Tíminn - 28.04.1962, Qupperneq 15

Tíminn - 28.04.1962, Qupperneq 15
r Rætf vsS Þárarinii Kr. Eldjárn HTainhdi'i -■ K -'iiH. Þessi mál bæði eru því í deigl unni. Sumum hefur því virzt líklegasta leiðin að reyna að leysa þessi vandamál á einu bretti meg sameiginlegri bygg ingu á skólalóðnn, og mór er engin launung á, að ég er einn í þeim hópi, er hyggilegt telur að kanna þessa leið. Aðr ir sjá á þes-su svo mikil tor- merki, að naumast þurfi um að ræða. Þannig standa þessi mál í dag. Hvað úr ræðst er með öllu óvíst, heldur engin vissa fyrir að við heimamenn höf- um fullt vald á að ákveða hver leiðin verður valin. — Eyfirðingar hafa tekið mjög myndarlega og með góff- um árajngri á nautgripamálum — og Svarfdælingar vafalaust átt gó'ðan hlut að því? — Já, þeir hafa lengi haft mikinn áhuga á þeim málum, og samtök um nautgriparækt eru mjög gömul í Svarfaðar- dal og höfðu borig mikinn og góðan árangur, áður en síð- ustu áfangar með samtökum héraðsbúa komu til. —Þú hefur tekið mikinn þátt í kaupfélaigsmálum. Hvað hefurðu setið lengi í stjórn KEA? — 20 ár. — Og hve lengi stjórnnar- formaðúr? —Tíu ár. En svo vildi ég ekki vera það lengur og baðst eindregið undan endurkosn- ingu síðast. Það má ekki skilja það svo, að ég sé eitthvag deig ari í samvinnumálum en áður — þau eru og verða mín hjart ans mál, og ég tel kaupfélög- in mestu lyftistöng til betra lífs, — en ég taldi það skyldu mína að vera ekki fyrir yngri mönnum þar lengur. Öll gró- andi félagssamtök verða að endurnýja sig jafnt og þétt eins og kynslóðirnar — það verða hinir eldri að hafa í huga. — Hvort telur þú betra að vera bóndi nú, en þegar þú byrjaðir fyrir hálfr öld, Þór- arinn? — Ja, menn verða líklega undrandi á svarinu. Eg held, að það hafi verið betra ag vera bóndi áður. Mönnum finnst þetta líklega fjarstæða, benda á allar framfarirnar, vélarnar, ræktunina, húsakynnin. En svona er þetta samt i mínum augum, auðvitað borið saman vig aðrar stéttir. Eg held, að lífskjör annarra hafi batnað meira en bænda á þessum tíma. Áður var stritið mikið tekjur litlar og lítið um trygg ingar. En heimilin voru miklu fjölmennari, þar hvíldi ekki allt á einum, eins og nú á sér víðast stað. Bændur voru frjáls ari en aðrar stéttir, óháðari og áttu fleiri kosta völ. Nú eru húsin betri, túnin stærri, vél- arnar fleiri, búin stærri og tekjurnar meiri — en samt eru bændur bundnari en áður og ófrjálsari til athafna en aðrar stéttir. Búið hvílir allt á bónd anum einum og fámennri fjöl skyldu hans. Hann getur ekki frá því vikið, og jafnvel þótt hann vilji skipta um starf og stöðu, er hann oftast bundinn -í báða skó sem þræll. Oft og einatt á hánn engan vísan til þess ag taka við búi, kaupa jörð og bú, svo að hann fái greiðslu fyrir margra ára störf og geti lagt þann skerf sem grundvöll að nýju lífi á öðrum stað. Þeir eru ófáir íslenzkir bændur, sem orðið hafa að hverfa frá jörð og búi, láta svo að segja allt eftir íiggja verðlaust og verða svo að byrja mcð tvær hendur tómar á nýjum stað. Þó að menn vilji helzt halda áfram ag búa á jörð sinni, reka meinleg örlög og atvik menn ærið oft til um skipta, svo að menn eiga ekki annars kost en fara. Það er ekki örvandi fyrir menn að hefja búskap og leggja hart að sér við umbætur, ef mestar líkur eru til þess ag verða að skilja meginhluta þess eftir verðlaust og fá engin laun fyr ir margra ára strit, ef nauður rekur menn til þess að flytj ast brott. Það er þetta öryggisleysi, sem er versti klafinn á íslenzk um bændum núna, þessi ó- vissa, þessi hætta, að þegar einhver bóndi gefst upp eðá verður