal vísur úr fomöld áður en ég lærði að lesa“. í æsku talár hann þegar um þessa ömmu sina, sem fóstraði hann ungan: Ég get þess seint og snemma og ætíð með göfugu mikillæti, að ég skuli vera fóstraður upp við fótskör átjándu aldar. Amma mín var fædd á þeim helmíngi nítjándu aldar, sem hefur allan svip af hinni undanförnu öld, alin upp meðal fólks af þeim hluta þjóðarinnar, sem var mol- að út úr bergi forneskjunnar; fóstra ömmu minnar lifði í Skaft- áreldum og bar skóbætur á borð fyrir fólk sitt. Kona, sem hefur skammtað skóbætuir hlýtur að leggja börnum sínum alt aðrar lífsreglur en nú gerist. Amma mín fóstraði mig og kendi mér ýmsar lífsreglur er hún hafði hlotið að sinni fóstru.-------- Ég er hreykinn af að hafa setið við fótskör þeirrar konu sem fjærst var því að vera tísku háð eða aldarfari, allra kvenna, þeirra er ég hef þekt. Súngið hef þr hún eldforn Ijóð við mig ó- málgan, sagt mér æfintýr úr heiðni og kveðið mér vögguljóð HALLDÓR KILJA Fréttaritarl Tímans I Kaupmannahöfn, Geir ASils, símsendi Tímanum þessa mynd f gær. Hún er tekin af Hall- dóri Kiljan á afmælisdaginn, en hann dvaldist þá í Kaupmannahöfn, og er Paul Reumert, leikari, aS óska hon- um til hamingju. En jafnvel í hetjusögunni um ein- stakltogshyggju íslendingsins og ósigrandi baráttu bóndans N fyrir sjálfstæðu lífi er ekki að finna bein áhrif frá fornsagnastfl. II. Nú verða þáttaskil í höfundar- sögu Kiljans. Til þessa hafði hann samið samtímasögur einar. Um fertugt byrjar hann hins vegar á fyrstu sögulegu skáldsögu sinni, íslandsklukkunni. Nú var ekki að- eins um að ræða sjálfstæðisbar- áttu einstaklingsins, heldur þjóðar innar allrar, andlega og efnalega. Alkunna er, að ein aðaluppistaða þessa margslungna sagnaflokks er lífs- og menningargildi fornbók- mennta okkar fyrir þjóðina — og um það fjallað af djúpum skiln- ingi, skáldlegum næmleika og fá- gætri innsýn. Halldór er víðlesinn í heimsbók- menntunum, þótt hann láti oft lít- ið af því sjálfur. En skáld og rit- höfundar eru ekki alltaf örugg- ustu heimildarmenn um bóklestur sinn. Hann er líka þaulkunnugur íslenzkum bókmenntum allra tíma. Fram að þessu virðist hann hafa kynnt sér rækilegast bókmenntir okkar eftir siðaskipti. En vitaskuld hefur hann allt frá barnæsku þekkt mikið til fornbókmennt- anna, bæði kvæða og sagna, og siðan lesið sitthvað af þeim ann- að veifið. „ . . . íslenzkur rithöf- undur getur ekki lifað án þess að vera síihugsandi um hinar gömlu bækur“, segir hann1. Og nú kem- ur skeið, er hann sökkvir sér nið- ur í fornsögurnar. í fslandsklukk- unni eru áhrif þessa greinileg, bæði í stíl og mannlýsingum. Hér eæ ekki um nei/na stælingu að ræða, klukkan á sinn eigin róm, þótt hljómbotninn sé forn. í Ljós- víkingnum hafði á köflum verið breiður frásagharstíll, margorðar lýsingar, frjálsleg mælska. Nú verður þetta allt knappara, fáir, skýrir drættir, stuttar setningar, meitluð og hittin tilsvör, — sagnastíllinn forni endurskapaður á öðru sviði, með nýjum svip. En um fram allt er hér um að ræða Steingrímur J. Þorsteihsson, prófessor: HALLDOR KIUAN LAXNESS OS FORNSÖGURNAR úr kaþólsku. Það mælti mín móð ir og Ólafur liljurós eru mínir fyrstu lærdómar. Sex vetra gam- all sat ég á rúmstokki hennar, prjónaði illeppa handa kettinum og nam undraverða hluti úr fom eskju. (20—23). Þetta skrifar Halldór eitthvað tuttugu og tveggja ára í ófullgerðri skáldsögu, Heiman ég fór, sem var eitt af drögunum að fyrstu mildu skáldsögu hans, Vefaranum mikla frá Kasmír. Þessi gömlu frumdrög að söguupphafi birti hann fyrir réttum áratug, 1952, fyrir fortölur nokkurra vina sinna. Þarna er að finna ýmislega vitneskju frá þeim tíma, er Hall- dóri varð ljós köllun sín, þetta er, eins og hann segir, „sjálfsmynd úr æsku, dichtung und wahrheit æskumanns um gelgjuár sín fram til seytján ára aldurs" (6), — en seytján ára gaf hann út fyrstu skáldsögu sína. En jafnframt því, sem amman