Tíminn - 16.05.1962, Blaðsíða 9

Tíminn - 16.05.1962, Blaðsíða 9
Við vorum tilbúin að leggja af stað frá Addis Abeba 10. marz. En bið varð á að vörubíll kristniboðs- ins, sem við áttum að fara með. skilaði sér úr flutningaferð til stöðva suður í landi. Þegar hann loksins kom, þurfti að fara með hann á verkstæði, og reyndist vera mikið verk að gera við hann. Það gefur nokkra hugmynd um, hve vegir eru slæmir þar syðra, að grindin á bílnum var sundur á tveim stöðum. Á fleiri stöðum var byrjandi bilun á henni, en bíllinn er þó ekki nema tveggja ára gam- all óg byggður fyrir vegleysur. Hinn 23. marz lögðum við af stað frá Addis Abeba. Ferðin s jður til Irgalem gekk greiðlega, (360 km eftir góðum akvegi). Þar þurfti að umstafla á bílnum og fór nokk- ur tími í það. Á öðrum degi, um kvöldið, ókum við til Agere Selam til þess að stytta okkur næsta á- fanga til Neghelli. Okkur var sagt, að skemmri leiðin (vestan vátn- anna um Gama Gófa) væri ófær sökum bleytu. Við kusum því að fara um Neghelli, þótt sú leið sé um það bil 300 km lengri. Við urðum sein fyrir og urðum að vekja upp í Agere Selam. — Snemma morguns daginn eftir var aftur lagt af stað. Við höfðum ekki lengi ekið, þegar fór að sjóða á bílnum. Var þá bætt vatni á hann. En það stoðaði lítið, og varð æ skemmra á milli þess, að upp úr syði. Svo vel vildi til, að við rák- umst á vatnsból. Voru þá öll ílát fyllt aftur. Oft var stanzað til þess að fylla á kælinn, og þegar myrkr- ið skall á, var ekki um annað að gera en að gista í smáþorpi einu, 70 km frá Neghelli. Fór allvel um okkur á litlu gistihúsi, enda höfð- um við með okkur eigin rúmföt. Næsta morgun var gert við lek- ann á kælikerfinu með vír og tusk- um, og vorum við komin til Neg- helli um hádegi. Daginn eftir var viðgerð á bíln- um haldið áfram, og urðum við ekki ferðbúin fyrr en kl. 5 síðdeg- is. Ætlun okkar var að komast til lögreglustöðvar um 90 km frá Neg- helli, og stytta okkur næsta áfanga. Bílstjórinn sagðist mundi verða a. m.k. 16 klst. til Javelló. Hægt væri að aka sleitulaust það lengi, ef ekki væri drepandi hiti eins og nú Ekki höfðum við ekið nema 2—3 km, þegar við uppgötvuðum, að eitthvað var í ólagi i mismunadrif inu. Við þorðum ekki að hætta á að halda lengra án þess að gá að, hvað að væri. Milli Neghelli og Javelló er að mestu leyti óbyggð og vatnsból fá og vandfundin. Við snerum því aftur til Neghelli. Kom Hópur íbúa i Ethiópíu í þorpi í heimkynnum sínum. Stúlka af Galla-kynstofni, búin miklu skrauti að hætti þjóðflokks síns Samband íslenzkra kristni. boðsfélaga, er i samvinnu við Norðmenn um rekstur sjúkra- húss, sem þeir hafa nýlega reist hjá Gidole-þjóðflokknum, 50 km frá Konsó. Hafa ís- lendingar lagt til nokkuð af útbúnaði og lækninn, en hann hefur jafnframt eftirlit með sjúkraskýlinu i Konsó og heilsufar! krlstniboðanna þar. — Birtist hér þáttur úr einka- bréfi frá honum. Eftir að hafa unnið á sjúkra húsi í Irgalem eitt ár, og ver. ið síðan á málanámskeiði í höfuðstaðnum, Addis Abeba, skrifar Jóhannes læknir Ól- afsson frá Gidole eftirfarandi bréf, hinn 22. f.m. Hann og fjölskylda hans voru, þá ný- komin þangað. — Jóhannes Ólafsson, kristníboðslæknir: Tafsöm ferð um furðuland þá í ljós, að við mundum verða að senda mann norður til Addis Ab- eba eftir varahlut i bílinn. Eg varð manninum samferða þangað, með því að ég hafði verið beðinn að mæta á fundi í Irgalem 10. til 11. apríl til ráðagerða um sjúkrahússmál Áslaug og Ólafur (kona og son- ur Jóhannesar) urðu eftir í Neg- helli. Biðu þau þess þar í viku, að gert væri við bílinn. Hinn 4. apríl var haldið af stað áleiðis til Javelló, og ekið allan daginn til kl. hálf tólf um kvöldið. Allra hluta vegna lá á að komast sem fyrst suður úr. Vegir voru enn þurrir, en búizt við rigningu þá og þegar, og að vegir lokuðust á skömmum tíma. Gististaður var þarna enginn í óbyggðinni. Áslaug og Ólafur Árni voru í stýrishúsinu um nóttina, en varð ekki svefn- samt. Bílstjórarnir sváfu vært uppi á hlassinu. Til Javelló var komið daginn eftir um hádegi. Það var ausandi rigning og útlit slæmt fyrir næsta dag. Áslaugu var ráðlagt að verða eftir á norsku kristniboðsstöðinni og bíða mín þar, en hún kaus heldur að halda áfram mef bílnum áleiðis til Konsó. Frá því ferðalagi get ég ekki sagt annað en það, að það tók tvo sólarhringa (160 km leið) og báðar næturnar voru þau úti undir berum himni. Tjaldið