ag flytja, þá tæki eng inn við, og að bóndinn geti ekki flutt með sér margra ára erfiðislaun sér og fjölskyldu sinni til líftryggingar í nýjum stað. Og einhvern veginn verð ur að bæta svo um, ag bænda hjón geti vikið sér frá búi til mannfunda og félagsstarfa. — Þú leggur þá mesta á- herzlu á að bæta öryggismál bændanna? — Já, mér finnst þag brýn- asta verkefnið núna, mér finst líf liggja við að setja hömlur við þróun, sem er mjög hættu leg — áður en það er um sein an. Mér finnst bændur yfir leitt vera uggandi þrátt fyrir sæmilega efnahagsafkomu, hræddir við óvissuna, daprir og áhyggjufullir — og það er öryggisleySið, sem því veldur. Ráðin til úrbóta liggja ef til vill ekki á lausu, en ég held, að það nauðsynlegasta liggi þó í augum uppi. Bændur verða ag geta feng ið miklu rýmri aðgang ag lán utn til bústofnskaupa og betri lánakjör. Þeir verða líka að fá tryggingu fyrir því, að þeir geti losnag við og fengið verð fyrir jarðir, bústofn og um- bætur, þegar lífið beinir leið þeirra á aðrar brautir. Þeir verða að losna vig klafann, sem bindur þá. Vegir bónd- ans — eins og annarra stétta — verða að vera færir, hvort sem hann vill reisa bú, taka við búi og jörð, halda áfram búskap eða hætta og hverfa að öðru. Það er þetta lífsfrelsi og lífsöryggi, sem þjóðfélagið reynir að búa borgurunum, og flestar stéttir hafa öðlazt á seinni áratugum, en þróunin hefur verið bændum öfugsnú- in í þessu. Það er ekki aðeins nauðsyn bænda, heldur þjóð- félagsins alls, ag bændastétt- in búi við þetta valfrelsi til lífs og starfa — því aðeins verður búskapur girnilegur og afköst og framfarir í réttu hlut falli við dugnag og framtak bóndans. Það verður einnig að finna rág til þess að gera ein- býlingshjónum með börn lífið frjálsara, og meg samtökum og réttum aðgerðum er það hægt. Þetta sagði Þórarinn Kr. Eld járn, bóndi á Tjörn — og hann sagði raunar margt fleira. — Mundu ekki ýmsir taka undir með honum um það, hvar skór inn kreppir helzt að bændum núna? Hér talar maður sem búið hefur og lifað í góðu sam félagi við stéttarbræður sína í góðri sveit í hálfa öld. mað- ur, sem í senn hefur tekið eft (ir því, sem er ag gerast, og 1 hugsað um það af gerhygli. Landbúnaðurinn er engin smá stoð í íslenzkri býggingu, og mér finnst ástæða til ag fleiri en bændur veiti orðum hans athygli. — AK Framhald af 7 síðu. 30 manns, e3a sem svarar þriSjungi af fjölgun starfs- manna gjaldeyrisbankanna síðan hún var lögS niSur. ÖFUGMÆLASKÁLDIN í ríkis- stjórninni segjast alltaf vera að lækka skatta af tekjum manna, en þó hækka skatttekjur ríkis- sjóðs um mörg hundruð millj. króna á ári. Hvernig má þetta ske? Jú, vissulega eru þeir greiddir af tekjum, er falla ekki sem regn úr gufuhvolfinu. Ráð- herrarnir nefna auðvitað aldrei þessa staðreynd, enda tilheyrir hún ekki öfugmælaskáldskap. Fyrir nokkrum árum var með fullu samþykki allra lögð niður skömmtunarskrifstofan, sem stjórn Stefáns Jóhanns setti á laggirnar 1947. f sambandi við það skeði atvik, sem tilheyrir öfugmælaskáldskap. Húsnæði skrifstofunnar, sem var mjög gott og í nýju húsi, var með leigu samningi bundið í leigu hjá rík- inu nokkur ár eftir að skrifstof an hætti að starfa. Leigukjörin voru mjög hagstæð og langt um hagstæðari en kostur var á, er skrifstofan hætti að starfa, erida var leigusamningurinn nokkurra ára gamall. Nokkrar rikisskrif- stofur voru á þessum tíma í hús næðisvandræðum og óskuðu að fá húsnæði skömmtunarskrifstof unnar til afnota. En í stað þess að leyfa það, var hinn hagstæði leigusamningur framseldur einka fyrirtæki og Ieigt annað