verður honum tákn alls þess já- kvæða og góða, alls þess lífsgild- is, sem hann hefur þegið af þjóð legum menningarerfðum, þá rís hann hér með hneykslunarmóði æskunnar til uppreisnar gegn lifs hugsjón og list fornbókmennta pkkar. Það stendur skrifað að menn- íng forfeðranna eigi að vera leiðarljós sonanna. . . . En má ég spyrja: Hvað vitnar um hnignun þjóðernis, ef ekki það að leita einkenna sinna mörg hundruð ár aftur í tímann, að skreyta sig með nátthúfum lángafanna? Hvað ljósara merki um skort á nýum lífsstraumum en að apa liðna tíð? Hvað er að vera tröll og daga uppi, ef ekki það? Fortíðarstátið er ellimerki, en meðan maðurinn minkast sín fyrir fortíð sína, þá er hann á .eginum fram, og svo er um þjóðirnar .... En mér er spurn: Hvar er menníng forfeðranna og hvar dygðir . . . Eru þeir ekki stór- menni gullaldarinnar, sem vask- astir vóru til manndrápa? . . . . Er ekki endirinn á öllum fslend íngasögum sá að Njáll er brend- ur? . . . Því færi betur að „hinar fornu ættir“ gætu gleymst og týnst hugum fslendinga fyrir Ijómanum af dáðum nýrrar kyn- slóðar, sem lifir! (63—65). Um fornsögurnar segir hann: Ég fyrir mitt leyti hef ekki haft öllu óskemmtilegra rit milli handa en Heimskrínglu eftir Snorra Sturluson. . . . Maria Grubbe eftir J. P. Jakobsen er miklu betra rit en Njála, þar höndlar miklu dýpri og listrænni andi efni og form. (65—66). Sagnastíllinn forni finnst Hall- dóri á þessu skeiði tilbreytingar- laus, stirðlegur, barnalegur. Það má vel vera sem sumir halda fram, að mál hafi ekki ver- ið skrifað betur né talað hér á landi en í fornöld meðan íslend- íngar enn voru hálfgildíngs Norð menn, og hafi farið hrakandi eft- ir því sem Íslendíngar tóku á sig meiri sérþjóðareinkenni. . . . . . . Má vera að málið sé full- gott, en það er að minsta kosti ekki betra en ónnur mál. kanski ekki verra heldur.... Mál er svo fremi gott að einhver fái rit- að á því snildarverk. Og ættir vorar því aðeins göfugar að vor eigin öld ali mikilmenni. (66— 68). Vitaskuld má ekki taka of há- tíðlega það, sem ungur höfundur skrifar í ófullgerðu handriti, sem hann ætlaði aldrei til útgáfu. En hér birtist okkur þó draumurinn um íslenzkan nútímsrthöfund, sem verði mikill af sjálfum sér, án þess að þurfa að njóta frægðar þessara sílofsungnu fornbók- mennta. Ljóst má að minnsta kosti vera, að það var sízt neinn ákafur þjóðernis- eða fornaldardýrkandi, sem hálfþrítugur birti auðugt og ólmt sköpunarmagn sitt í Vefaran um mikla frá Kasmír eða kom fram um þrítugt sem fullþroska rithöfundur með Sölku Völku. Á næsta áratug kom út Sjálf- stætt fólk og Ljósvíkingurinn (Heimsljós), — sagan um skáld- snillinginn, sem komst aldrei til þroska, sú saga, sem hefur til að bera einhverja mestu skáldskapar- töfra af verkum Halldórs. Með hverri sögu eða sagnabálki kemur fram ný tegund eða tilbrigði stíls. persónulega stílþróun höfundar, sem í aðaldráttum stefnir að því að gera frásagnarhátt og tilsvör samanþjappaðri og hnitmiðaðri. Þetta kann að eiga síður við um næstu skáldsögu hans, Atómstöð- ina. Þar er stíllinn aftur léttari, hraðari og fjörlegrí til samræmis við efnið, Reykjavík við lok síðari heimsstyrjaldar. Þar sem þarna er fjallað um ýmis hitamál samtím- ans af nokkrum móði, mætti kann- ske ætla, að þetta væri flausturs- verk. En með því að forvitnast inn í skáldsmiðju höfundar, eins og Peter Hallberg hefur gert manna mest og bezt, verður nokkuð ann- að uppi á teningnum. Kiljan vann nærfellt tvö ár að þessari tiltölu- lega stuttu sögu. Fyrst dregur hann í fáum dráttum upp grind- ina í sögunni, sem hann styðst síðan við í aðalatriðum. Þá koma fjöguj mismunandi heildarhand- rit. í hinu fyrsta þeirra hefur hann skrifað athugasemdir eins og þessar: „Þessi kap. falli alveg nið- 1 Minnisgreinar um fornsögur; Sjálfsagðir hlutir, 9. 8 T í M I N N, miðvikudagur 25. aprfl~1962| ;

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.