Tíminn - 16.05.1962, Side 1

Tíminn - 16.05.1962, Side 1
. ' j i ’ FOLKID VELUR B LISTANN <$> Fólk er beðið að athuga, að kvöldsími blaðamanna er 1 8 3 0 3 110. tbl. — MiSvikudagur 16. maí 1962 — 46. árg. SÖLUBÖRN Afgreiðslan í Banka- stræti 7 opnuð kl. 7 alla virka daga tti íhalds og komma! Bæði Morgunblaðið og Þjóðviljinn hafa lýst því yfir undanfarið í skrifum sínum. að íhaldið og kommúnistar eigi aðeins einn sameiginlegan óvin, Eystein Jónsson og Framsóknarflokkinn. Á máli kommúnista heitir þetta tengsl við Revkjavíkurauðvaldið, en á máli íhaldsins samsæri með kommúnistum. Þjóðviljinn segir 3. nóvember 1961: „Ofstækisfullir hægri foringjar Framsóknar eru reiðubúnir til að fóma allri vinstri samvinnu og vinstri stjórn fyrir tengslin við útlenda auShringa og ReykjavíkurauðvaldiS. Eysteinn Jóns- son er sá maðurinn, sem opinskáast hefur að þessu unnið og mestur óhappamaður orðig vinstri samvinnu á íslandi". Morgunblaðið segir 13. maí 1962: „Eysteinn Jónsson tók tilboði kommúnista fegins hendi. Hann fyrirskipaði fullkomið samstarf við þá á öllum sviðum. Og þegar hálfu ári síðar gátu kommúnistar sagt með stolti: „Framsóknarmenn stóðu sig vel“ . . . . og „þóttu lofa góðu““. Það er auðséð á þessum taugaveiklunarskrifum, að bæði eru skæðin góð og báðir, íhaldið og kommúnistar, eru haldnir miklum ótta, ekki hvor við annan, því að þeir lifa hvor á öðrum og þrífast bezt hlið við hlið, heldur óttast þeir mest eflingu frjálslynds, umbótasinnaðs lýðræðisflokks, sem vinnur gegn öfgum auðmagns og kommúnisma. Þess vegna æpa málgögn öfgaflokkanna ýmist „samsæri með kommúnistum" eða „of- stækisfullir hægri foringjar". ÁFRAM HÚSAVÍK 0G Eins og kunnugt er af fréttum hafa verkalýðs- félögin á Akureyri og Húsavík auglýst nýja kauptaksta og jíifnframt að þeir muni taka í gildi í dag. Samkvæmt fréttum að norðan í gær heldur vinna áfram á báðum þess um stöðum. Bæjarráð Akureyrar hélt fund um málið í fyrradag, en honum var síðan frestag þar til í gær. Á fundinum í gær kom fram tillaga frá fulltrúa stjómarflokkanna, Braga Sigurjónssyni þar sem kveð ið var á um það, að bærinn mót- mælti hinum nýja taxta og teldi sig ekki skuldbundinn af honum. Tillaga þessi var samþykkt með þremur atkvæðum fulltrúa Sjálf- stæðisfl.’iksins og Alþýðuflokksins gegn tveimur atkvæðum Framsókn arflokksins og Alþýðubandalags- ins. Tíminn telur sig hafa öruggar heimildir fyrir því, að samninga- viðræður hefjist í dag nyrðra. Vinnuveitendasamband Akureyr ar, en í því eru atvinnurekendur staðarins, aðrir en Samvinnufélög in, sat á fundi fram á kvöld í gær, og lauk þeim fundi með því, að samþykkt var að senda Verkalýðs- félagi Akureyrarkaupstaðar bréf, þar sem félaginu er skýrt frá því, að vinnuveitendasambandið telji sig ekki bundið af auglýstum taxta. f hinum auglýstu kauptöxtum eru felldir niður þrír launaflokk ar, sem áður höfðu tímakaup i dagvinnu 22,47, 23,22 og 23,58, og jaf’nast allir í einn flokk, sem fær kr. 25 á tímann í dagvinnu, 40 í eftirvinnu og 50 í næturvinnu og helgidagavinnu. Það lætur nærri, ag hækkun í lægstu launa flokkunum sé 5—6% fyrir utan þau 4%, sem til framkvæmda áttu að koma frá 1. júní n.k. en i þeim hæstu um 1%. „MER ÞOTTI MJOG YÆNT UM 11 EINAR OLGEIRSSON SEGIR FRÁ „DÁ- LITLU, SEM HANN ÁTTI VIÐ SJÁLF- STÆÐISFLOKKINN AÐ SÆLBA" SUM ARIÐ 1958. Morgunblaðið hefur und- anfarið verið að birta glefs- ur úr leyniskjölum, sem það telur sig hafa náð frá Sósíal istaflokknum. Enga glefsu hefur blaðið þó enn birt úr skjölum þessum um sam- starf Sjálfstæðisf lokksins og kommúnista sumarið 1958, þegar þeir beittu sér sam- eiginlega fyrir kauphækk- unum, sem höfðu það tak- mark að fella vinstri stjórn- ina. Tíminn getur líka tekið þetta ómak af Mbl. með því að birta eftirfarandi kafla úr þingræðu, sem Einar Olgeirsson hélt 15. desem- ber 1960: „Ég átti einu sinni dálítið saman við Sjálfstæðisflokk- inn að sælda þetta sumar (þ.e. sumarið 1958). Það er í raun og veru mjög skemmtilegt upprifjunar, fyrst hæstv. forsætisráð- herra (Ólafur Thórs) kemur nú með fyrirspurn. Sjálf- stæðisflokkurinn studdi á- kveðnar launakröfur, sem almenningur var með þá, og virtist ekki sjá nein vand- kvæði á, að ríkisstjórnin og þjóðarbúið gæti vel orðið við þeim launakröfum og ég var sömu skoðunar. Ég áleit, að þjóðarbúið gæti vel borgað launakröfurnar og mér þótti mjög vænt um, að Sjálfstæðisf lokkurinn væri þessarar sömu skoðunar, og ég vona, að það hafi ekki verið nein hræsni hjá Sjálf- stæðisflokknum. Ég vona, að hann hafi ekki verið að stuðla neitt að því að setja þjóðarbúið á höfuðið, og ég vona, að þeir menn úr Al- þýðuflokknum, sem stóðu þá með því, að launahækk- anir væru mjög nauðsyn- legar, hafi verið þeirrar skoðunar, að þjóðarbúið bæri þetta vel." Sú samvinna Sjálfstæðis- manna og Einars Olgeirs- sonar heppnaðist, að koma fram kauphækkunum sum- arið 1958 .Rétt á eftir settu svo Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn lög, þar sem þessar kauphækk- anir voru teknar aftur af launþegum. Þá var Sjálf- stæðisflokkurinn búinn að ná þeim árangri af samvinn- unni við Einar að fella EINAR OLGEIRSSON — „ég vona að hann (SjálfstæSis- flokkurinn) hafi ekki veriS neltt aS stuSla aS því aS setja þjóSarbúiS é höfuSiS." vinstri stjórnina, og gat þvi byrjað að þjarma að laun- þegum. Um þetta og annað samstarf Sjáfstæðisflokks- ins og kommúnista, er nán- ar rætt á 7. síðu blaðsins í dag. KROSSFERDIR SJÁLFSTÆOISFLOKKSINS GEGN KOMMUNISTUM - SJA BLS. 7

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.