húsnæði fyrir hinar húsnæðislausu ríkis- skrifstofur og urðu þær að greiða allt að helmingi hærri leigu en ef þær hefðu gengið inn í leigusamninginn um húsnæði skömmtunarskrifstofunnar. Ástæðan fyrir þessari ráðdeild var sú, að viðkomandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins vildi tíunda sem sparnað allan kostnaðinn við skömmtunarskrifstofuna, en taldi ;’þá áðstöðu skerta og skáldskap- inn um sparnaðinn hljóma verr ef húsnæði skrifstofunnar væri áfram í leigu hjá ríkinu. Kostn aðurinn var sem sé ekki aðalat- riðið, heldur aðstaðan til að aug lýsa sparnað. EINU SINNI starfaði hér bif- reiðaeinkasala ríkisins. Er hún var lögð niður stóð svo á, að hún átti lager af nýkeyptum hjólbörð um er skipti milljónum að verð- mæti. Lagerinn var í leiguhús- næði, hjólbarðarnir skammtaðir og afhentir af Iagernum gegn skömmtunarseðlum. Tveir menn önnuðust þá afhendingu. Viðkom andi ráðherra Sjálfstæðisflokks- ins var bent á, að hagkvæmast væri fyrir ríkissjóð að selja all- an lagerinn til notenda. Kostnað urinn við slíkt væri laun tveggja afgreiðslumanna takmarkaðan tíma, en verzlunarálagningin á hjólbarðana greiddi ekki aðeins þann kostnað og allan éður út- lagðan kostnað við öflun vörunn ar, heldur skilaði hún veruleg- um hreinum hagnaði. Ekki þóttu þetta góð ráð. Ráð herra ákvað að lagerinn skyldi afhentur einkafyrirtækjum á inn flutningsverði þegar í stað. Ríkið tæki að sjálfsögðu á sig kostnað inn við að losna við húsnæðið og starfsmennina. Síðan sagðist við komandi ráðherra hafa fækkað opinberum starfsmönnum og spar að ríkinu veruleg útgjöld með umræddri ráðstöfun. Þannig mætti fleira telja í sam bandi við sparnaðarskáldskap í- haldssamra ráðherra, bæði sjálf stæðismanna og núverandi vara- | liðsmanna þcirra, en slíkt má 1 líka bíða þar til næsti kvartett verður sunginn af fjármálaráð- herra með undirleik viðskipta- málaráðherra. Eitt atriði er þó rétt að benda á strax, sem öllum ætti raunar að vera Ijóst. Sé auðið að spara helming kostnaðar, eða meira, við eina stofnun með skipulagsbreytingu einni, þá hefur þeirri stofnun ekki verið vel stjórnað. Hafi nú t.d. Innfl.skrifst. verið það illa stjórnað, að spara megi 3 millj- ónir króna á ári með því að flytja störf hennar í bankana og ráðuneytin, þá hlýtur bönkunum og ráðuneytunum að vera mun betur stjórnað. Nú er það stað- reynd, að margir bankastjórar hafa stjórnað þeirri stofnun, er síðast bar nafnið „Innflutnings- skrifstofa“ og þrír eða fjórir af núverandi ráðuneytisstjórum hafa verið forstjórar þeirrar stofnunar. Er þetta ekki enn sönnun fyrir því, að þriggja milljón króna sparnaðurinn og hin illa stjórn á Innfl.skrifstof- unni sé hreinn öfugmælaskáld- skapur, gerður til að blekkja og leyna eyðslu. „Gott er að hafa gler í skó þá gengið er í kletta“. K. Finnska sfjarnan (Framhaia al ö. síðu) í Reykjavík skoðuðU ferða- langarnir allt hið markverð- asta, sem ferðamenn yfirleitt skoða, en það sem vakti at- hygli Noru, var litli torfbær- inn á Grímsstaðaholtinu. Slíkt hús hafði hún aldrei séð áður. Alltaf snjór í Esjunni Þegar hún stóð stuttu síðar uppi á Öskjuhlíð og horfði út yfir bæinn og fjöllin í kring, spurði hún, hvort alltaf væri snjór í Esjunni. En henni var sagt. að svo væri nú ekki, heldur aðeins á veturna. Henni þótti feiki gaman að sjá fjöll, þau hafði hún aldrei séð áður, því í Finnlandi er fátt um fjöll- Eftir dauða móður Noru á- kvað finnska þjóðleikhúsið að gangast fyrir fjársöfnun fyr- ir þær systur. Fjársöfnunis gekk mjög vel, og hefur þeim nú verið séð fyrir nógu fé, til þess að þær geti