okkar var ofarlega á bílnum og var það sett'uiS). Það skýldi vel fyrir rign- ingúnríi og mýinu, sem er mikil plága á þessum stöðum. Þetta ferðalag hafði orðið bíl- stjóranum ákaflega erfitt. Lang- mestur tími fór í að moka aur, milli þess að hægt var að aka spöl í senn. I Konsó gistu þau eina nótt. Þá var haldið af stað til Gidole. Enn rigndi og bíllinn festist hvað eftir annað. Loks festist hann svo, að honum varð ekki hnikað, í á einni 15 km frá Konsó, en 35 km frá Gidole. Hann sökk þar í sandi og aur. í átökunum við að ná honum upp, brotnaði annað afturhjólið, svo að kúluliður og annað innvols var óvarið. Nú var ekki um annað að gera fyrir farþegana en að snúa aftur til Konsó fótgangandi. Annar bíl- stjórinn bar Ólaf Árna, Áslaug tróð aurinn berfætt, af því að eng- ir skór tolldu á fótunum. Héraðsstjórinn í Konsó hafði fengið vitneskju um, að bíll kristni boðsins stæði fastur í ánni. Þar sem hann lá undir skemmdum og allt, sem á honum var, bauðst hér- aðsstjórinn til að safna liði til þess að draga bílinn upp úr ánni, og gerði hann það. Um hundrað manns fóru, en þeim tókst ekki að mjaka bílnum. Hlassið var tekið af honum og sett á árbakkann. Þá var tekin í notkun krafttalíi, til- heyrandi bílnum, henni fest í tré á árbakkanum og tókst þá að draga bílinn upp á þurrt land. Meðan þessu fór fram, var ég nokkra daga í Addis Abeba. Síðan sat ég fundinn í Irgalem. Suður til Gidole ók ég vesturleiðina (vestan vatna um Gama Gófa) á tveim dög um. Vegir voru þurrir, en eru svo grýttir og brattir víða, að stórir vöruflutningabílar fara þá ekki. Fyrsta verk mitt var að sækja Ás- laugu og Ólaf Árna til Konsó. Síð- an sótti ég flutninginn á Landrov- er bíl, sem enn stóð á árbakkanum, og ók honum í sjö ferðum (35 km leið afar krókótt. og brött upp á Gidolehálendið. Varð keyrslan því alls um 490 km). — Við erum nú að mestu leyti búin að koma okkur fyrir. Við þökkum Drottni, sem hefur leitt okkur gegnum erfiðleika heil á húfi hingað. Hér bíður mikið starf. Aldrei hafa tækifæri til kristni- boðs verið meiri í þessu landi en nú. Hvílir á okkur mikil áþyrgð, sem köllun höfum til að nota þau. — Á páskadagsmorgun hlustuð- um við á Dagfinn Hauge, biskup í Tönsberg (í Noregi). Predikun hans var útvarpað. Hann lagði út af fyrstu Ijóðlínu páskasálms, sem mikið er sunginn í Noregi: „Paaske morgen slukker sorgen“. — Við munum ekki fara varhluta af mót- læti og erfiðleikum, en við höfum örugga von um sigur, af því að Jes- ús hefur sigrað fyrir okkur, — sagði biskupinn. Jóhannes Ólafsson. MINNING: Vörubíllinn situr fastur í botnleðju árinnar, sem er í töluverðum vexti. Framhald et 8 síðu í blóma lífsins, litu margir Fram sóknarmenn til hans hýru auga, sem þingmannsefnis, en þar sem aldrei skortir menn til slíkra hlut verka, fer valið ærið oft að öðrum leiðum en hæfiléikanna. Hervald var mjög vel metinn maður. en fyrst og fremst sem skólastjóri. Allir sögðu hann ágæt an kennara, en þó mun hann hafa verið enn meiri stjórnandi og æskulýðsleiðtogi. Mannvinátta sú, sem hann var gæddur, leiddi hann til skilnings á því, að hæfileikar einstaklinganna eru margþættir og uppeldisáhrifin á heimilunum margs konar, nemendahópnum hentar því ekki hið sama i öllum atriðum. í þessum vanda kom Hervald til leiðsagnar hið sama og öllum samviskusömum kennur um, ástúð til nemendanna og hinu einlægi áhugi fyrir velferð heild- arinnar Þessir mannkostir leiddu hinn hlýja, látna barnavini furðu örugglega eftir hinum þröngu stig um hins holla uppeldis og að því þroskamarki. sem hverjum ein- staklingi er áskapað. Þetta mikla hlutverk kennarans rækti Hervald Björnsson af állri þeirri trú- mennsku og hæfileikum, sem hann sjálfur var gæddur. Við vin ir hans og félagar minnumst lát- ins góðs drengs með virðingu og hlýjum huga. Kona Hervalds, Guðríður Sig- urðardóttir, sjómanns Sigurðsson ar á Akranesi og konu hans, Hall dóru Vigfúsdóttur, lifir mann sinn og er búsett í Reykjavík. Þau eignuðust einn son, en misstu hann á öðru ári. Fyrir nokkrum árum kenndi Hervald heilsubrests sem ekki varð læknaður. Hinztu kveðju minni til vinar og félaga fylgir þakklæti fyrir hálfrar ald ar vináttu og skemmtifundi. Guð- ríði, ekkju Hervalds, flyt ég ein- læga samúð, kæra kveðju og þakk læti fyrir liðin ár. Bjarni Bjarnasson Laugarvatni riMINN, miðvikudaginn 16. maí 1962 9

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.