kostað sig í skóla. Eldri systurnar tvær búa í heimavist fyrir stúlkur, en prófessor Bitauno Pyökári og kona hans hafa tekið Noru að sér. Hjónin eru barnlaus. en þau þau hafa hið mesta yndi af Noru. Áður en Nora lagði upp í þessa miklu ferð sína til Bandaríkjanna, sögðu þau henni að hún yrði að hvíla sig vel á hverjum degi, og hún mætti ekki fara að hátta seinna en kl. 9. Þegar blaða- mennirnir spurðu hana svo við brottförina frá Helsing- fors, hvað hún hyggðist nú helzt gera í New York, sagð- ist hún ætla að fara í leik- hús, verzla, já, og svo yrði hún víst að vera á hótelinu og hvíla sig, eins og hún hafði lofað. Sirkku, sem er hennar dyggur förunautur og her- bergisfélagi í ferðinni, sagði, að ómögulegt væri að fá hana til þess að fara að hátta, hún væri svo full af lífsgleði og krafti. Svo vaknaði hún eld- snemma á morgnana og vildi alls ekki sofa lengur. Fólk horfir á hana. Og hvernig líður Noru sú, eftir að hafa leikið 65 sinn- um í Undrinu og eftir að vera orðin fræg kvikmynda- stjarna að auki? Það eina, sem henni líkar ekki, að sögn Sirkku, er, að fólk er alltaf að horfa á hana alls staðar, þar sem hún kemur. Á fimmtudagskvöldið átti Nora og förunautar hennar að fara í Þjóðleikhúsið í boði þjóðleikhússtjóra og horfa þar á „My Fair Lady“, en héð- an var svo ætlunin að fara skömmu eftir miðnætti áleið- is til New York, þar sem hún fær að sjá Undrið í hinni bandarísku útgáfu og sömu- leiðis kvikmyndina, sem ver- ið er að gera eftir leikritinu. Ætlunin var að hún hitti einnig Hellen Keller, en óvíst er, hvort af því getur orðið sökum veikinda Hellenar. F. Bæjarbókasafnið (Framhald af 16. síðu). f gestabók skráðu nöfn sín 5941 karlmaður og Í903 konur, alls 7844, og er það 1325 körlum og 32 konum fleira en áður, eða 1357 alls. Á lesstofuna var lánuð úr bókageymslum 4828 bindi og er þag 527 bindum meira en 1960. Skiptust bindin þannig eftir flokkum: Blöð 367, tímarit og safnrit 467, bækur um heimspeki leg efni 104, um trúarbrögð 94, um félagsfræði og þjóðtrú 792, um landafræði og ferðir 197, um náttúrufræði 187, um hagnýt efni 376, um listir og íþróttir 108, um bókmenntir og sálfræði 685, sagn fræðirit 818 og skáldrit 624 bindi. Á aðalsafninu voru lánaðar út bækur eftir 701 íslenzkan höfund og fara hér á eftir nöfn þeirra, sem lánug voru út eftir 300 bindi og þar yfir: bindi. 1. Ármann Kr. Einarsson 1494 2. Ragnheiður Jónsdóttir 1424 3l Kristmann Guðmundssop 1351 4. Halldór Kiljan Laxness 1294 5. Guðrún Árnad. frá Lundi 1283 6. Guðmundur G. Hagalín 1062 7. Þórbergur Þórðarson 922 8. Örn Klói 901 9. Elínborg Lárusdóttir 886 Í0. Stefán Jónsson 702 11. Ingibjörg Sigurðardóttir 674 12. Jón Björnsson 554 13. Gunnar M. Magnúss 549 14. Þórunn Elfa Magnúsd. 531 15. Guðmundur Daníelssoon 484 16. Stefán Júlíusson 466 17. Oscar Clausen 1 462 18. Gils Guðmundsson 459 19. Jón Mýrdal 456 20. Jón Helgason 444 21. Jensína Jensdóttir (Jenna og Hreiðar) ' 424 22. Hendrik J. Ottósson 423 23. Gunnar Gunnarsson 420 24. Böðvar Guðjónsson 367 25. Jón Svein'sson (Nonni) 364 26. Jón Thorarensen 327 Um síðustu áramót var bóka- eign safnsíns 77.288 bindi, þar af eru 43.916 skáldrit og 33.372 í öðrum flokkum. Safnig eipnaðist á árinu 6.780 bindi, og er það 500 bindum fleira en árið áður. Tekjur Dagtekjusjóðs námu á árinu 119.023.00 kr., eða 36.449,00 kr. meira en 1960. Hjartkær móölr mfn, Kristín KHstjánsson, andaðist I Winnipeg 24. þessa mánaðar. Fyrir hönd ættingja og vina Ósk Kristjánsson. T I M I N N, laugardaginn 28. apríl 1962. 15

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.